Morgunblaðið - 02.04.2004, Qupperneq 31
DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. APRÍL 2004 31
Bæjarlind 12, Kópavogi, sími 544 2222.
www.feminin.is
Opið virka daga kl. 11-18, lau. kl. 10-16.
Mikið úrval af
DOMINIQUE vörum
Ídag er oft talað um hvað hlut-irnir hafa breyst frá því að égog pabbi þinn fæddumst. Í þá
daga voru ekki sjálfsagðir hlutir til
eins og Pampers-bleiur, þurrkari,
pelahitari eða eitthvað álíka. Mæður
voru uppteknar allan daginn við að
sjóða taubleiur og
strauja. Í dag felst
stærsta breyt-
ingin í fæðing-
arorlofinu en
nú geta bæði
mæður og feð-
ur tekið orlof. „Ég fór að
vinna þegar þú varst þriggja vikna,“
sagði mamma t.d. eitt sinn við mig
og mér krossbrá. Þriggja vikna?
Svona var þetta bara þá, eins og
mamma bætti við.
Pabbi þinn fær þrjá orlofsmánuði
og þann þriðja mun hann taka þegar
þú verður sex mánaða. Fyrstu tvo
mánuðina áttum við því alveg sam-
an. Margar vinkonur mínar þekkja
þetta sameiginlega frí ekki þó þær
eigi tiltölulega ung börn. „Að hugsa
sér, pabbar bara með í ungbarna-
skoðun?“ sagði ein vinkona mín til
dæmis eitt kvöldið þegar við sátum
saman fjórar stöllur og kjöftuðum.
„Já, já,“ sagði ég, „ég þekki t.d. ekk-
ert annað en að við séum bæði hérna
heima með barnið og gerum þar af
leiðandi allt saman sem þarf að gera
í kringum hana. Að vera svona bæði
heima er yndislegt og í raun alveg
sjálfsögð mannréttindi. Fyrir pabba
þinn er þetta líka nýtt, enda var
þetta kerfi ekki komið á þegar systk-
ini þín fæddust. Ég held þetta geri
það að verkum að pabbi þinn hefur
strax tengst þér á nánari og annan
hátt en ella. Hann er líka strax far-
inn að tala um að segja upp á sjónum
og fara að vinna hér í landi, vera
meira heima eins og hann segir. Ég
held að þú eigir stóran þátt í þeirri
ákvörðun.
DAGBÓK MÓÐUR
Pabbinn
vill vera
meira
heima
Meira á þriðjudag.
KAFFIMEISTARINN Sonja Grant gaf Daglegu lífi uppskriftir að tveimur
kaffidrykkjum, einum heitum og öðrum köldum. Cappuccino segir hún að sé
aðalsmerki kaffihúsa Kaffitárs og Eldur Azteka er einnig fáanlegur, en hann
er í senn svalandi og þó nokkuð sterkur.
Cappuccino
Lítið espressóskot (30 ml)
G-mjólk
Espressóskotið þarf að vera kröft-
ugt með þykkri kaffifroðu. Mjólkin á
að vera freydd þannig að hún verði
silkimjúk. Þegar mjólkinni er hellt
út í espressóbollann samlagast
mjólk, froða og kaffi þannig að þegar
fyrsti sopinn er tekinn er bragðið un-
aðslegt af þrenningunni. Borið fram
í 150–180 ml bolla og ekki spillir fyrir
ef cappuccino-inn er með fallegri
mjólkurlist ofan á.
Eldur Azteka
Lítill espressó (30 ml)
1 tsk hrásykur
1 tsk saxað ferskt engifer
4 dropar tabaskósósa
½ tsk límónubörkur
20 ml óþeyttur rjómi
20 ml nýmjólk
ísmolar
Kaffi og hrásykur kælt með ísmol-
um í hristara og hellt í glas. Í annan
hristara er settur afgangurinn af
uppskriftinni með klaka og hrist
rösklega. Bætt í glasið með klaka og
skreytt með límónuberki.
Kaffidrykkir
Morgunblaðið/Ásdís
Eldur Azteka: Svalandi og sterkur.
Góður kaffibarþjónn kann ákaffiblönduna sína, veit umuppruna kaffisins, þekkir
bragð, er tæknilega fær um að nota
kaffiþjöppuna, kann að stilla kvörn-
ina og getur búið til hinn fullkomna
espressókaffidrykk. Og eftir þrjú ár í
starfi á góður kaffibarþjónn að geta
orðið heimsmeistari,“ sagði Sonja
Grant, framkvæmdastjóri kaffihúsa
Kaffitárs.
Sonja er nýkomin frá Japan og er á
leiðinni til Rússlands til að þjálfa upp
dómara og dæma í landskeppnum
kaffibarþjóna fyrir árlegt heims-
meistaramót, sem að þessu sinni
verður haldið í ítölsku borginni
Trieste í júní.
Sonja er borinn og barnfæddur
Akureyringur, en fluttist suður til
Reykjavíkur 17 ára gömul til að læra
húsasmíði við Iðnskólann í Reykja-
vík. Hún lauk náminu og vann við
húsasmíðar í fimm ár, en hætti í þeim
bransa fyrir rúmum níu árum er
kaffibransinn tók yfir eftir að hún
hafði ratað inn til Aðalheiðar Héðins-
dóttur, eiganda Kaffitárs. „Þá rak
Kaffitár aðeins eitt agnarsmátt kaffi-
hús í Kringlunni við hliðina á Ríkinu.
Annað kaffihús var opnað í Banka-
stræti fyrir sex árum og stærra kaffi-
hús í Kringlunni fyrir fjórum árum.
Þriðja kaffihúsið er svo rekið í nýju
kaffibrennslunni á Suðurnesjum og í
bígerð er að opna fjórða kaffihúsið í
Leifsstöð í sumarbyrjun. Sem fram-
kvæmdastjóri kaffihúsanna flakka ég
á milli og þjálfa upp kaffibarþjónana
okkar.
Þeir þurfa að ganga í gegnum
nokkuð mikla þjálfun, sem tekur að
lágmarki tvo mánuði. Menn byrja í
uppvaskinu og tileinka sér kaffi-
fræðin. Af nógu er að taka því við
framleiðum yfir fjörutíu kaffiteg-
undir. Það er hins vegar ekkert far-
ið að huga að því að kenna þeim að
búa til kaffi fyrr en eftir mánaðartíma
eða svo, en segja má að lokahnykk-
urinn í þjálfuninni sé sjálfur sopinn.
Þá er lærlingum kennt að búa til
espressódrykkina, sem heita ýmsum
nöfnum.“
Tvisvar silfurverðlaun
Sonja segir að mikið vatn hafi
runnið til sjávar í kaffimenningu Ís-
lendinga á undanförnum fimm árum
og svo virðist sem ný starfsstétt kaffi-
barþjóna sé að verða til á Íslandi. Þá
hefur að sama skapi tekist að blása
nýju lífi í stétt kaffibarþjóna um víða
veröld með heimsmeistarakeppni
kaffibarþjóna, World Barista Cham-
pionship, sem fyrst var efnt til í
Monte Carlo árið 2000. Í þeim fjórum
heimsmeistarakeppnum, sem að baki
eru, hafa Íslendingar tvívegis fengið
silfurverðlaun, í Monte Carlo árið
2000 og í Boston árið 2003. Alla ís-
lensku fulltrúana, sem þátt hafa tekið
á heimsmeistaramótum, hefur Sonja
séð um að þjálfa og hafa þeir allir
starfað hjá Kaffitári. Stefnt er að því
að íslenska landskeppnin fari fram í
Smáralind 15.–17. apríl. Keppendur
verða að líkindum rúmlega tuttugu
talsins, en hvert kaffihús má senda
tvo fulltrúa í keppnina. Þótt aðeins
einn verði krýndur sigurvegari kom-
ast sex kaffibarþjónar í úrslit og
mynda landslið Íslands í heimsmeist-
arakeppninni. „Einn Íslandsmeistari
getur ekkert á heimsmeistaramóti
nema hafa sveit á bak við sig því
stuðningurinn skiptir gífurlegu máli.“
Bjó til leikreglur
Þar sem Norðurlöndin þykja
standa nokkuð framarlega í kaffi-
menningunni hefur Sonja ásamt
starfsfélögum á Norð-
urlöndum dregist inn í skipu-
lagningu heimsmeistaramóts-
ins auk fulltrúa frá
Bandaríkjunum og Ástr-
alíu. „Persónulega hafði
ég sérstakan áhuga á
dómarahlutnum, en ég
hafði allnokkra innsýn í
alþjóðleg dómarastörf í
gegnum pabba minn, Ein-
ar Örn Grant, sem ferðast
um heiminn og dæmir um
frammistöðu íslenska hestsins
á mótum hér og þar. Ég fór að
leika mér við að búa til alls konar leik-
reglur, sem nýst gætu við dómstörf í
alþjóðlegum kaffibarþjónakeppnum,
notaði fyrirmyndir úr hestaíþrótt-
unum og bætti svo við aðferðum við
að þjálfa upp dómara. Eitt hefur leitt
af öðru og á heimsmeistaramótinu í
fyrra var í fyrsta skipti sett upp al-
vöru löggildingarnámskeið fyrir 24
dómara hvaðanæva úr heiminum.
“Sonja hefur nýlega skrifað undir
samning við Specialty Coffee
Association of Europe um að sjá um
þjálfun dómara fyrir næsta heims-
meistaramót, en enginn dómari getur
fengið löggildingu nema í eitt ár í
senn þar sem keppnin tekur sífelld-
um breytingum.
Hjarta kaffibarþjónsins
Þegar Sonja er spurð hvaða þátta
kaffidómarinn horfi til þegar hann
situr í dómarasætinu svarar hún að
horft sé til ástríðu kaffibarþjóna ekki
síður en tækninnar. „Við erum að-
allega í því að dæma störf kaffibar-
þjóna, sem vinna við svokallaðar
espressóvélar. Kaffiþjappan er hjarta
kaffibarþjónsins og hana þarf að nota
rétt. Þjappa þarf jafnt í greipina en
ekki skakkt, því þá færðu ekki út úr
kaffinu það sem til er ætlast. Grunn-
urinn að góðum espressókaffidrykk
er fyrst og fremst góður espressó
með þykkri og góðri kaffifroðu, en
það er einmitt froðan sem heldur
kaffinu saman. Um leið og dreypt er á
sopanum á bæði ilmurinn, bragðið og
öll einkenni kaffisins að vera undir
froðunni. Góður espressó fær mig til
að fá fiðring í magann.“
KAFFIBARÞJÓNN| Ástríða og tækni lykilatriði við blöndunina
Fær fiðring af góðum espressó
Morgunblaðið/Ásdís
Kaffidómarinn: Sonja segir góðan kaffibarþjón kunna vel á þjöppuna sína.
Hjarta kaffibarþjónsins: „Hvort
sem maður fer út á land eða út í
heim, þarf þarfaþingið þjappan
ávallt að fylgja. Ég geymi mína í
snyrtiveskinu því hana skil ég aldr-
ei við mig,“ segir Sonja.
join@mbl.is
Húsasmiðurinn og kaffibarþjónninn Sonja
Grant er orðin alþjóðlegur kaffidómari.
Sonja, sem er framkvæmdastjóri kaffihúsa
Kaffitárs, sagði Jóhönnu Ingvarsdóttur að
hún hefði í vaxandi mæli tekið að sér dóm-
arastörf í kaffibarkeppnum víða um heim.
Cappuccino: Drykkurinn
er aðalsmerki Kaffitárs.