Morgunblaðið - 02.04.2004, Side 49
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. APRÍL 2004 49
✝ Eyþór Bjarna-son fæddist á
Grímsstöðum í Lýt-
ingsstaðahreppi 27.
maí 1926. Hann lést
á Landspítalanum í
Fossvogi fimmtu-
daginn 25. mars síð-
astliðinn. Foreldrar
hans voru Kristín
Sigríður Sveinsdótt-
ir húsfreyja, f. 13.
janúar 1885, d. 13.
janúar 1965 og
Bjarni Kristmunds-
son bóndi, f. 2. maí
1889, d. 24. júní
1954. Þau eignuðust 15 börn og
var Eyþór næst yngstur. Látin
eru Gíslína, Páll, Ingibjörg, Sig-
ríður, Guðmundur, Sveinn, Emil,
Pétur og Aðalsteinn. Systkini
Eyþórs, sem eru á lífi eru Elín
Baldvina húsmóðir í Reykjavík,
f. 20. júní 1915, Baldvin, f. 29.
ágúst 1916, búsettur á Húsavík,
Kristmundur fræðimaður á
Sjávarborg í Skagafirði, f. 10.
janúar 1919, Sólborg Indíana
húsmóðir á Sauðárkróki, f. 28.
nóvember 1923 og Sólveig Stef-
anía húsmóðir á Akureyri, f. 30.
mars 1925.
Eiginkona Eyþórs var Guðrún
Sveinsdóttir verslunarkona, f.
28. október 1927, d. 8. júní 1992.
Þau skildu. Þau eignuðust þrjá
syni, þeir eru: 1) Sveinn Ágúst
afgreiðslustjóri, f. 21. desember
1952, kona hans er Hafdís Egg-
ertsdóttir sjúkraliði
og eiga þau tvö
börn, 2) Birgir Rún-
ar deildarstjóri, f.
17. júní 1955, kona
hans er Birna Ríkey
Stefánsdóttir
starfsstúlka og eiga
þau þrjú börn og 3)
Gunnar Þór Ey-
þórsson sjómaður,
f. 24. febrúar 1960
og hann á fjórar
dætur. Langafa-
börn Eyþórs eru 6.
Seinni kona Ey-
þórs er Helga Pét-
ursdóttir sjúkraliði, f. 7. október
1932. Fyrri maður hennar var
Bjarni Sigurður Jóhannsson
vörubílstjóri, f. 26. mars 1920, d.
10. október 1974. Þau eignuðust
fimm börn.
Eyþór fór frá Grímsstöðum
1944 til Reykjavíkur. Fyrsta ár-
ið sitt hér syðra vann hann á
Kleppsspítalabúinu í Syðra-
Langholti við Langholtsveg.
Hann vann ýmis störf á sínum
starfsferli, hjá Mjólkursamsöl-
unni, í Vélsmiðju, var sendibíl-
stjóri, baðvörður í Sundhöll
Reykjavíkur. Árið 1987 tók Ey-
þór við húsvarðarstarfi í Lang-
holtsskóla og var þar til vorsins
1995, og lauk þar sínum starfs-
ferli 69 ára.
Eyþór verður jarðsunginn frá
Háteigskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.30.
Elsku afi.
Það er ótrúlegt að þú skulir vera
farinn frá okkur, en það sem eftir
situr eru góðar minningar um þig
sem við geymum í hjörtum okkar.
Minningarnar úr barnæsku þegar
þú og Helga bjugguð í Langholts-
skóla, þá vissum við frændsystkinin
fátt skemmtilegra en að koma til
ykkar í heimsókn og fara í kaðlana í
leikfimissalnum, jólaföndrið og að
ógleymdum eftirlitsferðum að kvöld-
lagi um skólann sem var toppurinn á
tilverunni.
Alltaf fannst þér jafn gaman að fá
barnabörnin og langafabörnin til þín
og það var alltaf soldið skondið að þú
varst farinn að plana næstu heim-
sókn okkar til þín áður en við löbb-
uðum útúr dyrunum til að fullvissa
þig um að við kæmum alveg örugg-
lega fljótt aftur.
Við vitum að þér líður vel þar sem
þú ert núna og getur fylgst með okk-
ur öllum. Okkur langar að kveðja
þig með nokkrum orðum og þökkum
fyrir allar góðu samverustundirnar
og minningarnar í gegnum tíðina.
Allt eins og blómstrið eina
upp vex á sléttri grund
fagurt með frjóvgun hreina
fyrst um dags morgunstund,
á snöggu augabragði
af skorið verður fljótt
lit og blöð niður lagði
líf mannlegt endar skjótt.
Ég lifi’ í Jesú nafni,
í Jesú nafni’ eg dey,
þó heilsa’ og líf mér hafni,
hræðist ég dauðann ei.
Dauði, ég óttast eigi
afl þitt né valdið gilt,
í Kristí krafti’ eg segi.
Kom þú sæll, þá þú vilt.
(Hallgrímur Pétursson.)
Elsku Helga, guð veri með þér og
veiti þér styrk í þessari erfiðu sorg.
Guðrún Huld, Hildur
og Hafdís.
Elsku afi.
Ég vil þakka þér fyrir allar sam-
verustundirnar sem við áttum, mér
þykir það leitt að hafa ekki náð að
kveðja þig. Nú, á svona stundum,
reikar hugurinn til baka. Minningar
skjóta upp kollinum. Það er gott að
eiga þær. Þó að minningar frá þeim
tíma sem við bjuggum saman í Skip-
holtinu séu ekki í fersku minni tel ég
þær samverustundir vera það sem
tengdi okkur saman. Það var alltaf
eitthvert spes samband á milli okk-
ar. Þú dekraðir við mig. Heimsóknir
mínar til ykkar Helgu á yngri árum
voru svo notalegar. Mér leið svo vel
hjá ykkur. Föndur og spæjaraleikir í
Langholtsskóla eru góðar minning-
ar sem ég á. Það var svo sérstakt að
eiga afa sem átti Langholtsskóla, bjó
þar og vann sitt starf þar. Að vera
krakki og fá að fara með afa sínum í
eftirlitsferðir um dularfulla skóla-
ganga var algjört ævintýri. Svo er
það annað sem mér finnst svo gott
að minnast. Þú minntir mig á það í
hvert sinn sem við hittumst að ég
kæmi allt of sjaldan í heimsókn, en
ég sá líka alltaf glottið sem fylgdi
þessum athugasemdum þínum. En
það að þú skyldir alltaf minna á þig
veitti mér staðfestingu á því að ég og
mín fjölskylda værum alltaf jafn vel-
komin til ykkar í Skipholtið.
Það er erfitt að útskýra fyrir
Kristófer Daða hvert þú hafir farið,
en ég reyni eftir bestu getu að út-
skýra það fyrir honum.
Elsku afi minn, ég kveð þig nú og
þakka fyrir þann tíma sem við höfð-
um saman.
Kæra Helga, þér vil ég þakka fyr-
ir að hugsa svona vel um hann afa
minn, Guð gefi þér styrk til að tak-
ast á við sorgina. Pabba mínum og
öðrum ástvinum sendi ég samúðar-
kveðjur.
Sjáumst síðar, afi minn. Þín
Ásta.
Föðurbróðir minn Eyþór Bjarna-
son lést 25. marz síðastliðinn. Eyþór
var fæddur á Grímsstöðum í Svart-
árdal, Skagafirði, 27. maí 1926 og
ólst þar upp, hann var yngstur af 13
systkinum sem upp komust.
Það má segja að faðir minn og Ey-
þór hafi notið nokkurra forréttinda í
systkinahópnum, að alast upp hjá
foreldrum sínum því mörg systkin-
anna þurftu að fara til vandalausra.
En vafalaust hefur vinnudagurinn
hjá þeim sem heima voru ekki síður
verið bæði langur og strangur. Þeir
bræður voru samrýmdir og brölluðu
margt saman, t.d. fóru þeir á sínum
fyrstu árum í Reykjavík að æfa box
en þar þótti Eyþór mjög efnilegur
þótt lágvaxinn væri, bæði eldsnögg-
ur og harðskeyttur.
Ég man fyrst eftir Eyþóri sem
ungur drengur, þegar hann og fyrri
kona hans, Guðrún Sveinsdóttir,
komu með strákana sína í heimsókn
í sveitina og voru með fótbolta með-
ferðis en svoleiðis leikfang hafði ég
nú aldrei áður séð. Við strákarnir
fórum í boltaleik á hlaðinu með mikl-
um tilburðum, en þeir bræður Ey-
þór og Sveinn stóðu álengdar og
horfðu á og barst boltinn til þeirra.
Eyþór tók þá boltann og spyrnti
honum í himinhæðir, langt yfir íbúð-
arhúsið og gat ég ekki ímyndað mér
að nokkur annar maður gæti fram-
kvæmt slíka spyrnu og kann það að
vera rétt.
Þegar faðir minn átti í sínum veik-
indum var það honum mikils virði að
eiga þau að, Eyþór og hans góðu
konu Helgu Pétursdóttur, enda var
honum ekki í kot vísað hjá þeim.
Ég minnist með þakklæti okkar
kynna og hlýrra móttakna sem fjöl-
skylda mín fékk ævinlega í Skipholt-
inu. Ég veit að skarð það sem Eyþór
skilur eftir sig verður ekki fyllt, en
minningin lifir. Votta ég fjölskyldu
hans mína dýpstu samúð.
Hvíl þú í friði frændi.
Kári Sveinsson.
Eyþór móðurbróðir minn er látinn
77 ára að aldri. Hann var næstyngst-
ur 15 systkina þeirra hjóna Krist-
inar Sveinsdóttur og Bjarna Krist-
mundssonar, sem bjuggu í
Skagafirði á bæjunum Reykjum,
Grímsstöðum og Hafragili á árunum
1914 til 1952. Eyþór ólst því upp í
stórum systkinahópi en flutti síðan
til Reykjavíkur. Í mínum uppvexti
var mikill samgangur milli heimila
móður minnar, Sigríðar systur
hennar og Eyþórs. Eyþór var mikið
fyrir börn og þótti honum gaman að
fylgjast með litlu systrabörnunum
sínum og það var Eyþór frændi sem
gaf mér fyrsta hjólið mitt. Seinna
þegar ég varð eldri og mig vantaði
sumarvinnu, þá hafði hann alltaf ein-
hver úrræði.
Eyþór var lágvaxinn maður,
hress, skapstór og sagði skoðanir
sínar umbúðalaust á mönnum og
málefnum. Það hjálpaði honum í lífs-
baráttunni sem oft var hörð en hann
gat samt glaðst yfir velgengni ann-
arra og var alltaf reiðubúinn að
hjálpa ef hann gat komið því við. Ey-
þór var sívinnandi og í mörg ár var
hann suðumaður hjá Stálvík. Hann
þótti mjög laghentur og byggði að
mestu leyti íbúð sína í Skipholtinu
sjálfur og þegar komið var að mér að
byggja þá hafði hann mikinn áhuga
á að allt gengi sem best.
Árið 1981 greindist Eyþór með
kransæðaþrengsli. Það var ljóst að
hann þyrfi að fara í aðgerð. Á þeim
tíma var ekki byrjað að framkvæma
kransæðaaðgerðir á Íslandi. Það var
því ákveðið að fara til Bandaríkj-
anna og varð Cleveland Clinic fyrir
valinu. Tveir aðrir Íslengingar bætt-
ust í hópinn og gengu aðgerðirnar
vel hjá þeim öllum. Eyþór hélt
áfram að vinna eftir aðgerðina en
fékk sér léttari vinnu og var síðast
húsvörður í Langholtsskóla.
Að leiðarlokum langar mig til að
þakka fyrir samfylgdina og alla hug-
ulsemina gegnum árin. Ég votta
allri fjölskyldunni samúð mína.
Blessuð sé minning Eyþórs
Bjarnasonar.
Kristinn Jóhannsson
EYÞÓR
BJARNASON
AFMÆLIS- og minningar-
greinum má skila í tölvupósti
(netfangið er minning@mbl.is,
svar er sent sjálfvirkt um leið
og grein hefur borist) eða á
disklingi. Ef greinin er á disk-
lingi þarf útprentun að fylgja.
Nauðsynlegt er að tilgreina
símanúmer höfundar og/eða
sendanda (vinnusíma og heima-
síma). Ekki er tekið við hand-
skrifuðum greinum.
Um hvern látinn einstakling
birtist ein aðalgrein af hæfi-
legri lengd á útfarardegi, en
aðrar greinar séu um 300 orð
eða 1.500 slög (með bilum) en
það eru um 50 línur í blaðinu
(17 dálksentimetrar).
Frágangur
afmælis-
og minning-
argreina
ÚTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA
Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is
REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST
Önnumst alla þætti útfararinnar
Þegar andlát ber að höndum
Arnór L. Pálsson
framkvæmdastjóri
Ísleifur Jónsson
útfararstjóri
Frímann Andrésson
útfararþjónusta
Svafar Magnússon
útfararþjónusta
Hugrún Jónsdóttir
útfararþjónusta
Guðmundur Baldvinsson
útfararþjónusta
Halldór Ólafsson
útfararþjónusta
Ellert Ingason
útfararþjónusta
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem auðsýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
elskulegs föður okkar, tengdaföður, afa og
langafa,
HOLGERS P. GÍSLASONAR
rafvirkjameistara.
Gísli Holgersson, Ida Christiansen,
Sæmundur Holgersson, Guðbjörg Guðmundsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
ELÍNBORG SIGURÐARDÓTTIR
lést á kabbameinsdeild Landspítalans við
Hringbraut fimmtudaginn 1. apríl.
Ingvar Ágústsson,
Sigurður Ingvarsson,
Kristinn Ingvarsson
og barnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir
og afi,
BJARNI ÁRSÆLSSON
bóndi í Bakkakoti
á Rangárvöllum,
verður jarðsunginn frá Akureyjarkirkju, Vestur-
Landeyjum, laugardaginn 3. apríl kl. 14.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Sigríður Ólafsdóttir.
HERDÍS ERLENDSDÓTTIR
frá Kálfatjörn,
er látin.
Ólafur Erlendsson,
Linda Rós Michaelsdóttir,
Friðrik H. Ólafsson.