Morgunblaðið - 02.04.2004, Qupperneq 53
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. APRÍL 2004 53
HÁMENNTAÐUR listfræðingur,
Björn Th. Björnsson, sendir mér al-
þingismanninum aðeins með mennt-
un úr farmannadeild Stýrimanna-
skólans – en góða
menntun úr skóla lífs-
ins, sérkennilegar
kveðjur í Morg-
unblaðinu þann 29.
mars sl. þar sem hann
telur mig merkjafíkil
og skemmdarverka-
mann.
Huglæg sannindi
Björns, þ.e. hann tekur
meira mið af eigin hug-
myndum og kenndum
en ytri veruleika, lýsa
sér best þar sem hann
virðist ekki hafa lesið
þingsályktunartillögur
14 alþingismanna um þjóðfána Ís-
lendinga í þingsal Alþingis, sem lagt
var fram enn og aftur á yfirstand-
andi þingi, hvar ég er fyrsti flutn-
ingsmaður.
Þjóðfáninn skipi
veglegan sess í þingsal
Þannig var þess sérstaklega getið í
þingsályktunartillögunni um stað-
setningu fánans. Listfræðingurinn,
Björn Th., skrifar svo í fyrrnefndri
grein. „Loks tók þó að fullu steininn
úr, þegar einn kjörinna þingmanna á
Alþingi lagði til að fáninn yrði látinn
drúpa yfir ræðustól sjálfs forseta Al-
þingis, rétt eins og þingmenn gætu
ekki munað í hvaða landi þeir væru
staddir.“
Ja, hvílík smán, þjóðfáninn sýni-
legur í æðstu stjórnsýslu og bara
fyrir alþingismenn til að átta sig á að
þeir séu staddir á Íslandi.
Að fáninn drúpi yfir forseta Al-
þingis er engum nema listfræðingi
huglæg sannindi. Í annars ágætum
sjónvarpsþáttum listfræðingsins um
Íslendinga í Danmörku, hér áður og
fyrr, mátti oft sjá danska fánann
blakta við hún, það hefur verið list-
fræðingnum mikið lán og staðfesta
hvar í heiminum hann var staddur.
Hjákátlegri sunnudagar
Listfræðingurinn var sumarstrákur
í sveit og þótti hálfkátlegt að sjá al-
múgann klæðast sparifötum á
sunnudögum. Karlarnir þá upphafs-
menn „merkjafíklanna“ af því þeir
báru títuprjónsnælda miða, kringl-
ótta eða þríhyrnda, á boðungum
svörtu jakkanna.
En svo liðu árin og gráklæddir
karlar alla daga vikunnar, leiðandi
ljós öreiganna og alþýðunnar í
Austri með heiðurspeninga framan á
sér sem brjóstvörn væri, voru alls
ekki kátlegir, ekki einu sinni hálf-
kátlegir.
Og kröfuganga al-
þýðunnar á Íslandi 1.
maí var ekki tengd
neinum merkjafíklum,
nei, þar voru fánar
stéttarfélaganna, fátt
um þjóðfána Íslend-
inga en mest bar þar á
Rauðum fánum.
Nú vilja þeir sömu
merkjafíklar …
Í grein listfræðingsins
segir: „Svo sem oft ger-
ist í huglægri brenglun
manna, snýst áráttan
gegn sjálfri sér. Slíkt
hefur og gerst hér. Nú vilja þeir
sömu merkjafíklar ólmir losna við
þetta sögulega tákn af frambrún Al-
þingishússins (skjöld Kristjáns kon-
ungs Íslendinga hins IX og kórónu),
rýja það upprunalegri ásýnd sinni og
falsa með því þjóðarsöguna.“
Á 117. löggjafarþingi 1993 flutti
Stefán Guðmundsson alþingismaður
þingsályktunartillögu um uppsetn-
ingu skjaldarmerkis lýðveldisins á
eða við Alþingishúsið. Í greinargerð
með tillögunni segir Stefán m.a.
„Með flutningi þessarar tillögu er
ekki lagt til að fjarlægja merki
Kristjáns níunda af Alþingishúsinu.
Hér er gerð tillaga um að hinu form-
fagra skjaldarmerki, tákni lýðveld-
isins Íslands, verði komið upp á eða
við Alþingishúsið og tengt á þann
hátt betur en nú þingi og þjóð.“
Ólesinn listfræðingur
Það er dapurt þegar hámenntaður
listfræðingur, og ætla má vel lesinn,
skuli ólesinn um þingsályktun-
artillögu um þjóðfána í þingsal Al-
þingis en geysast fram á ritvöllinn
með staðlausa stafi og vænir mig um
ástand „fíkils“. Jafnframt að draga
upp 11 ára gamla þingsályktun-
artillögu um skjaldarmerkið og
tengja þessi tvö mál þeirri hættu að
Alþingi og þjóðin þurfi að verjast
misindismönnum sem vilji skjöld
Kristjáns IX og kórónu af framhlið
Alþingishússins og að þjóðfáninn
drúpi yfir ræðustól „sjálfs“ forseta
Alþingis. Það er alvarleg aðdróttun
lærðs manns að leggja til mín í skrif-
uðum texta sem fíkils. Ég á aðeins
eitt svar við tilskrifum þínum, Björn
Th. Björnsson, með tilvísun til þess
sem ég hef hér að framan ritað. Ég
hlýt að beina þínum orðum til föð-
urhúsanna hvar þú segir í grein
þinni; „svo sem oft gerist í huglægri
brenglun manna, snýst áráttan gegn
sjálfri sér“.
Huglæg sannindi
Björns Th. Björnssonar
Guðmundur Hallvarðsson
svarar Birni Th. Björnssyni ’Það er alvarleg að-dróttun lærðs manns að
leggja til mín í skrif-
uðum texta sem fíkils.‘
Guðmundur
Hallvarðsson
Höfundur er alþingismaður.
ATVINNA mbl.is
Sendum til fyrirtækja
í hádeginu • Magnafsláttur
Upplýsingar í síma
552 2028 og 552 2607
www.graennkostur.is
Síur og hreinsiefni
í potta og sundlaugar
Skeifan 2 - 108 Reykjavík - S. 530 5900
poulsen@poulsen.is - www.poulsen.is
www.lyfja.is
Skrefi framar
Sokkar, sokkabuxur, undirföt
www.sokkar.is
Sumarvörurnar
komnar
OROBLU ráðgjafi verður í
dag kl. 14-18 í Lyfju
Spönginni og Smáratorgi.
Á morgun kl. 13-17
í Lyfju Smáralind.
Sokkabuxur fylgja
öllum Oroblu vörum
sem kaupauki.