Morgunblaðið - 02.04.2004, Síða 61
Grikklandsfélagið Hellas heldur
árshátíð í Kaffileikhúsinu, Hlað-
varpanum, í dag, föstudaginn 2.
apríl. Á dagskrá verður m.a. atriði
úr leikritinu Plútos eftir Arist-
ófanes í þýðingu Karls Guðmunds-
sonar leikara og í flutningi hans
sjálfs, Ragnheiðar Steindórsdóttur
o.fl.
Aðgangseyrir fyrir matargesti er
kr. 4.000 á mann. Þátttaka tilkynn-
ist til Kristjáns Árnasonar eða
Þórs Jakobssonar.
Frásögn frá Palestínu Í dag,
föstudaginn 2. apríl, verður fundur
á vegum sósíalíska fréttablaðsins
Militant, undir yfirskriftinni „Bar-
átta Palestínumanna fyrir sjálfs-
ákvörðunarrétti í dag – frásögn frá
Vesturbakkanum og Ísrael“. Ög-
mundur Jónsson, félagi í Ungum
sósíalistum, segir frá leiðangri til
Palestínu í byrjun mars sl., m.a.
var farið í flóttamannabúðir við
Jenín og Ramallah o.fl. Einnig
verða sýndar myndir. Fundurinn
verður í Pathfinder-bóksölunni,
Skólavörðustíg 6b og hefst kl.
19.30.
Málþing um ólík sjónarhorn á
velferðarþjónustu. Ís-Forsa, sam-
tök áhugafólks um rannsóknir og
þróunarstarf á sviði félagsráð-
gjafar, halda málþing, í dag, föstu-
daginn 2. apríl n.k. undir yfirskrift-
inni „Fræðastörf í fyrirrúmi.
Tengsl fræða og fags í fé-
lagsráðgjöf “ Málþingið verður
haldið á Grand Hóteli Reykjavík.
Á málþinginu verður fjallað um
niðurstöður rannsókna frá sjón-
arhóli ólíkra aðila sem koma að vel-
ferðar- og heilbrigðisþjónustu á
sviði félagsráðgjafar. Markmiðið er
að skoða hvað sameinar og skilur
að þegar stjórnendur, sjúklingar,
aðstandendur og notendur fá orðið
á þessum vettvangi. Frummæl-
endur eru: Guðrún Kristinsdóttir
prófessor, Margrét Sigurðardóttir,
félagsráðgjafi, Björg Karlsdóttir,
félagsráðgjafi, Guðrún Reykdal,
verkefnastjóri, Sigrún Júlíusdóttir,
prófessor. Málþingið verður haldið
á Grand Hóteli í Reykjavík, föstu-
daginn 2. apríl kl. 13.00 – 16.00.
Málþingið er öllum opið, inngangs-
eyrir er kr. 3.500.
Í DAG
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. APRÍL 2004 61
OD
DI
H
ÖN
N
UN
K
86
71
Í YFIRLÝSINGU frá Persónu-
vernd segir að samtökunum sé
ekki kunnugt um ágreining við lög-
reglu um vörslu gagna um net-
notkun.
Í yfirlýsingunni segir: „Í tilefni
af ummælum Guðmundar Hall-
varðssonar, formanns samgöngu-
nefndar Alþingis, í fréttum Stöðv-
ar 2 í gær þess efnis að
Persónuvernd hefði verið á annarri
skoðun en ríkislögreglustjóri, sem
í umsögn sinni um framvarp til
laga um fjarskipti varaði við laga-
ákvæði um vörslu gagna um net-
notkun, skal það tekið fram að í
umsögn Persónuverndar um sama
frumvarp, dags. 26. febrúar 2003,
var ekki vikið að þessu ákvæði.
Persónuvernd er ekki kunnugt
um ágreining á milli hennar og lög-
reglu varðandi vörslu slíkra gagna.
Persónuvernd telur mikilvægt
að leiðrétta þann misskilning að
ákvæðið banni með öllu varðveislu
gagna um netnotkun. Þar er hins
vegar að finna reglu um að gögn
um fjarskiptaumferð séu ekki
varðveitt lengur en þörf krefur
vegna fjarskiptasendinga og reikn-
ingsgerðar. Persónuvernd hefur
ekki tekið afstöðu til frekari varð-
veislu, s.s. vegna löggæsluhags-
muna.“
Ekki kunnugt um
ágreining við lögreglu
Persónuvernd
VG fundar um Evrópusam-
bandið Vinstri – grænir í Reykja-
vík halda fund á morgun, laug-
ardaginn 3. apríl kl. 13, í húsnæði
VG að Hafnarstræti. Fundarefni
er: Evrópusambandið og íslenskt
félagshyggjufólk. Frummælendur
eru: Drífa Snædal, ritari VG, og
Helgi Hjörvar alþingismaður.
Ganga á vegum SJÁ Sjálf-
boðaliðasamtök um náttúruvernd
efna til síðustu göngu vetrar á
morgun, laugardaginn 3. apríl kl.
11, frá strætisvagnaskýlinu í
Mjódd. Rölt verður innan bæjar í
um 3 klukkustundir.
Páskaeggjaleit Félags sjálf-
stæðismanna í Nes- og Mela-
hverfi verður haldin við grá-
sleppuskúrana á Ægisíðu á
morgun, laugardag 3. apríl, kl. 14.
Börnin koma með körfur og setja í
þær harðsoðin hænuegg sem falin
eru á svæðinu. Þau fá síðan
súkkulaðiegg frá Nóa-Siríusi að
launum. Á svæðinu verða ýmis
leiktæki og keppt verður í húla-
hoppi. Í verðlaun verða páskaegg.
Einnig verður boðið upp á andlits-
málun.
Á MORGUN
Fyrirtækið Saga Heilsa & Spa hefur
fengið viðurkenningu Vinnueftirlits-
ins til að starfa sem ráðgjafafyrirtæki
heilbrigðis- og öryggisþátta á vinnu-
stað. Í fréttatilkynningu sem birtist sl
miðvikudag, var því ranglega farið
með að einungis eitt fyrirtæki hefði
hlotið slíka viðurkenningu. Beðist er
velvirðingar á mistökunum.
Opin æfing á röngum stað
Ekki var greint frá réttri staðsetn-
ingu opinnar æfingar kvennakórsins
Vox Feminae í blaðinu í gær. Rétt er
að kórinn var með opna æfingu í Þjóð-
menningarhúsinu. Beðist er velvirð-
ingar á mistökunum.
Margrét Guðbrandsdóttir
Rangt var farið með föðurnafn
Margrétar Guðbrandsdóttur í frétt
blaðsins í gær af banaslysinu í Akra-
neshöfn á þriðjudag. Beðist er vel-
virðingar á mistökunum.
LEIÐRÉTT
STÆRÐFRÆÐIKEPPNI grunn-
skólanema í Breiðholti var haldin í
sjöunda sinn á sæludögum FB 9.
mars sl. Metþátttaka var, en 241
keppandi mætti til leiks. Flestir komu
úr Ölduselsskóla, en þaðan komu 105
nemendur. Að lokinni keppni fengu
allir keppendu gosdrykki og pitsu-
sneiðar. Verðlaun voru afhent 18.
mars sl. á kennarastofu FB. Peninga-
verðlaun frá Íslandsbanka hf. voru í
verðlaun fyrir efstu þrjá í hverjum
aldursflokki. Sigurvegari í hverjum
aldursflokki fékk grafíska Casio
reiknivél frá Heimilistækjum hf. og
þeir sem voru í 2.–5. sæti fengu Casio
reiknivél. Allir þátttakendur fengu
verðlaunaskjal. Fræðsluráð styrkti
framkvæmd keppninnar auk FB. Um
keppnina sáu stærðfræðikennarar í
FB.
Metþátttaka
í stærð-
fræðikeppni
Verðlaunahafar í 9. bekk. Sólveig Bergs tekur við verðlaunum fyrir Viktor
Orra, Kristín Arnalds, skólameistari FB, Vignir Már Lýðsson, Hrund Er-
lingsdóttir og Halldór Smári Ólafsson. Sigurvegarinn í 9. bekk, Helgi
Durhuus, gat því miður ekki veitt verðlaunum sínum móttöku.
GENGI GJALDMIÐLA
mbl.is