Morgunblaðið - 02.04.2004, Qupperneq 63

Morgunblaðið - 02.04.2004, Qupperneq 63
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. APRÍL 2004 63 DAGBÓK STJÖRNUSPÁ Frances Drake HRÚTUR Afmælisbörn dagsins: Þú ert einlæg/ur og heið- arleg/ur og tilbúin/n að leggja hart að þér til að ná markmiðum þínum. Þú þarft að taka mikilvægar ákvarð- anir á þessu ári. Veldu vel. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Þú ert að velta því fyrir þér hvað skipti þig raunverulegu máli í lífinu. Þú vilt veðja á réttan hest þannig að þú þurfir ekki að líta til baka með eftirsjá. Naut (20. apríl - 20. maí)  Þig langar til að fara í ferða- lag. Þú ert óvenju forvitin/n og það er eins og hugur þinn hlaupi úr einu í annað. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Þú munt að öllum líkindum verða í óvenjugóðum tengslum við innsæi þitt á næstu vikum. Það hentar þér vel að vinna í einrúmi á með- an þetta varir. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Þú ættir að endurskoða af- stöðu þína í ákveðnu máli. Ræddu þau vandamál sem upp koma við vini þína. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Þig langar til að ráðast í ný verkefni sem munu auka þekkingu þína og koma þér vel í starfi. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Sjóndeildarhringur þinn mun víkka á næstu vikum. Þig langar til að kynnast fram- andi slóðum og menningu. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Hversdagslegar samræður, sem láta lítið yfir sér, munu hafa mikil áhrif á þig á næstu vikum. Þú ert alltaf að sjá hlutina í nýju og nýju ljósi. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Þú tekur hlutina ekki eins al- varlega og þú ert vön/vanur að gera og því er þetta góður tími til að jafna deilur við maka þinn og vini. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Þú hefur meiri áhuga á smá- atriðunum en venjulega. Þú vilt hafa allt í röð og reglu í kringum þig. Þetta er því góður tími til að gera áætl- anir í vinnunni. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Ekki reyna að réttlæta gerðir þínar á næstu mánuðum. Stundum þurfum við bara á því að halda að slá öllu upp í kæruleysi og láta okkur fljóta með straumnum. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Þú þarft að fá botn í eitthvað sem gerðist í fortíðinni. Þú vilt fá að vita hið sanna og þarft því að telja foreldra þína á að segja þér satt og rétt frá. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Þú átt annasaman mánuð framundan. Gerðu ráð fyrir að verða mikið á ferðinni og í miklum samskiptum við aðra, sérstaklega systkini þín. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. MANSÖNGUR ÚR NÚMARÍMUM Móðurjörð, hvar maður fæðist, mun hún eigi flestum kær, þar sem ljósið lífi glæðist og lítil sköpun þroska nær? Í fleiri lönd þó fengi drengir forlaganna vaðið sjó, hugurinn þangað þrengist lengi, er þeirra fögur æskan bjó. Mundi eg eigi minnast hinna móðurjarðar tinda há og kærra heim til kynna minna komast hugar flugi á? - - - Sigurður Breiðfjörð LJÓÐABROT ÁRNAÐ HEILLA 70 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 2. apríl, er sjötugur Snorri Edvin Hermannsson, húsasmíða- meistari á Ísafirði. Af því tilefni býður hann ásamt eiginkonu sinni, Auði H. Hagalín, og fjölskyldu þeirra ættingjum, vinum og samstarfsfólki að gleðjast með sér í Frímúrarasalnum á Ísafirði laugardaginn 3. apríl kl. 18. 75 ÁRA afmæli. Ámorgun, laugardag- inn 3. apríl, verður Ragna Þorleifsdóttir hjúkr- unarkona, Álftamýri 39, Reykjavík, 75 ára. Hún heldur upp á daginn í félags- heimili Karlakórs Reykja- víkur, Ými við Skógarhlíð, á milli klukkan 17.00 og 19.00 á afmælisdaginn og biður hún og eiginmaður hennar, Björn Hermannsson, ætt- ingja og vini að samgleðjast með sér. ENGINN áfellist spilara sem lendir í kastþröng – aumingja maðurinn gat ekk- ert við því gert! Oft er málið látið niður falla afsakandi með orðum fórnarlambsins: „Ég var bullandi skvís,“ og hinn raunverulegi sökudólg- ur sleppur úr snörunni – makker. Vestur gefur; allir á hættu. Norður ♠DG7 ♥DG ♦ÁK4 ♣Á10742 Vestur Austur ♠95 ♠Á1043 ♥Á96 ♥10754 ♦DG86 ♦1092 ♣9853 ♣KG Suður ♠K862 ♥K832 ♦753 ♣D6 Vestur Norður Austur Suður Pass 1 lauf * Pass 1 grand Pass 3 grönd Allir pass * Precision, 16+ HP. Spilið er frá fyrstu um- ferð Íslandsmótsins síðast- liðinn föstudag. Vestur byrj- aði vel, kom út með tíguldrottningu. Sagnhafi dúkkaði, en fékk næsta slag á tígulkóng. Hann spilaði spaðadrottningu, sem aust- ur tók strax til að fría tíg- ulinn. Það er fátt um fína drætti og sagnhafi verður að spila hjarta. Vestur valdi að drepa strax og taka fjórða slag varnarinnar á tígul í þessari stöðu: Norður ♠G7 ♥G ♦– ♣Á10742 Vestur Austur ♠9 ♠1043 ♥96 ♥1075 ♦G ♦– ♣9853 ♣KG Suður ♠K86 ♥K83 ♦– ♣D6 Sagnhafi lét lauf úr borði í tígulgosann og austur valdi að henda frá hjartanu, en suður henti laufi. Austur er þvingaður í þremur litum, en vörnin er samt á lífi. Vestur var hins vegar stein- sofandi fyrir vanda makkers og spilaði sér „hlutlaust“ út á hjarta. Sagnhafi átti slag- inn á gosann, tók spaðagosa og fór heim á spaðakóng. Hjartakóngur og -átta fylgdu í kjölfarið og austur kvaldist í annað sinn. Hann henti laufgosa og þegar kóngurinn féll undir ásinn varð tían í laufi að úr- slitaslagurinn. Aumingja austur. Hann lenti tvisvar í þvingun og gat ekkert gert. Við hann var ekki að sakast. En vest- ur gat gert sitt til að bjarga spilinu með því að spila laufi eftir að hafa tekið á tíg- ulgosann. Þá þarf sagnhafi að svína fyrir spaðatíuna til að vinna spilið. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson 1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. b3 e6 4. Bb2 d6 5. d4 cxd4 6. Rxd4 Bd7 7. Rb5 Db8 8. Ba3 d5 9. exd5 De5+ 10. Be2 Bxa3 11. R1xa3 exd5 12. f4 Dxf4 13. Dxd5 Rf6 14. Dd6 Dxd6 15. Rxd6+ Ke7 16. 0–0–0 Hab8 17. Hhe1 Kf8 18. Bc4 Rd8 19. Rab5 a6 20. Rc7 h5 21. Hd2 Hh6 22. a4 Hg6 23. g3 Hg5 Staðan kom upp á alþjóðlegu móti sem lauk fyrir skömmu í Miskolc í Ungverja- landi. Zoltan Varga (2.564) hafði hvítt gegn Lajos Portisch (2.573). 24. Rxf7! Rxf7 25. Hxd7 Rxd7 26. Re6+ Ke7 27. Rxg5+ hvítur hefur nú unnið peð og nokkru síðar vann hann skákina og varð framhald henn- ar þetta: 27. … Rfe5 28. Be6 Kf6 29. Bxd7 Rxd7 30. Re4+ Kg6 31. Hd1 Re5 32. Hd6+ Kf5 33. Rc5 Rf3 34. h3 g5 35. Hb6 h4 36. gxh4 gxh4 37. Rxa6 Hh8 38. Hxb7 Rg5 39. Rb8 Rxh3 40. a5 Rg5 41. a6 Hh6 42. a7 og svartur gafst upp. Ís- landsmótinu í skák verður framhaldið í dag í höf- uðstöðvum Orkuveitu Reykjavíkur. SKÁK Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. ERFÐABREYTTAR AFURÐIR www.heilsuvernd.is Laugavegi 20b • Sími 552 2515 • OPIÐ 11:00-18:00 og Auðbrekku 1 • Sími 544 4480 • OPIÐ 13:00-18:00 Troðið vöruhús af ódýrum fallegum húsgögnum og gjafavöru. ATH. Frábærar fermingargjafir. 1928 VÖRUHÚS OG VERSLUN OPIÐ LAUGARDAG 12.00 - 16.00   KIRKJUSTARF Ferill fyrir- gefningarinnar ÖLLU áhugasömu fólki stendur til boða að hlýða á fyrirlestur uppi í Vatnaskógi laugardaginn 3. apríl kl. 10 þar sem Marteinn Steinar Jónsson sálfræðingur mun fjalla um feril fyrirgefningarinnar frá sjónarhorni sálarfræðinnar. Það er Laugarneskirkja sem býð- ur til sinnar árlegu Samtals- og bænahelgar og er fyrirlestur Mar- teins Steinars liður í fjölbreyttri dagskrá sem öllum er opin. Vegna Samtals- og bænahelg- arinnar flyst allt safnaðarstarf Laugarneskirkju út fyrir bæinn þessa helgi. Og í stað messu og sunnudagaskóla á venjulegum stað og tíma verður fjölskylduguðsþjón- usta á Saurbæ á Hvalfjarðarströnd kl. 13 á sunnudeginum í umsjá prestsfrúarinnar, sr. Jónu Hrannar Bolladóttur, og Þorvalds Þorvalds- sonar söngvara ásamt sóknarprest- inum í Saurbæ, sr. Kristni Jens Sig- þórssyni. Í fyrirlestrinum á laugardags- morgninum verður komið inn á eðli og einkenni sálrænna meiðsla, fyr- irgefningarferlið útlistað með dæmum og farið ofan í saumana á því sem skiptir máli til þess að geta fyrirgefið. Fyrirgefningin er meg- inforsenda góðra og farsælla sam- skipta og ein meginforsenda krist- innar trúar. Ávinningur hennar er margþættur, við leysum okkur sjálf frá því að burðast með innri sárs- auka, leysum gerandann undan sök og megnum að horfa til framtíðar. Samtals- og bænahelgi Laugarnes- kirkju stendur öllu fólki opin og er frjálst að koma og fara að vild, eða dvelja allan tímann í fæði og hús- næði fyrir hámark kr. 5.000 á mann og hámark kr. 15.000 á fjölskyldu. (Uppl. á skrifstofu í síma 588 9422.) Morgunblaðið/Brynjar GautiLaugarneskirkja Hallgrímskirkja. Eldri borgara starf kl. 13. Leikfimi, súpa, kaffi og spjall. Háteigskirkja, eldri borgara starf. Brids- aðstoð kl. 13. Kaffi kl. 15. Langholtskirkja. Lestur Passíusálma kl. 18 í Guðbrandsstofu í anddyri Langholts- kirkju. Allir velkomnir. Laugarneskirkja. Samtals- og bænahelgi Laugarneskirkju hefst í dag. Öll safnaðar- starfsemin, að sunnudagsmessunni með- talinni, flyst upp í Vatnaskóg (sjá messu- tilkynningar). Breiðholtskirkja. Fjölskyldumorgnar kl. 10–12. Kaffi og spjall. Grafarvogskirkja. Lestur Passíusálma kl. 18.15, 47. sálmur, Um Kristí kunningja, sem stóðu langt frá. Gísli Helgason vara- borgarfulltrúi les. Lindakirkja í Kópavogi. Kl. 15 yngri deild- arstarf Lindakirkju og KFUM&K í húsinu á Sléttunni, Uppsölum 3. Krakkar á aldrin- um 8–12 ára velkomnir. Lágafellskirkja. Barnastarf kirkjunnar, Kirkjukrakkar, er í Lágafellsskóla. Boðunarkirkjan, Hlíðarsmára 9. Samkom- ur alla laugardaga kl. 11. Bænastund alla þriðjudaga kl. 20. Biblíufræðsla allan sól- arhringinn á Útvarpi boðun, FM 105,5. Allir velkomnir. Fríkirkjan Kefas. 13–16 ára starf kl. 19.30. Samvera, fræðsla og fjör. Allir 13– 16 ára velkomnir. Nánari upplýsingar á www.kefas.is Akureyrarkirkja. Æfing fermingarbarna kl. 15. (Börn sem fermast eiga 3. apríl.) Æf- ing fermingarbarna kl. 16. (Börn sem eiga að fermast 4. apríl.) Safnaðarstarf 100 ÁRA afmæli.Sunnudaginn 4. apríl nk. verður 100 ára Ingveldur Gísladóttir. Í til- efni af afmælinu taka Ing- veldur og fjölskylda hennar á móti ættingjum og vinum laugardaginn 3. apríl á Grand hótel milli kl. 15 og 18.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.