Morgunblaðið - 02.04.2004, Side 64
ÍÞRÓTTIR
64 FÖSTUDAGUR 2. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
RAGNA Ingólfsdóttir og Sara Jónsdóttir badmin-
tonkonur eiga aðeins eftir að taka þátt í þremur alþjóð-
legum mótum áður en Alþjóða badmintonsambandið
gefur út styrkleikalista sinn 1. maí, en röðun á þann lista
ræður því hvaða badmintonmenn fá þátttökurétt á Ól-
ympíuleikunum í Aþenu í ágúst. Þær stöllur er nærri því
að komast inn í hóp útvalinna í tvíliðaleik og eins standa
þær þokkalega að vígi í einliðaleiknum, ekki hvað síst
Sara sem mun vera fimm sætum frá því að komast inn í
hóp útvalinna í einliðaleik.
Eftir Íslandsmeistaramótið um helgina halda þær til
Króatíu hvar þær taka þátt í alþjóðlegu móti um páska-
helgina. Því næst halda þær til eyjunnar Máritíus í Ind-
landshafi og loks verða þær á meðal þátttakenda á Evr-
ópumeistaramótinu 19.–24. apríl. Evrópumótið fer að
þessu sinni fram í Sviss, en á það sendir Ísland fullskipað
lið beggja kynja. „Við þurfum að vera svolítið heppnar á
lokasprettinum til að ná öruggu ólympíusæti,“ sagði
Sara í samtali við Morgunblaðið í gær.
Reiknað er með að upp úr miðjum maí liggi það end-
anlega fyrir hvort þeim stöllum tekst að komast á Ól-
ympíuleikana en þá hefur keppendalistinn verið yfirfar-
inn af Alþjóða badmintonsambandinu og sérsamböndum
þeirra þjóða sem eiga íþróttamenn á listanum.
Þrjú mót eftir hjá
Rögnu og Söru
Ragna Ingólfsdóttir og Sara Jónsdóttir.
TVÆR þjóðir hafa sótt um að
halda heimsmeistaramótið í hand-
knattleik karla árið 2007. Það
eru Noregur og Þýskaland, en
Þýskaland sótti einnig um að
halda mótið á næsta ári en tapaði
fyrir Túnis í kapphlaupi á þingi
Alþjóða handknattleikssambands-
ins. Ákvörðun um hvar HM 2007
fer fram verður tekin á þingi Al-
þjóða handknattleikssambandsins
í lok maí.
Þjóðverjar þykja koma sterk-
lega til greina að hreppa hnossið
þar sem þeir bjóða upp á betri
aðstöðu en Norðmenn. Ekki er þó
víst að það dugi þeim þar sem
Þjóðverjar buðu einnig upp á
mun betri keppnisaðstöðu en
Túnisbúar þegar umsóknir um
HM 2005 voru lagðar fram. Þá
getur verið að það vinni gegn
Þjóðverjum að þeir halda Evr-
ópumeistaramótið í handknattleik
eftir tvö ár og mörgum þykir
ósanngjarnt að þeir haldi tvö
stórmót í handknattleik á tveim-
ur árum. Stuðningsmenn Þjóð-
verja benda hins vegar á að
áhugi á handknattleik sé alltaf að
aukast í Þýskalandi og sjálfsagt
sé að nýta sér það með því að
halda mótið í Mekka handknatt-
leiksins í heiminum og styðja þar
með enn frekar við bakið á
íþróttinni. Þá telja Þjóðverjar sig
geta staðið glæsilega að mótinu
og rekið það með góðum hagnaði.
Þjóðverjar og Norðmenn
keppa um HM
FÓLK
ALAN Smith, framherji Leeds,
segir að það muni líklega engu
breyta hvort Leeds takist að halda
sæti sínu í ensku úrvalsdeildinni
eða ekki, hann fari frá liðinu í sum-
ar. Nýir eigendum hyggist selja sig
til þess að fá peninga í kassa Leeds
en hann er hálftómur. Smith hefur
leikið með Leeds allan sinn feril og
er auk þess alinn upp innan þess.
HOLLENSKI knattspyrnumaður-
inn Patrick Kluivert er byrjaður að
æfa á ný með aðalliði Barcelona.
Hann hefur verið frá í nokkrar vik-
ur vegna meiðsla. Hann lék með B-
liðinu í fyrrakvöld gegn þeim A-
liðsmönnum sem ekki voru að leika
með sínum landsliðum, og skoraði
þrennu á 45 mínútna kafla.
BRASILÍUMENN og Þjóðverjar
eru að ræða um að leika landsleik 8.
september, nokkurs konar endur-
tekningu á úrslitaleik þjóðanna á
HM 2002. Leikið yrði á nýuppgerð-
um ólympíuleikvangi í Berlín.
ÞJÓÐVERJAR eru með fleiri
járn í eldinum og síðar í mánuðin-
um fer sendinefnd frá knattspyrnu-
sambandinu til Tehran í Íran til að
ræða um landsleik þjóðanna í knatt-
spyrnu sem fyrirhugaður er í októ-
ber.
OLIVER Kahn, fyrirliði þýska
landsliðsins í knattspyrnu, fylgdist
með 3:0 sigri liðsins á Belgum í
fyrrakvöld, fékk frí frá leiknum.
Hann var ekki sammála dómaran-
um um annað markið, sem Dietmar
Hamann gerði úr aukaspyrnu.
Hann tók spyrnuna á meðan Belgar
voru að stilla upp varnarvegg sínum
og varð dómarinn að forða sér til að
fá ekki skotið í sig.
„SEM markvörður hefði ég ekki
verið sáttur. Sumir varnarmenn
Belga sneru baki í boltann þegar
Hamann tók aukaspyrnuna. Þetta
er alveg ferlegt fyrir markverði,
þeir geta ekkert gert, enda eru þeir
þá jafnan við hina stöngina að stilla
varnarveggnum upp,“ sagði Kahn.
MICK McCarthy, knattspyrnu-
stjóri Sunderland, var í gær út-
nefndur knattspyrnustjóri mars
mánaðar í ensku 1. deildinni í
knattspyrnu. Undir stjórn
McCarthys vann Sunderland 17
stig af 21 mögulegu í leikjum deild-
arinnar í mánuðinum auk þess sem
liðið komst í undanúrslit í bikar-
keppninni hvar það mætir Milwall á
Old Trafford á sunnudag.
ÞAÐ verður mikið um að vera hjá
„eldri“ íþróttamönnum síðar í þess-
um mánuði, eða í kringum sum-
ardaginn fyrsta. Þá fer fram á
Akranesi Öldungamót BLÍ í blaki í
umsjón Bresa og hefur 81 lið til-
kynnt um þátttöku.
SÖMU helgi verður haldið körfu-
knattleiksmót Molduxa á Sauðár-
króki, en það er fyrir 30 ára og
eldri. Þar eru 17 lið búin að skrá
sig.
Fyrrum meistarar sem mæta tilleiks eru Mike Weir, Tiger
Woods, Vijay Singh, Jose Maria
Olazabal, Mark O’Meara, Nick Faldo,
Ben Crenshaw, Bernhard Langer,
Fred Couples, Ian Woosnam, Sandy
Lyle, Larry Mize, Jack Nicklaus,
Craig Stadler, Tom Watson, Fuzzy
Zoeller, Gary Player, Raymond Flo-
yd, Tommy Aaron, Charles Coody og
Arnold Palmer.
Meistarar Opna bandaríska meist-
aramótsins eru með fimm ára keppn-
isrétt og þann rétt nýtir Retief Goo-
sen sér. Þrír fyrrum meistarar á
Opna breska nýta sér einnig fimm ára
þátttökurétt á Masters, þeir Ben
Curtis, Ernie Els og Paul Lawrie, en
David Duval varð að hætta við þátt-
töku vegna meiðsla.
Sigurvegarar á PGA meistara-
mótinu fá einnig fimm að vera með
næstu fimm árin og þeir eru Shaun
Micheel, Rich Beem og David Toms.
Þriggja ára keppnisrétt fá sigur-
vegarar úr Meistaramóti leikmanna
(Players Championship) og slíkt nýta
þeir Adam Scott, Davis Love III og
Craig Perks sér.
Tveir efstu úr bandaríska áhuga-
mannamótinu verða með, Nick Flana-
gan og Casey Wittenberg, sigurveg-
arinn á breska áhugamannamótinu,
Gary Wolstenholme. Brad Snedeker,
meistari áhugamanna á opinberum
golfvöllum í Bandaríkjum, verður
meðal keppenda og líka Nathan
Smith, sem sigraði á áhugamanna-
mótinu í miðríkjum Bandaríkjanna.
Allir sem verða í 16. sæti og ofar á
síðasta Masters fá boðskort og þannig
koma inn Len Mattiace, Phil Mickel-
son, Jeff Maggert, Scott Verplank,
Jonathan Byrd, Tim Clarke, Angel
Cabrera og K.J. Choi.
Átta efstu og jafnir frá Opna
bandaríska í fyrra mæta, Stephen
Leaney, Kenny Perry, Justin Rose,
Fredrik Jacobson og Nick Price.
Fjórir efstu og jafnir af Opna
breska geta líka mætt og þannig kem-
ur Thomas Björn til sögunnar á Mast-
ers í ár.
Fjórir efstu eða jafnir af PGA
meistaramótinu í fyrra fá einnig boðs-
kort og Chad Campbell og Alex Cejka
detta þannig inn í mótið að þessu
sinni.
Fjörutíu efstu menn á peningalista
PGA mótaraðarinnar um áramótin
eiga rétt á að keppa á Masters og
þannig koma inn: Brad Faxon, Stuart
Appleby, Bob Tway, Charles Howell
III, Jay Haas, Jonathan Kaye, Justin
Leonard, Chris DiMarco, Steve
Flesch, Briny Baird, Chris Riley,
Robert Allenby, Tim Herron, Jerry
Kelly, Fred Funk, J.L. Lewis, Kirk
Triplett, Rocco Madiate, Bob Estes,
Stewart Cink, Tim Petrovic, Shigeki
Maruyama, John Rollins og Jeff
Sluman.
Fimmtíu efstu á heimslistanum um
áramótin geta mætt og það gefur ell-
efu kylfingum tækifæri að vera með
að þessu sinni.
Fullmannað á Masters
BÚIÐ er að fullmanna Masters golfmótið sem hefst á Augusta Nat-
ional golfvellinum í Bandaríkjunum á skírdag, 8. apríl. Þar munu 94
kylfingar hefja leik og eru þeir valdir með ákveðnum hætti. Þannig
eru þeir sem hafa sigrað á Masters með ævilangan keppnisrétt og
mun 21 fyrrum sigurvegari þiggja boðið í ár.
Það er ekki á hverjum degi semþrír bræður leika saman í lands-
liði en slíkt gerðist síðast árið 1963 er
Hörður, Bjarni og
Gunnar Felixsynir
léku gegn áhuga-
mannalandsliði Eng-
lands í Wimbledon.
Þórður var jafnframt fyrirliði ís-
lenska liðsins í fyrsta sinn á ferli sín-
um og skoraði hann eina mark ís-
lenska liðsins sem tapaði 2:1. Þetta
var jafnframt 50. landsleikur Þórðar.
„Leikurinn var ekki alveg nógu
góður hjá íslenska liðinu en ég var
glöð að Þórður skyldi skora, þar sem
leikurinn var nokkuð sérstakur fyrir
hann sem fyrirliða í fyrsta sinn í tíma-
mótaleik.
Bjarney er gift Sigurði V. Haralds-
syni og saman eiga þau Björn Berg-
mann sem er fæddur árið 1991 og er
hann líkt og eldri bræður hans lipur
með knöttinn.
„Ég horfi á alla leiki hjá strákunum
þegar færi gefst. Við náum flestum
sjónvarpsrásum þar sem leikir þeirra
eru sýndir og þá er ekkert annað að
gera en að horfa,“ segir Bjarney.
Hún er búsett á Akranesi en sparkaði
sjálf aldrei í bolta. „Ég hef aldrei ráð-
lagt þeim um þessa hluti enda hef ég
lítið getað bætt við það sem þeir
kunnu sem smástrákar.“
Bjarney segir að hún hafi ekki séð
strákana sína spila saman áður í
sama liði en þeir voru allir þrír á
samning hjá Genk í Belgíu um tíma
án þess að spila leik á sama tíma.
„Ætli ég hafi ekki séð þá spila saman
í garðinum mínum þegar þeir voru
smástrákar en það gekk nú oft mikið
á þrátt fyrir að aldursmunurinn sé
mikill,“ segir Bjarney en Þórður er
elstur, fæddur 1973, og leikur með
Bochum í þýsku 1. deildinni. Bjarni,
sem er fæddur árið 1979, er samn-
ingsbundinn Bochum en leikur sem
lánsmaður með Coventry á Englandi.
Og Jóhannes Karl er fæddur árið
1980 en hann er samningsbundinn
Real Betis á Spáni en hefur leikið
sem lánsmaður með Wolverhampton
í ensku úrvalsdeildinni í vetur en var
hjá úrvalsdeildarliðinu Aston Villa í
fyrra.
Bjarney segir að það taki á að sitja
yfir knattspyrnunni og hún bíði þess í
raun að geta átt rólegar stundir yfir
knattspyrnuleikjum en það er líklegt
að einhver bið verði á því þar sem að
sá yngsti, Björn Bergmann, er með
boltann á tánum frá morgni til
kvölds. „Hann gæti alveg fetað sömu
leið og eldri bræður hans. Kannski
hafa þeir fengið hæfileikana frá mér í
vöggugjöf en ég sýndi þá aldrei sjálf
sem leikmaður, “ segir Bjarney í létt-
um tón en hún horfði á landsleikinn
gegn Albaníu í góðra vina hópi heima
hjá tengdaforeldrum sínum. „Það var
mikið blótað á meðan á leiknum stóð
en á heildina litið var þetta góður eft-
irminnilegur dagur fyrir okkur öll og
það er aldrei að vita nema ég sjái þá
alla saman í landsliðinu á ný úr áhorf-
endastúku einhvers staðar síðar. Það
er draumur sem á eftir að rætast.“
Synir Bjarneyjar Jóhannesdóttur voru í sviðsljósinu í Tirana
„Ég er mjög stolt af
strákunum mínum“
„ÉG er alltaf stolt af strákunum mínum, sama hvernig leikirnir fara
hjá þeim, en ég var óvenju óróleg yfir þessum leik þar sem þeir voru
allir í liðinu á sama tíma,“ sagði Bjarney Jóhannesdóttir, móðir
Þórðar, Bjarna og Jóhannesar Karls Guðjónssona sem voru í byrj-
unarliði íslenska landsliðsins í knattspyrnu gegn Albaníu í Tirana á
miðvikudaginn.
Morgunblaðið/Sigurður Elvar
Bjarney Jóhannesdóttir, Björn Bergmann Sigurðarson og Sig-
urður V. Haraldsson, eiginmaður Bjarneyjar hafa í nógu að snú-
ast við að fylgjast með sonum Bjarneyjar og bræðrum Bjarnar.
Eftir
Sigurð Elvar
Þórólfsson