Morgunblaðið - 02.04.2004, Síða 70

Morgunblaðið - 02.04.2004, Síða 70
HUGSAÐU STÓRTMiðasala opnar kl. 15.30 EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS Sýnd kl. 10.30. B.i. 16 ára. Ein umtalaðasta og aðsóknarmesta mynd allra tíma kl. 8 og 10.30. B.i. 16. Sýnd kl. 8 og 10.30. B.i. 16.Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.15. Sýnd kl. 8 og 10.30. (Píslarsaga Krists) HP. Kvikmyndir.com Kvikmyndir.is  Skonrokk „Frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna“ Þ.Þ. Fbl. Sýnd kl. 3.40, 5.50 og 8. Með ensku tali Sýnd kl. 3.40 og 5.50. Með íslensku tali Páskamynd fjölskyldunnar Sýnd Í LÚXUSSAL kl. 4. Fyndnasta mynd ársins! 2 vikur á toppnum í USA! Upplifðu fyrsta stefnumótið...endalaust! 70 FÖSTUDAGUR 2. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ Sýnd kl. 8 og 10.20. B.i. 16. Ein umtalaðasta og aðsóknarmesta mynd allra tíma (Píslarsaga Krists) HP. Kvikmyndir.com Kvikmyndir.is  Skonrokk Sýnd kl. 5.50. Með íslensku tali Ævintýrið eins og þú hefur aldrei upplifað það. Stórkostleg skemmtun fyrir alla fjölskylduna. Leikin ævintýramynd eins og þær gerast bestar! SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI Páskamynd fjölskyldunnar Sýnd kl. 6, 8 og 10. Fyndnasta mynd ársins! 2 vikur á toppnum í USA! Upplifðu fyrsta stefnumótið...endalaust! EKKERT varð af tónleikum bandaríska rokkarans Bruce Springsteen á Nasa í gær- kvöld, eins og skýrt var frá í Morgunblaðinu og mbl.is í gærmorgun. Fréttin var birt í til- efni dagsins, en í gær var 1. apríl. Margir skráðu sig á Fólkvef mbl.is í von um að fá miða á tónleikana, og eru þeir beðnir velvirð- ingar á tiltækinu. Margir íslenskir fjölmiðlar slógu á létta strengi í gær og birtu fréttir sem eflaust var tekið með varúð. Fréttablaðið sagði að Skjár- Einn hefði náð réttinum á að halda Stjörnu- leit hér á landi og að Simon Cowell Idol- dómari væri kominn hingað til lands til að hlýða á íslensk ungmenni. DV vakti Elvis Presley upp af værum svefni á Life Forever stofnuninni í Sviss og sagði að hann myndi halda tónleika í Ölveri í gærkvöld. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 var sagt frá því að George Lucas, kvik- myndamógúll, væri staddur hér á landi í þeim tilgangi að finna töku- staði fyrir fjórðu Indiana Jones myndina. Kom fram í fréttinni að Ís- lendingar ættu kost á að hreppa aukahlutverk í myndinni. Í kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins var sagt frá því að í gærkvöld hefði átt að flytja styttuna af Kristjáni IX frá Stjórnarráðinu að skrifstofu forseta Ís- lands í tilefni að heimastjórnarafmæl- inu. Þetta hefði verið ákveðið án samráðs við forseta Íslands. Davíð Oddsson forsætisráð- herra svaraði fyrir meintan verknað og lét áhorfendum eftir að ráða í hver ætti að koma í staðinn fyrir konunginn danska. Á fréttavef Bæjarins besta á Ísafirði birt- ist stórfrétt um að bæjarstjórnir Ísafjarð- arbæjar og Bolungarvíkurkaupstaðar hefðu náð samkomulagi um að skiptast á bæjar- stjórum. Því yrði Einar Pétursson, bæjar- stjóri í Bolungarvík bæjarstjóri Ísafjarðar- bæjar frá og með deginum í gær og Halldór Halldórsson yrði bæjarstjóri í Bolungarvík. Birt var mynd af bæjarstjórunum handsala samkomulagið. Víkurfréttir birtu frétt á vef sínum um að nýgerðir kjarasamningar veittu Íslendingum ýmis ný fríðindi, svo sem rétt til að versla í verslunum í Varnarstöðinni á Keflavíkurflug- velli tvisvar á ári. Annar verslunardagurinn átti að vera í gær en hinn í byrjun desember og þá yrði hægt að kaupa tollfrjálsan varn- ing. Vefmiðillinn Horn.is skýrði frá því að til stæði að opna Burger King veitingastað í bænum og fréttavefurinn Húnahornið sagði frá því að skarð væri komið í brimvarnar- garðinn við höfnina á Blönduósi og birti mynd af því. Á fréttavef Knattspyrnusambands Íslands birtist einnig frétt um að leikmönnum í Landsbankadeildum karla og kvenna væri skylt að sækja um brúðkaupsleyfi til móta- nefndar KSÍ, ef þeir hygðust gifta sig á með- an á keppnistímabili stendur. Ef ekki væri sótt um leyfi væri ekki hægt að tryggja að tekið yrði fullt tillit til brúðkaupsins við nið- urröðun leikja. Í fréttatíma Ríkisútvarpsins var m.a. frétt um að sníkjudýrið blóðagða, sem valdið getur svonefndum sundmannakláða og fannst ný- lega í Landmannalaugum, hefði borist í sund- laugar á höfuðborgarsvæðinu og því yrði sett sérstakt efni í laugarvatnið á næstunni sem hefði þær óheppilegu aukaverkanir að fólk yrði blátt. Þá var haft eftir Sigurði Guð- mundssyni landlækni að tækju ögðurnar sér bólfestu í rakadrægum rúmfötum á heimilum sundlaugargesta þá gilti hið sama og í laug- unum, best væri að úða tæru og köldu vatni yfir rúmfötin. Sjónvarp í síma og líf á Mars Norrænir fjölmiðlar létu ekki sitt eftir liggja. Þannig sagði sænska blaðið Dagens Nyheter frá því, að í ljós hefði komið að hægt væri að horfa á bíómyndir í venjulegum far- símum og öll uppbygging vegna þriðju kyn- slóðar farsíma væri algerlega óþörf. Rætt var við við tæknisérfræðinginn Hub- ert Hochsztapler sem sagðist hafa uppgötvað þetta fyrir tilviljun. „Þegar ég var að stilla myndbandsupptökutækið mitt eitt kvöldið greip ég óvart gamla farsímann í staðinn fyr- ir fjarstýringuna. Þegar ég sló inn númerið á sjónvarpsþættinum sá ég mér til undrunar að myndin birtist á símaskjánum,“ sagði hann. Fylgdi skýringarmynd sem sýndi að ef menn hristu gamla farsíma nægilega mikið væri hægt að komast inn í sendingar fyrir 3. kynslóð síma. „Þetta sýnir að uppbygging fjarskiptakerfa fyrir 3. kynslóðina hefur ver- ið alger óþarfi og það er hægt að byrja að rífa niður möstrin strax á morgun,“ sagði Hochsztapler. Ýmsar sérkennilegar fréttir voru í dönsk- um blöðum í gær. Kristilega dagblaðið birti m.a. frétt um að Tove Fergo kirkjumálaráð- herra, sem hefur átt í deilum við danska bisk- upa vegna minni fjárveitinga til kirkjunnar, hefði boðið öllum biskupum í sáttasiglingu um Karíbahaf. Segir blaðið að Fergo hafi fengið sérstaka fjárveitingu til ferðarinnar. Þá sagði Berlingske Tidende að Mars-farið Opportunity hefði fundið líf á plánetunni. Um væri að ræða frumstæða burstaorma, svipaða ormum sem fyndust í ferskvatni á jörðinni. Breska götublaðið, The Sun, birti í gær ljós- myndir af Vilhjálmi prinsi á skíðum í Sviss ásamt ungri konu, sem sögð er vera unnusta prinsins, en myndirnar voru teknar án leyfis konungsfjölskyldunnar. Fyrirsögnin með þessari umdeildu frétt var: „Loksins nær Villi sér í stelpu“. Myndirnar eru af Vil- hjálmi og dökkhærðri stúlku, Kate Middleton að nafni, og eru fimm síður The Sun helg- aðar myndrænum lýs- ingum á skíðaferð þeirra. Þetta er í fyrsta sinn sem brot- ið er verulega gegn samkomulagi milli konungsfjölskyld- unnar og fjölmiðla um að halda sonum Karls krónprins frá kastljósi fjöl- miðla. Myndirnar gætu orðið for- smekkur að því sem koma skal hvað varð- ar myndatökur af Vilhjálmi án leyfis, en hann er 22 ára, annar í röðinni til að erfa bresku krúnuna og þykir aukinheldur hinn mynd- arlegasti. Talsmenn bresku krúnnunnar hafa lýst yfir megnri óánægju sinni með að The Sun hafi rift umræddu samkomulagi og biðla til fjölmiðla að virða það eftir sem áður. Í The Sun var skýrt frá því að þau hefðu hist í St. Andrews háskólanum í Skotlandi og hefðu verið par frá því um jólin. Middleton á að hafa heimsótt sveitasetur Karls í High- grove í suðvesturhluta Englands þrisvar sinn- um og sé þegar búin að hitta Karl og fengið góðar viðtökur Camillu Parker-Bowles, fylgd- arkonu hans til margra ára. Götublaðið The Sun Umdeild forsíða The Sun í gær. Fjölmiðlar slógu á létta strengi 1. apríl Allt í plati AP Kanadíska skrifstofumanninn Ken Marenger rak í rogastans er hann mætti til vinnu í gær- morgun. Vinir hans höfðu gert honum þann grikk í tilefni dagsins að pakka öllu hans haf- urtaski, skrifborði, stól, tölvu, síma, vasa- reikni og meira að segja skærum vandlega inn í álpappír! ergir konungsfjölskylduna „Loksins nær Villi sér í stelpu“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.