Morgunblaðið - 02.04.2004, Síða 72

Morgunblaðið - 02.04.2004, Síða 72
72 FÖSTUDAGUR 2. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ GULLDRENGIRNIR í Sigur Rós eru með gríðarlega góðan meðbyr um þessar mundir og virðast ekki geta gert neitt rangt, eins og Engilsaxar orða það. Hvernig er annars hægt að útskýra það að nýjasta stuttskífa sveitarinnar, Ba Ba Ti Ki Di Do, fer beint í sjötta sæti bandaríska sölulist- ans í Bandaríkjunum! Ósungin tónlist við nútímaballett!? Þessa vikuna var smáskífusalan þar í landi þannig að Stjörnuleit- arhetjan Clay Aiken hélt fyrsta sæt- inu með „Solitaire/The Way“ og voru 46.000 eintök seld. Í öðru sæti eru Hanson bræður með „Penny & Me“, sem var hástökkvari þessarar viku. Næst Hanson í stökkfimi kemur svo Sigur Rós, með stuttskífu sem inni- heldur tónlist þeirra við dansverk Merce Cunningham, sem frumflutt var í fyrra. Umræddur listi tekur aðeins mið af beinni sölu á smáskífum en hinn frægi Billboardlisti byggist einnig að stórum hluta á spilun í útvarpi. Af þeim sökum kemur plata Sigur Rósar lítið við sögu á þeim lista enda ball- etttónlist ekki sú allra vinsælasta á bandarískum tónlistarsíbyljustöðvum! Í raun sýnir því þessi góða sala á plötunni vel hvað Sigur Rós er í mikl- um metum hjá almenningi þarna vestra. Listi yfir söluhæstu smáskífur í Bandaríkjunum Sigur Rós eru engin takmörk sett. Nú er hún búin að gera ballett- tónlist vinsæla! Sigur Rós beint í sjötta sæti SÝNINGIN Abba forever verður sett upp á Broadway í kvöld og á morgun, en hún kemur hingað frá Bretlandi þar sem hún hefur notið mikilla vinsælda síðustu ár. Þar bregða fjórir breskir listamenn sér í gervi Svíanna heimsfrægu og má búast við miklu fjöri. Jane Ellis fer með hlutverk Agn- ethu Fältskog og er auk þess aðal- sprautan í sýningunni. Hún er mik- ill Abba-aðdáandi og ákvað eftir að hafa ferðast og tekið þátt í uppsetn- ingum á söngleikjum víða á Bret- landi að setja saman sína eigin hljómsveit fyrir sýningu sem byggðist á sögu Abba-flokksins sænska. Þegar Morgunblaðið náði í hana í gær var hún að slappa af fyr- ir Íslandsferðina. Hverju megum við eiga von á, á föstudags- og laugardagskvöldið? „Kraftmikilli og líflegri sýningu. Ég vona að þið njótið hennar. Við viljum helst fá alla til að syngja og dansa með okkur, það er skemmti- legast,“ segir Ellis. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem hún sækir okkur heim, hún kom hingað 1997 sem dansari í Tinu Turner sýningu á Brodway, sem þá hét Hótel Ísland. Ellis segist hlakka til að koma aft- ur. „Ég sá marga skemmtilega staði, fór til dæmis í Bláa lónið. Ég býst við að ég fari í það aftur núna því hinir hljómsveitarmeðlimirnir vilja örugglega prófa það. Svo langar mig að smakka einhvern framandi íslenskan mat.“ Rússarnir kunnu að meta Abba Ellis hefur verið forfallinn Abba- aðdáandi frá því hún var lítil stelpa. „Ég var líklega sjö ára þegar ég heyrði Abba fyrst, foreldrar mínir áttu spólu með þeim. Svo fékk ég Abba-plötu í jólagjöf og hef verið mikill aðdáandi síðan.“ Hún hefur sungið í sýningunni í fimm ár og ferðast víða. Er þetta alltaf jafn gaman? „Já, því hver sýning er alltaf frá- brugðin fyrri sýningum. Við erum líka alltaf að verða betri og betri. Abba voru auðvitað frábær svo það er mjög erfitt að fara í fötin þeirra.“ Þið voruð í Rússlandi nýlega, hvernig var ykkur tekið þar? „Mjög vel, Rússarnir virtust þekkja Abba vel og tóku strax undir í fyrstu lög- unum.“ Hafið þið spilað í Svíþjóð? „Nei, en það væri gaman,“ segir hún og hlær. „Reyndar spiluðum við einu sinni fyrir hóp Svía hér í Englandi. Við vorum frekar stressuð en þeir tóku okkur mjög vel. Þetta voru nánast allt karlmenn sem voru voða hressir og byrjuðu strax að syngja og dansa með.“ Hvert er uppáhalds Abba-lagið þitt? „Ætli það sé ekki „Lay All Your Love On Me,“ segir hún að lokum. Abba forever á Broadway í kvöld og á morgun Jane Ellis lofar kraftmikilli og líf- legri sýningu. Að eilífu Abba! Miðinn kostar 3.000 kr. og matur 3.900 kr. bryndis@mbl.is ÁLFABAKKI Sýnd kl. 8. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 10.10. KRINGLAN kl. 8, 10.10 og 12.15 á miðnætti. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 6, 8, og 10.10. Stranglega bönnuð innan 16. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 6, 8 og 10.10. B.i. 16. Gamanmynd eins og þær gerast bestar! Hágæða spennutryllir með Angelinu Jolie, Ethan Hawke og Kiefer Sutherland í aðalhlutverki. Hann mun gera allt til að verða þú! Rafmagnaður erótískur tryllir Frá framleiðendum “The Fugitive” og“Seven”. B.i. 16 ára Stranglega bönnuð innan 16 ára. Án efa einn besti spennuhrollur sem sést hefur í bíó. Myndin fór beint á toppinn í Bandaríkj- unum fyrir tveimur vikum og hefur slegið hryllilega í gegn. AKUREYRI Sýnd kl. 10.10. Sýnd kl. 5.45. Hann mun gera allt til að verða þú! Hágæða spennutryllir með Angelinu Jolie, Ethan Hawke og Kiefer Sutherland í aðalhlutverki. FULLT HÚS HJÁ ÖLLUM HELSTU GAGNRÝNENDUM LANDSINS! Skonrokk „Bráðfyndin“ HJ. MBL Ó.H.T. Rás2 Kaldaljós og Hestasaga síðustu sýningar um helgina Sýnd kl. 8 og 10.10. B.i. 16. Sýnd kl. 6, 8 og 10.  J.H.H Kvikmyndir.com  Ó.H.T Rás2 „Stórkostlegt kvikmyndaverk“ HL. MBL Sýnd kl. 6 og 8. Sýnd kl. 6, 8 og 10.05. „Hreint út sagt frábær skemmtun“ „Þetta er besta myndin í bíó í dag“ Fréttablaðið Sýnd kl. 10.05. Bráðfyndin grínmynd sem hefur farið sigurför um heiminn. Vann Óskarinn sem BESTA ERLENDA MYNDIN og tilnefnd fyrir BESTA HANDRIT. Algjör perla! Sýnd kl. 8.10. B.i. 16. Páskam yndin í ár Skemmtilegur leikur á www.sambio.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.