Morgunblaðið - 02.04.2004, Blaðsíða 73

Morgunblaðið - 02.04.2004, Blaðsíða 73
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. APRÍL 2004 73 UNDIR greinilegri uppörvun frá Thomas Vinterberg hefur verið ráð- ist í sjónvarpsmyndargerð leikritsins And Björk of Course, sem Borgar- leikhúsið frumsýndi fyrir nokkrum árum við góðar undirtektir áhorf- enda og gagnrýnenda. Myndgerðin er í dogmestíl, undir stjórn Lárusar Ýmis Óskarssonar og leikhúsmanns- ins Benedikts Erlingssonar, sem jafnframt stýrði verkinu á sviði. And Björk of Course segir af sex manna hópi einstaklinga sem sækja sjálfskönnunarnámskeið hjá leið- beinanda (Harpa Arnardóttir) sem starfar í anda bandarísks tískugúrús – fer með hópinn sinn í afvikið hús og þar úti í guðsgrænni náttúrunni á fólkið að moka sinn andlega flór. Finna sjálft sig, ráða bót á vanda- málum sálarinnar, sem reynast ólík og af misjafnlega alvarlegum toga. „Programmet“ er tekið upp á mynd- band sem áhorfandinn síðan nýtur. Ýmislegt kraumar undir yfirborð- inu, þátttakendurnir eru flestir orðn- ir listamenn í að láta sem ekkert sé, sama á hverju gengur. Halda haus, fela ósómann undir snyrtilegri hversdagsímynd. Þetta er lífið og tilveran í kringum okkur í ýktri mynd. Það vill brenna við að því betur sem við kynnumst kárnar gamanið, á þeim nótum er framvinda myndarinnar, kaldhæðinn tónninn breytist smám saman í graf- alvarlega ádeilu. Niðurstaðan eftir margvíslegar og óvæntar afhjúpanir og að lokum náttúruhamfarir er slá- andi: persónurnar eru á sömu slóð- um og í upphafi. Kostirnir við sjónvarpsmyndina eru frábærir sprettir og undirliggj- andi ádeilan í texta Þorvaldar Þor- steinssonar, eins athyglisverðasta rithöfundar þjóðarinnar. Viðfangs- efnið stendur af sér storma og hríðir dogme-tökunnar sem því miður varpar oftar en ekki athyglinni á dreif og fjarlægir áhorfandann frá taugakerfi verksins, deiglu atburð- anna. Myndin er því tvískipt að gæð- um. Annars vegar þessi mergjaði texti, leiftrandi skopskyn, blandað ádeilu á faríseann í okkur, tillitsleys- ið og tómlætið sem ríkir í mannleg- um samskiptum; innantómar patent- lausnir og frasar stjórnendanna. Frábær leikur þar sem hópurinn fær eina heildar ágætiseinkunn og fer undantekningarlaust á kostum undir krefjandi stjórn Benedikts Erlings- sonar. Á hinn bóginn fær kvikmynda- gerðin mann til að sakna dramatísks andrúms leikhússins.Takan (ekki síst utan dyra), á það til að tvístra spennunni í loftinu, brjóta upp ein- beitinguna og hljóðupptakan, hvað sem öllum dogmereglum viðvíkur, skilar ekki á köflum talinu nægilega skýrt. Látið sem ekkert sé SJÓNVARP Sjónvarpið Íslensk sjónvarpsmynd. Leikstjórar: Lár- us Ýmir Óskarsson og Benedikt Erlings- son. Handrit: Lárus Ýmir Óskarsson og Þorvaldur Þorsteinsson, byggt á sam- nefndu leikriti þess síðarnefnda. Tónlist: Barði Jóhannsson, Ludwig van Beethov- en. Klipping: Lárus Ýmir Óskarsson. Kvik- myndataka: Páll Reynisson o.fl. Hljóð- upptaka: Einar Sigurðsson. Hjóðsetning: Uss ehf. Aðalleikendur: Gunnar Hansson, Halldór Gylfason, Harpa Arnardóttir, Katla Margrét Þorgeirsdóttir, Sigrún Edda Björnsdóttir, Sóley Elíasdóttir og Þór Tulinius. Sýningartími um 120 mín. Borgarleikhúsið. RÚV 28. mars 2004. …AND BJÖRK OF COURSE  „Viðfangsefnið stendur af sér storma og hríðir dogme-tök- unnar…“, segir í umsögn um …and Björk of Course. Sæbjörn Valdimarsson ÁLFABAKKI Sýnd kl. 4. Ísl tal. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 8 og 10.10. ÁLFABAKKI Kl. 4, 6, 8 og 10.10. KRINGLAN Sýnd kl. 4. Ísl tal. Ekki eiga við hattinn hans. Kötturinn með hattinn MIKE MAYERS Frábær mynd fyrir alla fjölskylduna. Byggð á hinni sígildu bók sem komið hefur út í íslenskri þýðingu. Hinn frábæri Mike Myers (Austin Powersmyndirnar) fer á kostum í myndinni. KEFLAVÍK kl. 6. Með ísl tali. KEFLAVÍK Kl. 8 og 10. AKUREYRI Kl. 8. AKUREYRI Kl. 6. Ísl texti. KRINGLAN Sýnd kl. 4, 6, 8, 10 og 12. Með ensku tali Sýnd kl. 4 og 6. Með íslensku tali ÁLFABAKKI Sýnd kl. 4 og 6. Með íslensku tali KRINGLAN K. 6, 8, 10.10 og Powerhrollur kl. 12.15. EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 4, 6, 8 og 10.10. Besta teiknimyndin Frábær teiknimynd frá Disney fyrir alla fjölskylduna með tónlist eftir Phil Collins! „Hreint út sagt frábær skemmtun“ „Þetta er besta myndin í bíó í dag“ Fréttablaðið ÁLFABAKKI Kl. 4 og 6. Ísl texti ÁLFABAKKI Sýnd kl. 4, 6 og 8. KEFLAVÍK Kl. 6. Ísl texti. Frábær gamanmynd frá höfundi Meet the Parents ÁLFABAKKI Sýnd kl. 4. Ísl. tal. Án efa einn besti spennu- hrollur sem sést hefur í bíó. Myndin fór beint á toppinn í Bandaríkjunum fyrir tveimur vikum og hefur slegið hryllilega í gegn. AKUREYRI Sýnd kl. 6. Ísl tal Ævintýrahópurinn Ráðgáta hf er mætt aftur til að leysa hin undarlegustu mál eins og þeim einum er lagið! Toppskemmtun fyrir alla fjölskylduna! Nr 1 í USA! Taktu þátt í Scooby Doo 2 leiknum á www.sambioin.is Ævintýrahópurinn Ráðgáta hf er mætt aftur til að leysa hin undarlegustu mál eins og þeim einum er lagið! Toppskemmtun fyrir alla fjölskylduna! Nr 1 í USA! Taktu þátt í Scooby Doo 2 leiknum á www.sambioin.is AKUREYRI Kl. 8 og 10. Powerhro llur á miðnætti kl. 12.15 Páskafjör í Flash Laugavegi 54, sími 552 5201 20% afsláttur af öðrum vörum. 10 heppnir vinna páskaegg. Gallabuxur .... áður 5.990 ...... nú 3.990 Peysur .......... áður 5.990 ..... nú 2.990 Bolir ............. áður 1.990 ..... nú 990 Jakkar .......... áður 7.990 ..... nú 2.990
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.