Morgunblaðið - 02.04.2004, Page 76
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 2. APRÍL 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
TR og lyfjaverðsnefnd hafa gripið til
í þeim tilgangi að lækka lyfjakostnað
á þessu ári um 450 milljónir króna.
Jón Kristjánsson heilbrigðisráð-
herra kynnti aðgerðirnar á blaða-
mannafundi í gær.
Andrés Magnússon, fram-
kvæmdastjóri Samtaka verslunar-
innar, sagði í samtali við Morgun-
blaðið að aðgerðirnar fælu í sér að
vald væri tekið af læknum. „Það er
klárt að það er verið að taka verulegt
vald af læknum. Þeir hafa miklu
ÁKVEÐIÐ hefur verið að taka upp
viðmiðunarverð lyfja, sem hafa sam-
bærileg meðferðaráhrif, í þremur
kostnaðarsömustu lyfjaflokkunum,
þ.e. sýrubindandi og blóðfitulækk-
andi lyfjum og þunglyndislyfjum.
Kostnaðarhlutdeild Trygginga-
stofnunar ríkisins (TR) miðast við
ódýrasta lyfið og mun stofnunin
hætta greiðsluþátttöku vegna svo-
kallaðra Coxib bólgueyðandi lyfja og
örvandi lyfja m.a. rítalíns, nema að
gefnum ákveðnum forsendum.
Þessar aðgerðir eru hluti af ráð-
stöfunum sem heilbrigðisráðuneytið,
minna um það að segja en áður hvaða
lyf sjúklingur þeirra er að taka.“
Hann benti á að lengi hefði verið
vitað að það stæði til að ná fram þess-
um sparnaði í lyfjakostnaði en að í
þessum tillögum virtist líka felast
neyslustýring.
Ekki kynntar fyrir læknum
Sigurbjörn Sveinsson, formaður
Læknafélags Íslands, sagði að tillög-
ur heilbrigðisráðherra hefðu ekki
verið kynntar fyrir læknum og þeir
ekki haft hugmynd um að breytingar
af þessu tagi væru í aðsigi.
Heilbrigðisráðherra sagði á fund-
inum að á næstunni myndi
lyfjaverðsnefnd kynna breytingar á
álagningu og verðlækkun á ein-
stökum lyfjum. Viðmiðunarverð lyfja
í lyfjaflokkunum þremur yrði tekið
upp 1. maí nk.
Á næstu misserum væri ætlunin
að endurmeta alla helstu þætti í
lyfjamálum og heildarstefnu í mála-
flokknum.
Greiðslur Tryggingastofnun-
ar miðast við ódýrasta lyfið
„Verið að taka verulegt vald af læknum“
Stefnt/11
TÓNLIST Sigur Rósar við verk
Merce Cunningham, Split Sides, er
nýkomin út í Bandaríkjunum sem
platan Ba Ba Ti Ki Di Do. Platan
hefur farið geysivel af stað í sölu og
er í sjötta sæti bandaríska smáskífu-
listans.
„Ég er bara mjög hissa,“ segir
Orri Páll Dýrason, trommari sveit-
arinnar, þegar honum eru sagðar
fréttirnar. „Þetta er alveg magnað.
Enda tónlistin ekki beint söluvæn!“
Orri hlær þegar honum er sagt að
þeir ásamt Hanso-bræðrunum eigi
besta árangurinn þessa vikuna á list-
anum. „Ég kann engar skýringar á
þessu,“ segir hann. „Þetta er svona
„ambient“ tónlist (sveim). Fólk virð-
ist greinilega kunna að meta þetta
og það er bara hið besta mál.“
Balletttónlist
Sigur Rósar
slær í gegn
Sigur Rós við æfingar á verkinu.
Sigur Rós/72
TEKJULÁGT fólk með litla
menntun fer frekar og oftar í
ljósabekki heldur en aðrir. Ljósa-
bekkjanotkun er meiri á lands-
byggðinni en á höfuðborgarsvæð-
inu. Af þeim sem fóru í ljós
síðustu tólf mánuðina fór fjórði
hver oftar en tíu sinnum. Um
24,1% unglinga á aldrinum 12–15
ára fór í ljós á því tímabili.
Þetta er meðal niðurstaðna
könnunar sem IMG Gallup gerði
fyrir Landlæknisembættið,
Geislavarnir ríkisins, Krabba-
meinsfélagið og Félag íslenskra
húðlækna í lok febrúar og byrjun
mars. Úrtakið var 1.350 manns á
aldrinum 12–75 ára og svarhlut-
fallið 65%.
Mun algengara er að konur fari
í ljós heldur en karlar, 39,3%
samanborið við 21,9%. Yngri kon-
ur fara frekar í ljós en þær sem
eldri eru. Svo virðist sem notkun
ljósabekkja sé meiri á Íslandi en í
nálægum löndum og áætla má að
dag hvern fari um átján hundruð
Íslendingar í ljós.
Könnunin leiddi einnig í ljós að
um 70% kvenna á aldrinum 16–24
ára fóru í ljós síðustu tólf mánuði,
um 54% 25–34 ára, um 24% 35–44
ára og 23% á aldrinum 45–75 ára.
Um 35% karla á aldrinum 16–24
ára fóru í ljós síðustu tólf mánuði,
um 38% 25–34 ára, um 19% 35–44
ára og 9% á aldrinum 45–75 ára.
Hafa verður í huga að svonefnd
vikmörk eru nokkuð víð þegar
hópnum hefur verið skipt upp eft-
ir aldri og kynjum, samkvæmt
upplýsingum Krabbameinsfélags-
ins um niðurstöðurnar.
Þegar leitað var álits á því
hvort fólk teldi að notkun ljósa-
bekkja yki hættu á húðkrabba-
meini sögðu um 97% þeirra sem
eru 16–75 ára svo vera en 82% á
aldrinum 12–15 ára. Sam-
anburður við önnur lönd bendir
til þess að fleiri Íslendingar en
Svíar, Bretar og Kanadamenn
fari í ljós.
Fyrstu sólbaðsstofurnar hér á
landi tóku til starfa fyrir ald-
arfjórðungi. Lausleg athugun
leiðir í ljós að á höfuðborg-
arsvæðinu séu nú um þrjátíu sól-
baðsstofur, auk þess sem ljósa-
bekkir eru á mörgum
líkamsræktarstöðvum og á sund-
stöðum.
Könnunin var gerð í tengslum
við fræðsluátakið „Hættan er
ljós“ á vegum þeirra aðila sem
könnunin var gerð fyrir, en ný-
lega birtist í dagblöðum auglýs-
ing þar sem varað var við því að
fermingarbörn færu í ljós. Sagt
var í auglýsingunni að brúnn húð-
litur eftir ljósabekki og sólböð
gæti verið merki um skemmdir í
húðinni sem leiða til ótímabærrar
öldrunar húðarinnar og jafnvel
húðkrabbameins. Jafnframt kom
fram að Alþjóðaheilbrigð-
ismálastofnunin og fleiri hefðu
ráðlagt þeim sem eru yngri en 18
ára að fara ekki í ljósabekki.
1.800 Íslendingar í ljós á degi hverjum
9
D ; =
0
*!
&
2 3 3 0 D !"")
!'E#)
#'E))
)'E,'
*+E!)
-"
,"
+"
'"
)"
#"
!"
*"
"
(
8
8 STANGAVEIÐIVERTÍÐIN fór afar vel af stað í gær,
en þá hófst veiðiskapur í allmörgum ám á sunnan- og
vestanverðu landinu og einni á norðan heiða, Litluá í
Kelduhverfi. Var veiðiskapur víða með líflegasta móti.
Fimm veiðistaðir skáru sig úr í magnveiði, Tungu-
lækur í Landbroti, Geirlandsá, Vatnamótin, Varmá við
Hveragerði og Litlaá.
Víðast var svipaða sögu að segja, milli 50 og 60 úr
Tungulæk, um 40 úr Geirlandsá, tæplega 50 úr Varmá,
stefndi í 70–80 í Litluá og 45 stykki í Vatnamótunum.
Þar veiddist líklega sá stærsti, tröll upp á 85 senti-
metra, sem er ávísun á 14 til 16 punda fisk. Fjórir
veiddust í Tungufljóti þrátt fyrir vatnavexti.
Mikla athygli vakti í Varmá, að allnokkrir mjög væn-
ir regnbogasilungar voru í aflanum, 4 til 5 punda fiskar
og fjarri því „eldislegir“, þ.e.a.s. uggar þeirra voru
heilir og útlit allt hið fallegasta. Regnbogar hafa veiðst
í Varmá árvisst í mörg ár, en að sögn Valgeirs veiði-
varðar er þetta það langmesta sem menn muna og auk
þess er hér um mun stærri fiska að ræða en áður. „Við
höfum áhyggjur af þessu og það er leyfilegt að drepa
regnbogann,“ sagði Valgeir.
Morgunblaðið/Einar Falur
Þórarinn Kristinsson glímir við vænan sjóbirting í Tungulæk í Landbroti. 50–60 fiskar veiddust þar í gær.
Vertíðin fór vel af stað
„Húðlæknar hafa á undanförnum árum séð að tíðni húðkrabbameins í
yngstu aldurshópunum hefur vaxið ógnvekjandi mikið,“ segir Bárður Sig-
urgeirsson húðlæknir. Hjá konum á aldrinum 20–29 ára er aukningin sex-
föld ef tímabilið 1982–92 er borið saman við tímabilið 1993–2002. Einnig er
mjög mikil aukning í húðkrabbameini hjá fólki í öðrum aldurshópum, bæði
konum og körlum.
„Við höfum verið að sjá unglinga, sem fæddir eru ’88 og ’87, með krabba-
mein í húð, sortuæxli, sem er alvarlegasta tegund húðkrabbameina. Þessar
öru breytingar eru nánast óþekktar annars staðar í heiminum.“
Bárður segir að orsökin sé breyttur lífsstíll Íslendinga; aukin sól- og
ljósaböð eigi þar stærstan þátt. „Íslendingar eiga heimsmet í ljósabekkj-
anotkun. Húðlæknar hafa miklar áhyggjur af þessu.“ Hann bendir á að á
aðalfundi Húðlæknafélagsins fyrir tveimur árum hafi verið samþykkt
ályktun um að börn yngri en 18 ára þyrftu að fá skriflegt leyfi foreldra til
að fara í ljósabekki en segir yfirvöld ekki hafa treyst sér til að setja reglur
um þetta, þó þannig sé í mörgum löndum. „Skaðinn er alvarlegastur hjá
ungu fólki og notkun verður frekar óhófleg hjá þessum aldurshópi,“ segir
Bárður og að geislar í ljósabekkjum fari dýpra í húðina en geislar sólar og
geti haft alvarlegri áhrif en áður var talið.
15 og 16 ára með sortuæxli
BJARNI Ákason, fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri hjá Aco-Tæknivali,
mun opna sérhæfða Apple-tölvu-
verslun í Kaupmannahöfn í júlí nk.
Ef vel gengur áætlar hann að opna
níu Apple-verslanir til viðbótar um
öll Norðurlöndin.
„Ef menn fara alla leið erum við að
tala um fjárfestingu upp á 150 millj-
ónir. Verslunin í Kaupmannahöfn
einni er fjárfesting upp á 25 millj-
ónir,“ segir Bjarni Ákason.
Opnar Apple-
verslun í
Danmörku
Opnar/12
♦♦♦
NEFND menntamálaráðherra um
eignarhald á fjölmiðlum, sem upp-
haflega var miðað við að skilaði áliti í
byrjun marz, mun að líkindum skila
niðurstöðu sinni á næstu dögum, þó
hugsanlega ekki fyrr en í næstu
viku, samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins.
Störf nefndarinnar
eru langt komin
Samkvæmt upplýsingum blaðsins
eru störf nefndarinnar langt komin,
en endanleg niðurstaða liggur ekki
fyrir.
Heimildarmenn Morgunblaðsins
vilja ekki staðfesta frétt Ríkisút-
varpsins frá í gærkvöldi um álit
nefndarinnar, þar sem nefndin sé
enn að störfum og skýrsla hennar
hafi því ekki borizt stjórnvöldum.
Nefndin var skipuð skömmu fyrir
jól til að kanna hvort tilefni væri til
að setja lög um eignarhald á fjölmiðl-
um og hóf hún störf sín í janúar.
Niðurstaða
væntanleg
bráðlega
Nefnd um eignarhald
á fjölmiðlum