Vísir - 29.06.1981, Page 2
,2 ;
Hvaða yoghurt er best?
Þórdís Fri&biófsdóttir, 5 ára:^
„Ég boröa aldrei yoghurt og
aldrei skyr”
Esther Þorsteinsdóttir, 7 ára:
„Appelsinuyoghurt og bláberja-
skyr lika”
Daníel Þorsteinsson 5 ára: „Mér
finnst jaröaberjabragö best”.
Guöny Amdis óskasdóttir, 10
ára: „JarBaberjabragö”.
Drfía Siguröardóttir, 14 ára I
unglingavinnunni: „Karamellu-
og hnetuyoghurt”.
VtSLR
Mánudagur 29. júní 981
ii
Splallað vlð Bolia Héðlnsson. afleyslngarmann hjá sjónvarpinu:
stelni ð að stofna
M
siðran kralaiiokk
- er hugsjón Bolla og ætiar hann að vlnna að hví innan
Framsðknarflokksíns
En einu sinni hefur ráöning
fréttamanns viö Rikisútvarpiö
vakiö upp mikinn úlfaþyt og var
nú um aö ræöa starf afleysingar-
manns á fréttastofu sjónvarps.
Starfiö hlaut Boili Héöinsson en
sem kunnugt er skiptist útvarps-
ráö mjög I tvö horn um þaö hver
hreppa skyldi hnossiö en útvarps-
stjóri ræöur i starfiö. Bolli er i
viötali dagsins.
„Mérfinnst þetta mál hafa sýnt
fram á vanhæfni útvarpsráös til
aö f jaila um slik efni en ég held aö
þaö veröi mjög til bóta aö setja á
laggirnar nefnd, sem semji ein-
hverjar viömiöunarreglur i þess-
um efnum. Mér fyndist eölilegast
aö útvarpsráö fengi i hendur lista
yfir þá umsækjendur sem sækja
um störf innan Rikisútvarpsins
og taldir eru hæfir, og ráöið raöi
þeim siöan upp i forgangsröð,”
sagöi Bolli um umfjöllun útvarps-
ráös.
Bolli er Reykvikingur i húð og
hár, fæddur i Hliöunum áriö 1954.
Hann lauk stúdentsprófi úr eölis-
fræöideild MH áriö 1974 og hélt
siöan til Munster i Þýskalandi og
hóf þar nám i þýsku og fjölmiöla-
fræöum. Ariö eftir lá leiöin suöur
til Munchen þar sem fjölmiöla-
námiö hélt áfram en haustiö 1976
snerist honum skyndilega hugur
og hélt hann þá aftur heim á
Frón. Þar innritaöist Bolli I viö-
skiptafræöideild Ht og hann er
einmitt þessa dagana aö ljúka
kandidatsritgerö frá deildinni þar
sem hann brýtur veröbólguna
blessaöa til mergjar. Bolli hefur á
sumrum starfaö sem blaöamaöur
viö Dagblaöiö allt frá stofnun
þess og veturinn 1978 til 1979 tók
hann sér fri frá námi og gegndi
embætti formanns stúdentaráös
Háskólans.
„Annars hef ég lifað mjög
reglusömu og vanabundnu lifi
þannig aö ég get ekki sagt neinar
krassandi sögur af sjálfum mér.”
Nokkuö hefur verið rætt um
pólitiskar skoðanir Bolla og ann-
arra starfsmanna rikisfjölmiöl-
anna og meöal annars vakti þaö
athygli er Bolli lýsti þvi yfir aö
hann væri framsóknarmaöur.
,,Ég er jafnaöar- og samvinnu-
maöur og fram til þessa hef ég
aðeins veriö flokksbundinn i ein-
um flokki en þaö var frjálslyndis-
flokkur Bjarna Guönasonar á sin-
um tima. En aö undanförnu hef
ég veriö aö hugsa mér til
hreyfings og niðurstaðan hefur
oröiö sú að ég ætla mér aö vinna
aö þeirri hugsjón minni að sam-
eina jafnaöarmenn og samvinnu-
menn i einn stóran krataflokk.
Þvi markmiöi mun ég vinna aö
innan Framsóknarflokksins.”
Siöasta sumar gekk Bolli i þaö
heilaga og sú lukkulega var Asta
Thoroddsen, hjúkrunarfræöslu-
stjóri og eiga þau eins og hálfs árs
gamlan son, Sverri, og 9 ára
gamlan stjúpson, Einar Gunnar.
Fristundum sinum ver Bolli i aö
glugga I þjöömálaumræöu lands-
manna og taka ljósmyndir. En
hvaö meö nýja starfiö?
„Mér hefur veriö tekiö mjög vel
hér á sjónvarpinu en fyrstu
dagarnir fara i aö kynnast vinnu-
staönum og starfinu sem sliku.
Ég kem eingöngu til með aö veröa
i innlendum fréttum og væntan-
lega mun ég birtast á skjánum
þega sumarleyfi sjónvarpsins
lýkur. Júlimánuöur fer hinsvegar
I að ljúka viö ritgeröina og aö
undirbúa mig eftir föngum undir
hiö nýja starf”.
Og hvað tekur við aö loknum
þessum fimm mánuöum hjá sjón-
varpinu?
”Ég ætla aö nota timann til aö
leita mér aö framtiöarstarfi. Ætli
Bolli Héöinsson lengst t.v.
> Visismynd Þó. G.
ég reyni ekki að finna mér góöa
möppu einhverstaðar i kerfinu,”
sagöi Bolli Héðinsson að lokum.
—TT.
sandkom
j
Buslað 1 Iðnó
Hreinlætisaöstaban i
Iönó mun trúlega vera
meö þvi verra sem boöiö
er uppá i íslenskum leik-
húsum. Iiafa leikarar og
aörir starfsmenn aögang
aö einum stálvaski, þar
sem þeir geta skolaö, af
sérog má nærri geta hver
örtrööin viö þaö vaskgrey
er eftir 20-30 manna
sýningar. En leikarar eru
bjartsýnismenn og
segjast ekki óttast neinn
skort á þvottaaöstööu á
næstunni. Kjallarinn, þar
sem tittnefndur vaskur
er leki nefnilega dulitiö,
svo þeir geti átt von á
Tjörninni inn á gólf
hvenær sem er... Og þá
veröi nú buslaö I Iönó.
Prestkonur...
Ýmisleg eru þau,
vandamálin, sem koma
upp meö breyttum siðum
og venjum. Eitt slikt er
nú á feröinni hjá Prest-
kvennafélagi tslands,
sem heldur upp á 25 ára
afmæli sitt. Þangað er
öilum prestkonum vita-
skuld boöiö, en svo hefur
Sr. Aubur Eir Vilhjálms-
dóttir.
oröiö aö hnýta aftan viö
klausuna á boöskortunum
ab eiginmenn presta væru
lika velkomnir. Þeir eru
nú orönir tveir, sem
kunnugt er þvi sr. Auöur
Eir og sr. Dalla Þóröar-
dóttir, dóttir hennar, eru
báöar þjónandi prestar.
Nú er spurningin sú,
hvort ekki þurfi aö breyta
nafninu á félaginu til aö
þaö spanni maka presta,
af báöum kynjum.
Sr. Dalla Þóröardóttir.
...og presimenn
Þegar þetta „vanda-
mál” varö lýöum ljóst,
var Sr. Auður Eir spurö
hvernig karlmennirnir f
hennar fjölsky Idu
hyggðust bregöast viö
þvi. Auöur brást fljótt viö
aö vanda og svarabi þvi
til aö þeir myndu liklega
ekki hafa hug á þvi aö
ganga i prestkvennafé-
lagiö. Hins vegar heföu
þeir mikinn áhuga á
prestekknasjóönum.
Megrunar
kúrlnn
Benni kom alveg sár-
hnugginn I vinnuna og var
auövitaö strax spuröur
hvaö væri aö.
„Konan min er á spi-
tala”.
„Nú, hvers vegna”.
„Þaö eru afleiöingar af
megrunarkúr.”
„Þoldi hún ekki
megrunarlyfið?”
„Jú, en hún fór út á
svalir og fauk niöur af
elleftu hæö”.
..Kulturlesl”
í Kððen
Nokkrir landar okkar I
Kaupmannahöfn
minntust 37 ára afmælis
islenska lýöveldisins 17.
júní siöastliöinn á heldur
óvibkunnanlegan hátt,
svo ekki sé meira sagt.
Fagnaðurinn, sem
nefndur er „kulturfest” i
félagsbréfi íslendinga-
félags-Námsmanna
félags I Köben fór fram I
Saltlageret, Gammel
Kongevej. Sóttu hann
einkum islenskir náms-
menn, en einnig gestir
hér að heiman, svo sem
tvær islenskar hljóm-
sveitir. Þegar „kultur-
festen” stóð sem hæst,
tók trom muleikari
annarar hljómsveitar-
innar sig til, sveipaöi um
sig islenska fánanum og
hóf ab „leika” fjall-
konuna meö ýmsum 6-
sæmilegum tilburöum.
Aö þvi búnu tók hann fán-
ann, henti honum i gólfið
og tróö á honum. Mun
einhverjum hinna eldri
tslendinga hafa ofboöiö
svo vanviröan, sem fán-
anum og fjallkonutákninu
var sýnd þarna, aö þeir
gengu út af staðnum.
Aörir gesta virtust hinir
ánægöustu meö framtak
hljómsveitarmannsins og
fögnuöu vel.
Börnln llka
En þótt einhverjir Is-
lenskir námsmenn i
Kaupmannahöfn hafi
kosib aö minnast lands
sína þann 17. júni á ofan-
greindan hátt, var annab
öllu alvarlegra I dæminu.
Margir þeirra höföu
nefnilega tekiö litil börn
sin meö sér á „kultur-
festen”. Trúlega fá þessi
sömu börn aö horfa upp á
fleiri Þjóðhátibaruppá-
komur, ef aö Ifkum lætur.
Þaö má nærri geta
hverjum augum þau lita
fósturjörbina þegar þau
koma heim eftir nokkurra
ára dvöl erlendis.
Á hinn bóginn er auö-
vitaö sjálfsagt að koma
upp félagsráðgjöf fyrir
fyrirmyndarnáms-
mennina i útlandinu, eins
og stendur til aö gera.
Eins er sjálfsagt að veita
þeim feita styrki og lán til
að þeir geti dvaliö sem
lengst erlendis og veriö til
sóma fyrir land sitt og
þjóö, hér eftir sem hingað
til.
öijós tiiskrli
Fundargeröir nefnda
og ráöa Húsavikurbæjar
eru aldrei leiöinlegar af-
lestrar, eins og viö höfum
áöur bent á hér I VIsi,
enda eru Þingeyingar
þekktir fyrir annaö en
þunglyndi. Til marks um
þetta birtum viö eftirfar-
andi úr fundargerð i-
þróttanefndar frá 8. júní:
„Bréf frá bæjarritara,
dagsett 5. júni 1981, um
bókun bæjarstjórnar 4.
júni sl. þar sem iþrótta-
nefnd áttaði sig ekki á
hvað viö væri átt i um-
ræddu bréfi ákvaö hún aö
fresta umræbum þar til
nánari uppiýsingar lægju
fyrir!”.
Jóhanna S. Sigþórsdóttir
skrifar: