Vísir - 11.07.1981, Side 12
12
HITT
ASIA
fædd
VtSIR
Laugardagur 4. júli 1981.
Bossinn sybbinn!
Bandariski stórrokkarinn Bruce Springsteen, sem gegnir nafninu
„Thc Boss” hjá samstarfsmönnum sinum, hefur siðustu vikurnar
verið á hljómieikaferð i Bretlandi. Um eitt hundrað og tuttugu þús-
und manns komu á hijómieika hjá honum og þrisvar sinnum fleiri
reyndu að fá miða! Það var þvi engin furða þótt einhver þreytu-
merki hafi komið fram hjá karli svona undir lokin og syfjan tekið
völdin um stund.
Bruce hristi gamla kempu fram úr erminni fyrir skömmu, Gary
US Bonds, sem ekki haföi látið á sér kræla i tæp tuttugu ár. Með lag
eftir Bruce Springsteen, sækir Gary nú upp brattan vinsældalista
með lagið „This Little Giri ’og erenná uppleið.
ÞRENNA
GAMLA
AKURS
Augun
OG
“■nar, enda JIÖUstu vik- fl
^ augu i d . nS,n veni |l fl
,“m ÆnUg?í0aVis«r I
íof?aðas(a g tfr e,n nafn. " v
e'kkonan fyri a/)cíaríska fl
tngum gra ' nokkruni 5
mynclir t' r aJg f
enduöu með knt?° lyw00d S
£.fJS öfaa S ungfru ■
enl^11 hennar !
gOOU *®» „rn hm""eis m' f
Magnds Gamli-Akur (Mike
Oldfield) skoraði þrennu á Is-
lenska poppvellinum hér á dögun-
um, þegar á markaðinn komu
þrjár plötur hans allar pressaðar
i Alfa-verksmiðjunni og þvi með
tilheyrandi lækkun á dtsöluverði.
Mike Oldfield er langkunnastur
Tölvuvætt
kraftaverk
Frumherjarnir I tölvurokki,
þýska hljómsveitin Kraftwerk,
sendi á dögunum frá sér plötuna
„Computer-World” eða „Tölvu-
Heimur”. Þetta er fyrsta plata
Þjóðverjanna i hartnær þrjd ár
eða frá þvi „Man Machine”
fékkst keypt fyrir sanngjarnt
verð árið 1978. Þá fussuðu flestir
viö tölvutónlist og margir
óskuðu sér þess að slík tónlist
mætti aldrei þrifast.
önnur varð raunin. Á siðustu
tólf mánuðum eða svo hefur
tölvurokk eða rafeindadiskó
(mér er sama hvað það er
kallað) náð gífurlegri útbreiðslu
og einkanlega hafa Bretar stutt
við bakið á þessari tegund tón-
listar. Rokkáhrif eru að sönnu
miklu meiri hjá bresku tölvu-
rokkurunum en Kraftwerk og
vasatölvurnar eru ekki jafn
áberandi! Ein af fyrstu bresku
hljómsveitunum sem gekkst
undir áhrif frá Kraftwerk var
Human League en siðan hafa
þær fyllt tuginn og vel það. Þeir
segja að þetta sé framtiðin!?
S8#S»j9
fyrir verk sitt „Tubular Bells”,
sem m un vera ein söluhæsta plata
allra tfma og skólabókardæmi um
klassiskt poppverk. Aöeins
sautján ára gamall hóf Oldfield
samningu verksins og með
stofnun hljómplötufyrirtækisins
Virgin fékk hann tækifæri til að
koma tónlist sinni á framfæri.
Platan „Tubular Bells” varð
jómfrúarverkefni Virgin og tæp-
ast hefur fyrirtækið getað valið
sér heppilegra verk, þvi platan
hefurselstium það bil tiumilljón
eintökum til þessa. Siðan hefur
Virgin vaxið og dafnað og Old-
field sömuleiðis, þó ekki hafi
annar eins kjörgripur og
„Tubular Bells” komið frá hans
hendi.
Hinar plöturnar tvær sem eru i
„islenska pakkanum” heita
„Platinum ”og „QE2” en þær eru
frá árunum 1979 og 1981. Mike
Oldfield stofnaði nýlega sina
fyrstu hljómsveit og mun um
þsssar mundir vera á hljómleika-
iferð.
ÞETTA
Endanlega er nú orðið ljóst að
hljómsveit Yes hefur snúið upp
tánum. Tveir liösmanna Yes, þcir
Steve Howe og Geoff Downes hafa
gengiö til liðs við fyrrum bassa-
leikara UK og King Crimson,
John Wetton, og Trymbilinn Carl
Palmer úr Emerson, Lake &
Palmer, — til þess eins að stofna
hljómsveitina ASIA.
Áreiðanlegar heimildir herma
að hljómsveitin hafi um hrið æft
sig af kappi bak við iuktar dyr og
fyrsta plata hennar komi i
nóvember.
Allt er enn á huldu um framtið
hinna liösmanna Yes og sögu-
sagnir þess efnis að Chris Squire
og Alan White hyggist stofna
hljómsveit með Jimmy Page
fyrrum gitarleikara Led Zeppe-
lin, — hafa enn ekki verið stað-
festar. Hins vegar er ljóst að
þessir gaurar æfa grimmt saman,
en heldur þykir ósennilegt að
söngvari Zeppelin, Robert Plant,
hvað þá söngvari Yes, Trevor
Horn, gefi kost á sér við hljóð-
nemann.
Hazel aftur
á tjaldió
Breska söngkonan, laga-
smiðurinn og Ijóöskáldiö Hazel
O’Connor mun ef til vill sjást
aftur á hvíta tjaldinu innan
skamms þvi henni hefur veriö
boðið hlutverk i gamanmyndinni
„Löggur og ræningjar”. Þar
segir af ungu pari sem verður sér
út, um eina giftingu, en boösgest-
imir láta ekki á sér kræla.
Fyrri mynd Hazels, „Breaking
Glass” áttiað koma i Borgarbió,
en þar hefur lengi verið lokað
vegna breytinga, enda mun þar
hafa veriö átt viö breytingar á
skattalögunum!
U ltavox-V ienna/Chrysalis
CHR 1296.
Elektrónísk popptónlist hef-
ur vaxið geysilega hröðum
skrefum í Bretlandi á skömm-
um tíma og sýnir ef til vill
mjög vel hversu tónlist er
teygjaniegt form. t sjálfu sér
er tölvupoppið ekki nýtt,
dadaistarnir göm lu og „futru-
istarӇ fyrri hluta aldarinnar
brúkuðu ýmiss'konar mask-
inuhljóð, sem svuntuþeysar
nútfmans og tölvur hafa leyst
af hólmi. Nú er starfandi
fjöldinn allur af hljómsveitum
sem þrífast á tölvupoppi og
þar er Ultravox I fremstu röð
að mfnum dómi. Eins og flest-
ar aðrarsvipaðar hljómsveitir
ergamanseminni ekki fyrir að
fara, þessar hljómsveitir eru
dæmalaust alvarlegar i fasi,
en Ultravox leikur fjölbreytt-
ari tónlist en aðrar á sömu
linu. Allnokkuð er um liðiö frá
þvf þessi plata kom út, og ný
Ultravox plata væntanleg með
haustinu. Á þessari plötu eru
aftur á móti helstu gullkorn
Ultravox til þess, svo sem
„Vienna” og „All Stood Still”.
Kjörgripur.
Gunnar Salvarsson skrifar.
ULTFM^DX
l/ENW/l
Gary US Bonds-Dedica-
tion/EMI merica AML 3017
Fyrir réttum tuttugu árum
var söngvarinn Gary Us
Bonds allþekktur og hafði
enda átt tvö lög sem náðu inná
topp 20 i Bretlandi, lögin „New
Orleans” og „Quarter To
Three”. En þá kom hlé og það
i allra lengsta lagi þvi það var
ekki fyrr en i sumar sem aftur
heyðist til hans. Nú er Gary
orðinn vel fertugur og þar sem
allt er fertugum fært fékk
hann Bruce Springsteen sér til
aðstoðar i stúdiói. Árangurinn
af þvi samstarfi heyrist á
þessari plötu og vcrður að telj-
ast bærilcga viðunandi. Lögin
eru flest úr ýmsum áttum, þó
hefur Springsteen samið þrjú
ný lög fyrir Gary og þar á
meöal eitt af vinsælli lögunum
vestan hafs þessa stundina,
„This Little Girl”. Athyglis-
verðar eru útsetningar á
gömlum frægum lögum s.s.
Bitlalaginu „It’s Only Love”,
Jackson Browne laginu „The
Pretender” og lagi Dylans
„From a Buick 6" en þau eru
hlaöin soultilfinningu og kem-
ur Gary þeim vel til skila með
sinni grófu rödd.