Tíminn - 24.12.1969, Side 45
TÍMINN - JÖLABLAÐ
45
SÉRA SIGURÐUR
Framhald af bls. 3
I fellt „niútóma" og þá sem þaS
iðka nútímamenn. Báðum þess-
um er það sameiginlegt, að
þeir tala um nútímamenn eins
og afmarkaða og þekkta stærð,
sem þeir vita allt um. Líkt og
þeir héldu á litlum hiut í
Ihendi sér, er þeir þekktu yzt
sem innst. Svona einfalt er
málið ekki fyrir mér. Til þess
að svara þessari spurningu,
verð ég fyrst áð athuga hvílfk-
ir þeir „nútímamenn“ eru,
sem leggja skal þessa spurn-
. ingu fyrir.
Fyrst vil ég taka fram, að
ég tel þá eina algera nútíma-
menn, sem komnir eru um og
yfir fertugt. Þeir verða að telj-
í ast hinir eiginlegu „nútíma-
menn“ vegna þess að þeir hafa
átt nokkurn þátt í að skapa
þau skiiyTði, sem lifað er við
og þeir setja svip á samtíðina.
Hinir, sem yngri eru, hafa
hvorki haft tíma né þroska til
! að móta yfirstandandi tíma,
j þeir eru því menn framtiðar-
I innaT.
j Þó því sé föstu slegið, að
j þessi aldursflokkur sé hinn eig
, inlegi nútímamaður, er eftir
að finna sameiginlegt ein-
kenni, fyxir „nútímamanninn“.
Til að gera sér grein fyrir hve
, vandfundið þetta sérkenni er,
getur verið réttmætt að taka
dæmi um samtíðarmenn, sem
i báðir eru „nútímamenn“ sinn-
ar samtíðar.
Ég vil fyrst nefna Jósef
Stalin. Hann hvarf ungur frá
ófullnuðu guðfræðinámi og
sneri sér að stjórnmálum.
Tf-ann varð æðsti valdamaður
Rússlands. Þar ríkti hann með
’ harðri hendi til dauðadags.
Hann útrýmdi fjökla af' for-
ystumönnum þjóðar sinnar og
þar með sínum eigin samstarfs
mönnum, þegar svo bauð við
að horfa. Sjálfur bjó hann í
höll-um keisaranna umkringd-
i ur margföldu lifvarðailiði, sem
1 baíið var öllurn þeirn öryggis-
tækjum, sem stórveldið átti
yiiir að ráða. Allt var þetta til
t að?>ernda líf þessa -hræðilega
þjSðhöfðingja. Hans er minnzt
sem eins hinna grimmustu
valdhafa sögunnar.
Einn af samtíðarmönnum
Stalíns var Albert Schweitzer.
Hann nam líka guðfræði og
varð heimskunnur af ritum sín
um um þau efni. Hann ritaði
um tónlist Bachs og sá um út-
gáfu hennar. Sjálfur var hann
organisti og heimskunnur Bach-
spilari. Hann ritaði mikið um
heimsspeki. T-aldi hann sarntíð
sína vera á andlegu hnignun-
arskeiði, sem leiða mundi til
ófarnaðar ef ekki yrði stefnu-
breyting. Hann ta'di lífsnauð-
syn fyrir manninn að hann
, vanrækti ekki að hugsa og gera
sér vitlega grein fyrir hinu
góða og sanna. Siðferðileg við-
reisn taldi hann að ekki gæti
byggzt á öðru en djúpri lotn-
ingu fyrir lifinu cg höfundi
þess. Hann ákvað að verja lífi
sínu til að líkna þeim sem
-hann vissi bágstaddasta. Til
þess að geta það, nam hann
læknisfræði og fluttist suður
til Afríku. Hann lét hjálp sína
í té án endurgjalds en aflaði
sjálfur fjár til starfs síns með
ritverkum og tónleikum. Hann
lifði við lík kjör og þjóðir
þær, sem hann starfaði með.
Lífvörður hans var kærleiki
-meðborgara hans. Hans er
minnzt sem eins hins mesta
mannvinar sögunnar.
Þessir t-veir heimsfrægu
menn voru sa-mtímamenn en
harla ólíkir. Hvorn þessara
manna mundi samtíð þeirra
-hafa kallað „nútímamann“?
Ég vil taka annað dæmi,
sem er n-ærtækara.
Fyrstí gei-mfarinn, sem
komst út fyrir gufuhvolf jarð-
ar og fór nokkra hringi kring-
um það, sagði þegar hann kom
aftur til jarðar, að hann hefði
h-vergi orðið Guðs var og væri
því óþarft að gera ráð fyrir
honu-m. Næsti geimfari, sem
fór samskonar ferð út í geim-
inn, sagði hins vegar að Guð
hefði alls staðar verið með sér.
Báðir þessir menn voru nú-
tímamenn í allra fyllsta skiln-
ingi. Þeir voru á sam-a aldri,
þeir höfðu sömu menntun,
þeir voru báðir sérstakir at-
gervismenn og þeim tókst báð-
um að vinna sama stórafrekið.
Enginn getur sagt um annan
þeirra að hann hafi verið „nú-
tíma maður“ en hinn ekki.
Samleið þessara miklu sögu-
persóna lauk þegar kom að
spurningunni um Guð, sem er
hið mikilvægasta viðfangsefni
mannlegs anda. Afrek þessara
manna er geysistórkostlegt
frá jörðu séð, en ekki nema
örsmæðar punktur úr geimn-
um séð. Þetta vissi Gagarín
enn betur pn, vér, lesendur
þessarar ’greinar, því hann
hafði bæði lærdóm, gáfur, og
reynslu í mesta mæli. Samt
fatast honum svo þegar kem-
ur að spurningunni um Guð,
að hann gefur svo heimsku-
lega yfirlýsingu að jafnvel
skoðanabræður hans geta ekki
haft hana eftir. Stéttarbróðir
hans gaf hins vegar svar, sem
enginn getur -með rökum mót-
mælt. Manni koma í hug orð
Davíðs konungs: „Heimsking-
inn segir í hjarta sínu: Eng-
inn Guð“ (Sálm. 14,1).
Hér hafa verið tekin dæmi
af fjórum mönnum, sem nú-
tíminn þekkir. Þó fleiri væru
tekin, kæmi sama út. Eng-
inn „nútími“ markar alla
sína kynslóð undir sama mark,
og nútima menn eru mjög líl-
ir annarra tíma mönnum. E.t.
v. er munurinn aðeins sá, rð
vér þekkjum ekki annarra
tíma menn nógu vel og þess
vegna finnst oss þeir öðruvísi.
Mér virðist allra tíma menn
vera skemmtilega ólíkir :nn-
byrðis á hvaða öld sem þeir
eru, en hver kynslóð annarri
lík í heild. Hins vegar færa
nýir tímar oft með sér ný
Framhald á bls. 63.
BÍLASKOÐUN & STILLING
Skúlagötu 32.
HJÚLASTILLINGAR
MÚfORSTILLI.NGAR LJÚSÁSTILLINGAR % fíSiml
LátiS stillah tíma. 1 Q -1 fl Í1
Fljót og örugg þjónusta. I I w U
»%*•%>
iiiiiilliiiiii
IÍii|||||||||ÍiÍi||Í||g^i^;
V.V.V
FRAMFARIRNAR ERU ORAR
----SAMBAND ÍSL. SAMVINNUFÉLAGA
HOLLENZK
GÆÐAVARA
(IERA
SölustaSir: Þjónusta: JD/térffrtftiféfa/t* A&
KAUPFÉLÖGIN UM LAND ALLT RADlÓSTOFAN, ÓÐINSGÖTU 4 RAFTÆKJADEILD — HAFNARSTR/ETI 23
SlMI 18395
I
i
I
(