Morgunblaðið - 17.04.2004, Síða 1
STOFNAÐ 1913 104. TBL. 92. ÁRG. LAUGARDAGUR 17. APRÍL 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Kjötfars í
hátíðarbúningi
Meistarakokkar töfruðu fram
nýstárlega rétti | Daglegt líf 33
Lesbók og Börn í dag
Lesbók |Köld máltíð í kaupmannshúsi Ekkert er
algjörlega dautt Börn | Skylmingar eru líkamleg
skák Stórmerkilegir Rómverjar og þrælauppreisn
NEMENDUR í 3. bekk Kvennaskólans í
Reykjavík héldu sinn árlega peisufatadag í
gær og dönsuðu og sungu í íslenskum þjóðbún-
ingum víðsvegar um borgina.
Kristín Ruth Jónsdóttir, nemandi í Kvenna-
skólanum, segir daginn hafa heppnast ótrú-
lega vel, og í minningunni verði þetta eflaust
einn af bestu dögum skólagöngunnar. „Það er
bara eitthvað við það að klæða sig svona upp
og gera eitthvað öðruvísi, það kemur í raun-
inni ákveðið þjóðarstolt við það að fara í bún-
ingana,“ segir Kristín.
Morgunblaðið/Jim Smart
Dönsuðu og sungu í íslenskum þjóðbúningum
VÆNTA má fleiri stórra jarðskjálfta
á Suðurlandssvæðinu á næstu árum,
þar sem aðeins um þriðjungur þeirrar
spennu sem hlaðist hafði upp á svæð-
inu frá skjálftanum 1912, losnaði í
jarðskjálftunum tveimur sem riðu yf-
ir í júní árið 2000.
Þetta kom fram í erindi Þóru Árna-
dóttur, jarðeðlisfræðings á Norrænu
eldfjallastöðinni, á Raunvísindaþingi
Háskóla Íslands í gær. Hún segir í
samtali við Morgunblaðið að líklegt sé
að orka sem enn er í berginu og muni
losna í skjálftunum sé af svipaðri
stærðargráðu og í þeim sem urðu fyr-
ir fjórum árum.
„Það sem er erfitt í þessu er að við
getum ekki ennþá sagt til um hvar
eða hvenær þessir skjálftar verða. Við
getum einungis sagt að það séu
ákveðnar líkur á að þeir verði á ein-
hverjum árafjölda.“
Þóra segir ómögulegt að segja til
um hvenær sú orka sem er í berginu á
Suðurlandi muni leysast úr læðingi.
„Orkan er fyrir hendi, en það sem ger-
ir þetta mjög erfitt er að við skiljum
spennuástandið í berginu núna ekki
nógu vel. Ef við vissum hvaða mis-
gengi er mjög nálægt því að brotna
væri mun auðveldara að spá því hvar
skjálftinn yrði, þó það yrði kannski
erfiðara að segja fyrir hvenær.“
Spáð stórum skjálftum
Búist við / 4
Enn mikil spenna í
bergi á Suðurlandi
FORSETI Lettlands, Vaira Vike-Frei-
berga, sagði í gær að rússneskir stjórn-
málamenn hefðu skipt sér af innanríkismál-
um Letta með því að skipuleggja mótmæli
námsmanna gegn þeirri ákvörðun að lettn-
eska skuli vera aðaltungan í ríkisskólum.
Um 2.000 rússneskumælandi námsmenn
mótmæltu lögunum við forsetahöllina í
Riga í fyrrakvöld. „Svo virðist sem mót-
mælin séu runnin undan rifjum stjórnmála-
manna í Moskvu og það er íhlutun í innan-
ríkismál okkar,“ sagði Vike-Freiberga.
Rúmur þriðjungur íbúa Lettlands, sem eru
alls 2,3 milljónir, er rússneskumælandi.
Sakar Rússa
um íhlutun í
mál Letta
Riga. AP.
UNGLINGUR, vopnaður hníf og með
hettu yfir höfðinu, réðst aftan að sextugri
konu í Toronto í Kanada í vikunni, að sögn
Toronto Star. En konan snerist þegar til
varnar, lét höggin dynja á ræningjanum
og tókst að sjá framan í hann með því að
draga niður hettuna. Hann flúði í ofboði
og konan slapp með minniháttar meiðsl.
Ræninginn er sagður vera 17–18 ára,
lágvaxinn, brúneygður og með brúnt hár.
Snörp viðbrögð
GEORGE W. Bush, forseti Bandaríkjanna og
Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, segjast
hvergi munu hvika í baráttunni fyrir því að gera
Írak að frjálsu lýðræðisríki, þrátt fyrir óöldina
núna. „Írak verður frjálst, Írak verður sjálf-
stætt, Írakar verða friðsöm þjóð og við munum
ekki láta hræðslu og ógnanir hafa áhrif á okk-
ur,“ sagði Bush eftir fund með Blair í Wash-
ington í gær.
Báðir lögðu áherslu á að Sameinuðu þjóðirnar
myndu leika mikilvægt hlutverk í Írak. Þeir
gáfu til kynna stuðning við tillögur Lakhdar
Brahimis, sendimanns framkvæmdastjóra SÞ,
Kofi Annans, í Írak. Brahimi leggur til að írösk
bráðabirgðastjórn taki við völdum 30. júní og á
hún að stjórna þar til kosningar fara fram í jan-
úar á næsta ári. Blair varaði menn við því að eft-
ir því sem nær drægi 30. júní ykist hættan á of-
beldisverkum. „Þetta gat aldrei orðið auðvelt og
er það ekki núna,“ sagði Blair.
Með fundinum var m.a. ætlunin að sýna fram
á að leiðtogarnir væru einhuga. Fréttaskýrend-
ur höfðu sagt að Blair myndi ef til vill gagnrýna
aðferðir Bandaríkjamanna í Írak og segja þá
ganga of hart fram, einnig stefnuna gagnvart
Ísrael en það mun Blair ekki hafa gert.
Leiðtogarnir lýstu báðir stuðningi við áætlun
Ariels Sharons, forsætisráðherra Ísraels, sem
felur í sér að Ísraelar hverfi algerlega frá Gaza-
svæðinu en haldi eftir nokkrum fjölmennum
byggðum landtökumanna á Vesturbakkanum,
auk Austur-Jerúsalem. Bandaríkjamenn hafa
bent á að verði áætlunin að veruleika muni Ísr-
aelar í fyrsta sinn leggja í reynd niður land-
tökubyggðir á hernumdu svæðunum.
Blair sagði að áætlunin gæfi tækifæri til að
framfylgja Vegvísi til friðar, áætlun sem Sam-
einuðu þjóðirnar, Evrópusambandið, Banda-
ríkjamenn og Rússar lögðu fram í fyrra. Sagðist
Blair vilja að þessir fjórir aðilar kæmu saman
eins fljótt og unnt væri til að ræða aukinn fjár-
hagslegan og pólitískan stuðning við heima-
stjórn Palestínumanna.
Segjast hvergi munu hvika
Reuters
Sammála
George W. Bush Bandaríkjaforseti og Tony
Blair, forsætisráðherra Bretlands, gefa út
sameiginlega yfirlýsingu sína í Rósagarðinum
við Hvíta húsið eftir samráðsfundinn í gær.
Washington. AP, AFP.
Stjórn/18
Al-Sadr/19
♦♦♦
♦♦♦
♦♦♦
KVIKMYNDIN
Niceland eftir
Friðrik Þór Frið-
riksson er ein
þeirra mynda
sem þykja líkleg-
ar til að komast í
aðalkeppni kvik-
myndahátíð-
arinnar í Cannes, að mati Variety, virtasta
kvikmyndarits í heimi. Alls munu 20
myndir keppa um Gullpálmann eftirsótta
á hátíðinni sem standa mun yfir dagana
12.–23. maí nk. /71
Martin Compston
leikur aðalhlutverkið.
Orðuð við Cannes
LÖGREGLAN í Reykjavík hafði afskipti af
bíl á Vesturgötu á fimmtudagskvöldið en í
henni voru tveir menn rétt innan við tví-
tugt. Annar mannanna hljóp í burtu þegar
lögreglan ætlaði að gefa sig á tal við þá.
Maðurinn náðist þó fljótlega og fundust á
honum 130 grömm af hassi og slatti af pen-
ingum. Mennirnir voru báðir yfirheyrðir og
viðurkenndi annar þeirra að eiga efnið.
Telst málið upplýst og mönnunum sleppt.
Reyndi að hlaupa
undan lögreglu