Morgunblaðið - 17.04.2004, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 17.04.2004, Blaðsíða 59
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. APRÍL 2004 59  HELENA Ólafsdóttir, þjálfari A- landsliðs kvenna í knattspyrnu, verð- ur í Frakklandi 24. apríl næstkom- andi og fylgist með leik Frakka og Ungverja sem fram fer í Reims. Ung- verjar og Frakkar eru næstu mót- herjar Íslands í undankeppni EM, en fyrir þá leiki mun íslenska liðið leika vináttuleik gegn Englendingum. Ís- lenska landsliðið mætir Ungverjum ytra 29. maí og Frökkum á Laugar- dalsvelli 2. júní.  RAINER Schönfelder, heimsbik- armeistari í svigi karla frá Austur- ríki, féll á lyfjaprófi sem hann fór í eftir keppni í mars og á nú á hættu að verða sviptur sigurlaunum sínum og tign auk þess að verða dæmdur í tveggja ára keppnisbann.  SIR Alex Ferguson, knattspyrnu- stjóri Manchester United, hefur ákveðið að senda markvörðinn Tim Howard í veikindaleyfi sem þykir sennilegt að standi út leiktíðina. Howard hefur ekkert leikið með ensku meisturunum síðasta mánuð- inn eftir að hafa átt fast sæti í byrj- unarliðinu frá því að keppnistímabilið hófst í ágúst.  HOWARD þjáist af augnsjúkdómi og mun hafa verið verri af honum síð- ustu vikur en áður og þar af leiðandi hefur hann ekki getað leikið með lið- inu. Roy Carroll hefur staðið í marki Manchester United í síðustu leikjum og heldur stöðu sinni a.m.k. út leiktíð- ina.  GORDON Strachan, sem sagði upp starfi knattspyrnustjóra South- ampton snemma á þessu ári þykir verða sennilegur eftirmaður Berti Vogts, landsliðsþjálfara Skota, þegar samningurinn við Vogts rennur út eftir tvö ár. Strachan hefur verið boð- ið starf sem aðstoðarmaður Vogts og það þykir vera fyrsta skrefið á þeirri leið að hann taki við af Þjóðverjanum sem skoskir knattspyrnuáhugamenn hafa skiptar skoðanir á.  JAN Mølby, fyrrverandi leikmaður Liverpool og danska landsliðsins, og núverandi knattspyrnustjóri enska 3. deildarliðsins Kidderminster, hefur verið dæmdur í fjögurra leikja bann og til greiðslu tæplega 200.000 kr. sektar fyrir að hafa hellt úr skálum reiði sinnar yfir dómara eftir kapp- leik í febrúar.  UGO Ehiogu hefur framlengt samning sinn við Middlesboro til árs- ins 2007.  EKKERT verður af því að danski landsliðsmaðurinn í handknattleik, Kristian Gjessing, leiki með þýska liðinu Flensburg á næstu leiktíð eins og nýgerður samningur hans við fé- lagið kveður á um. Ekkert pláss mun vera fyrir Gjessing í stjörnum prýddu liði Flensborgar og því talið sennilegt að hann verði lánaður til Altea á Spáni í eitt ár á meðan rýmk- að verður til í röðum Flensborgar. FÓLK Því miður fjölgaði NBA-deildinleikjunum í fyrstu umferðinni úr mest fimm leikjum í sjö til að skapa meiri tekjur fyrir ABC- og ESPN-sjónvarps- stöðvarnar, sem borguðu deildinni yfir markaðsverð fyrir síðasta sjónvarpssamninginn. Þetta mun draga keppnina enn á langinn og var ekki á bætandi. Í fyrstu umferðinni virðist sem að öll liðin í hærri sætunum í Austurdeildinni ættu að vinna hrinur sínar. Indiana Pacers fer að mínu mati létt með Boston Celtics og ég held að hið sama verði upp á teningnum hjá Detroit Pistons gegn Milwaukee Bucks. New Jers- ey Nets ætti að vinna nágranna- slaginn við New York Knicks. All- an Houston, leikmaður Knicks, er á meiðslalista þessa dagana og óvíst hvort hann getur tekið þátt í úrslitakeppninni. Í viðureign Miami Heat og New Orleans Hornets getur allt gerst. Reyndar er Jamal Mashburn, leik- maður Hornets, úr leik vegna meiðsla og hefur það mikil áhrif á leik liðsins. Miami hefur komið skemmtilega á óvart undir stjórn fyrrum þjálfara New York Knicks, Jeff Van Gundy, en þar hefur Lamar Odom blómstrað undir stjórn Gundy, en Miami vann 17 af síðustu 21 leik liðsins á tímabilinu. „Við verðum að halda áfram að vera hógværir og takast á við verkefnin sem liggja fyrir með því að berjast og gera hlutina með einföldum hætti,“ segir Eddie Jon- es, einn reyndasti leikmaður Heat en hann var áður ein aðalstjarna LA Lakers. Indiana líklegt til afreka Detroit og Indiana eru langsig- urstranglegust í Austurdeildinni og mun koma mjög á óvart ef það verður ekki Indiana sem stendur uppi sem sigurvegari þar í lokin. Larry Bird, fyrrum leikmaður Boston Celtic og fyrrum þjálfari Indiana, er nú framkvæmdastjóri Indiana og hefur hann greinilega hitt naglann á höfuðið er hann fékk Rick Carlisle, fyrrum félaga sinn hjá Boston, til þess að þjálfa liðið. Carlisle náði fínum árangri hjá Pistons en var látinn taka pok- ann sinn á þeim bænum en Bird var ekki lengi að fá vin sinn til þess að taka að sér lið Pacers sem er eins og áður segir líklegt til þess að leika til úrslita um titilinn. Félagið hefur reyndar aldrei orðið meistari. Garnett er bjartsýnn Hlutirnir eru þó nokkuð flóknari í Vesturdeildinni. Minnesota Timberwolves náði efsta sætinu eftir riðlakeppnin og ætti að fara nokkuð létt með Denver Nuggets. Úlfarnir, með Kevin Garnett fremstan í flokki, hafa aldrei náð að komast í gegn- um fyrstu umferð úrslitakeppninn- ar en varnarleikur liðsins er allt annar og betri en undanfarin ár. Garnett segir að fortíðin sé ekki vandamál liðsins í dag, nútíðin sé það sem skipti öllu máli og telur hann að liðið sé undir það búið að ná alla leið að þessu sinni. Sér- fræðingar vestanhafs eru flestir á því að Garnett verði útnefndur sem besti leikmaður deildarinnar, MVP, í fyrsta sinn á sínum ferli. Sömu sögu er að segja um leik- seríu San Antonio Spurs og Memphis Grizzlies. Hér ættu meistararnir að vinna í fimm til sex leikjum. O’Neal þarf að spila vörn Aðalbaráttan sýnist mér verða í leikseríum Los Angeles Lakers gegn Houston, Rockets og hjá Sacramento Kings gegn Dallas Mavericks. Lakers virðist vera sigurstrang- legra í sinni viðureign gegn Hou- ston, en eftir allt sem gengið hefur á hjá liðinu undanfarið er ekki hægt að spá fyrir um hvort allt smellur saman hjá stórstjörnunum hjá Lakers. Lykillinn hér er hvor Shaquille O’Neal spilar eins góða vörn og við á Morgunblaðinu sáum hann gera um daginn gegn Yao Ming. Ef hann leggur sig allan fram sem þá verður staða Houston ekki vænleg. Phil Jackson, þjálfari Lak- ers, segir við CBS-sjónvarpsstöð- ina að útlitið sé bjart. „Okkur líður vel þessa stundina og við höfum fengið byr í seglin í síðustu leikj- unum fyrir úrslitakeppnina. Við höfum mikið sjálfstraust og vitum hvað þarf að gera til þess að fara alla leið,“ sagði Jackson, en Lak- ers unnu 14 af síðustu 17 leikjum sínum á tímabilinu. Er Webber betri uppi í stúku? Flestir veðja á Sacramento gegn Dallas, en hér eru tvö skemmtileg sóknarlið sem eru hins vegar með afleita vörn. Það lið sem hittir bet- ur kemst í næstu umferð. Hér er mesti möguleikinn á óvæntum úr- slitum í Vesturdeildinni. Kings lék gríðarlega vel í vetur allt þar til á lokakafla tímabilsins þar sem liðið tapaði átta af tólf leikjum. Rick Adelman, þjálfari liðsins, segir við CBS að ástandið sé ekki slæmt hjá liðinu en hann hefur samt sem áð- ur áhyggjur af rimmu liðsins gegn Dallas. „Ég er furðu lostinn yfir gengi okkar upp á síðkastið. Við uppskerum eins og við sáum, svo einfalt er það. Ég hef ekki hug- mynd um hvernig við fórum að því að klúðra okkar málum á loka- sprettinum en menn verða að snúa við blaðinu fyrir leikina gegn Dall- as,“ sagði Adelman. Chris Webber, aðalstjarna Kings, lék aðeins 23 leiki í vetur og eru margir á því að hann hafi ekki bætt leik liðsins eftir að hann fór að leika með því á ný. Það er því gríðarlegt álag á Webber sem hefur ekki átt sjö dagana sæla ut- an vallar og þarf hann að sýna hvað í honum býr í fyrstu umferð- inni gegn Dallas. Reuters Shaquille O’Neal, miðherji Los Angeles Lakers, getur látið mikið að sér kveða undir körfunni en þarf að leika vörnina af meiri hörku ætli liðið sér að fara alla leið í úrslitakeppni NBA-deild- arinnar þetta árið, en O’Neal er afar mikilvægur hlekkur liðsins. Nær Spurs að verja titilinn? ÚRSLITAKEPPNI NBA-deildarinnar í körfuknattleik hefst með látum í dag í Bandaríkjunum og miklar vangaveltur eru meðal körfubolta- spekúlanta um hvaða lið muni á endanum standa uppi sem sig- urvegari. Flestir halda að það lið muni koma úr Vesturdeild og að það verði annaðhvort meistararnir frá San Antonio, úlfarnir frá Minnesota eða stjörnulið Los Angeles Lakers. Gunnar Valgeirsson skrifar frá Los Angeles ARSENE Wenger, knatt- spyrnustjóri Arsenal, get- ur verið hjá félaginu eins lengi og hann vill, þess vegna til æviloka, það er alveg undir honum komið. Þetta segir Peter Hill- Wood, stjórnarformaður Arsenal, sem er í sjöunda himni með það starf sem Wenger hefur skilað hjá Lundúnafélaginu á síðustu átta árum. „Wenger hefur unnið stórkostlegt starf hjá Arsenal,“ segir Wood sem hefur verið stuðnings- maður Arsenal frá blautu barnsbeini. „Ég hef komið á High- bury á kappleiki frá því ég var barn og þetta lið sem Wenger hefur púslað sam- an núna er án efa það sterkasta og besta sem fé- lagið hefur nokkurn tím- ann átt,“ segir Woods sem segist hrífast að því hversu vel Wenger hefur tekist til við að koma Ars- enal-liðinu inn á rétta braut eftir tvö slæm töp á viðkvæmum tíma, fyrir Manchester United í bik- arkeppninni og fyrir Chelsea í Meistaradeild Evrópu á heimavelli. Ekk- ert fái stöðvað Arsenal að enska meistaratitlinum. Wenger getur verið á Highbury ævilangt GUÐMUNDUR E. Steph- ensen hefur samið við sænska úrvalsdeildarliðið í borð- tennis, Malmö FF, til eins árs og mun leika með liðinu á næstu leiktíð. Malmö er eitt af sterkustu liðum sænsku deildarinnar og er þessa dag- ana að leika til úrslita um meistaratitilinn gegn Halms- tad, og er staðan jöfn 1:1 í því einvígi. Með Malmö leika danski landsliðsmaðurinn Martin Monrad, Kínverjinn Tian Zichao og Svíinn Cyprian Asamoah. Kínverjinn Hu Wei Xin er þjálfari karlaliðs Malmö en yfirþjálfari félags- ins, Svíinn Peter Sarts, er landi er sterkasta deildin þessa stundina en sú sænska er í sama gæðaflokki og sú franska og belgíska. Samn- ingurinn er til eins árs og ég set að sjálfsögðu stefnuna á að komast enn lengra og þá hlýtur Þýskaland að vera næsta skref. Ég er ekki at- vinnumaður í þeim skilningi en félagið mun aðstoða mig við ýmislegt og ég er sáttur við samninginn,“ sagði Guð- mundur en hann hefur fagn- að Íslandsmeistaratitlinum undanfarin 11 ár og hefur hækkað um 140 sæti á heims- listanum á undanförnu ári en þar er hann í 185. sæti. „Ég mun taka þátt í úr- tökumóti fyrir Ólympíu- leikana 13.–16. maí en það mót fer fram í Innsbruck í Austurríki. Þar komast að- eins 3 áfram til Aþenu en ég mun gera mitt besta á því móti,“ sagði Guðmundur en hann mun leika gegn kín- verskum landsliðsmanni í sjónvarpseinvígi í kínverska ríkissjónvarpinu 24. júní skammt utan við Peking. jafnframt landsliðsþjálfari Dana. Guðmundur, sem verð- ur 22 ára í júní á þessu ári, hefur leikið með norska lið- inu B-72 í vetur en hann hef- ur verið búsettur í Malmö undanfarið ár og æft með fé- laginu sem hann hefur nú samið við. Guðmundur sagði í gær að það væri gríðarlegt stökk að leika með Malmö frá því sem hann væri vanur með norska liðinu B-72. „Ég mun leika í einni af sterkustu deild í Evr- ópu, með einu af sterkustu liðum í Svíþjóð og ég tel að þetta sé gríðarlega mikilvægt tækifæri fyrir mig sem leik- mann. Fyrsta deildin í Þýska- Guðmundur Stephensen samdi við Malmö FF Guðmundur Stephensen
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.