Morgunblaðið - 17.04.2004, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 17.04.2004, Blaðsíða 21
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. APRÍL 2004 21 Mazda3er vel búinn og kraftmikill bíll sem flú ver›ur a› sko›a. Opi› frá kl. 12-16 laugardaga Aukahlutir á mynd: álfelgur og vindskei› á afturhlera B ÍL L ÁR SIN S Í EVRÓPU 200 4 H im in n o g h a f Mazda3 T 1,6 l kostar a›eins1.795.000 kr. Bíll ársins í Danmörku, Finnlandi og Tékklandi. Anna› sæti› í vali á bíl ársins í Evrópu ásamt V W Golf. Máta›u ver›launasæti›! Seltjarnarnes | Tónlistarskólinn á Seltjarnarnesi gengst fyrir fjöl- skyldudegi úti í Gróttu laugardaginn 17. apríl 2004. Þetta er í þriðja sinn sem slíkur dagur er haldinn en áhugi á útivist í eyjunni hefur farið vax- andi frá því að sérstakur Gróttudag- ur var haldinn í fyrsta sinn árið 2002. Í tilefni dagsins verða kennarar og nemendur tónlistarskólans með fjölbreytta tónlistardagskrá og seld- ar verða veitingar í Fræðasetrinu. Ágóði af sölunni rennur í ferðasjóð Tónlistarskólans en á döfinni er námsferð kennara. Í Fræðasetrinu verða einnig til sölu göngukort af Seltjarnarnesi, myndbandið Lífríki í náttúru Seltjarnarness og bókin Náttúrufar á Seltjarnarnesi. Á Gróttudaginn gefst tækifæri til að njóta einstakrar náttúrufegurðar og rannsaka lífríkið í fjörunni. Fjör- urnar sunnan við Gróttu, Seltjörn og Bakkavík eru auðugar af lífi sem vert er að skoða. Fuglalíf á Seltjarn- arnesi er einnig afar fjölbreytt en þar hafa sést yfir 100 fuglategundir og fjölmargar þeirra verpa á vest- ursvæði Nessins. Í Gróttu er einnig fjöldi áhugaverðra jarðmyndana sem gaman er að skoða. Í tilefni dagsins verður Gróttuvit- inn opinn og einnig verður hægt að skoða Læknaminjasafnið í Nesstofu milli kl. 11 og 14. Hægt er að komast fótgangandi út í eyju á fjörunni frá kl. 11–14. Björgunarsveitin Ársæll verður á staðnum og ekur þeim sem ekki treysta sér til að ganga út í eyju. Gróttudagur í þriðja sinn Morgunblaðið/Ásdís Reykjavík | Íþrótta- og tómstunda- ráði (ÍTR) hafa á undanförnum mán- uðum borist beiðnir frá átta íþrótta- félögum í Reykjavík um styrki til ráðninga á íþróttafulltrúum, en þrjú reykvísk íþróttafélög hafa undanfar- in þrjú ár notið styrkja vegna íþróttafulltrúa í tilraunaskyni. Málefni íþróttafulltrúanna voru rædd á borgarstjórnarfundi í gær, og voru skiptar skoðanir um þá ákvörðun að hætta styrkjum til til- raunaverkefnis þar sem íþrótta- fulltrúar voru ráðnir til starfa hjá þremur íþróttafélögum. Að óbreyttu hættir stuðningur borgarinnar við verkefnið um næstu mánaðarmót. Áætlaður rekstrarkostnaður til stuðnings við fleiri íþróttafélög vegna íþróttafulltrúa er ekki í fjár- hagsramma ÍTR fyrir árið í ár né í áætlun fyrir 2005 í þriggja ára áætl- un. Þetta kemur fram í svari sem lagt var fram á fundi borgarráðs í fyrradag vegna fyrirspurnar fulltrúa sjálfstæðismanna um málefni íþróttafulltrúa á fundi borgarráðs 30. mars sl. Þá segir einnig að ljóst sé að ef tryggja á störf slíkra starfs- manna þurfi að liggja fyrir að fjár- veitingar vegna þess verkefnis séu fyrir hendi að minnsta kosti til næstu tveggja til þriggja ára. Árið 2001 voru gerðir samningar við Fram, Víking og Fylki, vegna til- raunaverkefna með ráðningu íþróttafulltrúa hjá félögunum. Hefur ÍTR undanfarin ár styrkt félögin til að hafa íþróttafulltrúana innan- borðs, en samningarnir voru fram- lengdir til maí 2004. Þetta starf þyk- ir hafa gengið afar vel og skilað góðum árangri. Í bókun sinni sögðu sjálfstæðismenn skynsamlegt að styðja frjáls félagasamtök til að sinna slíkum verkefnum, sérstaklega á sviði íþrótta- og æskulýðsmála. Telja þeir forgangsmál að tryggt verði að íþróttafulltrúar starfi hjá íþróttafélögum borgarinnar. Samkvæmt svari borgaryfirvalda á fundi Borgarráðs vinnur ÍTR nú að stefnumótun vegna málaflokksins í heild þar sem meðal annars er fjallað um störf íþróttafulltrúa. Fyrir liggur þó að tryggja þarf auknar fjárveit- ingar í fjárhagsramma ársins 2005, ef hægt á að verða við óskum allra fé- laganna. Vilja gæta jafnræðis Að sögn Önnu Kristinsdóttur, for- manns ÍTR, var ákveðið að hætta að styrkja íþróttafélögin þrjú til að hafa starfandi íþróttafulltrúa fyrir nokkru. „Það er okkur mikið í mun að gæta jafnræðis á milli félaganna, þannig að annaðhvort hafa þau öll íþróttafulltrúa eða ekkert þeirra,“ segir Anna og bætir við að stefnu- mótunarvinnunni muni að öllum lík- indum ljúka í september á þessu ári. „Þá höfum við reiknað með því að gera einhvers konar þjónustusamn- inga við íþróttafélögin, sem fela í sér að hjá hverju íþróttafélagi í borginni starfi íþróttafulltrúar sem vinni sam- kvæmt samræmdum reglum.“ Anna segist finna fyrir auknum kröfum frá íþróttafélögunum um aukna aðkomu borgarinnar að íþróttastarfinu. „Við finnum að þess- ir þrír íþróttafulltrúar hjá félögun- um hafa skilað miklu og viljum gjarnan að það verði framhald á því starfi og þá jafnframt hjá öllum fé- lögunum.“ Anna segir samningana við félögin þrjú hafa verið framlengda til fyrsta maí, þar sem þá opnist gjarnan aðrar leiðir fyrir þau til að fá stuðning frá borginni. „Síðan er gert ráð fyrir því að einhvern tíma á tímabilinu frá því í september fram að áramótum get- um við gengið frá samningum um íþróttafulltrúa við öll íþróttafélögin átta í borginni,“ segir Anna. Vilja fulltrúa í öll félögin Kjartan Magnússon, borgar- fulltrúi Sjálfstæðismanna, segir að rétt sé að gæta þess að jafnræði sé með félögunum, en sjálfstæðismenn vilji frekar gera það með því að kosta einn fulltrúa í hverju félagi heldur en að leggja þetta verkefni niður í bili. „Við höfum óskað eftir því að þessi þrjú félög haldi sínum íþróttafulltrúa og fleiri félög bætist við, þannig að á endanum njóti öll félög þess að hafa íþróttafulltrúa. Við teljum að það sé hægt að forgangsraða þannig að það séu til peningar fyrir því,“ segir Kjartan. Mikil samstaða innan borgarinnar um íþróttafulltrúa Hafa skilað mjög góðum árangri MIKIL uppbygging stendur fyrir dyrum á íþróttamannvirkjum á fé- lagssvæði Vals á Hlíðarenda á næstu árum. Nú fyrir helgina var hafist handa við fyrsta áfanga framkvæmdanna sem er lagning nýrrar heimreiðar að Hlíðarenda. Fyrstu skóflustunguna tók Þórður Þorkelsson, fyrrum formaður Vals, heiðursfélagi og velgjörðarmaður félagsins til áratuga, og markaði þannig upphafið að þessum miklu framkvæmdum. Morgunblaðið/Jim Smart Uppbygg- ing hafin á Hlíðarenda
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.