Morgunblaðið - 17.04.2004, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 17.04.2004, Blaðsíða 33
DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. APRÍL 2004 33 Colostrum FRÁ RNA og DNA H á g æ ð a fra m le ið sla -fyrir útlitið Kynning í kringlunni um helgina Nýr lífsstíll í miðborginni Komdu og kynntu þér málið www.101skuggi.is Fyrsti áfangi í 101 Skuggahverfi kominn undir þak Kostir íbúða í 101 Skuggahverfi eru m.a.: • Alþjóðleg hönnun • Stórbrotið útsýni • Tólf mismunandi íbúðagerðir • Fjölbreytileiki í útfærslu íbúða • Lofthæð 2,70 m • Stærð íbúða frá 69 - 280 m2 • Bílastæði í lokuðum bílageymslum • Óvenjumikil hljóðeinangrun • Útsýni úr öllum lyftum • Háþróað öryggis- og samskiptakerfi Kynning í Kringlunni 16. - 25. apríl á glæsilegum gæðaíbúðum á besta stað í miðborg Reykjavíkur. ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S S KU 2 43 43 04 /2 00 4 Sími 588-9090Sími 530-1500 FLESTIR Íslendingar ættu að þekkja kjötfarsbollur eða kálböggla, sem í hugum margra getur talist vera þjóðlegur hvunndagsmatur. Kjötfars getur á hinn bóginn ekki talist uppáhaldshráefni matreiðslu- manna til að vinna úr, en býður þó upp á marga möguleika og skemmti- legar útfærslur. Daglegt líf fékk yfirmat- reiðslumeistarana Ingvar Sigurðs- son á Argentínu og Kristinn Guð- mundsson á Brasserie Borg til liðs við sig og bað þá um að útbúa spenn- andi rétti úr kjötfarsi, sem kjötfars- unnendur gætu tileinkað sér og hrist fram úr erminni á til- tölulega skömmum tíma. Þeir tóku áskoruninni gegn því að skýrt yrði tekið fram að þeim myndi sjálfum aldr- ei detta í hug að bjóða gest- um sínum upp á kjötfars, sem meistarakokkum á borð við þessa tvo finnst hvorki heilsusamlegt né kræsilegt hrá- efni. „Kjötfars verður til úr fjórum hlutum, sem eru nánast í jöfnum hlutföllum. Um fjórðungur sam- anstendur af kjötslögum og öðrum kjöthlutum sem ekki nýtast í annað og annar fjórðungur samanstendur af fitu. Fjórðungur er vatn og um fjórðungur er svo bindiefni, aðallega undanrennuduft og kartöflumjöl og til viðbótar er nítrötum bætt út í til að gefa bragð og lit,“ segir Ingvar. Ítölsk tilbrigði Þeim Ingvari og Kristni var fært sitthvort kílóið af nýju kjötfarsi á hversdagslegum mánudegi, en eftir að þeir höfðu farið sínum fimu og flinku fingrum um farsið, urðu til tveir ólíkir og harla nýstárlegir kjöt- farsréttir þegar upp var staðið. Kristinn, sem er einn sjö mat- reiðslumanna í landsliði Klúbbs matreiðslumeistara, notaði par- maskinku til að vefja utan um kjöt- farsið og notaði auk þess ólífur, hvít- lauk og tómatolíu í sinn rétt. Ingvar, sem er varaforseti Klúbbs mat- reiðslumeistara, segir á hinn bóginn að sín útgáfa sé tilbrigði við hinn þekkta svikna héra, sem margir kannist án efa við. Í réttinum er fléttað saman svikna héranum og la- sagne, sem er þekktur ítalskur rétt- ur þar sem kjöthakk er notað. Rétt- urinn inniheldur þó ekkert pasta eða ost heldur eru kartöflur notaðar á milli laga sem að öllu jöfnu eru soðn- ar eða maukaðar með hefðbundnari útgáfum af kjötfarsréttum. Og nú er bara um að gera að prófa sig áfram. Parmaskinku vafið um kjötfars með ólífum, hvítlauk og tómatolíu (fyrir fjóra) 600 g kjötfars 50 g hakkaðar ólífur 2 saxaðir hvítlauksgeirar smá saxað basil 6 msk. hveiti smá pipar Öllu blandað í skál 2 parmaskinkubréf Parmaskinkunni raðað á plast- filmu og farsblanda sett ofan á hana miðja. Parmaskinkan vafin utan um farsið, sett á smjörpappír og bakað í ofni við 160°C í 20 mín. Tómatolía 50 ml olía 50 ml tómatpurre 20 ml hunang Balsamikolía 35 ml balsamik 50 ml olía smá salt og pipar Rétturinn er borinn fram með tómötum, mozzorella osti, basil og klettasalati. Kjötfars- og kartöflubaka með beikoni og rósmarínsósu (fyrir fjóra) 800 g kjötfars 3 bökunarkartöflur 100 g beikon matarolía Beikonið skorið smátt og steikt stökkt á pönnu, látið kólna á pappír. Beikoni og kjötfarsi blandað saman. Kartöflurnar afhýddar og þær skornar í skífur með ostaskera. Ál- pappír lagður inn í lítið jólaköku- form og smurt með olíu. Kartöflu- skífunum raðað í botninn. Þunnt lag af kjötfarsi sett ofan á. Gott er að sprauta farsinu úr sprautupoka. Til skiptis eru kartöflur og fars sett í mótið, u.þ.b. þrjú lög af hvoru. Bak- Kristinn Guðmundsson, yfirmat- reiðslumeistari á Brasserie Borg. Meistarakokkarnir Ingvar Sigurðsson og Kristinn Guðmundsson töfruðu fram nýstárlega kjötfarsrétti sem flestir geta spreytt sig á. join@mbl.is ist í 160°C heitum ofni í 40–50 mín. Réttinum hvolft úr forminu og skorið í fjóra hluta með beittum hnífi. Auðveldara er að ná far- skökunni úr forminu ef olíu- borinn álpappír er notaður í botninn. Athugið hvort réttur- inn sé fulleldaður áður en hvolft er úr forminu með því að stinga mjóum hníf í miðjuna og sjá hvort hann kemur hreinn út. Sósa 5 dl kjúklingasoð eða vatn og kraftur 1 msk. smjör maisenamjöl til þykkingar sósulitur 1 tsk. fínt saxað ferskt rósmarín (má nota þurrkað fínmalað) Suðan látin koma upp á soðinu og þykkt með maisenamjölinu. Kryddi bætt í og bragðbætt með salti og pip- ar. Litað með ögn af sósulit og sósan tekin af hitanum. Kalt smjörið písk- að saman við. Upplagt er að bera fram með þessum rétti snöggsoðið ferskt grænmeti að eigin vali t.d. gulrætur, allar tegundir af lauk, kúrbít, sveppi, baunir, sellerí o.fl. Steikið grænmet- ið á pönnu í smjöri eða snöggsjóðið í léttsöltu vatni. Einnig má hita græn- metið í sósunni. Kjötfars í fínum búningi  MATARKISTAN|Matreiðslumeistarar skoða hversdagsmatinn Kjötfars í parmaskinku með ólífum, hvítlauk og tómatolíu. Ingvar Sigurðsson, yfirmat- reiðslumeistari á Argentínu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.