Morgunblaðið - 17.04.2004, Side 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. APRÍL 2004 9
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• Sími 581 2141
15% afsláttur
Allar kápur og úlpur
á vortilboði
Neðst við Dunhaga, sími 562 2230 Opið í dag kl. 10 - 14
Útsala - Lagersala
50% afsláttur
Tilboðsslár kr. 1000 eða 3000
Heimagisting 20 km frá Hróarskeldu
Tímabilið frá 1. maí-1. október. Möguleiki að sækja út
á flugvöll. Upplýsingar gefur Hrafnhildur
í síma 0045 44444 005. Geymið auglýsinguna.
Gisting í Danmörku
Áttu börn og ert þú tilbúinn að hjálpa okkur?
Við erum hjón sem eigum ekki kost á því að eignast börn
nema með utanaðkomandi aðstoð.
Við leitum því að góðhjartaðri konu sem er tilbúin að gefa okkur egg.
Fullum trúnaði er heitið, við komum ekki til með að vita hver
þú ert og þú ekki hver við erum.
Allur lyfja- og lækniskostnaður verður greiddur af okkur.
Ef þú ert yngri en 35 ára, átt a.m.k. eitt barn, ert heilsuhraust og vilt veita
okkur þetta tækifæri, biðjum við þig vinsamlega um að senda
nánari upplýsingar um nafn, aldur og símanúmer
til auglýsingadeildar Mbl., merktar: Egg - 15219, fyrir 1. maí
og við munum biðja lækni að veita bréfi þínu móttöku og hafa samband.
Vorútsala á peysum
Aðeins í dag
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
s. 557 1730 s. 554 7030
Opið mán.—fös. frá kl. 10—18
lau. kl. 10—16
Kringlunni sími 581 2300
mikið úrval
SUMAR
JAKKAR
S M Á R A L I N D
Sími 517 7007
www.changeofscandinavia.com
UNDIRFÖT - NÁTTFÖT
BAÐFÖT
25% afsláttur
VORÚTSALA
NÝTT FRÁ
Vandaðar heimilis- og gjafavörur
Kringlan 8-12, sími 533 1322
3 gerðir af kaffibollum
20% kynningarafsláttur
EKKI liggur fyrir á þessari stundu
hvenær starfsmönnum Kísiliðjunn-
ar í Mývatnssveit verður sagt upp
en starfseminni verður hætt í árs-
lok. Á heimasíðu Verkalýðsfélags
Húsavíkur segir að starfsmönnum
Kísiliðjunnar verði sagt upp í sum-
ar.
Fulltrúar stéttarfélaganna hafi
fundað með sveitarstjóra Skútu-
staðahrepps um málið og hvatt til
þess að boðað verði til fundar með
þingmönnum kjördæmisins um
stöðuna. Þá hafi stéttarfélögin lagt
fram nokkrar tillögur er varða
starfsmenn og starfslok þeirra hjá
verksmiðjunni og kynntar voru í
fyrradag á starfsmannafundi.
Að sögn Kristjáns Björns Garð-
arssonar, framkvæmdastjóra Kís-
iliðjunnar, liggur ekki fyrir hvenær
starfsfólki verður sagt upp. Fyrir
liggi að starfsemi verksmiðjunnar
verði hætt í síðasta lagi um áramót
og að kynnt hafi verið á fundi með
starfsmönnum á miðvikudag að þar
af leiðandi komi til uppsagna á
árinu.
Mislangur uppsagnarfrestur
starfsmanna
Að sögn Kristjáns eru starfs-
menn með mislangan uppsagnar-
frest, nokkrir með sex mánuði,
sumir með fjóra og fimm mánuði
en langflestir með þrjá mánuði.
Breytilegur uppsagnafrestur sé til
kominn vegna aldurs og starfsald-
urs hjá fyrirtækinu. Stefnt er að
uppsetningu á kísilduftverksmiðju
eftir að Kísiliðjan hættir fram-
leiðslu sem ráðgert er að taki til
starfa árið 2006. Að sögn Kristjáns
verða færri stöðugildi í kísilduft-
verksmiðjunni, 35-7, borið saman
við 46 hjá kísilgúrverksmiðjunni.
Þá liggi fyrir að ráða þurfi fólk í
sérhæfð störf.
Gert er ráð fyrir tvö þúsund
tonna framleiðslu í fyrsta áfanga
en að hún verði aukin upp í níu
þúsund tonn innan tveggja ára.
Kísilduftsframleiðslan byggist á
innfluttu kvartsi en ekki náma-
vinnslu úr Mývatni. Að sögn Krist-
jáns hentar gúr úr vatninu engu að
síður prýðilega til framleiðslunnar.
Óvíst hvenær uppsagnir
í Kísiliðjunni taka gildi
PÉTUR H. Blöndal, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins, er efstur að
stigum í svonefndri Frelsisdeild,
sem er keppni á vegum Heimdallar
milli þingmanna Sjálfstæðisflokks-
ins um titilinn „Frelsari ársins“.
Frá þessu er greint á vefnum
frelsi.is og þar segir að lokasprettur
keppninnar sé hafinn. Er Pétur nú
með 11 stig og næstir koma Guðlaug-
ur Þór Þórðarson með sex stig og
Sigurður Kári Kristjánsson með
fimm. Neðstur á listanum er Einar
Oddur Kristjánsson með -12 stig.
Frá síðustu umferð hafa þær breyt-
ingar orðið helstar að Einar K. Guð-
finnsson hefur fallið úr öðru í fjórða
sæti á listanum.
Á vefnum segir að keppendur
vinni sér inn stig með því „að losa
fólkið í landinu undan járnkló rík-
isvaldsins“. Þeir keppendur sem
herða á taki „járnklóarinnar“ tapa
stigum. Sigurvegari Frelsisdeildar
hlýtur farandbikar til varðveislu í
eitt ár. Stöðu einstakra þingmanna
má skoða á www.frelsi.is.
Pétur Blöndal
efstur í „Frels-
isdeildinni“
HOLLVINAFÉLAG líffræðiskorar var stofnað í fyrra-
dag í tilefni af opnun Öskju, Náttúrufræðahúss Háskóla
Íslands. Félaginu er ætlað að taka virkan þátt í áfram-
haldandi uppbyggingu öflugrar lífræðimenntunar á Ís-
landi.
„Hlutverk þess verður að taka þátt í stefnumótun,
efla og styrkja grunnrannsóknir í líffræði og vekja at-
hygli á mikilvægi þeirra, styrkja tengsl líffræðinga inn-
byrðis og við skorina og stuðla að auknu og betra vís-
indastarfi í þágu allra landsmanna,“ segir í
fréttatilkynningu sem undirbúningshópur að stofnun
Hollvinafélagsins hefur sent frá sér.
Undirbúningshópurinn segir að starfsvettvangur líf-
fræðinga sé fjölbreyttur og að stöðug sókn hafi verið í
líffræðinám við Háskóla Íslands. Um 40 einstaklingar
hafi lokið námi frá líffræðiskor á hverju ári undanfarin
ár. Frá stofnun skorarinnar árið 1968 hafi 822 kandí-
datar útskrifast með BS-gráðu í líffræði, 108 lokið
fjórða árs verkefni og 70 nemendur brautskráðst með
meistarapróf. Þá hafi stór hópur þessa fólks sótt sér
frekari menntun til annarra landa, nú séu 165 líffræð-
ingar með doktorsgráðu í líffræði.
Hollvinafélag líffræðiskorar Háskóla Íslands stofnað
Morgunblaðið/Sverrir
Árlega útskrifast um 40 nemendur frá líffræðiskor HÍ. Myndin er frá stofnfundi Hollvinafélagsins í fyrradag.
Mun taka virkan þátt í
uppbyggingu og stefnumótun
FASTEIGNIR mbl.is