Morgunblaðið - 17.04.2004, Page 16
ERLENT
16 LAUGARDAGUR 17. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ÞING Spánar samþykkti í gær stuðningsyfirlýs-
ingu við José Luis Rodríguez Zapatero, leiðtoga
Sósíalistaflokksins, sem formlega tekur við emb-
ætti forsætisráðherra í dag, laugardag. Zapatero
er fimmti forsætisráðherra Spánar frá því að ein-
ræðisstjórn Franciscos Francos leið undir lok við
andlát hans árið 1975.
Alls lýstu 183 þingmenn yfir stuðningi við Zapa-
tero en 350 menn sitja í neðri deild spænska þings-
ins. Í kosningunum sem fram fóru 14. fyrra mán-
aðar fékk spænski Sósíalistaflokkurinn (PSOE)
164 menn kjörna en auk þeirra studdu átta þing-
menn vinstri lýðveldissinna í Katalóníu, fimm
þingmenn Sameinuðu vinstrifylkingarinnar, þrír
þingmenn frá Kanaríeyjum, tveir þjóðernissinnar
frá Galisíu og þingmaður frá Aragon nýja forsætis-
ráðherrann. Á móti voru 148 þingmenn Þjóð-
arflokksins (PP) sem verið hafði í stjórn undanliðin
átta ár en 19 þingmenn annarra flokka sátu hjá.
Zapatero mun því fara fyrir minnihlutastjórn en
hann mun geta reitt sig á minnst 13 atkvæði ann-
arra vinstri flokka í neðri deildinni.
Zapatero fer í dag á fund Jóhanns Karls Spán-
arkonungs í Zarzuela-höllinni í Madríd og leggur
fram ráðherralista sinn. Nýja ríkisstjórnin kemur
síðan saman til fundar á mánudag. Í henni verða 16
ráðherrar, átta karlar og átta konur.
Þingumræðan hófst á fimmtudag og tók Zapa-
tero oftlega til máls. Hann lýsti yfir því að stjórn
sín myndi hvergi bila í baráttunni gegn hryðju-
verkaógninni í „öllum sínum myndum“. Vísaði
hann með þessum orðum jafnt til hinnar hnatt-
rænu hryðjuverkaógnar og ETA-samtaka bask-
neskra þjóðernissinna sem háð hafa blóðuga bar-
áttu fyrir stofnun sjálfstæðs ríkis á Spáni í tæp 40
ár. Zapatero ítrekaði það kosningaloforð sitt að
1.300 spænskir hermenn í Írak yrðu kallaðir heim
hefðu Sameinuðu þjóðirnar ekki tekið við stjórn
mála í Írak fyrir 30. júní en þá er áformað að við
taki ný bráðabirgðastjórn heimamanna. „Ég mun
standa við loforð mitt varðandi spænska hermenn í
Írak,“ sagði Zapatero og ítrekaði þá skoðun sína
og sósíalista að innrásin í Írak hefði verið „ólögleg
aðgerð“.
Í sama streng tók Miguel Angel Moratinos,
verðandi utanríkisráðherra.
Forsætisráðherrann nýi boðaði aukið frjálslyndi
á sviði spænskra félagsmála og hét pólitísku sam-
ráði við stjórnarathafnir. „Ég mun stjórna af auð-
mýkt og sýna virðingu,“ sagði hann. Í máli hans
kom og fram að hann vildi að gerðar yrðu
ákveðnar breytingar á spænsku stjórnarskránni
þó svo að hann boðaði ekki allsherjar endurskoðun
hennar. Kvaðst hann m.a. vilja að lögum yrði
breytt á þann veg að kona gæti orðið drottning
Spánverja.
Zapatero, sem er 43 ára gamall er lögfræði-
menntaður og býr yfir langri þingreynslu. Sigur
hans og Sósíalistaflokksins í þingkosningunum
kom mjög á óvart og urðu margir til að setja hann í
samhengi við fjöldamorð sem hryðjuverkamenn
höfðu framið í Madríd þremur dögum áður þegar
rúmlega 190 manns féllu í sprengjutilræðum. Frá-
farandi forsætisráðherra, José María Aznar, var í
hópi dyggustu stuðningsmanna Bandaríkja-
stjórnar í Íraks-málinu.
AP
Þingmenn fagna kjöri José Zapatero, leiðtoga sósíalista, (t.v.) á Spánarþingi í gær. Hann tekur við embætti forsætisráðherra Spánar í dag.
Zapatero kjörinn forsætisráðherra
STÚLKNASÖGURNAR bandarísku
um Nancy Drew, sem leysir erfiðar
glæpagátur af stakri snilld, hafa
komið út í 74 ár. En nú hafa útgef-
endurnir sagt höfundateyminu,
sem ávallt kallar sig Carolyn
Keene, að gera umtalsverðar breyt-
ingar á söguhetjunni í von um að
nútímaunglingar eigi auðveldara
með að finna til samkenndar með
henni.
Nancy ekur nú um á svonefndum
tvinnbíl, þ.e. vagni með bæði hefð-
bundnum sprengihreyfli og raf-
magnsmótor, einnig notar hún far-
síma og tölvu og það sem gæti
valdið nokkurri skelfingu: hún ger-
ir stundum mistök. Fjórar nýjar
sögur munu verða á boðstólum á
næstu vikum. Sú fyrsta ber titilinn
Without a Trace sem þýða mætti
Sporlaust.
Og framvegis segir Nancy sjálf
söguna. „Þannig er hægt að nálgast
Nancy betur, okkur fannst að það
gæti vakið áhuga aðdáenda og les-
enda,“ segir Jen Weiss, sem er að-
stoðarritstjóri útgáfu
á pappírskiljum fyrir
börn hjá forlaginu
Simon & Schuster.
Hefðbundna lýs-
ingin á Nancy var „að-
laðandi, um það bil 18
ára stúlka“ sem var „klædd ljós-
brúnum bómullarjakkafötum er
fóru henni vel“. En nú er frjáls-
ræðið aukið. Hún segir frá því
hvernig hún æðir snarrugluð um
herbergið sitt, með hárið í algerri
óreiðu og kærastinn hennar, Ned
segir frá því að hann noti „bleika
inniskó“. Wiess segir að Nancy sé
ekki lengur „ungfrú fullkomin“,
hún hafi sína galla.
Jennifer Fisher, sem heldur úti
vefsíðu um Nancy Drew, segir að í
nýju sögunum sé ívið meira um
gamansemi. „Hún getur hlegið að
sjálfri sér þegar hún hún gerir eitt-
hvað heimskulegt. Ég held að
krakkar verði hrifn-
ir af því.“ Einnig eru
nú meiri upplýs-
ingar um heimaborg
Nancy, River
Heights, og ekki er
lengur sagt um vin-
stúlkuna Bess að hún sé „feitlagin“
heldur er hún „hnellin“, Bess er
auk þess orðin snillingur í öllu sem
við kemur bílum. Nancy á nú einnig
óvin, Deirdre.
En hve gömul er Nancy? Og hvað
gerir hún? Weiss segir að þessi at-
riði séu af ráðnum hug enn látin
vera fremur óljós. Nancy er sem
fyrr hvorki í framhaldsskóla né há-
skóla. Höfundarnir vilja ekki að
Nancy geti ekki leyst einhverja gát-
una vegna þess að hún þurfi að fara
í próf.
Hin síunga Nancy er breytt
The Washington Post.
’Ég held aðkrakkar verði
hrifnir af því.‘
ERNST Welteke sagði í gær af sér
sem seðlabankastjóri Þýzkalands.
Hann hafði áður vikið tímabundið úr
embætti vegna
ásakana um spill-
ingu fyrir að hafa
þegið fjögurra
nátta lúxusdvöl á
hóteli í Berlín fyr-
ir sig og fjöl-
skyldu sína um
áramótin 2001-
2002. Sem aðal-
bankastjóri
þýzka seðlabank-
ans, Bundesbank, var Welteke hæst-
launaði embættismaður Þýzkalands,
en hóteldvölin var greidd af við-
skiptabankanum Dresdner Bank.
„Stjórn bankans telur að þetta sé
rétt skref með tilliti til ímyndar
stofnunarinnar og þess hvernig al-
menningur skynjar skyldur hennar,“
segir í yfirlýsingu frá bankastjórn-
inni þar sem hún tilkynnti að hún
hefði fallizt á afsögnina.
Welteke, sem hafði stýrt bankan-
um síðan árið 1999, sagði í reiðilegu
afsagnarbréfi að honum væri óger-
legt að gegna skyldustörfum sínum í
þeim anda trausts sem nauðsynlegur
væri, í kjölfar þrýstings frá fjármála-
ráðuneytinu um að hann skyldi
sviptur embætti.
Sagði hann þennan þrýsting vera
nýjasta dæmið um að stjórnvöld
virtu ekki stjórnarskrárbundið sjálf-
stæði seðlabankans.
Welteke
hættur
Ernst Welteke
♦♦♦
STUÐNINGSMENN stjórnarand-
stöðunnar í Kákasuslýðveldinu
Armeníu kröfðust í gær afsagnar
forseta landsins, Roberts Kochar-
ians, í trássi við bann stjórnvalda
við slíkum mótmælaaðgerðum.
Með kröfugöngunni í höfuðborg-
inni, Jerevan, lét stjórnarandstaðan
í fyrsta sinn reyna á mátt sinn síðan
lögreglan beitti kylfum, skelfi-
sprengjum og þrýstivatni til að
leysa upp mótmælasetu
stjórnarandstæðinga á þriðjudag.
Talið er að um 6.000 manns hafi
tekið þátt í göngunni og spenna var
sögð ríkja í Jerevan. Lögreglumenn
fylgdust með og í nágrenninu voru
sérsveitir í viðbragðsstöðu auk
hjúkrunarliðs.
„Eins lengi og stjórn Kocharians
er við lýði mun enginn dagur líða án
mótmæla. Það verður enginn frið-
ur,“ sagði Aram Sarkissian, fyrr-
verandi forsætisráðherra sem nú
fer fyrir stjórnarandstöðunni. Það
er óánægja með bágt efnahags- og
atvinnuástand í landinu sem helzt
kyndir undir mótmælabylgjunni
gegn ríkjandi stjórn í Armeníu, en
ekki síður þó ásakanir um að Koch-
arian forseti hafi staðið fyrir kosn-
ingasvikum síðastliðið vor, en sam-
kvæmt opinberum niðurstöðum
þeirra kosninga tryggði hann sér
þar völdin annað kjörtímabilið í röð.
Mótmælaaldan sem nú gengur
yfir landið hefur verið borin saman
við „rósabyltinguna“ í nágrannalýð-
veldinu Georgíu í haust sem leið,
sem endaði með því að Edúard
Shevardnadze forseti hraktist úr
embætti. Stjórnmálaskýrendur
segja hins vegar að tök Kocharians
á völdunum séu það sterk, og
stjórnarandstaðan það vanmáttug,
að ólíklegt sé að hliðstæða
georgísku „rósabyltingarinnar“ eigi
sér stað í Armeníu.
Armeníuforseti í mótbyr
Jerevan. AFP, AP.
UTANRÍKISRÁÐUNEYTI
Bandaríkjanna hefur skipað
stjórnarerindrekum sínum í Sádi-
Arabíu, öðrum en þeim sem annast
brýnustu starfsemina, að fara það-
an vegna hættu á fleiri hryðju-
verkum.
Í tilkynningu, sem ráðuneytið
gaf út í fyrradag, voru Bandaríkja-
menn varaðir við því að ferðast til
Sádi-Arabíu og bandarískir ríkis-
borgarar, sem dvelja þar, eindreg-
ið hvattir til fara þaðan.
Ráðuneytið kvaðst hafa fengið
„nýlegar og trúverðugar upplýs-
ingar“ sem bentu til þess að öfga-
menn væru að undirbúa fleiri
sprengjuárásir á Bandríkjamenn
og Vesturlandabúa í Sádi-Arabíu.
Er þetta í þriðja skipti á einu ári
sem bandarískum stjórnarerind-
rekum er skipað að fara frá Sádi-
Arabíu.
Sádi-Arabía
Aukin hætta
á hryðju-
verkum
Washington. AFP.