Morgunblaðið - 17.04.2004, Blaðsíða 20
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100.
Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Skapti
Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján
Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is,
sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115.
Árborgarsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Undirbúningur undir árlega Sæluviku
Skagfirðinga er nú í fullum gangi, og má
segja að afmæli Geirmundar hafi verið góð
upphitun fyrir þessa gömlu gleðiviku. Á ár-
um áður, þegar orðin framlegð og arðsem-
iskrafa voru óþekkt, lögðu menn daglegt
amstur einfaldlega alveg til hliðar, og þegar
eitt ballið var búið fóru menn beint í biðröð-
ina til þess að kaupa sér miða á næsta ball og
tryggja sér borð, en þegar því var lokið var
loks unnt að fara heim, leggja sig og safna
kröftum fyrir næstu lotu. Hinsvegar er nú
mun meira framboð á flestu því sem þarf til
helgarskemmtana, um kráarrölt og dans-
leikjahald að velja hverja helgi, og þá leggja
hinir lífsþyrstu ef til vill minna á sig nú en
áður til þess að njóta Sæluvikunnar til fulls.
Leikfélag Sauðárkróks er nú að ljúka æf-
ingum á leikritinu Síldin kemur, síldin fer,
eftir þær Iðunni og Kristínu Steinsdætur,
undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar og
verður frumsýning sunnudaginn 25. apríl
næstkomandi. Leikendur eru rúmlega tutt-
ugu en alls koma um fjörutíu manns að sýn-
ingunni. Allskonar skemmtiefni og uppá-
komur verða alla vikuna, en lokakvöldið er
svo dægurlagakeppni Kvenfélags Sauð-
árkróks, sem nú er að sigla inn í annan ára-
tuginn með þessa vinsælu keppni, og segja
aðstandendur hennar að sífellt verði tónlistin
betri og lögin betur unnin til dóms og flutn-
ings. Að keppninni lokinni verður að venju
Lokadansleikur í Íþróttahúsinu.
En að öllu alvarlegri hlutum Jón Eiríks-
son sem stundum hefur verið nefndur
Drangeyjarjarl, hefur á undanförnum árum
lagt á sig ómælt erfiði til þess að gera að-
gengi að einni helstu náttúruperlu Skaga-
fjarðar, Drangey, betra og öruggara. Á síð-
astliðnu sumri steypti Jón mikinn
viðlegukant í Uppgönguvíkinni og var flest
gert til þess að hér yrði um varanlega fram-
kvæmd að ræða, bæði sett niður ankeri og
herlegheitin fleyguð saman með stálboltum.
Nú hefur Jón hinsvegar farið sína fyrstu ferð
fram í eyju á þessu vori, og þá kom í ljós að í
veðurhamförum vetrarins hefur garðurinn
góði færst allnokkra metra úr stað og klippt
á flestar festingar, þó að ekki sé hann ónot-
hæfur. Segist Jón nú sjá að enn um stund
verði hann að þjarka við eyjuna ef vel á að
vera og ljóst að verki sínu sé langt í frá lokið.
Úr
bæjarlífinu
SAUÐÁRKRÓKUR
EFTIR BJÖRN BJÖRNSSON FRÉTTARITARA
Menningarhátíðverður á Reyk-hólum sum-
ardaginn fyrsta. Er þetta í
annað sinn sem sumri er
fagnað með þessum hætti,
að því er fram kemur á vef
Reykhólahrepps.
Dagskráin hefst kl. 13
með opnun myndlistarsýn-
ingar í hjúkrunar- og dval-
arheimilinu Barmahlíð.
Þar sýnir Guðmundur
Björgvinsson verk sín.
Klukkustund síðar hefst
dagskrá í íþróttasal Reyk-
hólaskóla þar sem fær-
eyska söngkonan Eivör
Pálsdóttir treður upp. Þá
mun Þórunn Valdimars-
dóttir, sagnfræðingur og
rithöfundur, lesa upp úr
verki sem hún vinnur að
um Matthías Jochumsson,
en hann fæddist í Reyk-
hólasveitinni á 19. öld.
Í Barmahlíð hefst kl. 15
sama dag árlegur Barma-
hlíðardagur þar sem seld-
ar verða kaffiveitingar og
sýndar hannyrðir.
Menningarhátíð
Laxamýri | Gullkýrin var
afhent á aðalfundi Fé-
lags þingeyskra kúa-
bænda nýlega, en hana
hlaut að þessu sinni
Haukur Tryggvason á
Laugabóli fyrir kúna
Glóð 126 sem hlaut sam-
tals 305 stig í dóms- og
kynbótaeinkunn. Silf-
urkúna hlutu ábúendur á
Kambsstöðum fyrir kúna
Grá nr. 124 með 300 stig
og bronskúna hlaut Atli
Sigurðsson á Ingjalds-
stöðum fyrir kúna Etnu
nr. 132 sem hlaut alls
297 stig.
Það var Guðmundur
Steindórsson ráðunautur
sem fór yfir kúasýning-
arnar, en kýrnar sem
fengu verðlaun fyrir fal-
lega byggingu voru frá
Gautlöndum, Krossi,
Múla II og Ljósavatni.
Mikið er af velbyggðum
afurðakúm í héraðinu og
oft er erfitt að gera upp
á milli góðra gripa.
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Verðlaunahafar: F.v.: Sigurður Böðvarsson Gautlönd-
um, Sigurður Birgisson Krossi, Haukur Tryggvason
Laugabóli með gullkúna, Atli Sigurðsson Ingjalds-
stöðum og Aðalgeir Karlsson Múla II.
Gullkýrin fór að Laugabóli
Prófastur var á leiðheim traðirnar áTorfastöðum, þar
sem séra Guðmundur
Torfason var prestur á ár-
unum 1860 til 1875. Séra
Guðmundur taldi sig vita
erindið. Hann hafði
skroppið til Reykjavíkur
og orðið vel við skál:
Von er ekki verri gesta
veit ég það og skil.
Satan hefur sent þann versta
sem hann átti til.
Svo kemur hér önnur Sat-
ans vísa eftir séra Guð-
mund. Þegar hann hætti
prestskap á Torfastöðum
átti hann að fá Tor-
fastaðakot til ábúðar. En
þar sat fyrir Hafliði nokk-
ur Magnússon og Hjörtur
hreppstjóri í Austurhlíð
Eymundsson studdi Haf-
liða í að vera áfram, en
loks þegar kotið losnaði,
orti séra Guðmundur:
Kominn er ég „kotið“ í
kalla ég rudd sé gatan,
Hjörtur gat ei hamlað því
Hafliði né Satan.
Enn orti séra Guðmundur
og þá orðinn aldraður:
Þá var rifið, þá var slegið,
þá var róið, stokkið, glímt.
Nú er skriðið, nú er legið,
nú er sóað tíð og hímt.
Að sóa tíð
pebl@mbl.is
Grindavík | Starfsmenn fisk-
verkunarinnar Vísis í Grindavík
voru í gær að breyta í fisk-
vinnslunni. Ágúst Ingólfsson
sem er á lyftaranum og Hjálmur
Sigurðsson sem styður við færi-
bandið þverneituðu því að þeir
væru að gera fínt fyrir Ólaf
Ragnar Grímsson, forseta Ís-
lands, sem kemur í heimsókn til
Grindavíkur í dag til að taka
þátt í hátíðarhöldum í tilefni 30
ára kaupstaðarafmælis. Forset-
inn heimsækir einnig fyrirtæki
en þeir félagar sögðu að þótt
forsetinn væri frá Þingeyri eins
og stofnandi Vísis væri ólíklegt
að hann kæmi í heimsókn vegna
þess að engin vinnsla yrði þar í
dag. Málið skýrðist þegar Ágúst
sagði að þeir væru að flytja út
tæki úr flökunarlínunni til að
rýma fyrir niðurísingu sem þeir
kalla. Hann sagði að smærri
fiskurinn yrði sendur til vinnslu
á Húsavík en keyptur stór fisk-
ur á markaði í staðinn.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Breytingar í fiskvinnslunni
Kaupstaðarafmæli
VISTRÝMI fyrir aldraða eru hlutfallslega
mun færri á Suðurnesjum en á landinu í
heild og biðlistar að sama skapi lengri. Kom
þetta fram í erindi Sig-
urðar Garðarssonar, for-
manns stjórnar Dvalar-
heimila á Suðurnesjum,
á fundi Sambands sveit-
arfélaga á Suðurnesjum
sem fram fór á Flughót-
eli í Keflavík í fyrra-
kvöld.
Samkvæmt útreikn-
ingum Sigurður, sem
byggðar eru á tölum Hagstofu Íslands frá
árinu 2001, ættu að vera 170 dagvistar-,
dvalar- og hjúkrunarrými á Suðurnesjum til
þess að jafnvægi næðist miðað við landið
allt. Þar af þyrftu að vera liðlega 100 hjúkr-
unarými og 46 dvalarrými. Raunverulegt
framboð rýma er nú hins vegar um 120.
Vantar því um 50 rými upp á til að ná lands-
meðaltali. Jafnframt kom fram hjá honum
að um 70 manns væru á biðlista eftir rými á
dvalar- og hjúkrunarheimilum en jafnramt
kom fram á fundinum að erfitt væri að meta
biðlista vegna mismunandi aðferða.
Fram kom á fundinum að Reykjanesbær
hefur hug á að byggja hjúkrunarheimili í
bæjarfélaginu. Þar er nú ekkert hjúkrunar-
heimili en bærinn á aðild að Garðvangi í
Garði. Hugmyndir að skipulagi í kringum
Reykjaneshöllina gera ráð fyrir þeim mögu-
leika að uppbygging í þágu aldraðra verði
þar sem íþróttavöllur Njarðvíkur er nú.
Vantar 50
vistrými upp á
landsmeðaltal
BRÚARVINNUFLOKKUR frá Reyðar-
firði byrjar í næstu viku að setja upp göngu-
brú yfir Jökulsá í Lóni þar sem farið er inn í
Kollumúla. Byrjað var á brúnni í fyrrasum-
ar en þá voru steyptar undirstöður og mun
verkinu verða lokið í endaðan maí. Kemur
þetta fram á Samfélagsvef Hornafjarðar.
Núna er aðeins fært á jeppum inn að Ein-
stigi þar sem brúin kemur yfir Jökulsá en
fram kemur að Vegagerðin hyggst láta hefla
veginn þangað í næstu viku og þá muni leið-
in verða fær fyrir fjórhjóladrifna bíla.
Með tilkomu göngubrúarinnar opnast
gönguleið úr Stafafellsfjöllum inn á Lóns-
öræfi. Ferðafólki sem leggur leið sína um
Lónsöræfi hefur fjölgað ár frá ári.
Göngubrú
byggð
♦♦♦