Morgunblaðið - 17.04.2004, Qupperneq 30
Palermo og Toronto
Úrval Útsýn býður í haust beint leigu-
flug til tveggja nýrra áfangastaða, Pa-
lermo á Ítalíu og Toronto í Kanada. Far-
ið verður til Palermo helgina 20.–23.
maí nk. en 20. maí er uppstigningar-
dagur. Margt er að skoða í Palermo, t.d.
tónlistarhúsin, listasöfnin, leikhúsin og
útimarkaðir. Toronto stendur við Ont-
ario-vatn og meðfram bökkum þess
eru veitingastaðir, verslanir og
skemmtistaðir. Íbúarnir koma frá rúm-
lega hundrað aðskildum menning-
arsvæðum og endurspeglast það í
lista- og skemmtanalífi og matarmenn-
ingu í borginni.
Endurbætur á Hótel Ísafirði
Síðastliðið ár hafa verið gerðar miklar
endurbætur á Hótel Ísafirði. Herbergi
hafa verið endurnýjuð og þeim fjölgað
um fjögur. Eitt herbergi flokkast nú
sem lúxusherbergi en getur einnig nýst
fyrir gesti í hjólastól, sem fjölskyldu-
herbergi eða fyrir brúðhjón. Hótel Ísa-
fjörður er þriggja stjörnu hótel með 36
herbergjum sem öll eru með sturtu,
sjónvarpi og síma. Veitingasalur tekur
allt að 100 manns í sæti. Með end-
urbótunum á Hótel Ísafirði hefur öll að-
staða til fundahalda batnað mjög og er
hótelið nú betur í stakk búið að taka á
móti ýmiss konar ráðstefnum og fund-
um auk ferðamanna allt árið.
Áferð um Ísland
Á ferð um Ísland, Around Iceland og
Rund um Island 2004 eru komnar út
hjá útgáfufélaginu Heimi.
Bókin kemur út einu sinni á ári á þrem-
ur tungumálum í 90.000 eintökum auk
vefútgáfu á www.heimur.is/world. Bók-
unum er dreift ókeypis á öllum helstu
ferðamannastöðum landsins.
Í bókunum er fjallað um hvern lands-
hluta, bæði landafræði, sögu og áhuga-
verða staði auk ítarlegra þjónustulista
sem uppfærðir eru árlega í samstarfi
við heimamenn. Þá er einnig að finna
kort í upphafi hvers kafla þar sem inn
eru merktir helstu gististaðir, tjald-
svæði og sundstaðir í landshlutanum.
Ljósmyndir í bókinni eru eftir Pál Stef-
ánsson og Geir Ólafsson. Ritstjóri er
María Guðmundsdóttir.
GB Ferðir semja við Mount
Juliet
GB Ferðir hafa gert samning við hótelið
Mount Juliet Conrad á Írlandi en hót-
elið er við ána Nore á Írlandi. Á hótelinu
eru 32 herbergi og 2 forsetasvítur.
Ekkert herbergi er eins þar sem húsið
er upphaflega byggt sem heimili. Hvert
herbergi ber nafn sem hefur skírskotun
í söguna. Þar er fyrsti golfvöllinn sem
Jack Nicklaus hannaði í Evrópu. Völl-
urinn var vígður árið 1991 og hafa mörg
stórmótin farið fram á honum, m.a.
World Golf Championship – American
Express, árið 2004. Það mót verður
haldið aftur á Mount Juliet í ár. Hótelið
var valið 28. besta hótel í Evrópu af
Condé Nast. Á Mount Juliet er golfskóli
og gott æfingasvæði.
Golfferð til Oxfordshire
GB Ferðir hafa gert samning við The
Springs í London. Hótelið er í Oxfor-
dshire og landareignin einkennist af
görðum, vatni og skóglendi. 31 herbergi
er á hótelinu sem er byggt árið 1874 í
Tudor-stíl. Golfvöllurinn hentar byrj-
endum sem lengra komnum. Þrír golf-
dagar kosta 25.900 kr. á mann í tvíbýli.
Innifalið eru tvær nætur með morg-
unverði, þriggja rétta kvöldverði og
3x18 holu golfhringir.
GB Ferðir hafa einnig gert samning við
Ritz Carlton hótelið í Berlín, nýtt lúx-
ushótel. Það er staðsett í hjarta borg-
arinnar, á Potzdamer Platz og á hót-
elinu eru 320 herbergi, þar af 38 svítur.
Taíland og Víetnam í haust
Langferðir bjóða í haust ferðir til Taí-
lands og Víetnam í samvinnu við Kuoni
í Danmörku. Ferðirnar hefjast í Kaup-
mannahöfn og verður íslenskur far-
arstjóri. Farið verður til Víetnam 1.–15.
október og verð á mann í tvíbýli ef bók-
un er staðfest fyrir 1. júní er 173.100 kr.
Tvær ferðir verða til Taílands, 16.–30.
október og 24. október til 7. nóvember.
www.urvalutsyn.is
www.hotelisafjordur.is
www.gbferdir.is
www.kuoni.is
www.heimur.is
Morgunblaðið/Kristján G. Arngrímsson
Ferðalög: Ferðaskrifstofan Úrval-Útsýn býður beint leiguflug til Toronto í
Kanada í haust.
FERÐALÖG
30 LAUGARDAGUR 17. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Góð gisting í Kaupmannahöfn
Hótel í miðbænum. Snyrtileg herbergi. 295 danskar kr.
fyrir manninn í 2ja manna herb. með wc og sturtu.
Løven Hotel, Vesterbrogade 30, DK-1620 Cph. V.
Sími +45 33 79 67 20.
www.loeven.dk • loeven_bb@hotmail.com
Ódýrari bílaleigubílar
fyrir Íslendinga.
Bílar frá dkr. 1.975,- pr. viku.
Innifalið í verði; ótakmarkaður akstur,
allar tryggingar, engin sjálfsábyrgð.
(Afgr. gjöld á ugvöllum).
Höfum allar stærðir bíla, 5 – 7 manna
og minibus 9 manna og rútur með/án
bílstjóra.
Sendum sumarhúsaverðlista;
Dancenter sumarhús
Lalandia orlofshver ,
Danskfolkeferie orlofshver
Hótel. Heimagisting. Bændagisting.
Ferðaskipulagning.
Vegakort og dönsk GSM símakort.
Fjölbreyttar upplýsingar á heimasíðu;
www.fylkir.is
www.fylkir.is sími 456-3745
Bílaleigubílar
Sumarhús
DANMÖRKU
Erla Guðrún Hafsteins-dóttir er nýkomin fráJapan þar sem húndvaldist í þrjá mánuði
við nokkuð frumstæðar aðstæður á
skíðasvæði uppi í nyrstu fjöllum
ásamt áströlskum kærasta sínum
Luke Shearman. Þar var Luke að
kenna Japönum snjóbrettalistina,
en parið kynntist hér á landi þegar
þau hittust í snjóbrettabúðum uppi
á Snæfellsjökli. Erla Guðrún segist
vera mikil skíða- og brettakona.
Hún byrjaði að læra á skíði á
fimmta aldursári og tók svo snjó-
brettin fram yfir skíðin fyrir um
það bil sex árum, þá sautján ára
gömul.
Ferðalagið frá Íslandi til Japans
var bæði langt og strangt því Erla
Guðrún flaug í einni „bunu“ alla
leið, eins og hún kemst að orði, og
klukkutímarnir orðnir nítján frá því
hún lagði af stað þar til hún komst á
áfangastað. „Frá Keflavík flaug ég
til London og þurfti að bíða á Heat-
hrow-flugvelli í nokkra tíma áður
en ég náði tólf tíma flugi til Tókýó.
Þar þurfti ég að skipta um flugvöll,
frá Narita-flugvelli yfir á Haneda-
flugvöll. Þaðan var tveggja tíma
flug til Sapporo. Þangað sótti Luke
mig og við tók tveggja tíma akstur
til skíðasvæðisins Niseko Hirafu,
þar sem við bjuggum.
Aftur á móti þegar við fórum
heim, tókum við ferju frá bænum
Tamokamai til Oarai sem var átján
tíma ferðalag að næturlagi og því
sváfum við mestallan tímann. Frá
Oarai tókum við lest til Tókýó þar
sem við eyddum tveimur sólar-
hringum hjá kunningja. Síðan var
flugleiðin Tókýó-London-Keflavík,
líkt og á útleiðinni.“
Skíðasvæðið Hirafu er mitt á
milli tveggja bæjarkjarna, Niseko
og Kutchan, á eyjunni Hokkaido.
Stærsta borg eyjunnar er Sapporo,
þar sem búa um tvær milljónir íbúa,
og þar skoðuðu þau Erla Guðrún og
Luke sig um og fylgdust m.a. með
snjóbrettamóti, sem þar var haldið.
„Fyrir þá, sem hafa gaman af því að
ganga á fjöll, þá er eitt fjall nálægt
skíðasvæðinu, sem er vinsælt að
ganga á. Það heitir Yotei-zan og er
útsýnið af því stórfenglegt.
Við vorum náttúrlega mjög mikið
á snjóbrettum sem var auðvitað
megintilgangurinn með ferðinni, en
aðstæður þarna bjóða upp á hreint
frábæran púðursnjó. Mér fannst
líka mjög gaman að ganga um ná-
grennið á snjóþrúgum og svo not-
færðum við okkur auðvitað „onsen“
Japana, en það eru náttúruleg og
sérstök heit böð, ekki ósvipuð Bláa
lóninu. Sá er þó munurinn að karlar
og konur fara ekki saman í „onsen“,
heldur í sitthvort „onsenið“, þar
sem Evuklæðin ein og sér eru látin
duga í þessum sérstæðu japönsku
böðum, sem ég mæli eindregið með
að menn prófi, eigi þeir leið um.“
FRAMANDI STAÐIR
Á snjóbrettum í
japönsku fjalllendi
Frábær aðstaða: Með brettið á bakinu í lausamjöll.Útsýni: Séð frá skíðasvæðinu Niseko Hirafu yfir til fjallsins Yotei-zan.
Vistarverurnar: Þau Erla Guðrún og Luke bjuggu í efri skúrnum á milli
þess sem þau stunduðu útiveruna.
Í heitu baði: Erla Guðrún ásamt kærastanum Luke Shearman.
Með snjóbrettin í far-
teskinu fór Erla Guðrún
Hafsteinsdóttir alla leið
til Japans þar sem hún
fann frábæra lausamjöll
og naut náttúrulegra
baða og japanskrar
kurteisi í hvívetna.