Morgunblaðið - 17.04.2004, Side 43

Morgunblaðið - 17.04.2004, Side 43
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. APRÍL 2004 43 Öllu er afmörkuð stund, sérhver hlutur undir himninum hefur sinn tíma. Á þessa stað- reynd höfum við enn einu sinni verið minnt, nú þegar okk- ar góði félagi, Ólafur J. Þórðarson, er burtkallaður eftir stutta sjúkdóms- legu. Hann var fæddur á hinum sögu- fræga stað Hrafnseyri við Arnar- fjörð þar sem fegurð Vestfjarða er hvað dýrlegust. Það var því ekki að undra að heimahagarnir áttu ávallt sterk ítök í honum og engum duldist hvar ræturnar lágu, þótt hann byggi lengst af ævi sinnar fjarri þeim. Þegar við félagar hans í Fram- sóknarfélagi Akraness þökkum hon- um gengin spor er það orðið tryggð sem aftur og aftur kemur upp í hug- ann. Í starfi sem okkar er fátt mik- ilvægara en einmitt tryggðin. Að eiga félaga sem eru tilbúnir að þola jafnt súrt og sætt, þannig félagi var Óli. Hann hvatti til dáða, byggði upp og studdi. Hann var þrautgóður á raunastund og allra manna kátastur þegar vel gekk. Slíkir menn eru máttarstólpar hvað sem þeir taka sér fyrir hendur. Í eðli sínu var hann fé- lagslyndur samvinnumaður, keppn- ismaður góður, enda vel þekktur frjálsíþróttamaður á sinni tíð, þar sem kúluvarp var hans sérgrein. Hann flutti til Akraness árið 1960. Hann lét fljótt til sín taka á Skag- anum, var kosinn í bæjarstjórn 1962 og sat þar til 1970. Ótaldar eru þær nefndir og ráð sem hann var kjörinn til á vegum Akranesbæjar í gegnum árin. Síðustu árin sat hann í yfirkjör- stjórn þar sem reynsla hans og þekk- ing naut sín til fullnustu. Við félagar hans sjáum hann fyrir okkur birta okkur nýjustu kosninga- tölur, þá leyndi sér ekki gamla keppnisskapið sem aldrei var langt undan. Ungmennafélagshugsjónin fylgdi Óla alla tíð. Hann kom ávallt til að verða að liði og þar sem hann kom var hann frábær liðsmaður í lífi og starfi. Hann var einn stofnenda Ung- mennafélagsins Skipaskaga og fyrsti formaður þess. Það liggja víða sporin hans, þegar hann fluttist til Akraness hóf hann störf hjá Kaupfélagi Suður- Borgfirðinga. Síðar vann hann á Skattstofu Vesturlands og síðast hjá Akranesveitu. Óli var maður sem hreykti sér aldrei hátt en var óþreyt- andi við að nýta reynslu og þekkingu í þágu félaga sinna. Góður drengur er genginn. Hon- um fylgja þakkir fyrir öll hans störf. Eiginkonu hans, Valgerði Jóhanns- dóttur, dætrum hans og fjölskyldum þeirra sendum við okkar innilegustu samúðarkveðjur. Fyrir hönd félaga hans í Fram- sóknarfélagi Akraness Guðmundur Páll Jónsson. Það er fátt, sem bindur menn frek- ar vináttuböndum heldur en íþrótta- þátttaka, sérstaklega á þeim sviðum íþrótta, þar sem þátttakan er ekki mikil. Þannig er það til dæmis að taka með þátttöku eldra fólks, 35 ára og eldra, í frjálsíþróttum, svokallaðra öldunga. Einkum á það við um eldri flokkana, yfir sextugt. Þá hefur gjarnan fækkað svo í hópnum, að allir þekkja alla, og eyk- ur það vináttuna. En því fylgir einnig sár sorg, þeg- ar einhver úr hópnum leggur í sína hinstu för, þá för, sem enginn fær umflúið, en er alltaf jafn sár fyrir þá vini, sem eftir standa. Og nú sjáum við á bak Ólafi Jóni Þórðarsyni, vini okkar og félaga og ÓLAFUR JÓN ÞÓRÐARSON ✝ Ólafur Jón Þórð-arson fæddist á Hrafnseyri við Arn- arfjörð 24. septem- ber 1930. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut 8. apríl síðastliðinn og var útför hans gerð frá Akraneskirkju 16. apríl. formanni Öldungaráðs Frjálsíþróttasambands Íslands, sem lést á skír- dag. Ólafur var drengur góður, þéttur á velli og þéttur í lund og tryggur vinur vina sinna. Hann var á ungum aldri góður frjáls- íþróttamaður, en þó bar hann einkum af, þegar hann tók að keppa í flokki öldunga 57 ára gamall, og því hélt hann ótrauður áfram öldina út. En saga hans sem frjálsíþrótta- manns og íþróttamanns verður ekki sögð, nema getið sé starfs hans í Öld- ungaráði. Hann tók sæti í ráðinu 1992 og starfaði í því til dauðadags, síðustu sex árin sem formaður. Við þökkum þau störf öll. Blessuð sé minning hans. F.h. Öldungaráðs FRÍ Þórður B. Sigurðsson. Kveðja frá Frjálsíþrótta- sambandi Íslands Fallinn er frá einn af betri vinum frjálsíþrótta hér á landi. Þeim sem voru svo lánsamir að kynnast Ólafi, þótt stuttlega hafi verið, og þeim gegnheila áhuga á frjálsíþróttum, ásamt ljúfleika og góðvild sem hann hafði til að bera, munu seint eða aldr- ei gleyma honum. Ólafur var virkur í frjálsíþrótta- hreyfingunni til margra ára og mjög farsæll í sínum störfum, og oft leitað til hans enda var greiðvikni hans og áhugi á frjálsíþróttum alltaf jafnmik- ill. Ólafur gegndi fjölda trúnaðar- starfa fyrir frjálsíþróttahreyfinguna. Hann sat í dómstól Frjálsíþrótta- sambandsins frá árinu 1973 og allt þar til dómstólinn var lagður af fyrir fjórum árum og var lengst af formað- ur hans. Hann var í nokkur skipti for- seti og varaforseti á þingum FRÍ á sjöunda og áttunda áratug síðustu aldar. Þá var hann skoðunarmaður ársreikninga sambandsins í um tylft ára. Hann átti enn fremur sæti í öld- ungaráði FRÍ frá 1994 og gegndi hann störfum formanns frá árinu 1996 og þar til á þingi sambandsins sem haldið var í lok síðasta mánaðar. Gullmerki FRÍ hlaut Ólafur árið 1984 fyrir störf sín fyrir hreyfinguna. Ólafur var ekki aðeins farsæll í fé- lagsmálum hreyfingarinnar, því keppnisferill hans spannaði rúman aldarfjórðung. Hann var vaskur kastari og kastaði kringlunni mjög laglega, jafnvel öðrum til fyrirmynd- ar. Þegar horft er á eftir góðum mönnum er eftirsjá oft mikil. Fram- lags og félagsskapar Ólafs verður lengi minnst innan hreyfingarinnar. Ég vil fyrir hönd Frjálsíþrótta- sambandsins færa ekkju Ólafs, börn- um og öðrum aðstandendum samúð- arkveðjur frá hreyfingunni. Jónas Egilsson, formaður FRÍ. Elsku Oddrún. Það er svo erfitt að kveðja þig. Ég reyni að sleppa þér frá mér en þú ert alltaf hjá okk- ur. Ég trúi því varla að ég geti ekki heimsótt þig oftar. Stundum er ODDRÚN INGA PÁLSDÓTTIR ✝ Oddrún IngaPálsdóttir fædd- ist í Lunansholti í Landsveit í Rangár- vallasýslu hinn 22. ágúst 1922. Hún and- aðist á Landakots- spítala 22. mars síð- astliðinn og var jarðsungin frá Bú- staðakirkju 2. apríl. nærvera þín svo sterk að ég skil betur hvað ástin þýðir. Takk fyrir allt sam- an, elsku Oddrún. Takk fyrir barnið þitt sem er núna maðurinn minn og frábær mann- eskja. Ég lofa því að passa hann eins vel og ég get, eins og þú hefðir sjálf gert. Ég kveð þig með miklum söknuði og þakka þér allar góðu stundirnar. Hvíldu í friði, elsku Oddrún mín. Elvira Méndez Pinedo. Elskuleg eiginkona mín, móðir, amma og lang- amma, SOFFÍA ÁSGRÍMSDÓTTIR LUNDBERG, Rødstupeveien 28, Kristiansand S, Noregi, lést sunnudaginn 11. apríl. Útförin fer fram í Kristiansand miðvikudaginn 21. apríl. Kjell Lundberg, Astrid Lundberg, barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi, JÓN TEITSSON, Eyvindartungu, Laugardal, sem lést á skírdag, verður jarðsunginn frá Skálholtskirkju þriðjudaginn 20. apríl kl. 14.00. Sigurður Jónsson, Ásdís Hrönn Viðarsdóttir, Laufey Jónsdóttir, Sigurður Örn Leósson, Helga Jónsdóttir, Snæbjörn Smári Þorkelsson og barnabörnInnilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og út- farar elskulegrar móður okkar, tengdamóður og ömmu, HELGU STEFÁNSDÓTTUR, Þykkvabæ III, Landbroti. Hilmar Jónsson, Skúli Jónsson, Stefán Jónsson, Ragnar Jónsson, Elín Jónsdóttir, Ásta Jónsdóttir og fjölskyldur. Eiginmaður minn, faðir okkar, fósturfaðir, tengdafaðir, afi og langafi, RÖGNVALDUR ÓLAFSSON, Kleppsvegi 144, sem lést á Landspítala Landakoti mánudaginn 12. apríl, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 20. apríl klukkan 13.00. Ragnheiður Garðarsdóttir, Anna Th. Rögnvaldsdóttir, Ólafur Rögnvaldsson, fósturbörn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, EINAR M. JÓHANNSSON fiskvinnslufræðingur, Bleikjukvísl 18, lést á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi þriðjudaginn 13. apríl. Hann verður jarðsunginn frá Árbæjarkirkju föstudaginn 23. apríl kl. 13.30. Blóm eru vinsamlegast afþökkuð. Sigríður G. Jóhannsdóttir, Margrét Einarsdóttir, Bogi Ásgeirsson, Gísli Marteinsson, Jóhann Einarsson, Hrafnhildur H. Þorgerðardóttir og barnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, JÓN KRISTINN HAFSTEIN tannlæknir, lést á Landspítalanum í Fossvogi að morgni föstudagsins 16. apríl. Sigrún Kr. Tryggvadóttir, Þórunn Hafstein, Harald Snæhólm, Tryggvi Hafstein, Auður Bjarnadóttir, Kristín Ásta Hafstein, Ingólfur Jörgensson, barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur sonur okkar, bróðir, mágur og frændi, HRAFN JÓNASSON frá Melum, lést á hjartadeild Landspítalans miðviku- daginn 14. apríl. Jónas R. Jónsson, Elín Þ. Þórhallsdóttir, Elsa Jónasdóttir, Gunnar Guðjónsson, Ína H. Jónasdóttir, Eggert Sv. Jónsson, Þóra Jónasdóttir, Birna Jónasdóttir, Gunnar Vignisson, systrabörn og fjölskyldur. MÁR HARALDSSON bóndi og oddviti, Háholti, lést fimmtudaginn 15. apríl. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Margrét Steinþórsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.