Morgunblaðið - 17.04.2004, Qupperneq 60
ÍÞRÓTTIR
60 LAUGARDAGUR 17. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
HANDKNATTLEIKUR
Laugardagur:
Úrslitakeppni karla, 8 liða úrslit, odda-
leikir:
Hlíðarendi: Valur – FH.........................16.15
KA-heimili: KA – Fram ........................16.15
Sunnudagur:
Úrslitakeppni karla, 8 liða úrslit, annar
leikur:
Vestmannaeyjar: ÍBV – Haukar..........16.15
Ef ÍBV vinnur fer oddaleikur fram á Ás-
völlum á þriðjudaginn kl. 19.15.
KNATTSPYRNA
Deildabikarkeppni
Laugardagur:
Efri deild karla, B-riðill:
Fífan: FH – Keflavík..................................14
Efri deild karla, A-riðill:
Boginn: Þór – Víkingur.........................15.15
Neðri deild karla, A-riðill:
Leiknisvöllur: Sindri – Víðir......................12
Neðri deild karla, D-riðill:
Boginn: Völsungur – Höttur ................17.15
Efri deild kvenna:
Laugardalur: ÍBV – FH ............................14
Neðri deild kvenna:
Laugardalur: Sindri – Þór/KA/KS ...........16
Sunnudagur:
Efri deild karla, B-riðill:
Laugardalur: ÍA – ÍBV..............................16
Egilshöll: Fram – Þróttur R......................18
Neðri deild karla, C-riðill:
Fífan: HK – Víkingur Ó. ............................13
Boginn: Huginn – Afturelding .............15.15
Neðri deild karla, B-riðill:
Fífan: KFS – Breiðablik ............................15
Egilshöll: Númi – Selfoss ..........................20
Neðri deild karla, D-riðill:
Boginn: Magni – Fjarðabyggð .............13.15
Boginn: Tindastóll – Höttur .................17.15
Neðri deild karla, A-riðill:
Leiknisvöllur: ÍH – Leiknir R...................20
Neðri deild kvenna:
Laugardalur: HK/Víkingur – Sindri ........14
Reykjaneshöllin: Keflavík Þór/KA/KS ....14
BORÐTENNIS
Síðasta stigamót Borðtennissambands Ís-
lands, keppnistímabilsins 2003-2004, fer
fram á morgun, sunnudaginn, í TBR-hús-
inu. Úrslit verða kl. 12.30.
TAEKWONDO
Íslandsmótið fer fram í dag, laugardag, í
Hagaskóla kl. 10. Úrslit hefjast kl. 13.
UM HELGINA
ÚRSLIT
KNATTSPYRNA
Deildabikarkeppnin
Efri deild karla, A-riðill:
Grindavík - Fylkir.................................... 1:4
Grétar Ólafur Hjartarson 8. - Sævar Þór
Gíslason 2., 36., Ólafur Páll Snorrason 18.,
Kristján Valdimarsson 84.
Sævar Þór brenndi af vítaspyrnu í síðari
hálfleik.
KA - Víkingur R. ...................................... 1:1
Jóhann Þórhallsson 88. - Jón Guðbrands-
son 65.
Jóhann Þórhallsson misnotaði víta-
spyrnu í fyrri hálfleik.
Staðan:
KA 6 4 1 1 15:4 13
KR 6 4 1 1 13:8 13
Fylkir 6 4 0 2 14:12 12
Þór 5 3 0 2 8:9 9
Grindavík 6 3 0 3 10:13 9
Víkingur R. 5 1 2 2 7:8 5
Haukar 6 1 0 5 12:16 3
Njarðvík 6 1 0 5 8:17 3
Efri deild karla, B-riðill:
ÍBV - Valur ............................................... 3:4
Gunnar Heiðar Þorvaldsson 2, Jón Skafta-
son. - Jóhann Georg Möller, Baldur Að-
alsteinsson, Kristinn Lárusson, Sigurbjörn
Hreiðarsson.
Staðan:
ÍA 6 5 0 1 17:10 15
Keflavík 6 4 2 0 19:10 14
Þróttur R. 5 3 1 1 11:8 10
FH 5 3 0 2 14:10 9
Valur 6 3 0 3 12:8 9
Fram 5 1 2 2 12:10 5
ÍBV 6 1 1 4 15:16 4
Stjarnan 7 0 0 7 5:33 0
Neðri deild karla, B-riðill:
Reynir S. - ÍR............................................ 2:3
Neðri deild karla, D-riðill:
Fjarðabyggð - Leiftur/Dalvík ................. 4:1
Efri deild kvenna:
ÍBV - Valur ............................................... 0:3
Nína Ósk Kristinsdóttir 12., 17., Dóra Stef-
ánsdóttir 60.
Stjarnan - Breiðablik .............................. 4:4
Auður Skúladóttir 29.,46, Harpa Þorsteins-
dóttir 63,78. - Erna Sigurðardóttir 17.,79.,
Björk Ásta Þórðardóttir vítasp. 14., Gréta
Samúelsdóttir 60.
Staðan:
Valur 4 3 1 0 16:4 10
Breiðablik 3 1 2 0 13:7 5
Stjarnan 4 1 1 2 9:10 4
KR 2 1 0 1 2:3 3
ÍBV 2 1 0 1 4:6 3
FH 3 0 0 3 1:15 0
England
Arsenal - Leeds .........................................5:0
Robert Pires 7., Thierry Henry 27.,33.
vítasp.,50.,67. - 38,094.
FORRÁÐAMENN danska
úrvalsdeildarliðsins AGF
vonast til þess að Helgi
Sigurðsson verði í leik-
mannahópi þess á morg-
un þegar það fær FC
Nordsjælland heimsókn
til Árósa eftir því sem
dagblaðið Århus Stiftstid-
ende greinir frá. Helgi
hefur æft af krafti þessa
vikuna eftir að hafa verið fjarri
góðu gamni vegna meiðsla um
nokkurn tíma. Hann hefur aðeins
tekið þátt í einum af fimm leikjum
liðsins í deildinni síðan hann gekk
til liðs við það snemma árs.
Helgi æfði með aðalliðinu á
fimmtudagskvöldið ásamt tveimur
öðrum sóknarmönnum
sem einnig hafa verið á
sjúkralista upp á síðkast-
ið og gekk vel. Þjálfari
AGF segir að ekkert
mæli gegn því að Helgi
verði í leikmannahópnum
á sunnudaginn. Helgi
hafi ekki fundið fyrir
meiðslum en skiljanlega
sé hann ekki í mikilli leik-
æfingu, en það sé nokkuð sem komi
með tímanum.
Það er AGF mikilvægt að fá
sóknarmenn sína fríska á nýjan leik
því bitlaus sóknarleikur hefur verið
Akkilesarhæll AGF í undangengn-
um leikjum og liðið vart náð að
skora.
Helgi með AGF gegn
FC Nordsjælland
Helgi
RÚNAR Alexandersson fimleika-
maður úr Gerplu tryggði sér í
gærkvöld sæti í úrslitum í fjöl-
þraut á Evrópumeistaramótinu
sem nú stendur yfir í Ljubljana í
Slóveníu. Rúnar varð í 23. sæti í
fjölþrautinni með 51,337 stig en
24 bestu fengu þátttökurétt í úr-
slitakeppninni sem fram fer í dag.
„Rúnar gerði mistök í æfingum
sínum á svifránni en honum tókst
vel upp í hinum fimm æfingunum
og það dugði honum til að komast
áfram. Best gekk honum á boga-
hestinum þar sem hann fékk 9,6 í
einkunn sem er frábær árangur
þó svo það hafi ekki dugað hon-
um til að komast í úrslit í keppni
á einstökum áhöldum,“ sagði
Guðmundur Brynjólfsson lands-
liðsþjálfari í fimleikum við
Morgunblaðið í gærkvöld. Þetta
er þriðja Evrópumótið í röð þar
sem Rúnar kemst í úrslit í fjöl-
þraut.
„Rúnar er á mjög góðu róli og
ég er bjartsýnn fyrir hans hönd
hvað varðar þátttökuna á Ólymp-
íuleikunum í sumar. Stefnan er að
gera betur í úrslitunum á morgun
(í dag) og vonandi gengur honum
betur á svifránni,“ sagði Guð-
mundur.
Viktor Kristmannsson, Gerplu,
hafnaði í 41. sæti í fjölþrautinni
með 48,898 stig. „Þetta er hæsta
einkunn sem Viktor hefur fengið
og hann er á mikilli uppleið.“
Rúnar Alexandersson
í úrslit á EM í fjölþraut
Síðasta liðið til að leggja Arsenalað velli í úrvalsdeildinni var
Leeds en í leik liðanna þann 4. maí á
Highbury í fyrra fagnaði Leeds, 3:2,
sigri. Síðan þá hefur Arsenal nú spil-
að 35 leiki í röð án ósigurs, þar af 33 á
yfirstandandi leiktíð, og ekki verður
séð að liðið tapi leik í deildinni með
sama áframhaldi.
Robert Pires opaði markareikn-
inginn fyrir Arsenal á 7. mínútu og
Henry, sem var að leika sinn 150.
leik í búningi Arsenal, bætti við
tveimur fyrir hlé, því síðara úr víta-
spyrnu. Henry kórónaði frábæra
frammistöðu sína í síðari hálfleik
með tveimur mörkum og þessi frá-
bæri leikmaður, sem skoraði þrennu
gegn Liverpool um síðustu helgi,
hefur nú skorað 29 mörk í deildinni.
„Ég fékk góða afgreiðslu frá sam-
herjum mínum og mitt var að reka
smiðshöggið. Það er gaman að spila
með svona frábærum leikmönnum
og ég nýt hverrar stundar sem ég
leik með þeim. En mikilvægast af
öllu var að við unnum leikinn og með
sigrinum stigum við skrefi nær tak-
marki okkar, því að vinna titilinn,“
sagði Henry eftir leikinn.
Með sigrinum náði Arsenal 10
stiga forskoti á Chelsea í toppsæti
deildarinnar og 13 á Englandsmeist-
ara Manchester United sem á leik til
góða.
Ferna hjá Henry
ARSENAL, með snillinginn Thierry Henry í broddi fylkingar, tók
Leeds United í netta kennslustund í ensku úrvalsdeildinni í knatt-
spyrnu í gær. 5:0 urðu lokatölurnar á Highbury og gerði Henry sér
lítið fyrir og skoraði fernu fyrir Lundúnaliðið.
SKAUTAFÉLAG Akureyrar er
besta íshokkílið landsins en Akur-
eyringar tryggðu sér í gærkvöld Ís-
landsmeistaratitilinn í 11. sinn þeg-
ar þeir báru sigurorð af Skauta-
félagi Reykjavíkur, 6:1, í þriðja
úrslitaleik liðanna um Íslandsmeist-
aratitilinn sem fram fór á Akureyri.
SA vann alla þrjá úrslitaleikina en
fyrstu tveir leikirnir fóru 5:2 og 7:1,
og Akureyringarnir sýndu og sönn-
uðu að þeir eru með besta lið lands-
ins en þeir unnu alla leiki sína á
tímabilinu.
„Leikurinn var jafn til að byrja
með en þegar á leikinn leið tókum
við hann í okkar hendur og við sig-
um smátt og smátt frammúr. Reyk-
víkingar eru með ágætt lið en við
erum einfaldlega sterkari,“ sagði
Sigurður Sveinn Sigurðsson, fyrir-
liði SA, við Morgunblaðið eftir sig-
urinn.
Þetta var fjórði Íslandsmeistara-
titill SA í röð og sá ellefti á 13 árum
en Sigurður, sem er 27 ára gamall,
var að vinna sinn þrettánda meist-
aratitil, 11 með Akureyringum og
tvö ár í röð var hann í sigurliði
Skautafélags Reykjavíkur sem varð
Íslandsmeistari árin 1999 og 2000.
„Það er ekki hægt að segja annað
en að ég hafi verið ansi sigursæll og
það er alltaf gaman að hampa titl-
um. Við höfum haft mikla yfirburði
í vetur og það er ekki hægt að segja
annað en að við séum vel að þessu
komnir,“ sagði fyrirliðinn í sigur-
vímu.
Sigurður var að öllum líkindum
að spila sinn síðasta leik og annar
af burðarrásunum í liði SA, Rúnar
Rúnarsson, hættir þar sem hann
hyggur á nám í Danmörku.
Morgunblaðið/Kristján
Sigurður Sveinn Sigurðsson, fyrirliði SA, með Íslandsmeistarabikarinn ásamt aðstoðarfyrirliðum
sínum, Birni Má Jakobssyni til vinstri og Rúnari Rúnarssyni til hægri.
SA Íslands-
meistari í
11. sinn
PÉTUR Guðmundsson, sem þjálfaði
kvennalið Grindavíkur í körfuknatt-
leik í vetur og var yfirþjálfari yngri
flokka félagsins, hefur verið leystur
undan samningi að eigin ósk en hann
átti eitt ár eftir af samningi sínum.
Þar með eru bæði karla- og kvenna-
lið Grindavíkur þjálfaralaus en Frið-
rik Ingi Rúnarsson ákvað sem kunn-
ugt er að hætta með karlaliðið eftir
tímabilið. „Ástæðurnar fyrir því að
ég hætti hjá Grindavík eru persónu-
legs eðlis. Það kemur vel til greina að
þjálfa áfram enda finnst mér gaman
að þjálfa en það verður bara að koma
í ljós hvert framhaldið verður hjá
mér, sagði Pétur við Morgunblaðið.“
Pétur hættur
hjá Grindavík