Morgunblaðið - 21.04.2004, Qupperneq 13
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 2004 13
í boði í apríl og maí
ÚR VERINU
● ÍSLANDSBANKI hefur ákveðið að
lækka verðtryggða vexti frá og með
deginum í dag um 0,1%. Í tilkynningu
frá bankanum segir að hann hafi
lækkað bæði verðtryggða og óverð-
tryggða vexti frá apríl 2002. Verð-
tryggðir útlánsvextir hafi á þessu
tímabili lækkað um samtals 2,3% og
kjörvextir skuldabréfa farið úr 7,75%
í 5,45%. Innlánsvextir hafi lækkað
minna og vaxtamunur því minnkað.
Vextir verðtryggðra Sparileiða
bankans lækka einnig um 0,1% en
vextir á lífeyrissparnaðarreikningi og
Framtíðarreikningi lækka ekki og eru
nú 6,1%.
Íslandsbanki
lækkar vexti
ÞETTA HELST …
VIÐSKIPTI
● MICROSOFT
Windows XP og
fjögur forrit í
Microsoft Office
2003 verða brátt
fáanleg á íslensku, samkvæmt til-
kynningu frá Microsoft Íslandi.
Elvar Þorkelsson, framkvæmda-
stjóri Microsoft Íslandi, segir í til-
kynningunni ánægjulegt að hægt
verði að bjóða þessar vörur á ís-
lensku þar sem þær hafi fram að
þessu eingöngu verið fáanlegar í er-
lendum útgáfum. Þess sé að vænta
að Windows XP verði fáanlegt á ís-
lensku í byrjun júní og að Office-
forritin verði fáanleg í september.
Þau forrit í Office 2003 sem verða
þýdd yfir á íslensku eru Microsoft
Word 2003, Microsoft Outlook 2003,
Microsoft PowerPoint 2003 og Micro-
soft Excel 2003.
Verð íslenskuðu útgáfunnar verður
hið sama og þeirrar ensku, sam-
kvæmt tilkynningunni.
Microsoft-hugbún-
aður þýddur á
íslensku
Verslunarráð Íslands heldur morg-
unverðarfund undir yfirskriftinni Er
samkeppnisstaða íslenskra fyr-
irtækja að versna? á Grand hóteli
milli klukkan 8:15 og 9:45 í dag.
Fundarstjóri er Erlendur Hjaltason
forstjóri Eimskipafélagsins ehf. og
ræðumenn eru Þór Sigfússon fram-
kvæmdastjóri Verslunarráðsins, Pét-
ur Blöndal alþingismaður og Bjarn-
freður Ólafsson lögmaður Taxis
lögmenn ehf.
Þekkingarmiðlun stendur í dag fyr-
ir námskeiði um lærdómsfyrirtækið
á Nordica hóteli milli klukkan 9:00 og
13:00. Leiðbeinandi er Gylfi Dalmann
Aðalsteinsson lektor við Háskóla Ís-
lands.
Ímark heldur í dag hádegisverð-
arfund um markaðssetningu gagn-
vart börnum og unglingum í Ársal
Radisson SAS Hótels Sögu á milli
klukkan 12:00 og 13:00. Fram-
sögumenn eru Anna María Proppé
framkvæmdastjóri Heimilis og skóla,
Halla Helgadóttir grafískur hönn-
uður á auglýsingastofunni Fíton, Ket-
ill B. Magnússon ráðgjafi hjá Síman-
um og María Dungal, sérfræðingur á
markaðssviði Landsbankans.
Hagfræðistofnun Háskóla Íslands
heldur málstofu um hvernig greina
megi stjórnun starfsmannamála í
stofu 101 í Odda klukkan 12:15 í dag.
Fyrirlesari er Inga Jóna Jónsdóttir
lektor.
Í DAG
VANGAVELTUR um að Baugur
leitaði leiða til að losa sig við 22%
hlut sinn í bresku verslunarkeðjunni
Big Food Group, BFG, urðu til þess
að titringur skapaðist um hlutabréf í
félaginu á mánudag, að því er segir í
brezka blaðinu The Independent.
Fjárfestar seldu óðara bréf sín og
verðið lækkaði um 6% innan dagsins,
fór í 123,75 pens. Verð bréfanna
lækkaði enn í gær um alls 5,05% og
var lokaverð þeirra 117 pens.
Lækkunin á mánudag var, að sögn
Independent, í hróplegu ósamræmi
við verðþróun annarra bréfa í mat-
vörugeiranum sem hækkuðu á
mánudag. Í fréttinni segir að ekki
þurfi að koma á óvart þótt Baugur
selji bréf sín í BFG. Félagið hafi
keypt mest af 22% hlut sínum á
genginu 40 pens í október 2002 og sé
því á pappírunum með mjög vænan
hagnað á kaupunum.
Forsvarsmenn Baugs Group
höfðu ekkert um málið að segja þeg-
ar Morgunblaðið leitaði staðfesting-
ar á þessu í gær. Þess má geta að
svipaðar vangaveltur voru uppi fyrir
um ári, var þá einnig talið að Baugur
kynni að selja hlut sinn í BFG og inn-
leysa ágóðann.
Miðað við lokaverð bréfanna í gær
nemur markaðsvirði eignarhlutar
Baugs í BFG um 11,6 milljörðum
króna. Og miðað við að meðalkaup-
verð Baugs á hlutnum í BFG hafi
verið um 40 pens, mundi ábatinn af
sölunni líklega nema vel ríflega 7
milljörðum króna á núverandi gengi.
Hæst fór gengi bréfanna í BFG í
183,75 pens í byrjun febrúar sl. og
síðan þá hefur markaðsverðmæti
hlutar Baugs lækkað um nærri 7
milljarða króna.
Baugur
sagður ætla
út úr BFG
ÚTGERÐARFYRIRTÆKIÐ Reka-
vík ehf. í Bolungarvík hefur fest kaup
á línuskipinu Albatros GK-60 frá Þor-
birni-Fiskanesi hf. í Grindavík. Skip-
inu fylgir 350 tonna þorskkvóti og
1.000 tonna rækjukvóti. Rekavík ehf.
er dótturfyrirtæki Bakkavíkur hf. í
Bolungarvík.
Frá þessu er greint á fréttavef BB
á Ísafirði. Þar segir enn fremur:
„Meðal annarra hluthafa í Rekavík er
útgerðarfyrirtækið Ós ehf. sem gerir
út smábátana aflasælu Hrólf Einars-
son ÍS og Guðmund Einarsson ÍS. Að
sögn Agnars Ebeneserssonar, fram-
kvæmdastjóra Bakkavíkur, tekur
Rekavík ehf. nú yfir útgerðina sem
Bakkavík hefur haft með höndum,
þ.e. útgerð smábátanna Einars Hálf-
dáns og Hafdísar auk annars af bát-
um Óss ehf. Agnar vildi ekki gefa upp
kaupverð Albatross. Hann segir að
kaupin verði að hluta til fjármögnuð
með eigin fé en Rekavík ehf. hafa nú
verið lagðar til um 350 milljónir
króna í hlutafé. Hann segir kaupin
gerð til þess að styrkja hráefnisöflun
Bakkavíkur ehf. til lengri tíma litið
bæði í bolfiskvinnslu og rækju-
vinnslu. Skipið verður gert út til línu-
veiða enda búið beitningavél. Skipið
verður afhent í lok maí. Skipstjóri
hefur verið ráðinn aflamaðurinn Guð-
mundur Einarsson sem um árabil
hefur gert úr smábátinn Guðmund
Einarsson ÍS en var áður m.a. stýri-
maður á Guðbjörgu ÍS-46.
Samkvæmt upplýsingum bb.is er
ekki óraunhæft að ætla að kaupverð
Albatross geti verið á bilinu 7–800
milljónir króna. Sem kunnugt er var
Þorbjörn-Fiskanes hf. afskráð úr
Kauphöll Íslands í kjölfar yfirtöku
Þorbjarnarfjölskyldunnar svokölluðu
á félaginu. Í kjölfarið virðist hafin
mikil eignasala frá fyrirtækinu því í
dag var einnig tilkynnt um sölu nóta-
veiðiskipsins Grindvíkings með tölu-
verðum aflaheimildum til Vest-
mannaeyja. Að sögn fjölmiðla var
söluverð Grindvíkings um tveir millj-
arðar króna. Hafa skip og kvóti að
verðmæti 2,8 milljarðar því verið
seldir frá Grindavík í dag. Þorbjörn
hf. sameinaðist á sínum tíma Bakka
hf. í Bolungarvík og skömmu síðar
hvarf aflakvóti og skip Bakka hf. til
Grindavíkur. Með nokkurri einföldun
má því segja að sá aflakvóti sé nú að
hluta til að skila sér til baka. Skipið
Albatros er ekki ókunnugt við Djúp.
Það var smíðað í Flekkefjord í Nor-
egi árið 1967 fyrir Hraðfrystihúsið
Norðurtangann hf. og hét í fyrstu
Guðbjartur Kristján ÍS-20 og síðan
Orri ÍS-20. Skipið var síðan selt
Bakka hf. í Bolungarvík og fékk þá
nafnið Vinur ÍS. Síðar var skipið selt
Fiskanesi hf. í Grindavík og fékk þá
núverandi nafn.
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Albatros seldur
frá Grindavík
Kaupverðið gæti
verið 700 til 800
milljónir króna