Morgunblaðið - 21.04.2004, Page 14

Morgunblaðið - 21.04.2004, Page 14
ERLENT 14 MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ PAT Skinner, tæplega sjötug kona í Ástralíu, gekkst undir aðgerð í hittifyrra og var þá hluti af ristlinum fjar- lægður. Gekk það allt ljómandi vel en næsta hálfa annað árið var hún stöðugt að kvarta undan verkjum í kvið- arholi. Fékk hún ávallt þau svör, að það væri bara það, sem búast mætti við eftir mikinn uppskurð. Hún lét sig þó ekki og krafðist þess loks, að tekin væri röntgenmynd. Kom þá ástæðan í ljós, 17 sm löng skæri, sem skurðlæknirinn hafði gleymt innan í henni. Það lá bara að Reuters NÝJAR skoðanakannanir benda til þess að alls ekki sé gefið að tillögur Sameinuðu þjóðanna um friðarsamning milli þjóðarbrotanna á Kýp- ur, Grikkja og Tyrkja, verði felldur. Kosið verður um samninginn á laugardag en verði hann felldur mun aðeins gríski hlutinn ganga í Evrópusambandið 1. maí. Könnun sem gerð var 16. apríl gaf til kynna að enn væri meiri- hluti Kýpur-Grikkja, 71%, andvígur samningn- um en tveim dögum síðar var hlutfallið aðeins 54%. Óákveðnum hafði fjölgað mjög. Forseti Kýpur-Grikkja, Tassos Papadopou- los, hefur lýst mikilli andstöðu við tillögur SÞ og sagt að með þeim sé alls ekki tekið nóg tillit til hagsmuna síns fólks. En flestir aðrir, áhrifa- miklir stjórnmálaleiðtogar Kýpur-Grikkja eru hins vegar hlynntir samningnum og talsmenn ESB hafa lagt hart að kjósendum að bregða ekki fæti fyrir aðild allrar eyjarinnar. Papado- poulos hefur á hinn bóginn sagt að í aðildar- samningnum sé tekið fram að náist ekki sam- komulag um friðarsamning gangi Kýpur-Grikkir einir í sambandið. Þeir þurfi því ekkert að óttast. Blóðug saga Tæpur þriðjungur eyjarskeggja er múslím- ar af tyrkneskum stofni og byggja þeir norð- anverða eyna, Grikkir eru hins vegar kristnir. Kýpur hlaut sjálfstæði frá Bretum 1960 en ákveðið var að Tyrkir mættu beita hervaldi ef gengið yrði á rétt tyrkneska þjóðarbrotsins. Blóðug átök urðu milli þjóðarbrotanna á sjö- unda áratugnum og Tyrkland hernam norður- hlutann 1974 eftir misheppnað valdarán manna sem kröfðust þess að eyjan yrði hluti af gríska ríkinu. Hundruð þúsunda Grikkja flúðu frá heimilum sínum í kjölfar hernámsins en alþjóð- legt friðargæslulið hefur síðan tryggt frið á landamærunum sem nefnd eru Græna línan. Í tillögum Kofi Annans, framkvæmdastjóra SÞ, er gert ráð fyrir sambandsríki á eynni. Tugir þúsunda Kýpur-Tyrkja verða að flytja frá svæðum sem voru grísk fram til 1974. Með- al tyrkneskumælandi íbúa, sem verða að flytja, er mikið af fólki frá Tyrklandi sem hefur flust til svæðanna síðustu áratugi. Samt sem áður er gert ráð fyrir að tillögurnar verði samþykktar meðal tyrkneskumælandi Kýpurbúa sem vilja njóta góðs af betri kjörum með aðild að ESB. Ekkert annað ríki en Tyrkland hefur viður- kennt sjálfstæði ríkis Kýpur-Tyrkja. Papadopoulos og margir landar hans eru ósáttir við þær bætur sem boðnar hafa verið fyrir eignamissi vegna tyrkneska hernámsins. Mikil óánægja er einnig, að sögn tímaritsins The Economist, meðal Kýpur-Grikkja yfir því að ekki skuli verið ákveðið að allt tyrkneska herliðið hverfi þegar frá norðurhéruðunum. Mikil tortryggni hefur öldum saman ríkt milli Grikkja og Tyrkja enda hafa samskiptin oft verið blóðug gegnum tíðina. Tyrkir vilja fá að- ild að ESB en margir Evrópumenn óttast að innganga 70 milljóna, fátækrar múslímaþjóð- ar, sem býr að mestu utan álfunnar, í Litlu- Asíu, verði ekki auðveld viðureignar. Ef Tyrkir hætta að haga sér vel „Við treystum á góðvild Tyrkja og þetta tengist vonum Tyrkja um ESB-aðild,“ sagði Sylvia Avraamides sem býr í Nikosíu og er grískumælandi. „Hver getur tryggt mér að Tyrkir muni halda áfram að haga sér vel ef þeim verður hafnað?“ spurði hún í samtali við fréttamann AFP-fréttastofunnar. Efasemda- menn fullyrtu að Tyrkir hefðu aldrei haldið al- þjóðlega samninga sem þeir hefðu gert síðustu 100 árin. Enn aðrir gáfu í skyn að Bandaríkja- menn myndu styðja Tyrki ef einhvern tíma skærist í odda en Tyrkir hafa áratugum saman verið dyggir bandamenn stjórnvalda í Wash- ington. Vitað er að forsætisráðherra Tyrklands, Recep Tayyip Erdogan, þurfti að beita miklum fortölum til að fá ráðamenn í tyrkneska hern- um til að samþykkja að Tyrkir mæltu með til- lögum SÞ. Erdogan leggur geysilega áherslu á að Tyrkir gangi í ESB og vill því ryðja úr vegi ágreiningnum um Kýpur. Herinn hefur lengi bent á hernaðarlegt mikilvægi þess að hafa bækistöðvar á Kýpur en nær 40.000 tyrkneskir hermenn eru nú á eynni. Hinn aldraði Rauf Denktash, sem hefur síð- ustu áratugina verið nær einráður leiðtogi Kýpur-Tyrkja, er fullur efasemda og varð í reynd að láta undan þrýstingi kjósenda sem fóru í miklar kröfugöngur til að knýja fram samþykki við að tillögurnar yrðu lagðar í þjóð- aratkvæði. Skipt um hlutverk The Economist bendir á að hlutverkaskipti hafi nú orðið, áður hafi alþjóðasamfélagið þrýst á Kýpur-Tyrki að láta af stífni og samþykkja friðarsamninga en að þessu sinni séu það Kýp- ur-Grikkir sem valdi vandræðum. Það sem menn óttist nú mest sé að ráðamenn Kýpur- Grikkja hyggist ef til vill nýta neitunarvaldið sem aðildarríki hafa til að stöðva aðildarvið- ræður við Tyrki, komi til þeirra. Haft er eftir embættismanni hjá framkvæmdastjórn ESB í Brussel að þá geti ástandið á Kýpur orðið „raunveruleg martröð“. En jafnframt bendir tímaritið á að innst inni muni sumir ráðamenn í gömlum lykilríkjum ESB fagna því ef slík þróun komi í veg fyrir að- ild Tyrklands, þótt þeir álasi opinberlega Kýp- ur-Grikkjum. Þess má geta að margir áhrifa- miklir stjórnmálamenn í Frakklandi, þ. á m. Valery Giscard d’Estaing, fyrrverandi forseti landsins, hafa sagt berum orðum að þeir séu á móti aðild Tyrklands. Friðarsamningur skilyrði þess að Kýpverjar gangi sameinaðir í Evrópusambandið 1. maí Óttast „martröð“ ef Kýpur-Tyrkir verða skildir eftir Reuters Tassos Papadopoulos (t.h.) fær aðstoð líf- varðar þegar ákafir stuðningsmenn fagna forsetanum við skrifstofu hans í Nikosíu. BRESKA lögreglan yfirheyrði í gær 10 manns, sem handteknir voru í fyrradag í Mið- og Norður-Englandi. Er fólkið grunað um að hafa lagt á ráðin um hryðjuverk og síðdegis- blaðið Sun fullyrti, að það hefði ætlað að fyrirkoma þúsundum manna á leik Manchester United og Liver- pool í Manchester á laugardag. Hef- ur lögreglan ekki staðfest það og segist ekki munu taka þátt í slíkum vangaveltum. Um er að ræða níu karlmenn og eina konu, Norður-Afríkumenn og íraska Kúrda, en lögreglan hefur ekkert um það sagt hvort sprengi- efni hafi fundist í fórum þeirra. Neit- ar hún að tjá sig nokkuð um fréttina í Sun um að fólkið hafi ætlað að sprengja sig upp á Old Trafford, leikvangi Manchester United, en einnig hefur verið á kreiki orðrómur um, að það hygðist fremja hryðju- verk í Trafford Center, næststærstu verslanasamstæðunni á Bretlanda. Þriðja útgáfan er, að hryðjuverkin hafi átt að fremja utan Bretlands. „Við tökum ekki þátt í vangavelt- um af þessu tagi,“ sagði talsmaður lögreglunnar í Manchester og Phil Townsend, talsmaður Manchester United, sagði, að félagið ætti í við- ræðum við lögregluna um öryggis- málin en það væri allt með venjuleg- um hætti. Aukið eftirlit BBC, breska ríkisútvarpið, sagði í gær, að vegna vangaveltna í fjölmiðl- um hefði lögreglan ákveðið að herða eftirlit á Old Trafford vegna leiks Manchester United og Charltons, sem fram fór í gær, og einnig á laug- ardag. Í fréttinni í Sun sagði, að hryðju- verkamenn al-Qaeda hefðu ætlað að drepa „þúsundir“ manna á Old Traf- ford og hefðu þeir allir verið búnir að kaupa sér miða á leikinn. Kvaðst blaðið hafa þetta eftir ónefndum heimildamönnum innan leyniþjón- ustunnar. The Times sagði hins veg- ar, að hugsanlega hafi skotmark hryðjuverkamannanna verið grann- liðið Manchester City en talsmenn þess segjast ekki hafa fengið neinar upplýsingar um það. Sagði blaðið, að breskir leyniþjónustumenn hefðu komist á snoðir um það með hler- unum, að til stæði að gera árás á „mikinn mannfjölda“. Tengdar yfirlýsingum róttæks múslímaleiðtoga Handtökurnar á mánudag eru settar í samband við yfirlýsingar Sheikh Omar Bakri Mohammeds, leiðtoga, Al-Muhajiroun, samtaka róttækra múslíma en þau starfa í London og hafa verið orðuð við al- Qaeda. Sagði hann í viðtali við portú- galska blaðið Publico á sunnudag, að „mörg ungmenni dreymdi um að ganga til liðs við al-Qaeda“. Sagði hann, að þau væru reiðubúin að grípa til aðgerða án beinna tengsla við hryðjuverkasamtökin eins og til- fellið hefði til dæmis verið í Madríd. Hryðjuverkin þar hefðu verið framin af einum slíkum hópi „lausamanna“. Yfirheyrslur yfir meint- um hryðjuverkamönnum Breska lögreglan vill ekki taka þátt í vangaveltum um árás á Old Trafford London. AP, AFP. „VIÐ höldum okkar striki eins og til stóð en fylgjumst að sjálfsögðu grannt með öllum fréttum frá Bret- landi,“ sagði Lúðvík Arnarson hjá Úrvali-Útsýn en um 200 manns hafa bókað far með félaginu á leik Man- chester United og Liverpool í Man- chester á laugardaginn. Lúðvík sagði, að ef eitthvað kæmi fram, sem staðfesti fréttir um, að hryðjuverkamenn hefðu ætl- að að láta til sín taka á leiknum, yrði að sjálfsögðu brugðist við því. Enn væru þrír dagar til stefnu og enginn hefði hætt við. Raunar væri fólk enn að skrá sig og minna um fyrirspurnir af þessu tilefni en hann hefði átt von á. „Það er hroðalegt bara að leiða hugann að hryðjuverkum af þessu tagi en þessar fréttir í bresku síð- degisblöðunum eru með öllu óstað- festar. Við erum hins vegar á vakt- inni og munum bregðast strax við fáum við ástæðu til,“ sagði Lúðvík. „Höldum okkar striki“ TALSMAÐUR lögreglunnar í Stafangri sagði í gær, að tveir menn hefðu verið handteknir og kærðir vegna peningaránsins í borginni 5. apríl sl. en þá urðu ræningjarnir einum lögreglu- manni að bana. Áður hafa þrír menn verið handteknir í Gauta- borg í Svíþjóð vegna tengsla við málið. Að sögn lögreglunnar voru mennirnir tveir, sem báðir eru Norðmenn, kærðir formlega í fyrradag. Vildi hún ekki gefa upp nöfnin en sagði, að þeir hefðu unn- ið fyrir fyrirtæki, sem selt hefði seðlageymslunni, Norsk Kontant- service, ýmsan tæknibúnað. Talið er, að ræningjarnir hafi verið átta til 12 talsins og voru þeir vel búnir vopnum. Voru þeir með sjálfvirkar byssur, gasgrím- ur og táragas og í skotheldum vestum. Þegar þeir flýðu af vett- vangi skutu þeir lögreglumanninn Arne Sigve Klungland til bana. Vakti þessi atburður mikinn óhug í Noregi enda fá dæmi um það þar, að lögreglumaður bíði bana af völdum glæpamanna. Ekki hefur enn verið gefið upp hve miklum peningum var rænt úr seðlageymslu bankanna í Staf- angri en norskir fjölmiðlar telja, að þeir hafi komist á brott með 60 milljónir norskra króna hið minnsta en það eru um 800 millj- ónir íslenskra króna. Hafa raunar verið nefndar hærri upphæðir, allt upp í hálfan annan milljarð ísl. kr. Tveir menn kærðir í Stafangursráni Ósló. AP.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.