Morgunblaðið - 21.04.2004, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 21.04.2004, Qupperneq 16
Betri kjör,meiri yfirsýn og aukin þjónusta í Vild Nú bjóðum við viðskiptavinum okkar að vera með tryggingar og bankaþjónustu á sama stað. Kynntu þér kosti Vildar í síma 440 4000, í næsta útibúi Íslandsbanka eða á isb.is. Starfsmaður mánaðarins! þann hátt að þess gerðist ekki þörf, stjórnarskrársáttmálinn breytti ekki grundvelli þess sambands sem Bret- land ætti við ESB sem eitt aðildar- ríkjanna. Í gær sneri hann hins vegar við blaðinu. Réttlæti hann U-beygj- una með því að segja að svo margar „goðsagnir“ væru á kreiki um þau áhrif sem sáttmálinn hefði að ástæða væri til að taka hann til gagngerrar skoðunar, þannig að fólk gerði sér grein fyrir staðreyndum málsins. Nefndi Blair í þessu sambandi að sumir virtust halda að samþykkt stjórnarskrársáttmálans þýddi að El- ísabet Englandsdrottning yrði ekki lengur þjóðhöfðingi Breta og að Bret- ar yrðu neyddir til að taka upp hægri umferð. Hann fordæmdi það sem hann kallaði „sífellda herferð, sem ég verð þó að viðurkenna að hefur að mörgu leyti haft tilætluð áhrif, and- stæðinga ESB sem á sér það mark- mið að telja fólki trú um að Evrópu- samruninn sé samsæri beint gegn bresku þjóðinni“. Staðreyndin væri sú, sagði Blair, að ESB væri „samstarf sem skapað var fyrir okkur og aðra þannig að við gæt- um fylgt eftir okkar þjóðarhagsmun- um með sem bestum hætti í sam- tengdum heimi nútímans“. „Tökum þessa rimmu“ Athygli vakti að Blair setti málið þannig fram að þjóðin myndi ekki aðeins greiða at- kvæði um stjórn- arskrársáttmál- ann sjálfan heldur um stöðu Bret- lands í Evrópu og raunar heim- inum öllum. Sagði Blair að at- kvæði yrðu greidd um sáttmálann en að „mun meira væri und- ir“. „Það er kominn tími til að svara þeirri spurningu í eitt TONY Blair, forsætisráðherra Bret- lands, tilkynnti í gær að haldin yrði þjóðaratkvæðagreiðsla í landinu um stjórnarskrársáttmála Evrópusam- bandsins (ESB) sem líklegt er að leið- togar ESB-ríkjanna leggi í grundvall- aratriðum blessun sína yfir á fundi í júní. Um er að ræða alger umskipti á afstöðu breska Verkamannaflokksins í þessum efnum en Blair hefur jafnan sagt, að engin þörf væri á því að leggja sáttmálann í dóm kjósenda. Blair tilkynnti um ákvörðunina á breska þinginu en orðrómur hefur verið á kreiki síðustu dagana um að von væri á þessum sinnaskiptum af hálfu ráðherrans. Fram kom hjá Blair í gær að breska þingið myndi fyrst fá tækifæri til að ræða málið. „En svo skulum við leyfa almenningi að hafa lokaorðið,“ sagði Blair. Ekki kom fram hvenær halda ætti atkvæðagreiðsluna eða hvert yrði orðalag þeirrar spurningar sem lögð yrði fyrir bresku þjóðina. Stjórnmála- skýrendur telja hins vegar líklegt að atkvæðagreiðslan verði haldin fljót- lega eftir næstu þingkosningar, sem líklegt er að fari fram einhvern tím- ann á fyrri hluta næsta árs. Og stjórnmálaskýrendur eru sam- mála um að Blair yrði vart vært í embætti ef breskur almenningur hafnaði stjórnarskrársáttmálanum í þjóðaratkvæðagreiðslunni. Því er Blair að taka umtalsverða pólitíska áhættu með viðsnúningi sínum nú. Of margar „goðsagnir“ á kreiki Tíu ný ríki munu ganga formlega í ESB 1. maí nk. og verða aðildarríkin þá alls tuttugu og fimm. Öll þurfa þau að leggja blessun sína yfir stjórnar- skrársáttmálann en aðeins Danmörk, Írland og Lúxemborg hafa tilkynnt að haldin verði þjóðaratkvæðagreiðsla um málið. Líklegt er þó að fleiri fylgi í kjölfarið, m.a. Holland, Pólland, Ítalía, Spánn og Portúgal. Blair hefur fram til þessa svarað háværum kröfum breskra íhalds- manna um þjóðaratkvæðagreiðslu á skipti fyrir öll hvort þessi þjóð, Bret- land, vilji vera í forgrunni og í forystu ákvarðanatöku á vettvangi ESB eða ekki. Það er kominn tími til að ákveða hvort okkar bíði framtíð þar sem við erum leiðandi þjóð í Evrópusamstarf- inu eða hvort við verðum jaðarþjóð í Evrópu,“ sagði Blair. „Leyfum Evr- ópuandstæðingunum, hvers sönnu áformum við munum fletta ofan af, færa rök fyrir máli sínu,“ bætti Blair við. „Leyfum þeim okkar sem teljum Bretland eiga að vera hluti af Evrópu, ekki af því að við trúum á Evrópu sér- staklega, heldur af því að við trúum á Bretland, að færa rök fyrir okkar máli. Tökum málið fyrir. Tökum þessa rimmu.“ Þykir sumpartinn snjallt hjá for- sætisráðherranum að setja málin í þennan búning, sáttmálinn sjálfur sé tæknilegt atriði sem fáir skilji til hlít- ar en að með þessu verði breskur al- menningur látinn standa frammi fyrir öllu stærri spurningu, þar sem afleið- ingarnar gætu orðið miklar ef niður- staðan yrði neikvæð. Kosið um Evrópumál 1975 Sumir Evrópusinnar telja að sinna- skipti Blairs nú hafi meira með það að gera að Verkamannaflokkurinn horf- ir fram á að gjalda afhroð í kosningum til Evrópuþingsins í sumar fremur en að forsætisráðherrann hafi hagsmuni Bretlands í Evrópu í reynd í huga. Ákvörðunin nú sé meira taktísk frem- ur en til marks um að Blair sé al- mennt fylgjandi því að leggja mál í dóm kjósenda með þjóðaratkvæða- greiðslum. Skoðanakannanir sýna að mikill meirihluti almennings hefur efasemd- ir um frekari Evrópusamruna og því þykir líklegt að mjótt verði á munum í atkvæðagreiðslu um stjórnarskrár- sáttmálann. Þjóðaratkvæðagreiðsla hefur að- eins einu sinni áður verið haldin í Bretlandi. Það var árið 1975 og Verkamannaflokkurinn var þá einnig við stjórn. Voru breskir kjósendur beðnir um að skera úr um hvort Bret- land ætti áfram að vera hluti Evrópu- bandalagsins sem þá var. Tveir af hverjum þremur kjósendum svöruðu þeirri spurningu játandi. Boðar þjóðaratkvæða- greiðslu um Evrópumál Alger umskipti á stefnu Blairs og Verkamannaflokksins Tony Blair London. AFP, AP. ’Það er kominn tímitil að svara þeirri spurningu í eitt skipti fyrir öll hvort þessi þjóð, Bretland, vilji vera í forgrunni og í forystu ákvarð- anatöku á vettvangi ESB eða ekki. ‘ ERLENT 16 MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ ÓVISSA ríkir um framtíðina á Jan Mayen en norski herinn vill leggja niður Loran-C-stöðina þar og hætta þá um leið að flytja þangað búnað og starfsfólk. Óttast sumir, að þetta verði til að kynda undir kröfum annarra þjóða, til dæmis Íslendinga, til fiskimiða við eyna. Jan Mayen heyrir undir fylkis- stjórann á Norðlandi í Noregi og hefur hann fært þetta mál í tal við Kjell Magne Bondevik forsætis- ráðherra. Segist hann óttast, að hverfi herinn á braut, muni verða útilokað að halda þar uppi ein- hverri starfsemi. Bendir hann meðal annars á, að æ algengara sé, að stór ferðamannaskip leggi leið sína til eyjarinnar. Sagði frá þessu á fréttavef norska ríkisútvarpsins. Hafnlaus og oft umlukt ís Stöðvarstjórinn á Jan Mayen, John Arvid Volden, segist ekki hafa fengið neina formlega tilkynn- ingu um, að stöðin verði lögð niður en kveðst þó vita, að rætt sé um að gera það á næsta ári. Fylkisstjórinn segir, að margar norskar rannsóknarstofnanir hafi áhuga á starfseminni á Jan Mayen og undir það tekur talsmaður Veð- urfræði- og hafrannsóknastofnun- arinnar í Björgvin. Hann og einnig talsmaður norsku Norðurskauts- stofnunarinnar benda hins vegar á, að sá galli sé á gjöf Njarðar, að á Jan Mayen sé engin höfn auk þess sem ís loki oft öllum siglingaleið- um. Geir Knutsc, formaður landshlutaráðsins fyrir Norðland og Norður-Þrændalög, segir aftur, að margt fleira sé í húfi á Jan Mayen. „Íslendingar hafa mótmælt yf- irráðum okkar yfir auðlindum þar og æ fleiri ríki krefjast þess að fá að stunda þar fiskveiðar. Mér finnst, að norska ríkið og þar með herinn eigi að gæta hagsmuna okk- ar á þessu svæði.“ Jan Mayen er 373 ferkm stór eldfjallaeyja, um 1.000 km vestur af Bodø í Noregi og 500 km norð- austur af Íslandi. Norski herinn vill fara frá Jan Mayen Sumir Norðmenn óttast aukna kröfu Íslendinga til eyjarinnar AP UNG kona skrifar árnaðaróskir til argentínska fótboltagoðsins Diego Maradona en hann er enn á gjörgæsludeild sjúkrahúss í Buenos Aires. Sagt er, að hann hafi fengið hjartaáfall, en læknar segja að hann svari vel með- ferð og sé heldur að braggast. Á miðunum stendur meðal annars: „Gefðu okkur hjarta þitt aftur“, „Ekki gefast upp“ og fleira í þeim dúr. AP Beðið fyrir Maradona

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.