Morgunblaðið - 21.04.2004, Síða 17
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100.
Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Skapti
Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján
Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is,
sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115.
Árborgarsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Jón Helgi hættir | Jón Helgi Björns-
son, aðstoðarframkvæmdastjóri kjöt-
vinnslufyrirtækisins Norðlenska mat-
borðsins, hefur sagt starfi sínu lausu og
mun hann láta af störfum um miðjan maí.
Jón Helgi hefur undanfarin níu ár unn-
ið að afurðasölumálum. Um tíma var
hann forstöðumaður afurðasviðs Kaup-
félags Þingeyinga á Húsavík og síðar
Kjötiðju KÞ. Síðar var hann fram-
kvæmdastjóri sláturhúsa Norðlenska og
nú síðast aðstoðarframkvæmdastjóri
Norðlenska. Þá hefur Jón Helgi verið
formaður Landssambands sláturleyf-
ishafa undanfarin tvö ár, en á aðalfundi
þess í dag mun hann láta þar af for-
mennsku.
Í frétt frá fyrirtækinu er haft eftir
Jóni Helga að tekist hafi að koma rekstri
þess í gott jafnvægi og endurfjármögnun
þess sé nú farsællega lokið.
Úr
bæjarlífinu
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Skólahljómsveit á myndbandi | Saga
skólahljómsveitar Mosfellsbæjar er rakin í
myndbandi sem kom út í tilefni af fjörutíu
ára afmæli sveitarinnar, en skóla-
hljómsveitin hefur löngum
þótt öflug og skemmtileg.
Saga sveitarinnar er rakin
allt frá því að nokkrir pilt-
ar úr Varmárskóla hófu
æfingar og léku við vígslu
Varmárlaugar árið 1964,
þar til margefld hljómsveit lék á stór-
tónleikum í tilefni af 40 ára afmælinu.
Saga lúðrasveitarinnar tengist einnig sögu
byggðarlags sem hefur tekið miklum
breytingum á þessum tíma og gæti reynst
afar áhugaverð fyrir fólk sem hefur fylgst
með sveitinni í áranna rás eða tekið þátt í
henni.
Á FUNDI íþrótta- og æskulýðsráðs Bol-
ungarvíkur í síðustu viku var fjallað um
sparkvallaátakið sem Knattspyrnusam-
band Íslands stendur
fyrir ásamt fleiri og þar
samþykkt áskorun til
bæjaryfirvalda um að
óska eftir sparkvelli.
„Íþrótta- og æskulýðs-
ráð hvetur bæjaryfir-
völd eindregið til að
sækja um KSÍ-spark-
völl. Sparkvallaátak KSÍ er einstakt tæki-
færi fyrir Bolungarvík til að eignast
skemmtilegt og öruggt leiksvæði sem nýta
má til íþróttaiðkunar og við kennslu, þar
sem möguleiki er á staðsetningu sparkvall-
arins við grunnskólann. Þekkt er að Bol-
víkingar hafa með samtakamætti sínum
byggt upp glæsileg íþróttamannvirki á síð-
ustu árum og því vill íþrótta- og æskulýðs-
ráð hvetja bæjaryfirvöld til að skoða alla
kosti varðandi byggingu sparkvallar.“ Frá
þessu segir á fréttavef Bæjarins besta á
Ísafirði.
Vilja sparkvöll
Hætt hefur verið viðSkíðastaðagöng-una á Akureyri
vegna snjóleysis en Fossa-
vatnsgangan á Ísafirði fer
fram, þó líklega verði ekki
gengin hefðbundin leið að
þessu sinni, skv. frétt á
fréttavef Bæjarins besta.
Fjórar göngur mynda
svokallaða Íslandsgöngu,
tvær fyrrnefndu ásamt
Tindastólsgöngunni á
Sauðárkróki og Stranda-
göngunni á Hólmavík, sem
þegar hafa farið fram.
Fyrir frammistöðu í göng-
unum fjórum vinna kepp-
endur sér inn stig og sem
stendur eru Ísfirðingar í
efstu sætum þriggja
flokka af fjórum í Íslands-
göngunni. Það eru þau
Kristján Ásvaldsson og
tvíburarnir knáu Einar og
Auður Yngvabörn. Fossa-
vatnsgangan fer fram
þann 1. maí næstkomandi.
Að ganga eð’ …
Húsavík | Það var vor í
lofti við Skjálfanda á
dögunum og á slíkum
stundum er fjaran undan
Stangarbakkanum vinsæl
meðal bæjarbúa og
óspart notuð til útivistar.
Hún er einnig notuð til
leikja og þegar fréttarit-
ari átti þar leið um voru
ungar knattspyrnustúlk-
ur úr Völsungi við æfing-
ar í fjöruborðinu undir
leiðsögn þjálfara síns
Sveinbjörns Sigurðs-
sonar. Það var mikill
hamagangur í stúlkunum
og þær eflaust fegnar því
að komast aðeins út und-
ir bert loft eftir að hafa
æft í íþróttahöllinni í all-
an vetur.
Morgunblaðið/Hafþór
Efnilegar knattspyrnustúlkur: Ungar Völsungsstúlkur
við æfingar í fjörunni við Húsavík.
Knattspyrna æfð í fjörunni
Til þess að halda sigvið guðspjöllin fráí gær er rétt að
rifja upp stöku eftir
Sveinbjörn Benteinsson á
Draghálsi:
Í upphafi var orðið
og orðið var hjá þér;
hvað af því hefur orðið
er óljóst fyrir mér.
Erfitt er að sökkva sér of-
an í kveðskap, ortan út af
guðspjöllunum, án þess
að séra Matthías komi þar
við sögu. Gaman væri ef
einhver vissi tildrög þess-
arar vísu hans:
Ég veit, að þú átt harla góðan
haus,
en hræðist samt, að skrúfan
enn sé laus,
því skap þitt er svo fjarskalega
feyrað,
þú frændi þess, sem Pétur hjó
af eyrað!
Og nú er rétt að gefa Páli
Ólafssyni orðið, en hann
orti um Darvínskuna:
Nú er ekki á verra von,
villan um sig grefur;
Kristur apa-kattar son
kannski verið hefur.
Enn af
guðspjöllum
pebl@mbl.is
Mývatnssveit | Það er margt
að gerast þessa dagana hjá
Baðfélagi Mývatnssveitar. Það
nýjasta er að gamla baðhúsið
hefur verið fjarlægt af gufu-
auga því sem gerði það að
sannkallaðri heilsulind, svo
sem þær þúsundir geta vottað
sem þar hafa notið þess að
láta þreytuna líða úr lúnum
belg og komið þaðan út endur-
nærðir á sál og líkama. Það
var 1996 sem þá nýstofnað
Baðfélag keypti trefjaplasthús
og setti yfir öflugt gufuauga.
Nokkru seinna var fengið ann-
að trefjahús fyrir búnings-
klefa.
Þetta er á svæði þar sem
Mývetningar hafa um aldir
gert sér einhverja aðstöðu til
að geta notið jarðbaða. Það
sanna gamlar hleðslur á svæð-
inu, sögur og sagnir.
Nú eru breyttir tímar og
nýjar byggingar, stærri og
vandaðri en hinar fyrri, eru að
taka á sig það form sem gest-
um verður boðið í sumar. Hér
eru þeir hressir í andanum,
nýbúnir að fjarlægja gömlu
aðstöðuna, Jón Ingi, Birgir,
Þorgeir og Jóhann Friðrik.
Morgunblaðið/BFH
Gamla jarðbaðið horfið
Mývatn
SKIPULAGSSTOFNUN hefur fallist á
fyrirhugaðar snjóflóðavarnir á Tröllagilja-
svæði í Norðfirði í Fjarðabyggð.
Í úrskurði Skipulagsstofnunar kemur
fram að um er að ræða þriðja áfanga snjó-
flóðavarna af sex til að verja byggðina á
Norðfirði gegn ofanflóðum. en varnirnar
fela í sér samspil stoðvirkja, keilna, þver-
og leiðigarðs.
Byggja þarf 620 metra langan og 16,5 til
18,5 m háan þvergarð um 100 metrum ofan
við efstu íbúðarhús. Vestan þvergarðsins
verður reistur 390 m langur og 17 m hár
leiðigarður. Ofan þvergarðsins verða reist-
ar 23 keilur sem verða um 10 m háar. Jafn-
framt verða byggð upptakastoðvirki í
Ytra- og Innra-Tröllagili.
Framkvæmdasvæðið verður um 29
hektarar. Efni til framkvæmdarinnar sem
er um 565.000 rúmmetrar verður fengið
innan framkvæmdasvæðisins.
Stefnt er að því að framkvæmdir geti
hafist vorið 2004 og er heildarverktími
áætlaður 3–4 ár.
Kæra má úrskurðinn til umhverfisráð-
herra og er kærufrestur til 26. maí næst-
komandi.
Fallist á
áform um
snjóflóða-
varnir
Tvær bílveltur | Tvær bílveltur urðu í
umdæmi lögreglunnar í Borgarnesi í
fyrradag, en ekki urðu alvarleg meiðsli á
fólki. Í fyrra tilvikinu ók ökumaður bíls út-
af á Holtavörðuheiði með þeim afleiðingum
að bíllinn fór nokkrar veltur og end-
astakkst. Ökumaðurinn var fluttur með
lögreglubíl á Heilsugæsluna í Borgarnesi.
Klukkan 14 ók annar ökumaður útaf og
lenti bíll hans á hliðinni ofan í skurði. Öku-
maður fékk höfuðhögg og missti meðvit-
und í byrjun. Var hann fluttur á Heilsu-
gæsluna í Borgarnesi. Báðir bílarnir
skemmdust mikið og voru fjarlægðir með
krana.
♦♦♦