Morgunblaðið - 21.04.2004, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 21.04.2004, Blaðsíða 21
LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 2004 21 Skeifan 2 - 108 Reykjavík - S. 530 5900 poulsen@poulsen.is - www.poulsen.is Reimar og drifbúnadur Stykkishólmur | Á vorin er uppskeruhátíð kóra á Íslandi. Kór- ar fara í söngferðlag til að kynna árangur erfiðis vetrarins og leyfa fleirum að njóta ávaxtanna. Í leið- inni er um skemmtiferð að ræða fyrir kórfélaga, einn þáttur í starf- seminni til að hafa gaman af. Eldri félagar í Karlakór Reykja- víkur hafa starfrækt kór í fjölda- mörg ár. Hann er skipaður félögum sem hættir eru að syngja með að- alkórnum og öðrum þeim sem finnst þeir vel eiga heima í þeirra hópi. Hér er um fjölmennan kór að ræða og eru söngmenn yfir 50 tals- ins. Kórinn fór í söngferðalag á Snæ- fellsnesið á laugardaginn. Um miðj- an dag söng kórinn fyrir íbúa Snæ- fellsbæjar í Ingjaldshólskirkju og um kvöldið voru tónleikar í Stykk- ishólmskirkju. Á tónleikunum var flutt fjöl- breytt söngdagskrá. Í tilefni ferð- innar á Snæfellsnesið söng kórinn lagið „Brimlending“ eftir Áskel Jónsson við texta Davíðs Stef- ánssonar. Efniviðurinn er sóttur til atburðar við Hellissand árið 1876. Þrátt fyrir að meðalaldur kór- félaga sé í hærra lagi var söngur þeirra kröftugur og hljómmikill og voru áheyrendur ánægðir með söng þeirra og þökkuðu fyrir sig með góðum undirtektum. Stjórnandi kórsins er Kjartan Sigurjónsson. Einsöngvari á tónleikunum var Ei- ríkur Hreinn Helgason og undir- leikari Bjarni Jónatansson. Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason Eldri félagar í Karlakór Reykjavíkur á tónleikum í Stykkishólmskirkju. Á myndinni með kórfélögum er stjórnandinn Kjartan Sigurjónsson og Eirík- ur Hreinn Helgason, sem söng einsöng með kórnum. Eldri karlakórsfélagar heimsækja Stykkishólm Stykkishólmur | Félagið Embla í Stykkishólmi verður með sína árlegu vorvöku sumardaginn fyrsta. Félag- ið, þar sem konur eru eingöngu fé- lagar, hefur starfað í Stykkishólmi til margra ára. Fastur liður í starfi fé- lagsins er að bjóða upp á vorvöku í lok vetrar. Að þessu sinni er bryddað upp á þeirri nýjung að bregða á leik í Íþróttamiðstöðinni sumardaginn fyrsta kl. 15–17. Þar verður fjöl- breytt dagskrá fyrir fólk á öllum aldri. Í íþróttasalnum verður brugðið á leik og rifjaðir upp ýmsir leikir sem gaman er að fara í úti í góðu veðri. Má þar nefna leiki eins og Hollý-hú (Nafnasto), Pílaranda, Danskan (boltaleik), Bimm-bamm, 10-20 og fleira skemmtilegt. Í anddyrinu og í skólastofum verða ýmsar sýningar. Má þar nefna sýningu sem nefnist: Stykkishólmur, fortíð og framtíð, þar sem sýndar verða skipulagstillögur frá ýmsum tímum. Þar er hægt að sjá hvernig menn hafa séð uppbyggingu staðar- ins fyrir sér allt frá árinu 1850 og fram á þennan dag. Einnig verða sýndar teikningar af nýbyggingum í Stykkishólmi og nágrenni, þar sem m.a. verða sýndar teikningar að nýrri sumarhúsabyggð sem senn mun rísa í námunda við bæinn. Landslagsarkitekt mun sýna hug- myndir að skipulagi garða ásamt nýrri tillögu að endurskipulagningu tjaldsvæðisins. Blómabúðin Hvönn kynnir sumarblóm og runna. Þá verður í gangi myndasýning úr Ljósmyndasafni Stykkishólms. Ým- islegt fleira verður til sýnis, svo sem úrklippusafn Ólafíu Gestsdóttur og ljósmyndir úr fórum listasmiðsins Baldurs Þorleifssonar. Embla með vorvöku Fljót | „Ég held að það verði for- gangsverkefni stjórnar LS á þessu ári að reyna að ná til baka þeirri verðlækkun á afurðaverði á innan- landsmarkaði sem varð síðastliðið haust. Það er nauðsynlegt að setjast niður með sláturleyfishöfum og ræða þessi mál og ná samkomulagi um ákveðið lágmarks viðmiðunarverð eins og var hér fyrir nokkrum árum. Að mínu mati klúðraðist þetta á Sel- fossfundinum á sínum tíma en það er algerlega óviðunandi staða að sauð- fjárbændur hafi ekkert um verðlagn- ingu afurðanna að segja. Standi bara utan við allt slíkt og velti því fyrir sér hvar og hvenær þeir fái sínu fé slátr- að og megi jafnvel vera þakklátir ef einhver vill taka féð af þeim,“ sagði Jóhannes Sigfússon, formaður Landssamtaka sauðfjárbænda, þeg- ar hann ávarpaði aðalfund skag- firskra sauðfjárbænda á dögunum. Á fundinum urðu að vonum tals- verðar umræður um þá tekjulækkun sem sauðfjárbændur urðu fyrir á síð- asta ári þegar greiðslur fyrir dilka- kjötið lækkuðu umtalsvert, einnig útflutningsskyldu á kjöti og horfurn- ar á þessu ári. Á fundinum kom m.a. fram að sala á dilkakjöti í fyrra var mjög svipuð og árið á undan en birgðastaða kindakjöts er nú betri en fyrir einu ári. Aðeins var eftir að flytja út liðlega 600 tonn af fram- leiðslu ársins 2003 í byrjun mars. Hins vegar virðist ótrúlega erfitt að fá uppgefið það verð sem sláturleyf- ishafar eru að fá fyrir það kjöt sem þeir flytja út. Að sjálfsögðu er lítið farið að ræða um hver útflutningsprósentan verð- ur á komandi hausti, enda veltur á miklu hvernig sala á dilkakjöti geng- ur yfir sumarmánuðina. Mögulegt er þó að hún lækki því sauðfé í landinu mun hafa fækkað um tuttugu þúsund miðað við ásetningsskýrslur frá haustinu 2003. Smári Borgarsson bóndi í Goðdöl- um var endurkjörinn formaður fé- lagsins á aðalfundinum og fulltrúar auk hans á aðalfund LS í sumar verða Agnar H. Gunnarsson, Mikla- bæ, og Jóhann Már Jóhannsson, Keflavík. Á fundinum voru veittar viður- kenningar fyrir úrvalshrúta í hér- aðinu sem komu til dóms haustið 2003. Besti veturgamli hrúturinn var frá Flatartungu í Akrahreppi. Keldudalsbúið ehf. í Hegranesi fékk viðurkenningu fyrir besta fullorðna hrútinn og hæstdæmdi lambhrútur- inn var frá Þrasastöðum í Fljótum. Verðum að ná sem mestu af af- urðaverðslækkuninni til baka Jóhannes Sigfússon, formaður Landssamtaka sauðfjárbænda. Morgunblaðið/Örn Þórarinsson Bændur á aðalfundi Skagfirskra sauðfjárbænda vildu hækka afurðaverð. Ólafsfjörður | Landupplýsingakerfi Ólafsfjarðar (LUKOL) var nýlega formlega opnað almenningi með aðgengi á netinu. Verkefnið hefur staðið yfir í rúm tvö ár með söfn- un gagna og tengingu við aðra gagnagrunna, s.s. þjóðskrá og fasteignamat. Fór opnunin fram á Brimnes hóteli í Ólafsfirði að við- stöddum starfsmönnum Ólafs- fjarðarbæjar, bæjarstjóra og bæj- arfulltrúum og starfsmönnum verkfræðistofunnar Hnits sem unnu verkið, auk fjölmargra ann- arra, s.s. starfsmanna nærliggj- andi sveitarfélaga. Tilgangurinn með þessu land- upplýsingakerfi er að safna saman öllum landfræðilegum upplýs- ingum bæjarfélagsins í einn gagnagrunn. Þarna er að finna upplýsingar um m.a. fráveitulagn- ir, vatnsveitulagnir, hitaveitulagn- ir, lóðamörk og heimilisföng. Verkfræðistofan Hnit tók loft- myndir af öllu bæjarfélaginu þeg- ar árið 2001, þegar bæjarstjórn tók ákvörðun um að fara út í þetta verk. Var flogið í 1.500 metra hæð yfir þéttbýli en í 4.000 metra hæð yfir dreifbýli; úr þessum gögnum var búinn til samfelldur loft- myndagrunnur af öllu bæjarfélag- inu, þar sem fram koma hús, vega- kerfi og göngustígar, önnur mannvirki eins og t.d. bryggjur og flugvellir, einnig vatnafar, strand- línur, ár, vötn og hæðarlínur. Sím- inn og RARIK hafa notað þessa grunna til að setja sín gögn inn, svo sem símalagnir og dreifikerfi rafmagns. Hnit hýsir öll gögn í sínum gagnagrunnum og þar á meðal vefkortasíðuna (www.merca- tor.hnit.is/website/olafsfjordur) sem jafnframt er aðgengileg frá heimasíðu Ólafsfjarðarbæjar. Landupplýsingakerfi Ólafs- fjarðar opnað almenningi Morgunblaðið/Helgi Jónsson Guðmundur Björnsson, framkvæmdastjóri Hnits, kynnir verkið þegar Landupplýsingakerfi Ólafsfjarðar var formlega opnað.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.