Morgunblaðið - 21.04.2004, Síða 35

Morgunblaðið - 21.04.2004, Síða 35
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 2004 35 Kæru ættingjar og vinir. Innilegar þakkir fyrir hlýhug og samúð við andlát og útför ODDS ÁGÚSTS BENEDIKTSSONAR frá Hvalsá í Steingrímsfirði. Sérstakar þakkir til starfsfólks (3. hæðar) á sjúkradeild Hrafnistu Hafnarfirði. Guðbjörg Gunnarsdóttir, Benedikt Ágústsson, Jóna Guðlaugsdóttir, Ingi Ágústsson, Svala Marelsdóttir, Óskar Ágústsson, Margrét Sigurðardóttir, Svavar Ágústsson, Sumarrós Jónsdóttir, Gísli Ágústsson, Hrafnhildur Björgvinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegustu þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og vináttuhug við andlát og útför ástkærs sonar míns og bróður okkar, mágs, frænda og vinar, BJÖRNS HALLGRÍMS GÍSLASONAR, Austurbergi 36, Reykjavík. Sérstakar þakkir til E.T. ehf., Einars og Tryggva og starfsmanna þeirra. Blessun Guðs veri með ykkur öllum. Sigrún Einarsdóttir, Sigurhanna Erna Gísladóttir, Einar Jóhann Gíslason, Dyljá Erna Eyjólfdóttir, Halldór Gíslason, Anne May Sæmundsdóttir, Gísli Gunnar Sveinbjörnsson, Guðrún Bergmann, Jóhann G. Gíslason, Guðlaug Ingibergsdóttir. vexti sínum, draumum og vænting- um. Þóru langaði til að verða hjúkr- unarkona en fékk ekki þann draum uppfylltan. Ég hlustaði upprifinn á sögu hennar og mig langaði mikið til að skrá hana, sögu óvenjulegrar konu sem fórnaði sér fyrir aðra. Þrátt fyrir úrtölur lækna stóð Þóra af sér veik- indin, braggaðist og átti áfram nokk- ur góð ár í Lönguhlíðinni og síðar Droplaugarstöðum. Þóra hélt mikið upp á son minn, Dag Sölva. Við heimsóttum hana reglulega síðustu árin og það voru gagnkvæmar ánægjustundir. Hún dekraði hann, líkt og mig forðum, á kökum og sætindum. Á aðfangadag komum við ávallt við hjá henni og óskuðum hvert öðru gleðilegra jóla. Við minnumst Þóru með söknuði og þakklæti fyrir allt sem hún gerði fyrir mig og mína fjölskyldu. Þóra var sannfærð um að það væri framhalds- líf. Njóttu þess. Far í friði elsku Þóra. Sigurjón Ólafsson. Vertu yfir og allt um kring, með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson.) Kunnuglegar kvöldbænir þínar leiddu mig í svefninn. Og ef ég vildi ekki vera ein beið mín alltaf pláss undir þykkri og mjúkri sænginni þinni. Þú sagðir mér frá kisunni sem sofnaði hjá þér en vaknaði aldrei aft- ur. Við skyldum aldrei halda of fast. Þú kenndir mér að búa til grauta fyrir börnin mín og sagðir mér að vera góð við manninn minn og að skamma ekki börnin. Og að ég skyldi ekki ganga um ber- fætt þegar herramenn tækju ofan hattinn. Þú varst einstök kona. Þín Helga Ólafsdóttir. Þóra Jónsdóttir valdi sér engan annan dag en upprisudag frelsarans til að kveðja þennan heim, södd líf- daga. Ég sat hjá Þóru er hún kvaddi okk- ur á páskadagskvöld og hélt til ann- ars heims, sem var hennar fullvissa, en Þóra var mikill nýaldarsinni á sín- um yngri árum. Fyrir mörgum árum lofaði ég því að skrifa nokkrar línur um hana, eftir hennar dag. Þar skyldi skrifað „og aldrei talaði hún illa um nokkurn mann“ og að sjálfsögðu stend ég við það. Þóra hafði mjög svo ákveðnar skoðanir á mönnum og málefnum og lá ekkert á þeim og gat verið býsna dómhörð, eitt má þó segja að þrátt fyrir hvatvíslegar skoðanir talaði hún ávallt af vinsemd og virðingu um þá sem látnir voru. Ég á ekki von á öðru en að hún fylgist enn með okkur frá nýjum heimkynnum og haldi áfram að hafa skoðanir á mönnum og málefnum. Í gegnum tíðina hef ég og mín fjöl- skylda heimsótt og haft mikil og góð samskipti við Þóru. Það var alltaf vin- sælt af krökkunum mínum að heim- sækja Þóru, enda alltaf til nammi í skál og sagt „ég held að barnið megi fá einn mola í viðbót“. Við fjölskyldan söknum þessarar skörulegu, ákveðnu en þó blíðu konu. Blessuð sé minning Þóru okkar. Stefán Jóhann Björnsson og fjölskylda. ✝ Jón Gauti Birgis-son fæddist í Reykjavík hinn 23. nóvember 1959. Hann lést á Líknar- deild Landspítalans í Kópavogi aðfaranótt þriðjudagsins 13. apríl sl. Foreldrar hans eru Svanhildur Erna Jónsdóttir, f. 16.7. 1935, og Birgir Sigmundur Boga- son, f. 16.11. 1935, d. 29.10. 1990. Svan- hildur og Birgir áttu auk Jóns Gauta fjög- ur börn saman en þau eru: Sigrún Elín, f. 3.10. 1957, sonur hennar er Birgir Sveinn, f. 6.4. 1991, Kristján Einar, f. 20.10. 1958, ur í Háskólabíói eða allt fram á árið 2002. Jón Gauti var virkur fé- lagi í Hestamannafélaginu Gusti í Kópavogi enda var hestamennsk- an hans aðal áhugamál. Hann var liðtækur í keppnum félagsins um margra ára skeið og vann til margra verðlauna. Hann greip öll tækifæri sem gáfust til þess að sinna þessu áhugamáli og ferðað- ist mikið um landið á hestum. Hann vann meðal annars sem leið- sögumaður fyrir Íshesta ehf. og Hestasport sf. í Skagafirði og fór margar ferðir frá Syðra-Lang- holti með erlenda ferðamenn um landið. Jón Gauti hafði gaman af öllu sem tengdist tölvum og lauk nám- skeiðum og las mikið til að auka við þekkingu sína á því sviði. Árið 2002 tók hann próf í þjónustu net- kerfa en starfaði ekki við það nema lítillega. Útför Jóns Gauta verður gerð frá Fossvogskapellu í dag og hefst athöfnin klukkan 15. sambýliskona hans er Angela Berthold, f. 24.4. 1963, Sigríður Ósk, f. 4.7. 1961, og Bogi Örn, f. 11.6. 1972, kvæntur Soth- eavy Soth, f. 26.8. 1974, og eiga þau tvö börn, Katrínu Láru, f. 8.2. 2003, og Jónatan Soth, f. 15.4. 2004. Birgir átti einn son fyrir hjónaband, Al- bert, f. 9.9. 1957. Jón Gauti var ógift- ur og barnlaus. Jón Gauti ólst upp í austurhluta Kópavogs og lauk þar gagnfræðaprófi. Hann lærði bif- vélavirkjun en vann þó lengst af sem sýningarmaður og tæknimað- Eftir harða baráttu við krabba- mein varð hann frændi minn, hann Nonni Gauti, að láta undan. Það er alltaf erfitt þegar fólk hverfur úr þessum heimi en skelfilegt þegar fólk fellur frá á besta aldri. Leiðir okkar Nonna Gauta lágu saman fyrstu átta til tíu árin hans. Hann var þriðja barn systur minnar og mágs og þar sem ég var á ákjósan- legum aldri sem barnapía á árunum 5́7–́66, þá 12–21 árs, gætti ég hans og þeirra oft. Mér er Nonni Gauti sérstaklega minnisstæður fyrir það hvað hann var alltaf glaður, jákvæður og róleg- ur. Annars var þetta með rólegheitin tvíbent, sérstaklega þegar hann var á aldrinum eins til fimm ára. Maður þurfti að gæta sérstaklega vel að því hvað hann hafði fyrir stafni þegar ekkert heyrðist í honum og ólíkt eldri bróður sínum gerðist það oft. Það má eiginlega segja að hann hafi sótt í að vera einn og dundaði sér þá við það sem hann hafði fyrir stafni drjúglanga stund. Eftir barnapíuárin lágu leiðir okk- ar ekki oft saman, m.a. vegna þess að ég bjó um árabil úti á landi eftir nám. Þó man ég eftir að Nonni Gauti kom til mín á Hellu, þegar ég bjó þar, til þess að fá klippingu áður en hann fór til Ástralíu til dvalar með þarlendri stúlku. Fyrir utan börnin mín held ég að Nonni sé sá eini sem kom til mín í þessum erindagjörðum, ef til vill vegna þess að ég gerði engar at- hugasemdir við skoðanir hans á því hvernig hárið ætti að vera. Með þessum orðum vil ég kveðja þennan ágæta frænda minn og lýsa yfir mikilli samúð með móður hans og systkinum vegna þessa ótíma- bæra fráfalls hans. Jón Gauti. Hinn 13. apríl síðastliðinn slökkn- aði á óstýrilátum loga. Jón Gauti bróðir minn, eða Nonni eins og við í fjölskyldunni kölluðum hann alltaf, kvaddi þetta líf aðeins 44 ára að aldri. Af miklu hugrekki og ótrúlegum styrk háði hann tiltölulega stutta en harða baráttu við krabbameinið og varð eins og svo margir að gefa eftir. Nú þegar hann er farinn og sorgin fær að komast að þá rifjast upp stutt ævi hans. Einhver sagði eitt sinn að við systkinin værum mjög ólík en Nonni væri ólíkastur. Þótt þetta hafi verið sagt í hálfgerðu gríni er sann- leikskorn í þessu. Við sögðum oft að Nonni væri ekki alveg eins og fólk er flest en ég held að í raun hafi hann verið eins og flestir vilja vera. Hann var frjáls. Hann lét ekki beint vel að stjórn og hann gat setið og hlustað á góð ráð velviljaðra en stóð síðan upp og fór sínar leiðir. Oft fannst mér eins og hann væri að fylgja einhverri hugmynd sem hann vissi ekki einu sinni sjálfur að væri til staðar. Hann vissi bara að hann ætlaði að gera hlutina eins og hann vildi gera þá. Hann fór því oft aðrar leiðir en flestir gerðu og þótt hann hafi stundum komist að því að hann hefði betur farið að góðum ráðum þá gerði það ekkert til því oft er lengri leiðin skemmtilegri en sú styttri. Sem barn var Nonni mjög rólegur og dundaði sér gjarnan við að „laga“ ýmsa hluti. Það þurfti ekki bilun til og hann gat setið tímunum saman með nefið ofan í einhverju tæki sem hann hafði áhuga á. Á endanum tókst honum alltaf að ná tökum á „vanda- málinu“, fyrr gafst hann ekki upp. Ef eitthvað síðan bilaði í alvöru þá redd- aði hann því bara. Sumar aðferðir hans voru dálítið óhefðbundnar en þær dugðu. Þetta kalla ég hæfileika, þ.e. að standa ekki bara, fórna hönd- um og segjast ekki geta hlutinn. Hann reyndi bara aftur og aftur og aftur, ef með þurfti, þar til hann „gat“. Og þessi hæfileiki fylgdi hon- um alla ævi. Ég man eftir því að þeg- ar hann var unglingur keypti hann sér ónýtt mótorhjól og gerði það upp án þess að hafa lært nokkuð til þess. Þegar hann svo fékk prófið þá átti hann hjólið uppgert. Og það virkaði. Enn í dag finnst mér þetta hafa verið ótrúlegur sigur fyrir strákling. Hann varð síðan bifvélavirki og fórst það ágætlega úr hendi þótt hann hafi ekki starfað lengi við það. Hann fékk mjög fljótt áhuga á tölvum og eins og fyrr þá fikraði hann sig áfram þar til hann kunni nóg til að „bjarga“ mál- unum. Síðan fór hann við og við á námskeið til þess að læra meira og undir það síðasta, með próf í hendi, hafði hann hug á að vinna í þeim geira alfarið. Honum entist þó ekki ævin til þess að gera alvöru úr þeim draumi sínum. Þótt Nonna hafi oft þótt gott að vera einn og dunda sér við áhuga- málin sín, var hann vinamargur og alveg frá því hann var lítill strákur líkaði fólki almennt vel við hann. Hann var glaðlegur og alltaf var stutt í hláturinn. Hann hafði mikla kímnigáfu og hafði gaman af einföld- um uppákomum í lífi fólks. Hann var dálítið stríðinn en fannst þó aðallega gaman að stríða þeim sem hann vissi að gætu tekið því vel. Ég veit að hann naut alltaf samverustunda sinna með vinnufélögum og vinum. Vinir hans hafa misst góðan félaga og hans verður saknað víða. Hann vann í næstum tuttugu ár sem sýningamaður og tæknimaður í Háskólabíói og eignaðist hann þar marga góða félaga en einn stærsti vina- og kunningjahópur Nonna var hestamenn. Hann starfaði á þeim vettvangi í sumarfríum sínum en hestamennskan var einnig hans helsta áhugamál. Það sem honum þótti skemmtilegast var að fara á hestum í góðra vina hópi út í náttúr- una. Hann fór margar slíkar ferðir um landið og skilst mér að í þessum ferðum hafi mjög skrautlegar og skemmtilegar minningar orðið til. Sem lítill áhugamaður um hesta minnist ég þó aðallega þess að þegar Nonni bjó hjá mér og syni mínum um stund þá fór hann ferð eftir ferð, kom heim drulluskítugur, brosandi út að eyrum og skildi ekkert í því að ég væri ekki hamingjusöm að fá skítinn inn á heimilið, aftur og aftur. Hann hristi bara hausinn og hefur líklegast vonast til þess að ég næði því ein- hvern daginn út á hvað þetta gekk. Síðustu vikurnar í lífi Nonna voru mjög erfiðar. Þær hefðu þó eflaust orðið erfiðari ef hann hefði ekki feng- ið að dveljast á líknardeild Landspít- alans. Ég veit að ég tala fyrir hönd allra, bæði fjölskyldu og vina, þegar ég segi að sú aðhlynning sem hann bróðir minn fékk undir lokin var ómetanleg. Hún einkenndist af virð- ingu og auðmýkt, virðingu fyrir lífi Jóns Gauta og auðmýkt fyrir því sem koma varð. Stuttu áður en Nonni dó sagði hann við mig að vera ekki að hafa alltaf þessar áhyggjur. Hann þurfti ekkert að tala við neinn fagmann um það sem framundan væri. Hann ætl- aði bara að hafa opinn huga og sjá hvað gerðist. Ég hefði mátt segja mér þetta sjálf því líklega hefur hann bara viljað mæta dauða sínum eins og hann mætti öllu í lífinu, með opn- um huga og sjá svo bara hvað gerð- ist. Hann var hugrakkur hann Nonni og nú þegar hann ríður inn í sólsetrið þá kveð ég hann og þakka honum all- ar samverustundirnar þótt þær hefðu mátt vera fleiri. Hvíl í friði, Nonni minn. Þín systir Sigrún Elín. Á föstudaginn langa kvöddust vin- irnir Bjarni og Nonni. Þeir voru svo að segja samferða inn í þennan heim veturinn 1959 þegar þeir fæddust inn í fjölskyldur sem höfðu ýmislegt saman að sælda. Síðustu vikur tóku þeir sér tíma í að rifja upp gamlar minningar, þær elstu voru frá æv- intýralegum sumarferðum fjöl- skyldnanna að Krossum þegar þeir voru litlir. Þar fóru feður þeirra á selveiðar, spiluðu bridge, óku veg- leysur og veiddu í soðið. Ekkert jafn- aðist þó á við alvöru bílaleik pjakk- anna á bílum feðra sinna á vitleysingabrautinni úti við Björnsá. Þeir voru samferða mestalla skóla- gönguna, unglingsárin liðu hratt og voru varla liðin þegar við systurnar fléttuðumst inn í vinahóp Nonna. Ýmislegt var brallað þessi ár. Þeir vinir höfðu meiri áhuga á billiard, bíóferðum og bílaviðgerðum en ég, þó var mér alltaf velkomið að vera með. Þeim tókst að fá mig til að taka þátt í bílamálun með sér, handmál- uðum við þá appelsínugula bjöllu og eigandinn borgaði meira að segja fyrir verkið. Nonni var geðgóður, sérvitur og gat brosað eða hlegið að því sem gat reitt aðra til reiði. Eitt sinn þegar Nonni kom með plötur til að spila rugluðust plötur og umslög dálítið hressilega, en það var ekkert tiltöku- mál og þannig liggja þær í geymslum ennþá. Fyrstu jól dóttur okkar kom Nonni við á aðfangadag og læddi pakka undir jólatréð, hann hafði þennan hátt á þar til hún óx upp úr dótabúðunum. Fyrir henni var Nonni playmokall og bíókall því hún var ein þeirra sem fengu að vera í „glerinu“ í bíóinu. Synir okkar þekktu Nonna sem tölvukall og höfðu óbilandi trú á honum í þeim efnum. Oft leið langur tími milli þess sem Nonni heimsótti okkur enda hafði hann annan takt í sólarhringn- um en flestir aðrir þegar hann vann í bíóinu. Þeir Nonni og Bjarni voru vinnufélagar á tímabili en umfram allt góðir félagar og vinir. Fyrir hönd fjölskyldunnar – sem þakkar sam- fylgdina. Ágústa. JÓN GAUTI BIRGISSON Afmælis- og minningargreinum má skila í tölvupósti eða á disklingi (netfangið er minning@mbl.is, svar er sent sjálfkrafa um leið og grein hefur borist). Ef greinin er á disklingi þarf útprentun að fylgja. Nauð- synlegt er að símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnusími og heimasími) fylgi með. Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna frests. Nán- ari upplýsingar eru á mbl.is. Um hvern lát- inn einstakling birtist formáli og ein aðal- grein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en aðrar greinar skulu ekki vera lengri en 300 orð, u.þ.b. 1.500 slög (með bilum) eða um 50 línur í blaðinu (17 dálksentimetrar). Tilvitn- anir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Einnig er hægt að senda ör- stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5–15 lín- ur, og votta virðingu án þess að það sé gert með langri grein. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stutt- nefni undir greinunum.  Fleiri minningargreinar um Þóru Jónsdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Þær gleymast oft þakkirnar og á Þóra Jónsdóttir margar slíkar ósagðar frá mér. Þakkir fyrir allt það sem hún veitti mér á liðnum áratugum. Þóra gaf en tók ekki og á henni sannaðist að peningalegur auður er ekki forsenda ríkulegra gjafa. Haf þú þökk fyrir allt það góða sem þú gerðir mér. Ólafur. HINSTA KVEÐJA

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.