Morgunblaðið - 21.04.2004, Qupperneq 39
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 2004 39
TILKYNNINGAR
Snjóflóðavarnir á Trölla-
giljasvæði, Norðfirði
í Fjarðabyggð
Mat á umhverfisáhrifum — úrskurður
Skipulagsstofnunar
Skipulagsstofnun hefur úrskurðað samkvæmt
lögum nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrif-
um. Fallist er á fyrirhugaðar snjóflóðavarnir
á Tröllagiljasvæði á Norðfirði í Fjarðabyggð.
Úrskurðurinn í heild liggur frammi hjá Skipu-
lagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík.
Úrskurðinn er einnig að finna á heimasíðu
Skipulagsstofnunar: www.skipulag.is.
Úrskurð Skipulagsstofnunar má kæra til
umhverfisráðherra og er kærufrestur til
26. maí 2004.
Skipulagsstofnun.
Skútustaðahreppur,
Mývatnssveit
Auglýsing
um breytingu á aðalskipulagi
Skútustaðahrepps 1996-2015.
Sveitarstjórn Skútustaðahrepps auglýsir hér
með tillögu að breytingu á aðalskipulagi Skútu-
staðahrepps 1996-2015 samkvæmt 1. mgr. 21.
gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Breytingartillagan felst í afmörkun iðnaðar-
svæða í Kröflu þar sem nýting jarðhita er nú
stunduð og iðnaðarsvæða þar sem jarðhitanýt-
ing er hugsanleg í nánustu framtíð.
Breytingartillagan verður til sýnis á skrifstofu
Skútustaðahrepps, Hlíðavegi 6, 660 Mývatn,
frá og með miðvikudeginum 21. apríl 2004 til
miðvikudags 19. maí 2004. Þeim, sem telja sig
eiga hagsmuna að gæta, er hér með gefinn
kostur á að gera athugasemdir við breytingar-
tillöguna. Frestur til þess að skila inn athuga-
semdum er til miðvikudagsins 2. júní 2004.
Skila skal athugasemdum á skrifstofu Skútu-
staðahrepps, Hlíðavegi 6, 660 Mývatn.
Hver sá, sem ekki gerir athugasemdir við breyt-
ingartillöguna fyrir tilskilinn frest, telst
samþykkur henni.
Mývatnssveit, 14. apríl 2004.
Sveitarstjóri Skútustaðahrepps.
Auglýsing
um skipulag í Kópavogi
Bryggjuhverfi í Kópavogi. Deiliskipulag.
Í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingar-
laga nr. 73/1997 með síðari breytingum, er hér
með auglýst til kynningar tillaga að deiliskipu-
lagi bryggjuhverfis í utanverðum Fossvogi.
Deiliskipulagssvæðið afmarkast í austur af
opnu svæði undir bæjarvernd, af Vesturvör
og norðurmörkum lóðanna nr. 12, 14, 16 og
20 í suður, af lóðamörkum Hafnarbrautar 30
í vestur. Til norðurs afmarkast svæðið af land-
fyllingu sem mun ná 100-150 m út í Fossvog
miðað við núverandi fjöruborð. Í tillögunni er
gert ráð fyrir 460 íbúðum í þriggja til fimm
hæða húsum. Á deiliskipulagssvæðinu er tekið
frá svæði fyrir leiksskóla. Þá er í tillögunni gert
ráð fyrir smábátahöfn og möguleika á klúbb-
og þjónustustarfsemi við hana. Á jarðhæðum
fjögurra húsa við smábátahöfnina er gert ráð
fyrir atvinnustarfsemi. Uppdrættir í mkv.
1:1000 dags. 17. febrúar 2004 ásamt greinar-
gerð, skipulagsskilmálum og fylgiskjölum.
Nánar vísast til kynningargagna.
Lyngheiði 21. Deiliskipulag.
Í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingar-
laga nr. 73/1997 með síðari breytingum, er hér
með auglýst til kynningar tillaga að deiliskipu-
lagi við Lyngheiði 21. Í breytingunni felst heim-
ild til að starfrækja hárgreiðslustofu í hluta bíl-
skúrs á lóðinni. Uppdráttur í mkv. 1:500 dags.
29. mars 2004. Nánar vísast til kynningar-
gagna.
Tillögurnar verða til sýnis á Bæjarskipulagi
Kópavogs, Fannborg 6, 2. hæð, frá kl. 8:00 til
16:00 mánudaga til fimmtudaga og á föstudög-
um frá kl. 8:00 til 14:00 frá 21. apríl til 21. maí
2004. Athugasemdir eða ábendingar skulu hafa
borist skriflega Bæjarskipulagi eigi síðar en
kl. 15:00 mánudaginn 7. júní 2004.
Þeir, sem ekki gera athugasemdir innan tilskil-
ins frests, teljast samþykkir tillögunni.
Skipulagsstjóri Kópavogs.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
ATVINNA
mbl.is
FJÖLSKYLDUHJÁLP Íslands
stendur fyrir söfnuninni „Hlúum að
íslenskum börnum“ sem ætlað er að
kosta börn frá efnalitlum heimilum
til að dvelja í vikutíma í sumarbúðum
eða taka þátt í leikjanámskeiðum að
eigin vali.
Söfninun hófst 15. apríl og stendur
til 3. maí. 15.000 hringingar þarf í
síma 9015050 til styðja 300 börn til
dvalar í sumarbúðum eða taka þátt í
leikjanámskeiðum. 20 apríl sl. höfðu
239 styrkt verkefnið, segir í frétta-
tilkynningu.
Safna fyrir
efnalítil heimili
FEMÍNISTAFÉLAG Íslands hefur
sent frá sér ályktun þar sem það
harmar „þá aðför sem dómsmálaráð-
herra hefur gert að jafnréttisstarfi í
landinu með viðbrögðum sínum við
áliti kærunefndar jafnréttismála
vegna ráðningar hæstaréttardóm-
ara,“ eins og segir þar.
Í ályktuninni segir m.a.: „Jafnrétt-
islög voru sett til að tryggja að þegn-
ar landsins hefðu úrræði þegar brot-
ið væri á þeim á grundvelli kynferðis
og til að vinna bug á kerfisbundinni
mismunun.“
Þá segir: „Með viðbrögðum sínum
við áliti kærunefndar hefur dóms-
málaráðherra gefið þau skilaboð að
ekki sé mikilvægt að fylgja landslög-
um, nánar tiltekið jafnréttislögum.
Það er áfall bæði fyrir lýðræði, rétt-
arkerfi og jafnréttismál í landinu.“
Í tilkynningunni segir einnig að
samkvæmt sáttmálum Sameinuðu
Þjóðanna og Evrópusambandsins sé
aðgerðarleysi ekki kynhlutlaust, það
vinni beinlínis gegn jafnrétti kynj-
anna. „Víðtækar rannsóknir á sviði
kynjafræða og jafnréttismála hafa
sýnt að jafnrétti kynjanna mun ekki
nást með aðgerðaleysi.“
Femínistafélagið skorar á ráða-
menn að sýna yfirlýstan vilja sinn
um framgang jafnréttis í verki en til
að svo megi verða sé nauðsynlegt að
forystumenn í íslenskum stjórnmál-
um afli sér þekkingar á sviði jafn-
réttismála.
Harma við-
brögð dóms-
málaráðherra
EFNT verður til hagyrðingakvölds í
Borg í Grímsnesi í kvöld, miðviku-
dag, og hefst það klukkan 20.30.
Hagyrðingarnir sem fram koma
eru Ómar Ragnarsson, Magnús
Halldórsson frá Hvolsvelli, Unnur
Halldórsdóttir frá Borgarnesi og
Birgir Hartmannson frá Árborg.
Árni Johnsen mun stjórna samkom-
unni.
Hagyrðingakvöld
í Grímsnesi
LEIKLISTARFÉLAG Seltjarnar-
ness frumsýnir leikritið Saumastof-
una eftir Kjartan Ragnarsson í
kvöld kl. 20 í Félagsheimili Seltjarn-
arness. Leikstjóri er Bjarni Ingv-
arsson.
Á þriðja tug áhugamanna um
leiklist taka þátt í uppsetningunni
og hafa m.a. bæjarstjórinn, sókn-
arpresturinn og heimilislæknirinn
lagt leikhópnum lið. Tónlistin er í
höndum Hermanns Arasonar og
Sindra Heimissonar.
Næstu sýningar eru á föstudag
og laugardag kl. 20 og sunnudaginn
kl. 15.
Saumastofan á
Seltjarnarnesi
Námskeið byggt á bókinni Hver
tók ostinn minn? Gísli Blöndal
markaðs– og þjónusturáðgjafi, hefur
boðið námskeið byggt á bókinni
Hver tók ostinn minn? Markmiðið er
að opna vitund – skapa jákvætt við-
horf til breytinga.
Hver tók ostinn minn? er dæmisaga
um félagana Lása og Loka og mýsn-
ar Þef og Þeyting, sem lifa í vellyst-
ingum við gnægð osta í völundarhúsi
í Ostalandi. Lífið lék við félagana
uns einn góðan veðurdag að osturinn
hvarf eins og dögg fyrir sólu. Við
fylgjumst með viðbrögðum þeirra í
síbreytilegri veröld. Sálarangist
Loka og Lása og ákafri leit músanna
að nýjum osti.
Upplýsingar um námskeiðið er á
www.gisliblondal.net.
Á NÆSTUNNI
LIONSKLÚBBARNIR Freyr
Reykjavík og Lionsklúbbur Sel-
tjarnarness færðu sl. mánudag
Auði Guðjónsdóttur 650.000 kr.
styrk upp í gerð kvikmyndar um
aðgerðir gegn mænuskaða. Auður
hefur barist fyrir því að koma upp
á einum stað öllum upplýsingum
sem hægt er að fá um skaða á
hrygg.
Á myndinni eru: Gunnar Bjarna-
son, formaður Lionsklúbbsins
Freys, Magnús Tryggvason, gjald-
keri Freys, Sverrir Sigfússon for-
maður fjáröflunarnefndar Freys,
Gunnar Kr. Gunnarsson í fjáröfl-
unarnefnd Freys, Sverrir Helga-
son, ritari Freys, Kristján Sigfús-
son, formaður Lionsklúbbs Sel-
tjarnarness, Guðjón Jónsson, ritari
Lionsklúbbs Seltjarnarness, og Örn
Johnson, gjaldkeri Lionsklúbbs Sel-
tjarnarness, ásamt Auði Guðjóns-
dóttur.
Morgunblaðið/Jim Smart
Veittu styrk til kvikmyndagerðar