Morgunblaðið - 21.04.2004, Page 43

Morgunblaðið - 21.04.2004, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 2004 43 MESSUR Á MORGUN Það kostar aðeins 830 kr. að senda skeyti og ekki nema 730 kr. ef þú pantar það á netinu. Ef þú sendir fimm skeyti eða fleiri borgar þú aðeins 465 kr. fyrir hvert. 1446 - siminn.is Pantaðu heillaóskaskeyti á fermingardaginn í síma 1446 eða á siminn.is hamingjuóskir Sendu N O N N I O G M A N N I I Y D D A / si a .i s / N M 1 1 6 5 8 Bústaðakirkja. Starf aldraðra kl. 13– 16.30. Spilað, föndrað, helgistund og gáta. Þeir sem óska eftir að láta sækja sig fyrir samverustundirnar láti kirkjuverði vita í síma 553 8500. Dómkirkjan. Hádegisbænir kl. 12.10. Léttur málsverður á eftir. Prestarnir taka við fyrirbænum í síma 520 9700. Grensáskirkja. Samverustund aldraðra kl. 14. Biblíulestur, bænagjörð, kaffi og spjall. Hallgrímskirkja. Morgunmessa kl. 8. Hug- leiðing, altarisganga, léttur morgunverður. Opið hús fyrir foreldra ungra barna kl. 10– 12. Samverustund fyrir 6 ára kl. 14.30. Samverustund fyrir 7–9 ára kl. 15.30. Samverustund fyrir 10–12 ára kl. 17. Tólf sporin – andlegt ferðalag, sporafundur kl. 20. Háteigskirkja. Bænaguðsþjónusta kl. 11. Súpa og brauð borið fram í Setrinu kl. 12. Brids í Setrinu kl. 13–16. Kvöldbænir kl. 18. Langholtskirkja. Kl. 12.10 Kyrrðarstund og bænagjörð með orgelleik og sálma- söng. Kl. 12.30 Súpa og brauð (kr. 300). Kl. 13–16 Opið hús eldri borgara. Söngur, tekið í spil, upplestur, föndur, spjall, kaffi- sopi o.fl. Allir eldri borgarar velkomnir. Þeir sem ekki komast á eigin vegum geta hringt í kirkjuna og óskað eftir því að verða sóttir. Síminn er 520 1300. Laugarneskirkja. Mömmumorgunn kl. 10 undir stjórn Aðalbjargar Helgadóttur. Nýjar mömmur velkomnar með börnin sín. Gönguhópurinn Sólarmegin leggur af stað frá kirkjudyrum kl. 10.30 alla miðviku- dagsmorgna. Kl. 14.10 kirkjuprakkarar, starf fyrir 1.–4. bekk. Umsjón Aðalheiður Helgadóttir, hjónin Kristjana H. Þorgeirs- dóttir og Geir Brynjólfsson auk sr. Bjarna. TTT-starf kl. 16.15. (5.–7. bekkur). Um- sjón Þorkell Sigurbjörnsson. Neskirkja. Foreldramorgunn kl. 10–12. Umsjón Elínborg Lárusdóttir. Fyrirbæna- messa kl. 12.15. Prestur sr. Örn Bárður Jónsson. Í kjölfar messunnar verður borin fram einföld máltíð gegn vægu gjaldi. 7 ára starf kl. 14.30. Sögur, söngur, leikir og föndur. Seltjarnarneskirkja. Kyrrðarstund í hádeg- inu kl. 12. Altarisganga. Léttur hádegis- verður eftir stundina. Allir velkomnir. Fríkirkjan í Reykjavík. Í hádegi er fólki boðið til bænastunda í kapellu safnaðar- ins á annarri hæð í safnaðarheimilinu. Sérstök áhersla er lögð á bæn og íhugun, en einnig flutt tónlist og textar til íhugunar. Koma má bænarefnum á framfæri áður en bænastund hefst. Árbæjarkirkja. Kl. 12 kyrrðarstund í há- deginu. Léttur málsverður í safnaðarheim- ilinu að stundinni lokinni. Kl. 13–16 opið hús í safnaðarheimilinu. Þorvaldur Hall- dórsson kemur í heimsókn fyrsta miðviku- dag hvers mánaðar. Breiðholtskirkja. Kyrrðarstund í dag kl. 12. Tónlist, altarisganga, fyrirbænir. Léttur málsverður í safnaðarheimilinu eftir stundina. Grafarvogskirkja. Helgistund í hádegi kl. 12. Fyrirbænir og altarisganga. Boðið er upp á léttan hádegisverð á vægu verði að lokinni stundinni. Prestar safnaðarins þjóna fyrir altari, orgelleikari Hörður Braga- son. Allir velkomnir. KFUM fyrir drengi 9– 12 ára í Grafarvogskirkju kl. 17.30– 18.30. Kirkjukrakkar í Rimaskóla kl. 17.30–18.30 fyrir 7–9 ára. TTT (tíu til tólf ára) í Rimaskóla kl. 18.30–19.30. Æsku- lýðsfélag í Engjaskóla kl. 20–22 fyrir 8.–9. bekk. Hjallakirkja. Fjölskyldumorgnar kl. 10. TTT (10–12 ára) starf kl. 17. Opinn sporafund- ur Tólf sporanna kl. 20. Seljakirkja. Kyrrðar- og bænastund í dag kl. 18. Beðið fyrir sjúkum. Allir hjartanlega velkomnir. Tekið á móti fyrirbænaefnum í kirkjunni í síma 567 0110. SELA eldri deild kl. 20–22. Vídalínskirkja. Foreldramorgnar kl. 10–12 með Nönnu Guðrúnu í Vídalínskirkju. Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir ung börn og foreldra þeirra í Vonarhöfn, safn- aðarheimili Strandbergs, kl. 10–12. Kyrrð- arstund í kirkjunni kl. 12, íhugun, orgel- leikur, altarisganga, fyrirbænir. Léttur hádegisverður kl. 12.30 í Ljósbroti Strand- bergs. Víðistaðakirkja. Kyrrðar- og fyrirbæna- stund í dag kl. 12. Góður kostur fyrir þá sem vilja taka frá kyrrláta og helga stund í erli dagsins til að öðlast ró í huga og frið í hjarta. Hægt er að koma fyrirbænaefnum til sóknarprests eða kirkjuvarðar. Boðið er upp á súpu og brauð í safnaðarheimilinu að kyrrðarstund lokinni. Opið hús fyrir eldri borgara í dag kl. 13. Verið velkomin í viku- lega samveru í safnaðarheimili kirkjunnar í spil, spjall, góðar kaffiveitingar og fleira. Bessastaðasókn. Miðvikudagur er dagur kirkjunnar í Haukshúsi. Foreldramorgnar eru frá kl. 10–12. Þar koma saman for- eldrar ungra barna á Álftanesi með börnin og njóta þess að hittast og kynnast öðrum foreldrum sem eru að fást við það sama, uppeldi og umönnun ungra barna. Opið hús eldri borgara er síðan frá kl. 13.00– 16.00. Dagskráin verður fjölbreytt en um- fram allt eru þetta notalegar samveru- stundir í hlýlegu umhverfi. Þorlákskirkja. Barna- og foreldramorgnar í dag kl. 10–12. Lágafellskirkja. AA-fundur kl. 20.30 í Lágafellskirkju. Unnið í 12 sporunum. Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl. 11 helgistund á Hraunbúðum. 17.30 TTT, yngri og eldri, í Landakirkju. Sr. Fjölnir Ás- björnsson og leiðtogarnir. Kl. 20 opið hús í KFUM&K-heimilinu hjá Æskulýðsfélagi Landakirkju og KFUM&K. Esther Bergs- dóttir æskulýðsfulltrúi, sr. Fjölnir Ásbjörns- son og leiðtogarnir. Sauðárkrókskirkja. Kyrrðarstund kl. 21. Kletturinn, kristið samfélag. Kl. 20.30 Bænahópar í heimahúsum. Upplýsingar í síma 565 3987. Fríkirkjan Kefas. Samverustund unga fólksins kl. 20.30. Samvera, lofgjörð, fræðsla og lestur orðsins. Nánari upplýs- ingar á www.kefas.is Kristniboðssalurinn, Háaleitisbraut 58. Samkoma í kvöld kl. 20. Hjartans bæn. Sálmur 25. Ræðumaður Guðlaugur Gunn- arsson, vitnisburðarsamkoma. Kaffiveit- ingar eftir samkomuna. Allir velkomnir. Akureyrarkirkja. Mömmumorgunn kl. 10– 12. Opið hús, kaffi og spjall. Safi fyrir börnin. Biblíulestur í Akureyrarkirkju kl. 17.15. Persónur píslarsögunnar: Pétur postuli – Jóh. 21:15–25. Umsjón sr. Guð- mundur Guðmundsson. Glerárkirkja. Hádegissamvera kl. 12. Org- eltónar, sakramenti, fyrirbænir, léttar veit- ingar á vægu verði í safnaðarsal. Hjálpræðisherinn á Akureyri. Kl. 20 hjálp- arflokkur, allar konur velkomnar. Hvítasunnukirkjan á Akureyri. Kl. 17 krakkastarf fyrir 3–9 ára. Kl. 18 starf fyrir 10–12 ára krakka (Skjaldberar). Safnaðarstarf Morgunblaðið/ÁsdísBústaðakirkja Sumri fagnað í Bústaðahverfi ÁRLEG sumarhátíð í Betra lífs í Bústaðahverfi verður haldin á sum- ardaginn fyrsta. Kl. 12.30 verður safnast saman við Grímsbæ þar sem boðið verður upp á grillaðar pylsur. Kl. 13.15 verður gengið í skrúð- göngu í Bústaðakirkju, þar sem verður samverstund. Ræðumaður verður æringinn Sveppi, sem nú sýnir á sér hina hliðina. Kór Kven- félagsins Glæðurnar syngur undir stjórn Sigurbjargar Hólmgríms- dóttur, félagar úr hljómsveitinni Vipera spila og syngja og Lúðra- sveit Breiðagerðisskóla leikur und- ir stjórn Odds Björnssonar. Kl. 14.00 verður gengið í skrúð- göngu niður í Vík þar sem skemmtileg dagskrá er í boði fram eftir degi. Þar verður íþróttamaður Víkings krýndur, Idol-söngvarar úr skólum í hverfinu koma fram, Lína langsokkur kemur í heimsókn, skátar verða með leiki og þrautir á útisvæði og boðið verður upp á sumarkaffi í Víkinni og margt fleira er í boði. Íbúar í Bústaðahverfi hafa sótt þessar samverur vel undanfarin ár og tekið virkan þátt í að fagna sumri. Það eru samtökin Betra líf í Bú- staðahverfi sem annast um fram- kvæmdina sem er samstarfsverk- efni Bústaðakirkju, Víkings, Skátafélagsins Garðbúa, Bústaða ÍTR, Nemendafélags Réttó, for- eldrafélaga Breiðagerðis- og Foss- vogsskóla og Hverfaráðs. Fyrsta guðsþjónustan í Grafarholti NÚ stendur mikið til og allir íbúar Grafarholts kallaðir til leiks. Í til- efni af sumardeginum fyrsta hefur verið ákveðið að hafa fyrstu hverf- isskemmtun Grafarholts þann dag- inn. Búið er að leggja inn pöntun um gott veður þannig að skólabörn og fullorðnir geti safnast saman við Ingunnarskóla og leggja þaðan af stað kl.13.00 í skrúðgöngu með lúðrablæstri. Áfangastaður er Þórðarsveigur 3. Þar mun hefjast á slaginu 14.00 helgistund í þjón- ustusal. Sóknarpresturinn Þór Hauksson og sr. Sigrún Óskarsdóttir þjóna þar fyrir altari. Organisti verður Gunnar Gunnarsson. Sungnir verða sálmar og sumarlög. Að lokinni helgistundinni mun sóknarnefndin bjóða upp á kaffi og ávaxtasafa og meðlæti. Er það einlæg von sókn- arnefndarinnar, sem stendur að þessari hátíð, að sem flestir íbúar Grafarholts sýni sig og sjái aðra. Söngstund í Byggða- safninu í Skógum AÐ kvöldi sumardagsins fyrsta nk., 22. apríl, kl. 20.30, verður efnt til söngstundar í Byggðasafninu í Skógum. Athöfnin hefst með stuttri helgi- stund í safnkirkjunni, sem séra Haraldur M. Kristjánsson, prófast- ur Skaftfellinga, annast. Eftir það verður komið saman í gamla barna- skólahúsinu frá Litla-Hvammi, þar sem gömul ættjarðar- og sumarlög verða leikin og sungin. Kristín Björnsdóttir, organisti í Mýrdal, annast undirleik og stjórn- ar almennum söng viðstaddra, með kór Skeiðflatarkirkju í Mýrdal, í broddi fylkingar. Mikilvægt er að allir sem unna söng í sumarbyrjun, láti sig nú ekki vanta á þetta ár- vissa söngkvöld í Skógum. Eftir að raddböndin hafa verið þanin, verður boðið upp á kaffi og pönnukökur í Samgöngusafninu, í boði safnsins og kórs Skeiðflat- arkirkju. Fjölmennum og syngjum saman. Aðstandendur. FRÉTTIR NÝLEGA urðu breytingar hjá Ró- berti bangsa þegar nýir eigendur tóku við rekstri verslunarinnar og var hún einnig flutt að Hlíðarsmára 12 í Kópavogi (í sama hús og Nings). Nýir eigendur eru Halldóra G. Víg- lundsdóttir og Margrét Ormsdóttir. Í versluninni er seldur fatnaður fyrir börn frá Diesel, Cars jeans, Lego, Ticket to heaven, Rutzou og Bo Dean. Einnig er úrval af sængur- gjöfum og ýmiss konar fylgihlutum. Þá er einnig í boði fatnaður á ung- lingana og mömmurnar. Í tilefni sumardagsins fyrsta fagn- ar Róbert bangsi sumri og verður opið kl. 12–17. Ýmis sumardags- tilboð verða á fatnaði sem gilda þennan eina dag. Boðið verður upp á svala og pylsur auk þess sem Jóhann Helgi & co ehf. munu kynnar rólur frá Wicksteed í garðinn og/eða við sumarbústaðinn, segir í fréttatil- kynningu. Sumarhátíð Róberts bangsa Stundin okkar eldri en Nýjasta tækni og vísindi Ranghermt var í Morgunblaðinu sl. mánudag að þátturinn Nýjasta tækni og vísindi væri elsti þátturinn í Sjón- varpinu. Rétt mun vera að Stundin okkar sé elsti þátturinn en sá þáttur hóf göngu sína á jólum 1966. LEIÐRÉTT Sjögrens hópurinn verður með fræðslufund í kvöld kl. 19.30 í hús- næði Gigtarfélagsins, Ármúla 5, annarri hæð. Björn Guðbjörnsson gigtarsérfræðingur kynnir rann- sókn á orsökum heilkennis Sjögrens, sem nýlega er hafin á Rannsókn- arstofu í gigtarsjúkdómum. Í DAG Kvöldganga Grasagarðsins og Garðyrkjufélags Íslands verður á morgun, sumardaginn fyrsta 22. apr- íl, kl. 20 í Grasagarði Reykjavíkur í Laugardal. Fyrstu vorblómin verða skoðuð í fylgd Dóru Jakobsdóttur grasafræðings. Kvöldgangan hefst í hvíta lystihúsinu sem stendur sunnan við garðskálann og er aðgangur ókeypis. Nánari upplýsingar á www.gardurinn.is. Opið hús verður í Viðskiptahá- skólanum á Bifröst sumardaginn fyrsta, fimmtudaginn 22. apríl, kl. 13– 17. Nám, líf og starf í háskólaþorpinu verður kynnt. Allar deildir Við- skiptaháskólans verða með kynningu og bjóða umsækjendum og öðrum upp á viðtöl við deildarstjóra, náms- ráðgjafa og kennara. Kynnt verður nám, námsefni, verkefnavinna í tengslum við atvinnulífið, möguleikar til framhaldsnáms og störf að námi loknu. Nemendur kynna vinnslu verkefna, nám og störf á Bifröst. Fulltrúar sveitarfélagsins kynna Borgarbyggð sem búsetukost og nemendur kynna félagslíf skólans. Á MORGUN ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.