Morgunblaðið - 21.04.2004, Síða 46
ÍÞRÓTTIR
46 MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ÚRSLIT
ÍSLENSKA landsliðið í knattspyrnu,
skipað stúlkum 19 ára og yngri, fagnaði
sætum sigri á Ungverjum í fyrsta leik
sínum í milliriðli Evrópumóts 19 ára
landsliða í Póllandi í gær, 4:0. Nína Ósk
Kristinsdóttir, Val, skoraði tvö af mörk-
um liðsins.
Margrét Lára Viðarsdóttir, ÍBV, skor-
aði fyrsta mark leiksins úr vítaspyrnu í
upphafi leiks – hún hefur skorað 11 mörk
í 12 leikjum fyrir 19 ára liðið. Síðan
bættu þær Dóra Stefánsdóttir, Val, og
Nína Ósk við tveimur mörkum við fyrir
leikhlé. Nína Ósk skoraði fjórða markið í seinni hálfleik.
Íslenska liðið mætir Póllandi á morgun og Þýskalandi á laug-
ardaginn. Þýskaland burstaði Pólland, 9:0, í gær.
Milliriðlarnir í EM eru fimm og fara sigurvegarar riðlanna í
úrslitakeppnina í Finnlandi, ásamt tveimur þjóðum sem ná
bestum árangri í öðru sæti. Gestgjafar Finnlands eru með átt-
unda liðið í úrslitakeppninni, sem fer fram í júlí.
Nína skoraði tvö í sigri
gegn Ungverjalandi
Nína Ósk
DANSKI knattspyrnumaðurinn Simon Karkov
hefur gengið frá samningi við FH-inga um að
leika með þeim út þetta tímabil. Karkov, sem er
27 ára miðjumaður, kom til FH á mánudag en
hann fékk sig lausan undan samningi frá
danska úrvalsdeildarliðinu Herfölge áður en
hann kom til landsins.
„Okkur líst mjög vel á Karkov sem er góður
fótboltamaður og ég á von á því að hann falli
vel inn í okkar lið,“ sagði Ólafur Jóhannesson,
þjálfari FH, við Morgunblaðið í gær. Danirnir
Allan Borgvardt og Tommy Nielsen leika sem
kunnugt er með FH-liðinu eins og í fyrra.
FH, sem hafnaði í öðru sæti úrvalsdeildar-
innar í fyrra, hefur þar með fengið tvo leik-
menn fyrir komandi tímabil en hinn er Ármann
Smári Björnsson úr Val. Einn leikmann vantar
í hópinn frá í fyrra, Hermann Albertsson, en
hann sleit krossband í hné og verður ekkert
með í sumar.
FH-ingar sömdu
við Karkov
ÍSLENSKIR sundmenn unnu 10
gullverðlaun, átta silfur og fimm
brons á sterku sundmóti ung-
linga í Lúxemborg um síðustu
helgi, en mótið fór fram í hinni
glæsilegu sundhöll sem kennd er
við ólympíu og byggð var fyrir
Smáþjóðaleikana 1995. Á mótinu
kepptu alls 1.950 sundmenn frá
16 þjóðum þar sem fimm landslið
og 48 félagslið tóku þátt.
Íslenska liðið sem skipað var
21 sundmanni lenti í þriðja sæti á
mótinu í keppni landsliða rétt á
eftir heimamönnum og Finnum.
Úr hópi íslensku sundmannanna
unnu eftirtaldir til verðlauna;
Sigrún Brá Sverrisdóttir vann
tvenn gullverðlaun, Erla Dögg
Haraldsdóttir ein gullverðlaun,
eitt silfur og þrenn brons-
verðlaun, Helena Ósk Ívarsdóttir
tvö gull, Aþena Ragna Júl-
íusdóttir eitt brons, Birkir Már
Jónsson ein gullverðlaun, tvenn
silfurverðlaun og tvenn brons-
verðlaun, Guðni Emilsson tvenn
gullverðlaun, Auður Sif Jóns-
dóttir ein bronsverðlaun, Kjart-
an Hrafnkelsson ein brons-
verðlaun, Árni Már Árnason ein
gullverðlaun og ein silf-
urverðlaun, Jóhanna Gerða
Gústafsdóttir ein gullverðlaun
og tvenn bronsverðlaun, Oddur
Örnólfsson hlaut ein silf-
urverðlaun.
Erla Dögg Haraldsdóttir var
einungis þriðjungi úr sekúndu
frá Ólympíulágmarki í 100 m
bringusundi þegar hún synti
vegalengdina á 1.13,62 mínútu.
Komu heim með 23
verðlaun frá Lúxemborg
ÞRÓTTARKONUR úr Reykjavík
unnu í gærkvöld sinn fyrsta titil í
meistaraflokki í sextán ár. Þær
tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn
með því að leggja Neskaupstaðar-
Þrótt að velli, 3:0, í öðrum úrslita-
leik liðanna sem fram fór í Nes-
kaupstað. Reykjavíkur-Þróttur
vann fyrri leikinn á sínum heima-
velli, einnig 3:0.
Hrinurnar enduðu 25:23, 25:18 og
25:18 en bæði í fyrstu og þriðju
hrinu náðu austanstúlkur ágætri
forystu sem þær náðu ekki að halda.
Petrún Jónsdóttir, þjálfari og
leikmaður Þróttar R., er frá Nes-
kaupstað eins og tveir aðrir leik-
menn liðsins og þær tóku því við Ís-
landsbikarnum á eigin heimavelli í
leikslok í gærkvöld.
Langþráður titill hjá
Reykjavíkur-Þrótti
KNATTSPYRNA
Deildabikarkeppni
Neðri deild karla, C-riðill:
Tungubakkav.: Huginn - Afturelding ......19
BLAK
Úrslitakeppni karla - fyrsti leikur:
Ásgarður: Stjarnan - HK......................20.10
Í KVÖLD
HANDKNATTLEIKUR
Valur – Stjarnan 23:22
Hlíðarendi, Reykjavík, undanúrslit kvenna,
fyrri leikur, þriðjudaginn 20. apríl 2004.
Gangur leiksins: 0:1, 1:3, 3:3, 3:5, 5:6, 8:10,
11:10, 11:11, 12:11, 13:12, 13:14, 14:14,
14:17, 18:17, 18:18, 19:19, 21:19, 21:21,
23:21, 23:22.
Mörk Vals: Sigurlaug Rúnarsdóttir 7, Árný
Björg Ísberg 4, Gerður Beta Jóhannsdóttir
3, Elfa Björk Hreggviðsdóttir 3, Hafrún
Kristjánsdóttir 2, Arna Grímsdóttir 1, Kol-
brún Franklín 1, Ágústa Edda Björnsdóttir
1, Díana Guðjónsdóttir 1/1.
Varin skot: Berglind Hansdóttir 19 (þar af
fóru 10 aftur til mótherja).
Utan vallar: 8 mínútur. Þar af fékk Hafdís
Kristjánsdóttir rautt spjald fyrir þrjár
brottvísanir.
Mörk Stjörnunnar: Rakel Dögg Braga-
dóttir 7/5, Elísabet Gunnarsdóttir 5, Sól-
veig Lára Kjærnested 4, Jóna Margrét
Ragnarsdóttir 2, Hind Hannesdóttir 2,
Kristín Clausen 1, Ásdís Sigurðardóttir 1.
Varin skot: Jelena Jovanvic 26/2 (þar af
fóru 14/1 aftur til mótherja).
Utan vallar: 10 mínútur.
Dómarar: Arnar Sigurjónsson og Svavar
Ó. Pétursson.
Áhorfendur: Um 280.
Þýskaland
Minden – Wilhelmshavener .................25:25
Staðan:
Flensburg 30 25 2 3 981:787 52
Magdeburg 30 23 2 5 928:804 48
Lemgo 30 22 2 6 974:826 46
Kiel 29 22 2 5 946:775 46
Hamburg 30 21 1 8 833:772 43
Gummersb. 29 19 2 8 822:757 40
Essen 30 14 6 10 813:778 34
Wallau 30 12 4 14 910:920 28
Grosswallst. 30 11 6 13 733:784 28
Wetzlar 30 10 4 16 775:836 24
Nordhorn 30 11 2 17 887:896 24
Wilhelmshav. 30 9 5 16 800:833 23
Minden 30 9 2 19 781:881 20
Pfullingen 30 7 4 19 799:899 18
Stralsunder 30 8 1 21 675:819 17
Göppingen 30 8 1 21 772:840 17
Kr-Östringen 30 7 1 22 802:895 15
Eisenach 30 6 3 21 758:887 15
KNATTSPYRNA
Deildabikar karla
Efri deild, A-riðill:
KR – Grindavík ........................................ 6:1
Kjartan Henry Finnbogason 40., 54., 80.,
Sigmundur Kristjánsson 22., 65., Sölvi
Davíðsson 85. - Grétar Hjartarson 71.
Staðan:
KR 7 5 1 1 19:9 16
KA 6 4 1 1 15:4 13
Fylkir 6 4 0 2 14:12 12
Þór 6 3 0 3 8:10 9
Grindavík 7 3 0 4 11:19 9
Víkingur R. 6 2 2 2 8:8 8
Haukar 6 1 0 5 12:16 3
Njarðvík 6 1 0 5 8:17 3
KR, KA og Fylkir eru komin í 8-liða úr-
slit.
Deildabikar kvenna
Neðri deild:
HK/Víkingur – Fjölnir............................. 2:5
Staðan:
Þór/KA/KS 3 3 0 0 22:6 9
HK/Víkingur 3 2 0 1 13:7 6
Fjölnir 2 1 1 0 9:6 4
Keflavík 2 0 1 1 7:8 1
Þróttur R. 2 0 0 2 5:7 0
Sindri 2 0 0 2 0:22 0
Meistaradeild Evrópu
Undanúrslit, fyrri leikur:
Mónakó – Chelsea.....................................3:1
Dado Prso 17., Fernando Morientes 78.,
Shabani Nonda 83 - Hernan Crespo 22.
Rautt spjald: Vasilis Zikos (Mónakó) 52. -
15.000.
England
Úrvalsdeild:
Manchester United – Charlton ...............2:0
Louis Saha 28., Gary Neville 65. - 67.477.
Staðan:
Arsenal 33 24 9 0 67:22 81
Chelsea 34 22 6 6 60:27 72
Man. Utd 34 22 5 7 61:32 71
Liverpool 34 13 11 10 48:36 50
Newcastle 33 12 14 7 45:33 50
Aston Villa 34 13 10 11 44:40 49
Charlton 34 13 9 12 44:43 48
Birmingham 34 12 11 11 40:42 47
Southampton 33 12 9 12 38:33 45
Fulham 34 12 9 13 47:44 45
Middlesbro 34 12 9 13 40:42 45
Bolton 34 11 11 12 40:51 44
Everton 34 9 12 13 42:47 39
Tottenham 34 11 5 18 42:54 38
Blackburn 34 10 7 17 48:57 37
Portsmouth 33 10 7 16 37:47 37
Man. City 34 7 13 14 47:50 34
Leeds 34 8 8 18 35:69 32
Leicester 34 5 13 16 41:59 28
Wolves 34 6 10 18 33:71 28
1. deild:
Burnley – Wimbledon...............................2:0
Millwall – Watford ....................................1:2
Staða efstu og neðstu liða:
Norwich 42 25 10 7 71:34 85
WBA 42 24 11 7 61:35 83
Sunderland 41 20 11 10 58:40 71
Ipswich 43 21 8 14 81:68 71
Wigan 43 18 15 10 59:43 69
West Ham 43 17 16 10 61:44 67
Millwall 43 17 15 11 54:45 66
Sheff. Utd 43 19 9 15 60:52 66
-------------------------------------
Rotherham 43 12 14 17 47:57 50
Burnley 43 12 14 17 58:72 50
Derby 43 12 13 18 51:65 49
Walsall 43 12 12 19 42:61 48
Gillingham 43 13 8 22 44:62 47
Bradford 43 10 6 27 38:64 36
Wimbledon 43 7 4 32 38:86 25
Bradford og Wimbledon eru fallin í 2.
deild.
2. deild:
Luton - Bournemouth...............................1:1
Oldham – Wrexham ..................................1:1
Staða efstu liða:
Plymouth 43 23 12 8 78:40 81
QPR 43 20 17 6 76:42 77
Bristol City 43 21 12 10 55:36 75
Swindon 43 20 12 11 74:54 72
Brighton 43 20 10 13 60:43 70
Hartlepool 43 19 12 12 72:56 69
Port Vale 43 18 10 15 67:61 64
Luton 43 16 15 12 66:61 63
Bournem. 43 16 14 13 55:50 62
Skotland
Bikarkeppnin, undanúrslit:
Dunfermline – Inverness CT ...................3.2
Dunfermline mætir Celtic í úrslitaleik.
Svíþjóð
Kalmar – Hammarby............................... 1:2
Staða efstu liða:
Malmö 3 2 1 0 10:2 7
Halmstad 3 2 1 0 6:2 7
Gautaborg 3 1 2 0 3:0 5
Djurgården 3 1 2 0 6:4 5
Örgryte 3 1 2 0 3:2 5
Hammarby 3 1 2 0 2:1 5
Austurríki
Bikarkeppnin, 8-liða úrslit:
Ried – Kärnten ......................................... 2:2
Ried sigraði í vítaspyrnukeppni.
BLAK
Konur, annar úrslitaleikur:
Þróttur N. – Þróttur R............................. 0:3
(23:25, 18:25, 18:25)
Þróttur R. er Íslandsmeistari, 2:0.
KÖRFUKNATTLEIKUR
NBA-deildin
16-liða úrslit, leikir númer tvö:
Vesturdeild:
San Antonio – Memphis........................87:70
San Antonio er yfir 2:0.
LA Lakers – Houston ...........................98:84
LA Lakers er yfir 2:0.
Kobe Bryant og Karl Malone voru áber-
andi í sóknarleik Lakers, Bryant með 36
stig og Malone með 17 stig. Shaquille
O’Neal, sem skoraði 7 stig, hefur aldrei áð-
ur skorað eins fá stig í leik í úrslitakeppni
en 1997 skoraði hann 11 stig gegn Utah.
Sókn Garðbæinga var betri til aðbyrja með og Valsstúlkur meira
á taugum en með bættri vörn kom
sjálfstaustið og for-
ysta. Þær fóru held-
ur illa með færin í
lok fyrri hálfleiks og
strax eftir hlé, sem
gestirnir nýttu sér til að ná 17:16 for-
ystu en þegar þeir voru ótt og títt
reknir af velli náði Valur 21:19 for-
ystu. Garðbæingar gáfust ekki upp
og jöfnuðu tvívegis tveggja marka
forystu Vals er Jelena Jovanovic fór
á kostum í marki Stjörnunnar en það
dugði ekki til.
„Við áttum í miklu basli framan af
eftir að við lendum undir því þá
þurftum við að elta þær og það tekur
sinn toll en þetta hafðist með brjál-
aðri baráttu,“ sagði Berglind mark-
vörður eftir leikinn. „Ég get bara
sagt fyrir mig að ég var mjög stress-
uð í byrjun. Við ætluðum að passa
Jónu Margréti sem helst tekur af
skarið og er þeirra helsta skytta og
loka fyrir sendingar inná línuna en
helst að spila góða vörn og fá hraða-
upphlaup, sem er okkar helsta vopn
eins og allir vita“. Ásamt Berglindi
áttu Gerður Beta Jóhannsdóttir og
Árný Ísberg ágætan leik en best var
Sigurlaug Rúnarsdóttir, sem kom
inná er nokkuð var liðið á fyrri hálf-
leikinn og dreif liðið áfram. Hafrún
Kristjánsdóttir fékk lítið að beita sér
því dómararnir dæmdu mikið á hana.
„Við byrjum betur en höldum ekki
út leikinn og þetta small ekki núna,“
sagði Elísabet Gunnarsdóttir úr
Stjörnunni sem sýndi oft mjög góða
takta á línunni. „Ég vil samt ekki
kenna um reynsluleysi því við erum
með gott lið. Við ætluðum að leggja
alla áherslu á vörnina og síðan fá
hraðaupphlaup upp úr því. Vörnin
var góð þó að markvarslan hafi
stundum verið betri og hraðaupp-
hlaupin látið á sér standa. Við þurf-
um að eflast við úrslitin og mæta bet-
ur undirbúnar næst. Þá verðum við
hafa betra aga í sóknarleiknum því
við vorum drífa okkur alltof mikið.“
Sólveig Kjærnested var góð í horn-
inu og Rakel Dögg Bragadóttir,
Hind Hannesdóttir og Jóna Margrét
Ragnarsdóttir voru ágætar en
Jelena varði 27 skot.
Varið á síðustu sek-
úndu og Valur vann
Morgunblaðið/Golli
Valskonurnar Ágústa Edda Björnsdóttir og Anna M. Guð-
mundsdóttir reyna að stöðva Stjörnustúlkuna Elísabetu Gunn-
arsdóttur í leiknum að Hlíðarenda í gærkvöld.
LÍTIÐ mátti útaf bregða að Hlíð-
arenda í gærkvöldi þegar
Stjarnan sótti Valsstúlkur heim í
fyrsta leik í undanúrslitum Ís-
landsmótsins. Valsstúlkur voru
lengi að komast í gang, náðu sér
síðan á strik en litlu munaði að
Garðbæingum tækist að knýja
fram úrslit í lokin. Það gekk ekki
eftir og Valur vann 23:22 eftir að
Berglind Hansdóttir í marki Vals
varði á síðustu sekúndu. Næsti
leikur liðanna er í Garðabæ í
fimmtudaginn.
Stefán
Stefánsson
skrifar