Morgunblaðið - 21.04.2004, Qupperneq 47
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 2004 47
HERBERT Arnarson skrifaði í
gær undir tveggja ára samn-
ing um að þjálfa úrvalsdeild-
arlið KR í körfuknattleik.
Þetta verður frumraun Her-
berts með meistaraflokki en
hann hefur þjálfað drengja-
flokk hjá KR undanfarin tvö ár
og þjálfaði einnig yngri flokka
hjá ÍR fyrir nokkrum árum.
Herbert mun væntanlega
ekki leika með KR-ingum en
hann gat ekkert spilað á ný-
liðnu tímabili vegna meiðsla.
„Ég fer í speglun í lok maí og
þá kemur í ljós hvort ferill
minn sem leikmaður sé á enda
eða ekki. Ég tek þetta starf að
mér fyrst og fremst sem þjálf-
ari, ekki sem leikmaður, en ég
held að sjálfsögðu öllum dyr-
um opnum ef ég verð fær um
að spila sjálfur,“ sagði Herbert
við Morgunblaðið í gær.
Herbert með
tveggja ára
samning
„ÞRÁTT fyrir harða mótspyrnu
leikmanna Charlton tókst okkur að
vinna góðan sigur sem ég er
ánægður með,“ sagði Alex Fergu-
son, knattspyrnustjóri Manchester
United eftir að lið hans lagði Her-
mann Hreiðarsson og samherja í
Charlton, 2:0, á Old Trafford í
gærkvöld. Louis Saha gerði fyrra
markið á 28. mín., og Gary Neville
innsiglaði sigurinn á 65. mín. Þetta
var sjöunda mark Saha í þeim tíu
leikjum sem hann hefur verið í
byrjunarliði Manchester.
„Við erum að ná okkur á strik
eftir að hafa tapað niður þræðinum
um tíma, það er afar mikilvæg
staðreynd nú á lokasprettinum,“
sagði Ferguson en með sigrinum
eru liðsmenn hans aðeins einu stigi
á eftir Chelsea sem er í öðru sæti
ensku úrvalsdeildarinnar. Her-
mann lék allan leikinn með
Charlton.
KEFLVÍKINGAR, nýliðarnir í
úrvalsdeildinni í knattspyrnu, töp-
uðu í gær fyrir danska 2. deildarlið-
inu Holbæk, 1:0, í æfingaleik ytra.
Þeir voru manni færri síðasta hálf-
tímann eftir að Ólafur Ívar Jóns-
son fékk rauða spjaldið. Serbarnir
Sreten Djurovic og Sasa Komlenic,
markvörður, léku síðari hálfleikinn
með Keflavík en þeir eru til
reynslu hjá liðinu í Danmörku.
GUNNAR Þór Gunnarsson,
knattspyrnumaðurinn efnilegi hjá
Fram, verður frá keppni næstu 8-
10 vikurnar vegna meiðsla, sam-
kvæmt vef Fram, og verður því
ekki leikfær fyrr en í lok júní.
Gunnar Þór er 19 ára og lék 17 af
18 leikjum Safamýrarliðsins í úr-
valsdeildinni í fyrra, alla í byrjun-
arliði.
KJARTAN Henry Finnbogason,
17 ára unglingalandsliðsmaður,
skoraði þrennu fyrir Íslandsmeist-
ara KR sem unnu stórsigur á
Grindavík, 6:1, í deildabikarnum í
knattspyrnu í gærkvöld. Sigmund-
ur Kristjánsson bætti við tveimur
mörkum fyrir KR-inga. Leikið var
á gervigrasvelli Leiknis í Efra-
Breiðholti.
PÉTUR Hafliði Marteinsson lék
allan leikinn með Hammarby sem
sigraði Kalmar á útivelli, 2:1, í
sænsku úrvalsdeildinni í knatt-
spyrnu í gær. Hammarby komst
með því í efri hluta deildarinnar en
liðið hafði gert markalaus jafntefli í
tveimur fyrstu leikjum sínum.
HELGI Kolviðsson lék síðustu 12
mínúturnar í venjulegum leiktíma
og framlenginguna þegar Kärnten
mætti Ried í 8-liða úrslitum aust-
urrísku bikarkeppninnar í knatt-
spyrnu í gærkvöld. Ried jafnaði,
2:2, í lok framlengingar og sigraði
síðan í vítaspyrnukeppni.
GYLFI Gylfason skoraði fimm
mörk fyrir Wilhelmshaven þegar
liðið náði í eitt stig í heimsókn sinni
til Minden, 25:25, í þýsku 1. deild-
inni í handknattleik í gærkvöldi.
ÓLAFUR Sigurjónsson skoraði 9
mörk fyrir Tres de Mayo um
helgina þegar liðið tapaði, 31:35, á
heimavelli gegn Amenábar Za-
rautz í spænsku 2. deildinni í hand-
knattleik. Lið Ólafs og Hlyns Jó-
hannessonar situr sem fastast á
botni deildarinnar og verður nú að
vinna þrjá síðustu leiki sína til að
eiga möguleika á að forðast fall.
WATFORD nær gulltryggðu
sæti sitt í ensku 1. deildinni í knatt-
spyrnu í gærkvöld með því að sigra
Millwall á útivelli, 2:1. Heiðar
Helguson lék ekki með vegna
meiðsla en Ray Lewington, knatt-
spyrnustjóri Watford, sagði á vef
félagsins í gær að hann vonaðist
eftir Heiðari í næsta leik, gegn
Norwich á laugardag.
FÓLK
Eiður Smári Guðjohnsen kom inní lið Chelsea að nýju en hann
missti af leik liðsins gegn Everton
síðasta laugardag vegna veikinda.
Hann og Hernan Crespo léku í
fremstu víglínu og Eiður Smári var
mjög ógnandi allan tímann. Hann
lagði upp jöfnunarmark Chelsea, 1:1,
á 22. mínútu og var tvívegis nálægt
því að skora í síðari hálfleiknum.
Dado Prso kom Mónakó yfir á 16.
mínútu en franska liðið varð fyrir
miklu áfalli snemma í síðari hálfleik.
Þá fékk gríski varnarmaðurinn Vas-
ilis Zikos rauða spjaldið eftir við-
skipti við Claude Makelele. Zikos
ýtti á höfuð Frakkans, sem hafði
klappað honum á kinnina, og Makel-
ele féll með tilþrifum. „Skammarleg
framkoma hjá Makelele,“ sagði
fréttavefur BBC í umfjöllun sinni um
leikinn í gærkvöld.
Chelsea sótti stíft eftir þetta og
Claudio Ranieri setti meiri þunga í
sóknarleik sinn með því að senda
Jimmy Floyd Hasselbaink til leiks
en bæði Eiður og Crespo léku allan
tímann. En Fernando Morientes
skoraði glæsilegt mark eftir skyndi-
sókn 13 mínútum fyrir leikslok, 2:1,
og varamaðurinn Shabani Nonda
skoraði þriðja markið rétt á eftir,
með sinni fyrstu snertingu, nýkom-
inn inn á sem varamaður.
„Þetta eru stórkostleg úrslit, okk-
ar menn voru frábærir. Þeir léku til
sigurs með hjartanu og þurftu að
grípa til krafta sem ég býst við að
sumir vissu ekki að þeir byggju yfir.
Það er virkilega gott að ná tveggja
marka forskoti í svona viðureign, ég
hefði verið fyllilega sáttur við eins
marks sigur. Við eigum annan bar-
daga fyrir höndum en mætum von-
góðir til hans,“ sagði Didier
Deschamps, þjálfari Mónakó og
fyrrum leikmaður Chelsea.
Tapið er mér að kenna
Claudio Ranieri, knattspyrnu-
stjóri Chelsea, tók á sig alla sök
vegna ósigursins, en innáskiptingar
hans í síðari hálfleik reyndust ekki
vel. „Ég bætti við þriðja sóknar-
manninum því ég vildi knýja fram
sigur þar sem við vorum manni fleiri.
En á síðasta stundarfjórðungnum
misstum við þráðinn. Allir ætluðu að
bjarga málunum, en reyndu of mikið
sjálfir í stað þess að koma boltanum
á sóknarmennina þrjá. En þetta er
ekki þeirra sök, tapið er mér að
kenna. Þessar breytingar áttu fullan
rétt á sér, ég var viss um að þær
myndu skila árangri, en þær gengu
ekki upp,“ sagði Ranieri.
Claude Makelele verður ekki með
Chelsea í seinni leiknum þar sem
hann tekur út bann vegna gulra
spjalda. Þá má búast við því að
Marcel Desailly, varnarmanninum
reynda hjá Chelsea, verði refsað en
hann sló Fernando Morientes án
þess að dómarinn sæi atvikið.
Reuters
Hernan Crespo faðmar Eið Smára Guðjohnsen að sér eftir að Eiður Smári lagði upp jöfnunarmark
Chelsea fyrir hann í Mónakó í gærkvöld. En það var skammvinn sæla því Mónakó sigraði, 3:1.
Tíu Mónakómenn
léku Chelsea grátt
MÓNAKÓ stendur vel að vígi í undanúrslitum Meistaradeildar Evr-
ópu í knattspyrnu eftir frækinn sigur á Chelsea, 3:1, í fyrri viðureign
liðanna sem fram fór í furstadæminu í gærkvöld. Leikmenn Mónakó
voru manni færri mestallan síðari hálfleik og áttu lengi í vök að verj-
ast gegn enska liðinu en skoruðu síðan tvívegis á síðasta stundar-
fjórðungnum. Liðin mætast aftur á Stamford Bridge í London 5. maí
og þá þarf Chelsea að sigra með minnst tveggja marka mun til að
komast í úrslitaleik keppninnar í Schalke í Þýskalandi 26. maí.
THIERRY Henry, miðherji Arsen-
al, er efstur á blaði í keppninni um
Gullskóinn í Evrópu. Hann hefur
skorað 29 mörk í 32 deildar-
leikjum, eða fjórum meira en
Brasilíumaðurinn Ailton hjá Werd-
er Bremen í Þýskalandi og fimm
meira en Ronaldo hjá Real Madrid.
Leikmenn sem leika í deildar-
keppni í Englandi, Frakklandi,
Þýskalandi, á Ítalíu og Spáni fá
tvö stig fyrir mörkin sem þeir
skora.
Henry skoraði fjögur mörk gegn
Leeds sl. föstudag, en þá voru liðin
13 ár síðan leikmaður Arsenal
skoraði fjögur mörk í leik í deild-
arkeppninni – Ian Wright gegn
Everton í desember 1991, 4:2.
Henry varð einnig fyrsti leik-
maðurinn til að skora þrennu í
tveimur leikjum í röð síðan Doug
Lishman vann það afrek í nóvem-
ber 1951. Henry skoraði þrjú mörk
gegn Liverpool í leiknum á undan
Leeds.
Hann hefur skorað 150 mörk og
skaust upp fyrir John Radford,
sem skoraði 149. Henry er í þriðja
sæti yfir markahæstu leikmenn
Arsenal. Fyrir ofan hann er Cliff
Bastin, sem skoraði 178 mörk í 396
leikjum, og Ian Wright sem skor-
aði 185 í 288 leikjum.
Arsene Wenger, knattspyrnu-
stjóri Arsenal, segir Henry, sem er
aðeins 26 ára, besta knattspyrnu-
mann heims og fullyrðir að hann
eigi eftir að skora miklu fleiri
mörk fyrir Arsenal.
Henry hefur sett stefnuna
á Gullskó Evrópu
Öruggt á Old Trafford