Morgunblaðið - 21.04.2004, Side 49
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 2004 49
Til sölu er rekstur Cafe-Mörk á Akranesi.
Vinsæll skemmtistaður að Skólabraut 14
í miðbæ Akraness, bar/dansstaður, góð
velta og hægur vandi að auka hana með
því að færa út kvíarnar. Mjög góð
aðsókn, mikill uppgangur á svæðinu og
góðir tímar í vændum. Til greina kemur
að selja húsnæðið með rekstrinum.
Hafið samband við og fáið nánari
upplýsingar. RE/MAX Vesturlandi
sími 431 3232, adolf@remax.is
CAFE-MÖRK AKRANESI
Adolf Ásgrímsson - sími 431 3232/860 6198
Netfang: adolf@remax.is
Fasteignasala: RE/MAX Vesturlandi
6,3 milljón virkir dílar sem með
fjórðu kynslóð Super CCD HR gefa
allt að 12,3 milljón díla myndir!
Með tilkomu nýs myndstýrikerfis sem byggir á
sérhannaðri ASIC IC flögu þá er vélin u.þ.b. 1,3
sekúndur að verða tökuklár! Og hún þarf aðeins
1,1 sekúndu milli ljósmynda!
Topp kvikmyndataka: 640x480 dílar, 30 rammar á sekúndu! Hæfilega lítil,
195gr. Fjöldi tökuhátta og möguleika.
Vélinni fylgir lithium endurhleðslu rafhlaða, vagga, straumbreytir, minniskort,
hugbúnaður og snúrur fyrir tölvu og sjónvarp.
Verð kr. 69.900,-
Skipholti 31, Reykjavík, s: 568 0450 ı Kaupvangsstræti 1, Akureyri, s: 461 2850
Myndsmiðjan Egilsstöðum ı Framköllunarþjónustan Borgarnesi ı Filmverk Selfossi
Ný stafræn vél
– Finepix F610
Taktu þátt í ferðaleik Fujifilm til 01. maí 04.
Ferðavinningur að verðmæti kr. 250.000.
HELDUR ÁFRAM!
ÞRÓUNIN
Bæklingur á www.fujifilm.is
DE PALACE, Hafnarstræti
Hljómsveitin Touch í kvöld klukkan
22.00. Aðgangur ókeypis. Nýleg sveit
sem sem leikur frumsamda tónlist.
FJÖRUKRÁIN
Hilmar Sverrisson frá 23.00–3.00.
GAUKUR Á STÖNG
Sóldögg og Á móti sól með sameig-
inlega sumargleði.
GRAND ROKK
Vax leika í kvöld klukkan 23.00.
KAFFI KRÓKUR, SAUÐÁRKRÓKI
Kung Fu spila.
KLÚBBURINN Við GULLINBRÚ
Sagaklass.
KRINGLUKRÁIN
Eyjólfur Kristjánsson og Íslands eina
von.
LEIKHÚSKJALLARINN
Plötusnúðarnir Gullfoss og Geysir.
PLAYERS, Kópavogi
Milljónamæringarnir,
Páll Óskar, Bogomil Font og Raggi
Bjarna.
Í DAG
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is
DARRYL Hannah er komin í leit-
irnar eftir nokkrar fjarvistir úr
bitastæðum hlutverkum, og hvar
skyldi hún stinga upp hrokknum
glókollinum annars staðar en í hlut-
verki drápskvendis – þar sem ferill-
inn hófst.
Elle Driver – eða Kaliforníski
fjallasnákurinn eins og félagar
hennar kalla hana (Hannah) – er
einn fyrrum samstarfsmannanna í
leigumorðingjagenginu DiVAS, sem
Brúðurin (Uma Thurman) eltir uppi
í öllum heimshornum til að drepa.
Brúðurin á harma að hefna og er
Elle næst á aftökulistanum en
hefndargöngunni lýkur í öðrum og
síðari hluta Bana Billa – Kill Bill
Vol. 2.
Líkt og bíógestir muna lauk fyrri
hluta þessa ómótstæðilega ofbeld-
isfarsa þar sem Brúðurin hefur veg-
ið morðhundana O-Ren Ishii (Lucy
Liu) og Vernitu Green (Viveca A.
Fox), og þá eru þrír enn eftirlifandi
á listanum: Elle, Budd (Michael
Madsen), og rúsínan í pylsuend-
anum, sjálfur Billi (David Carrad-
ine), brúðguminn sem taldi sig hafa
komið Brúðinni fyrir kattarnef á
brúðkaupsdegi þeirra. Áður en sá
válegi atburður gerðist, vann Di-
VAS-hópurinn saman undir stjórn
Billa. Brúðurin hefur enga hug-
mynd um hvers vegna mannsefnið
vildi hana feiga og samstarfsmenn
hennar sviku hana. Hitt veit hún
upp á hár að drápstólin verða ekki
lögð á hilluna fyrr en hún hefur
sent fjendur sína í snarkandi loga
vítis.
Í kvikmyndasögunni eiga háska-
kvendi – femme fatale – sinn fasta
sess en hafa sjaldan farið um í slík-
um flokkum sem í tvíþáttungnum
hans Quentins Tarantino. Mestur
skaðræðisgripanna í Kill Bill er
vissulega hin upprisna Brúður/
Svarta mamban, sem Uma Thur-
man leikur ekki aðeins með svim-
andi tilþrifum heldur skapaði hún
persónuna í samvinnu við leikstjór-
ann og handritshöfundinn Tar-
antimo.
Sem fyrr segir liggja O-Ren Ishii
og Vernita Green þegar í valnum í
Vol. 1., báðar eftirminnilegar í með-
förum Liu og Fox. Morðkvendin í
hópnum eru þrautþjálfuð í aust-
urlenskum bardagaíþróttum, skot-
fimi, skylmingum og þar fram eftir
götunum og röðin komin að Hannah
að sanna sig. Í byrjun var þess get-
ið að leikkonan væri stödd við upp-
haf ferils síns. Þótt ótrúlegt megi
virðast er nánast aldarfjórðungur
liðinn síðan þessi kattliðuga og
glæsilega leikkona vakti heims-
athygli sem Pris, hinn lífshættulegi
róbot í kvenlíki í klassíkinni Blade
Runner. Síðan hefur Hannah leikið
í rösklega 50 myndum, flestum auð-
gleymdum. Frammistaða hennar í
hlutverki morðvargsins Elle Driver
hefur potað leikkonunni aftur inn á
beinu brautina. Hannah er með ein-
ar þrjár myndir í takinu í dag, fer
m.a. með hlutverk í Silver City
(‘05), nýjasta verki Johns Sayles.
Hættulegar konur kvikmyndanna
þurfa ekkert nauðsynlega að kunna
austurlenskar bardagaíþróttir eða
meðhöndla byssur. Flestar láta
kynþokkann og auðsveipa karlmenn
vinna fyrir sig skítverkin. Slíkar
sómakonur þekkjum við hvað best
úr rökkurmyndunum góðu (film
noir). Í þennan hóp flokkast einnig
hin háhælaða og reykspúandi Breið-
holts- Betty, sem rithöfundurinn
Arnaldur Indriðason yrkir um í
samnefndri metsölubók.
Ein minnisstæðasta femme fatale
kvikmyndasögunnar er Phyllis
Dietrichson, sem Barbara Stanwyck
túlkar gjörsamlega óaðfinnanlega í
klassíkinni Double Indemnity eftir
Billy Wilder. Byggð á skáldsögu
James M. Caine um íðilfagra og út-
smogna tæfu sem platar bláeygan
tryggingasölumann sér til aðstoðar
að losna við roskinn og vellauðugan
eiginmann. Að launum býðst kóngs-
ríkið og prinsessan. Caine er hins-
vegar ekkert á því að láta slíkar
áætlanir ganga upp.
Annað ógleymanlegt uppáhald í
þessum vafasama selskap er
Bridget/Wedy, sem Linda Fior-
entina holdi klæðir af óskamm-
feilnum kynþokka í hinni bráð-
snjöllu The Last Seduction eftir
John Dahl. Bridget þráir auð og
munað og etur saman körlunum í
lífi sínu til að sitja ein að fúlgunni.
Kathleen Turner leikur svellandi
tálkvendi í nokkrum frábærum
myndum. Standa fáar henni á
sporði við að gera karlpening örvita
af frygð og algjörum fíflum. Fyrst
og fremst smábæjar- löggepilinn
William Hurt í Body Heat (‘81). Þá
ljáir hún teiknifígúrunni og glamor-
gellunni Jessicu Rabbit rödd sína í
Hver skellti skuldinni á Kalla kan-
ínu? – Who Framed Roger Rabbitt?
Eftirlætiseintökin í þessu vara-
sama samfélagi kvendjöfla eru vita-
skuld Jennifer Tilly og Gina
Gershon, sjóðbullandi heitar og tví-
kynhneigðar elskur sem gefa
karlrembum langt nef. Ræna þá og
drepa af meðfæddum yndisþokka
sem setur allt af stað í Bound, óvið-
jafnanlegu byrjendaverki Wach-
owski-bræðra.
Hannah og hin háskakvendin
ÞRÁTT fyrir margar óánægju-
raddir yfir þeirri ákvörðun að
kljúfa Bana Billa – Kill Bill í
tvennt, Volume 1. og Volume 2.,
fékk fyrri myndin frábærar við-
tökur hjá almenningi og jafnvel
enn rausnarlegri hjá gagnrýn-
endum sem almennt hófu hana til
skýjanna. Tuðarar skáru sig úr og
urðu hjáróma því Tarantino geyst-
ist fram á tjaldið fullur af filmræn-
um fítonsanda sem minnir á hans
bestu verk.
Rýnar og aðdáendur leikstjórans
hafa því beðið með óþreyju eftir
seinni hlutanum (Vol.2.), og í
stuttu máli hafa dómarnir nánast
allir verið á einn veg vestanhafs,
þar sem sýningar hófust sl. föstu-
dag – óslitin sigurganga.
Nokkrar vefsíður taka saman
dóma kvikmyndagagnrýnenda vítt
og breitt og gefa síðan myndum
meðaltalseinkunn samkvæmt nið-
urstöðunni. Tvær þær vinsælustu,
Metacritic og Rotten Tomatoes,
eru því e.k. loftvog sem segir til
um hvaða hug margir og misjafnir
gagnrýnendur bera til myndanna.
Niðurstöðurnar eru nánast eins
hvað seinni myndina varðar, enda
gagnrýnendakjarninn svipaður.
Þriðja vefsíðan, IMDb, birtir hins
vegar dóma notenda sinna þannig
að heildarmyndin liggur ljós fyrir
ef maður skoðar niðurstöðurnar
þrjár. Almenningur og gagnrýn-
endur hafa þetta að segja um
myndirnar (19.4.):
IMDb - M.C. - R.T = Meðaltal:
Vol. 1. 8,3 - 68 - 84 = 7,8
Vol 2. 8,5 - 80 - 87 = 8,4
Þá höfum við það, vísindin hafa
talað: Framhaldsmyndin er sig-
urvegari á öllum vígstöðvum og
meðaleinkunnin miklum mun betri
en hjá fyrirrennaranum. Það kæmi
ekki á óvart þótt Vol. 2. hirti nokk-
ur óskarsverðlaun að ári, líkt og
framhaldsmyndin Hilmir snýr
heim. Vol. 1. var hunsuð við ósk-
arsverðlaunatilnefninguna í ár; nú
má búast við að Akademían bæti
ráð sitt og heiðri Tarantino, Thur-
man, listræna stjórnendur, sviðs-
og búningahönnuði og sjálfsagt
nokkra til viðbótar með tilnefn-
ingum, a.m.k.
Og þá eru eftir þrír
LITLU munaði að íslenska
brennivínið yrði í stóru hlut-
verki í seinni Kill Bill-mynd-
inni.
Þannig er að Heba Þóris-
dóttir, sem var förðunarmeist-
ari myndanna beggja, gaf vini
sínum Quentin Tarantino
flösku af Black Death, sem er
alþjóðlega útgáfan af brenni-
víninu.
Tarantino gæddi sér á inni-
haldinu ásamt einum leikara
myndarinnar, Michael Mad-
sen, á góðum degi áður en tök-
ur hófust og líkaði það vel. Þar
sem persónan sem Madsen
leikur í myndinni, Böddi bróð-
ir Billa, er ansi gefin fyrir sop-
ann, ákváðu þeir því í samein-
ingu, Tarantino og Madsen, að
Böddi myndi velja að drekka
„Icelandic schnapps“ í mynd-
inni. Í myndinni á líka að sjást
í flösku með hauskúpunni
frægu, vörumerki Svarta-
dauða. Hins vegar var klippt í
burtu á síðustu stundu sam-
ræða milli Bödda og kvendjöf-
ulsins Elle Driver (Darryl
Hannah) þar sem hann mærir
þennan „íslenska snafs“.
Heba gaf Tarantino flösku
af hinu eiginlega íslenska
brennivíni en hann kaus að
nota Svartadauðann, náttúr-
lega vegna þess að honum
þótti hauskúpan svo flott.
Þessi umrædda lofræða Tar-
antinos um íslenska brennivín-
ið skilaði sér því ekki á end-
anum en fastlega má búast við
því að hún verði á endanum
gerð opinber í einhverri lengri
mynddiskaútgáfu af myndinni.
Svarti-
dauði
klipptur út
Bana Billa 2 - Kill Bill vol 2 hefur
göngu sína í Smárabíói og Regn-
boganum í dag
Leikstjóri: Quentin Tarantino
Aðalleikarar: Uma Thurman,
David Carradine, Michael Mad-
sen, Daryl Hannah.
saebjorn@mbl.is