Morgunblaðið - 21.04.2004, Qupperneq 52
52 MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Blue – Guilty
Það er ekki hægt að segja að hinir
bresku Blue-drengir geri stráka-
bandalistinni mikinn greiða.
Ímynd skiptir
mjög miklu máli í
þessum geira tón-
listarinnar og ekki
er Blue að dansa í
þeim efnum. Þeir
eru eins og hálf-
vitar framan á plöt-
unni, líta út fyrir að vera 35 ára en er
síðan stillt upp sem sautján ára
gúmmígæjum. Alveg hræðilega
klobbalegt.
Guilty er önnur plata Blue og er ger-
sneydd öllu sem hægt er að kalla
sjarmerandi, melódískt eða gríp-
andi. Stýrið fram hjá þessari og
leggið ykkur frekar eftir Westlife,
NSYNC eða bara meisturunum
sjálfum, Take That.
Guilty er ömurlegt drasl. Leggið
þessa sveit niður sem fyrst!
Courtney Love – America’s
Sweetheart
Þessi plata er ekki alslæm en samt
er vart hægt að mæla með henni.
Það örlar á sprettum, sérstaklega í
upphafi, en þegar
komið er fram í síð-
ari hálfleik er bens-
ínið búið. Sum lög-
in eru meira að
segja til hreinnar
skammar, sér-
staklega þegar litið
er til fyrri afreka Love með hinni
mjög svo góðu rokksveit, Hole.
Biðin eftir þessari plötu hefurverið
löng og vonbrigðin því þó nokkur.
Love greyið er í tómu rugli þessa
dagana og einkalífið í rúst. Vonandi
nær hún að rífa sig upp úr þessu sem
fyrst því hér er sorgleg hæfileika-
sóun í gangi.
Erlendar plötur
Arnar Eggert Thoroddsen
T Í M I samanstendur af þeim Alex MacNeil, Birgi
Erni Thoroddsen og Birgi Erni Steinarssyni.
Tími er meira vettvangur en eiginlegt fyrirtæki
eða samtök en þeir félagar segja blaðamanni að
þeir hafi stofnað með sér þennan „hlut“ í þeim til-
gangi að veita í gegnum hann hinum ýmsu hugð-
arefnum sínum sem snúa að tímatengdum listum,
og þá í sem víðustum skilningi. Tímalistir (e. „time
based art“) eru allar þær listir sem gerast á tilteknu
og afmörkuðu tímabili; s.s. tónlist, myndbandalist
eða kvikmyndir (öfugt við þetta væru t.d. málverk).
Þremenningarnir eru allir starfandi tónlist-
armenn/listamenn. Alex er í Kimono, Birgir Örn
Steinarsson eða Biggi er í Maus og Birgir Örn
Thoroddsen eða Bibbi rekur einsmannssveitina
Curver, er í Ghostigital ásamt Einari Erni Bene-
diktssyni auk þess að vera mikilvirkur upp-
tökustjóri.
Þeir félagar kynntust við upptökur á fyrstu plötu
Kimono, Mineur-Aggressif, sem út kom síðasta
haust. Þar sáu Bibbi og Biggi um upptökur og tókst
góður vinskapur með þeim og Alex. Í kjölfarið
ákváðu þeir að sameina hljóðverin sín, en Alex og
Biggi höfðu verið að reka hljóðverið The Office og
Bibbi hafði um langa hríð verið með eigið hljóðver,
Stúdíó Rusl. Í kjölfarið kviknaði sú hugmynd að
búa til einhvers konar félag, sem væri einhvers
konar regnhlíf yfir hljóðver, framleiðslufyrirtæki,
útgáfufyrirtæki, tónleikahald og svo framvegis.
„Hugmyndin er semsagt að þetta sé ákveðinn
farvegur fyrir það sem okkur langar til að gera,“
segir Bibbi.
Tími hefur t.d. haldið nokkra tónleika (stóð m.a.
að sólótónleikum Lowliðans Alan Sparhawk síðasta
haust) og stofnendurnir vinna í nýja hljóðverinu
sínu að eigin efni og annarra.
Tímakvöldin
Þeir Tímamenn eru nú búnir að skipuleggja röð
kvölda sem eru einskonar sambland af fyr-
irlestrum, umræðukvöldum og tónlistarhlustun.
Daníel Þorsteinsson, trymbill Maus og óhikað
fremsti Beach Boys fræðingur landsins, ríður á
vaðið í kvöld með því að ræða um Brian Wilson, höf-
uðsnilling Beach Boys og framlag hans til popp-
tónlistarsögunnar, ásamt því að spila hljóðdæmi.
Þetta Beach Boys kvöld er „hlustunarkvöld“ en
um þrjár gerðir kvölda er að ræða; en auk þessara
kvölda eru kvikmyndasýningar („Tímabíó“) og fyr-
irlestrar. Á meðal viðfangsefna eru þrjú hlust-
unarkvöld þar sem hljómsveitirnar The Cure,
Nurse With Wound og tónlistarformið „alt-
country“ verður tekið fyrir; einnig fyrirlestrar um
eðli hljóðs og myndbandalist og þá verður sýning á
heimildarmynd um plötuklór („scratch“) þar sem
plötusnúðurinn Gísli Galdur mun halda stutta tölu.
Fyrirlestrarnir eru í höndum Tímamanna sjálfra og
svo fagmanna eftir aðstæðum og efnum.
Kvöldin fara fram í fundarherbergi Klink og
Bank (Brautarholti 1) og eru á miðvikudags-
kvöldum á milli klukkan 21 og 23. Kvöldin verða
auglýst nánar með veggspjöldum.
Strákarnir segja að með þessum kvöldum sé ein-
faldlega verið að ramma inn hlut sem á sér venju-
legast stað í partíum eða á öldurhúsum. Þ.e. um-
ræður um tónlist. Og alltaf séu einhverjir sem vilji
pæla lengra og meira og kynna sér eitthvað nýtt.
„Litlar plötubúðir hafa t.d. verið að leggjast af,
en þar fara oft fram lifandi og upplýsandi umræður
um tónlist,“ segir Alex. „Þetta er hugsað sem vett-
vangur til að halda þessu upplýsingaflæði gang-
andi.“
Strákarnir blása á það að hér sé verið að taka
hlutina of alvarlega.
„List er alvörumál,“ segir Bibbi og kímir.
„Þessi kvöld eru líka sérstaklega gott tækifæri
fyrir fólk að kynna sér eitthvað sem það vissi ekkert
um áður. Það verður ekki grafalvarlegt form á
þessu og þetta á alls ekki að vera lokaður sauma-
klúbbur. Þeir sem t.d. héldu að Beach Boys væru
bara einhverjar dúkkur í stuttbuxum koma út fróð-
ari eftir kvöldið í kvöld.“
Framundan
Annað sem framundan er hjá Tíma er að Alex fer
í hljóðver í dag með harðkjarnasveitinni I Adapt að
taka upp nýtt efni en einnig er ný plata með Kim-
ono í burðarliðnum. Biggi er að taka upp plötu með
Lokbrá og einnig ætla Dáðadrengir að fara að kíkja
í hljóðver bráðlega.
Á útgáfusviðinu er áætlað að gefa út eitthvað af
þeim tónleikum sem Tími hefur staðið að. Hvað tón-
leikahald varðar mun Tími skipuleggja stóra tón-
leika í Klink og Bank í sumar og einnig er von á raf-
tónlistarmanninum Console (Martin Gretschmann
úr The Notwist) á næstunni.
T í m i stendur fyrir Tímakvöldum í Klink og Bank
Morgunblaðið/Emilía
Tímamenn: Alex MacNeil, Birgir Örn Thoroddsen og Birgir Örn Steinarsson.
Fyrsta Tímakvöldið, þar sem Daníel Þor-
steinsson ræðir um Beach Boys, er í kvöld
eins og áður segir og hefst það klukkan 21.
Aðgangur er ókeypis.
Orð í Tíma töluð
Viggo Mortensen
í magnaðri
ævintýramynd byggð
á sannri sögu!
i
í i
i
i !
Enginn trúir því að hann muni lifa af
þetta villta og seiðandi ferðalag.
i i í i lif f
ill i i f l .
Það vilja allir vera hún, en hún vil vera
„frjáls“ eins og allir aðrir.
Sprenghlægileg rómantísk gamanmynd um
forsetadóttur í ævintýraleit!
Kvikmyndir.is
FJÖLSKYLDU DAGAR KR . 200 Í B ÍÓ 22 - 25 APRÍL
Á VALDAR MYNDIR BROTHEAR BER •
AKUREYRI
Sýnd kl. 10.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 6, 8 og 10.. B.i.12 ára
KRINGLAN
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 3.30, 5.45, 8 og 10.15.
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA
KL. 6 OG 8.
Hann mun
gera allt
til að verða
þú!
Hágæða spennutryllir með Angelinu
Jolie, Ethan Hawke og Kiefer
Sutherland í aðalhlutverki.
Sýnd kl. 8 og 10.15. B.i. 16.
Forsýning kl. 8.30.
Sýnd kl. 10. B.i. 16. Sýnd kl. 5.40 og 8.
Enginn trúir því að
hann muni lifa af þetta
villta og seiðandi
ferðalag.
Viggo Mortensen í magnaðri ævintýramynd
byggð á sannri sögu!
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 12 ára.
„Stórkostlegt
kvikmyndaverk“
HL. MBL
SV. MBL
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 6. Með ísl taliSýnd kl. 10.30.
Sýnd kl. 6 og 8.
Sýnd kl. 6 og 10
Ævintýrahópurinn Ráðgáta hf er mætt
aftur til að leysa hin undarlegustu mál
eins og þeim einum er lagið!
Forsýning
VG. DVÓHT Rás 2
„Frábærar
reiðsenur,
slagsmálatriði,
geggjaðir
búningar og
vel útfærðar
tæknibrellur“
Fréttablaðið
i ,
l l i i,
j i
i
l f
i ll
l i
F r u m s ý n d e f t i r 1 6 d a g a
Fyrsta stórmynd sumarssins
FJÖLSKYLDUDAGAR 22 - 25 APRÍL KR. 200 Á VALDAR MYNDIR LOONEY TUNES • Ástríkur 2 •BROTHER BEAR
Valin besta breska myndin á
BAFTA verÐlaunahátíÐinni
Í SNERTINGU VIÐTÓMIÐ
SÖNN SAGA
FrÁ ÓskarsverÐlaunahafanum Kevin MacDonald