Morgunblaðið - 21.04.2004, Side 53

Morgunblaðið - 21.04.2004, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 2004 53 Á TVENNT er hægt að treysta í þessum heimi, að fína og fræga fólkinu er fyrirmunað að vera við eina fjölina fellt þegar kemur að ástarlífinu og að David Beckham skiptir reglulega um klippingu þannig að eftir sé tekið. Og ljósmyndarar tóku svo sann- arlega eftir því 19. apríl síðastliðinn þegar Beckham-hjónin mættu til einkasamkvæmis hjá fyrrum um- boðsmanni Victoriu og Idol-mógúl Simon Fuller sem haldið var í The Royal Albert Hall í Lundúnum. Til- efnið var að fyrirtæki Fullers, 19 Management, hefur verið 19 ár í bransanum en á þeim tíma hefur Fuller skapað m.a. Spice Girls, sem Victoria var hluti af , S Club 7 og Idol-stjörnuleitarþættina vinsælu. Þar tók Victoria líka lagið. En ljósmyndarar og blaðasnápar voru með hugann við allt annað en annars merkilegan áfanga í lífi Fullers – nefnilega nýju klipp- inguna hjá Beckham en hann er, eins og sjá má á myndinni, búinn að láta skera hár sitt svo um munar. Aftur orðinn krúnurakaður. Sitt sýnist hverjum um þá ákvörðun, eins og flestar aðrar sem Beckham blessaður tekur utan fótboltavall- arins. En má það vera að tilgangurinn með þessari róttæku og skyndilegu útlitsbreytingu sé örvæntingarfull tilraun til að beina athyglinni frá öðrum og miður skemmtilegri mál- um sem blaðamenn hafa verið upp- teknir af síðustu daga? Örugglega. Yfirlýst ástæða fyrir útlitsbreyt- ingunni ku þó vera sólgleraugna- auglýsing sem hann á að leika í í næstu viku. Beckham skiptir um ham – enn og aftur AP Maður margra hárgreiðslna. David Beckham hefur verið duglegri en flestir við að skipta um hárstíl enda verið tilraunadýr hjá systur sinni hárgreiðslukonunni frá unglingsaldri. AP Krúnurakaður koss: Beck- ham-hjónunum virtist mikið í mun að sýna öllum hversu hamingjusamlega gift þau eru þegar þau mættu til einkasamkvæm- isins á mánudag. Hágæða spennutryllir með Angelinu Jolie, Ethan Hawke og Kiefer Sutherland í aðalhlutverki.  SV. MBL Án efa einn besti spennuhrollur sem sést hefur í bíó. „The Dawn of the Dead“ er hressandi hryllingur, sannkölluð himnasending. Þá er húmorinn aldrei langt undan. Semsagt, eðalstöff. ” Þ.Þ. Fréttablaðið. Stranglega bönnuð innan 16 ára. Það vilja allir vera hún, en hún vil vera „frjáls“ eins og allir aðrir. Sprenghlægileg rómantísk gamanmynd um forsetadóttur í ævintýraleit! Ævintýrahópurinn Ráðgáta hf er mætt aftur til að leysa hin undarlegustu mál eins og þeim einum er lagið!  SV. MBL  VE. DV Ekki eiga við hattinn hans FJÖLSKYLDU DAGAR KR . 200 Í B ÍÓ 22 - 25 APRÍL Á VALDAR MYNDIR DREKA FJÖLL • CAT IN THE HAT • HJÁLP ÉG ER FISKUR • LOONEY TUNES • THE HAUNTED MANSION F r u m s ý n d e f t i r 1 6 d a g a Fyrsta stórmynd sumarssins Kötturinnmeð hattinn Rafmagnaður erótískur tryllir B.i. 16 ára ÁLFABAKKI Sýnd kl. 6 og 10. B.i.16 ára ÁLFABAKKI Kl. 4, 6, 8 og 10.15. KRINGLAN Sýnd kl. 10.15. B.i. 16 ára. ÁLFABAKKI Sýnd kl.4. Ísl texti ÁLFABAKKI Sýnd kl. 4. Ísl tal. KEFLAVÍK Sýnd kl. 8 og 10.20. B.i 16 KEFLAVÍK Sýnd kl. 8. AKUREYRI Sýnd kl. 10. AKUREYRI Sýnd kl. 8. KEFLAVÍK Sýnd kl. 10. KRINGLAN Sýnd kl. 10.15. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 8, og 10.45. AKUREYRI Sýnd kl. 6 og 8 AKUREYRI Kl. 6. Með ísl tali ÁLFABAKKI Sýnd kl. 4 og 6. Með ísl tali KRINGLAN Sýnd kl. 6 og 8. Með ensku tali / Sýnd kl. 6. Með ísl tali FORSÝNING KRINGLAN FORSÝNING KL. 8. B.i. 12 ára.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.