Pressan - 08.12.1988, Page 7
Fimmtudagur 8. desember 1988
7
PRESSU
d
lista Frjálsrar vcrslunar yfir
stærstu fyrirtæki landsins kemur
meðal annars fram að árið 1987
hefur verið olíufyrirtækjum lands-
ins erfitt. Þannig hefur veltan að
raungildi dregist saman um 19%
hjá ESSO, um 10% hjá Skeljungi
og um 13% hjá OLÍS. Framreiknað
virðist hagnaður olíufyrirtækjanna
um leið hafa minnkað á milli ára úr
415 milljónum í 285 milljónir
króna. Engin breyting hefur hins
vegar orðið að ráði á starfsmanna-
fjölda þeirra og heildareignir langt
umfram heildarskuldir. Veldi þess-
ara félaga á toppnum hefur þó held-
ur betur minnkað síðustu árin. Árið
1979 var ESSO í 5. sæti en 1987
komið niður í 11. sæti. SHELL var
í 10. sæti en nú í 16. sæti. Og OLÍS
var í 11. sæti en nú í 20. sæti...
tla mætti að meðallaun
væru tiltölulega svipuð hjá mann-
aflafrekustu sveitarfélögum lands-
ins, ákveðnir samningar í gildi og
mönnum haldið stíft við sem lægsta
taxta. Hví ætti t.d. sveitarfélag með
700 starfsmenn að greiða mun
hærri meðallaun en sveitarfélag
með 500 starfsmenn? Staðreyndin
virðist samt vera sú að opinberir
starfsmenn sveitarfélaganna hafi
ærna ástæðu til að hugleiða hvort
ekki borgi sig að flytja sig um set. í
tímaritinu Frjálsri verslun kemur
nefnilega í ljós að Akureyrarbær er
yfirburða sveitarfélag í launa-
greiðslum á við önnur sveitarfélög
landsins. Miðað við hóflegan fram-
reikning voru meðallaun 771 starfs-
manns Akureyrar nefnilega nálægt
150 þúsundum króna á mánuði í
fyrra, en næsthæstu meðallaunin
voru á Siglufirði, um 90 þúsund á
mánuði að núvirði. Munurinn
þarna á milli er með öðrum orðum
um 67%! Næstu sveitarfélög í röð-
inni voru Sauðárkrókur, Seyðis-
fjörður og Reykjavík með meðal-
laun á bilinu 83—85 þúsund en
lægstu meðallaunin meðal stærstu
sveitarfélaganna voru greidd í Vest-
mannaeyjum, þar sem 367 starfs-
menn fengu ekki nema um 46 þús-
und krónur á mánuöi að núvirði.
Með öðrum orðum er dæmigerður
starfsmaður Vestmannaeyjabæjar
með þrisvar sinnum lægri laun en
dæmigerður starfsmaður Akureyr-
arbæjar. Allir norður...
Bslandsvinurinn Wolfman Jack
er farinn að láta í sér heyra að nýju
i heimalandi sínu, Bandaríkjunum.
En nú ýlfrar hann ekki lengur og
vælir eftir taktföstu rokki sjötta
áratugarins. Gamli úlfur er byrjað-
ur að leika kántrítónlist og sendir
hana meira að segja út frá Nash-
ville, háborg dreifbýlissmellanna.
Hins vegar fá fleiri að njóta hæfi-
leika hans en einungis Nashville-
búar og nágrannar þeirra. Þættirnir
eru sendir út um gervihnött og nást
því um öll Bandaríkin. Gott ef ekki
væri meira að segja hægt að hala
úlfinn niður hér á landi ef samn-
ingar tækjust við The Nashville
Network Radio...
ram hefur komið í fréttum að
mörg sveitarfélög eigi í verulegum
erfiðleikum vegna skulda útgerðar-
og fiskvinnslufyrirtækja við þau.
Hrikalegar tölur hafa verið nefndar
í þessu sambandi, að skuldir þess-
ara fyrirtækja nemi jafnvel 100—
155% af heildarárstekjum viðkom-
andi sveitarfélaga. En það eru ekki
bara útvegsfyrirtæki sem skulda
sveitarfélögunum, önnur eru rnörg
hver að rukka ríkið unt háar upp-
hæðir, einkanlega vegna skóla-
mála. Fram hefur kornið t.d. að
skammtímakröfur Grýtubakka-
hrepps, sem í stærstu dráttum er
Grenivík, hafi numið nteira en árs-
tekjum hreppsins, en kröfurnar
voru 22,7 milljónir um áramótin. í
því tilfelli voru um 15 milljónir
krafna á ríkið vegna skólantála en
aðeins 2—3 milljónir vegna útgerð-
arfyrirtækisins Kaldbaks...
vini i hljómsveitinni Brimkló. Hún
hefur nú verið endurreist og kemur
í fyrsta skipti fram opinberlega á
nýársfagnaði veitingahússins
Broadway. Bítlavinafélagið hefur
fengið til liðs við sig fyrrum bassa-
leikara Austfjarðahljómsveitarinn-
ar Lólu...
á hefur einn hinna uppruna-
Iegu Bítlavina helst úr lestinni. Har-
aldur Þorsteinsson bassaleikari er
hættur og genginn til liðs við gamla
c
^^tóru launþegasamtökin,
Kennarasamband íslands, ASl,
BSRB og fleiri, undirbúa mikla
viku, 12—18. mars á næsta ári, þar
sem málefni fjölskyldunnar verða á
oddinum. Þetta þykir boða breyttar
áherslur í baráttu þessara samtaka,
sem síðustu misseri hefur nær ein-
göngu snúist urn krónur og aura...
v
ið heyrum að það sé víðar
skorið niður í löggæslunni en bara
í mannaráðningum almennra lög-
reglumanna. Ýmsar sérdeildir fá
víst að finna fyrir niðurskurðar-
hnífnum ógurlega á þessum siðustu
og verstu tímum og svo mun vera
nú, að til dæmis þurfi ýmsir starfs-
menn fíknieínadeildar að
taka almenningsvagn í vinnuna í
stað þess að aka í bíl í eigu hins op-
inbera eins og áður tíðkaðist . . .
r
w
Getum nú boöiö þennan fullkomna og
hentuga Bondstec örbylgjuofn á ótrúlega
hagstæðu og milliliðalausu heildsöluverði
beint til þín 18 lítra, 500 vatta, affrysting,
snúningsdiskur. Nákvæmur íslenskur
leiöbeiningarbæklingur fylgir.
Sparið tíma, fé og fyrirhöfn, með Bondstec
og lækkið um leið rekstur heimilisins.
VERÐ AÐEINS 13.850 STGR.
Opið mánudag—fimmtudag frá kl. 9—22
föstudag frá kl. 9—19
laugardag frá kl. 10—16
OPUS-VERSLUN SEM ER TIL FYRIR ÞIG.
síi
SNORRABRAUT 29
62-25-55