Pressan - 08.12.1988, Blaðsíða 15

Pressan - 08.12.1988, Blaðsíða 15
Fimmtudagur 8. desember 1988 15 spáin vikuna 11. des. — 17. des. (21. mars — 20. apríl) í fjármálaspilinu hefuröu nokkuð góó spil á hendi sem stendur. Spilaðu þó var- lega þeim spilum sem þú hefur þannig að málið flækist ekki um of. Einfaidleik- inn er oft betri kostur. Ákveðió vandamál á tilfinningasvióinu sem þú hefur átt við að glima leysist smám saman en þú verð- ur að sýna þolinmæði, enda vinnur hún þrautir allar. (21. apríl — 20. mai) HÓpuraf fólki sem hefurákaflegafast- mótaðarskoðanirog viðhprf verður til að valda þér nokkrum vandraeðum i náinni framtið. Gættu þin þó á að láta það ekki skaprauna þérof mikið. Þú getur huggað þig við að þessi vandræði eru tilfallandi. Hinsvegarbendirallt til þess að nú neyð- ist til að fresta nokkrum þeirra áætlana sem þú hafðir i huga að útfæra. ri (21. maí — 21. júni) Þú ættir að halda þér fast við sett markmiö og m.a. ættirðu ekki að láta mat freista þín um of. Einhverjar breytingar i einkalifinu eru fyrirsjáanlegar og þær ættirðu að ræða viö einhvern af vinum þinum sem þú berð fullt traust tií. Slikt samtal og umræða gæti haft nokkuð óvænt áhrif á þá þróun sem verður. Gott ráð: Sýndu viljastyrk. (22. jiíni — 22. jiiii) Hvað varðar atvinnu þina skaldu ganga til verka af raunsæi og skipulega. Ef ekki geturðu ekki gert þér neinarvonir um að komast yfir öll þau verkefni sem þú hefur á þinni könnu. Trúlegt er að þessi sömu verkefni viröist óleysanleg, en skipulagning getur breytt miklu þar um. R (23. jiilí — 22. ágiisl) Um þessar mundir gleðstu yfir því aö hafa tækifæri á að taka upp samband við gamlan vin sem þú hefurekki umgengist mikið að undanförnu. Breytingar i einka- lifinu eru yfirvofandi, standa jafnvel yfir, og þörf þin fyrir utanaðkomandi inn- blástur og uppörvun mun þar af leiðandi aukast nokkuð. 3$ (23. ágiisl — 23. sepl.) Aðstæóur þínar eru nokkuð flóknar sem stendur og þvi miklar likur á að þú gerir einhver mistök. Þess vegna verð- urðu að veraafarvarkársem stendur, sér- staklega á rómantiska sviðinu, ef þú vilt komast heill frá átökum vikunnar. Við ákveðnar kringumstæður mun maóur sem þú þekkir reyna að leggja stein i götu þína. Vertu ávarðbergi. (24. sept. — 23. okt.) Það eru töluverðar líkur á aó fjárhagur þinn muni batna svo um munar á næst- unni. Gríptu því gæsina meðan hún gefst, farðu í gang með þær breytingar á heimilinu sem þú hafðir hugsað þér að framkvæma. cC duj (24. okl. — 22. nóv.) Þú nálgast stormasamt timabil í lifi þinu. Ef þú nærð að einbeita þér aó þvi . sem mikilvægast er, skilja smáatriðin frá, muntu komast nokkuð vel í gegnum vikuna. it'S /23. nóv. — 21. des.) Ekkert kæruleysi i fjármálum i þessari viku. Hafðu taumhald áeyðslunni. Áófyr- irséðu mannamóti muntu komast í sam- band við manneskju sem getur haft mikil áhrif á nánustu framtið þina. m (22. des. — 20. janáar) Þreyta og of ,mikið álag veldur þér nokkru hugarangri um þessar mundir en þetta ætti að breytast fljótlega. Þú virð- ist hafa á tilfinningunni að verk þin njóti ekki þess skilnings og viðurkenningar sem þérfinnsf þau eigatilkall tll. Þettaer hinsvegar misskilningur hjá þér og óræk sönnun þess að verk þin njóta vió- urkenningarog velvildar kemurádaginn. Gott ráð: Berðu höfuðiö hátt. tU ■* (2i. janáar — 19. febráar) Dæmigert fyrir árstimann. Þú hefur mikiö að gera og annríkið veldur ýmsum sviptingum. Af þessum sökum er árið- andi að fara vel með tima og kraft. Frest- aðu hluta þeirraverkefna sem liggja fyrir ogeinbeittu þérþess í stað að þeim hlut- um sem alls ekki geta beðiö. (20. febráar — 20. mars) Stjörnurnarsegjafyrirum tímabil sem áaö verarómantískt. Þetta másamt ekki verða til þess að þú verðir kærulaus og leikir þér að eldinum. Alls ekki. Hugsaöu til morgundagsins og gerðu ekki neitt sem þú gætir séð eftir. Góð tíóindi munu berast þér þessavikuna, tiðindi sem gera þér léttara og varpa frá þér ýmsum áhyggjum sem þú hefur haft að undan- förnu. Fylgstu vel með manneskjum i meyjarmerkinu. í þessari viku: Vor (kona, fædd 4.4. 1939) ÖRLAGALÍNAN (1): Þessi kona vill njóta lífsins og hún veit nákvæmlega hvaö hún vill. Líf hennar gæti hafa verið örlaga- ríkt og liklega hefur hún átt erfitt með að stjórna því að öllu leyti. Þetta er viðburðaríkt líf, en virðíst sem sagt svolítið fyrirfram ákveðið. í eðli sínu er konan ástriðufull og ekki laus við stjórnsemi. lófalestur TILFINNINGALÍNAN (2): Konan er hagsýn i fjármálum og fer eigin leiðir. Það gætu hafa orðið töluverðar breytingar á starfs- og framkvæmdastefnu hennar á aldr- inum 25 til 30 ára. Annar viðburða- ríkur timi i lífi konunnar er síðan frá því að hún er39 áraog frám til 54 ára aldurs. Það sem eftir er ævinnar verður henni auðveldara skeið en hingað til, enda bendir ýmislegt til að síðustu ár hafi verið henni allerf- ið. FÆÐINGARDAGURINN: Ástin — og ástríður — skipta þessa konu mjög miklu máli í lífinu. Hún er undir sterkum áhrifum frá karl- mönnum og fær lika frá þeim mik- inn stuðning. NÆSTKOMANDI ÁR, 1989: Þetta verður gott ár i lifi þessarar konu, sérstaklega i tengslum við hvers konar ferðir og ferðalög. Það verður henni líka hagstætt i vinnu. Hún ætti hins vegar að sýna fyllstu varkární, ef hún er beðin að skrifa undir einhver skjöl, og hugsa sig vel um áðuren hún segirskoðun sina. VILTU LÁTA LESA ÚR ÞÍNUM LÓFA? Sendu þáTVÖ LJÓSRIT af hægri hendinni(nemaþú skrifirmeð þeirri vinstri) og skrifaðu lykilorð aftan á blaðið, ásamt upplýsingum um fæðingardag og kyn. ungir pennar Uppskurðir Jón Óskar Á heítum sumardegi I959 skar ævintýramaðurinn, listmálarinn og rithöfundurinn Brion Gysin blaða- greinar niður í búta, og skeytti síðan bútana saman á tilviljanakenndan hátt. Útkoman varð ekki algert bull, eins og flestir hefðu búist við, heldur þvert á móti samhangandi og fullkomlega markingarbært ljóð, sem síðar var birt undir titlin- um „Minutes to Go“. Það var meira að segja lesið upp í BBC. Gysin og bandaríski rithöfundur- inn William Burroughs unnu sam- an að fleiri slíkum tilraunum snemma á 7. áratugnum. Þeir urðu fyrstir til að nota þessa „cut-up“- tækni markvisst og í stórum stíl. Eða hvað? Við gætum bent á að slík stór- virki í bókmenntunum sem Les Chants de Maldoror eftir Lautréa- mont og The Waste Land eftir T.S. Eliot eru að miklu leyti samsull úr öðrum verkum, og að Tristan Tzara dró orð úr hatti árið 1921 og kallaði ljóð. Og þetta myndu Burroughs og Gysin ekki hika við að viðurkenna. En það er samt ekki það sem ég vildi tala um. í rauninni eru flestar hugsanir okkar „cut-ups“. Hver skynjun, hver minning er merkingarlaus í sjálfri sér. Hún öðlast ekki merk- ingu fyrr en hún hefur verið tengd við aðrar slíkar skynjanir og minn- ingar — sem aftur tengjast enn öðr- um. Þetta erum við vön að kalla hugtengsl. Við hverja nýja skynjun myndast mörg hugtengsl. Og þau eru öll til- viljunum háð. Ein þessara nýju tengsla notum við að vísu mest, vegna þess að þau eru annaðhvort gagnlegri eða kunnuglegri en hin — en þau eru samt sem áður til að byrja með alveg jafn tilviljana- kennd. Þetta er ástæðan fyrir því að til- raunatextar þeirra Burroughs og Gysins eru svo oft samhangandi og virðast búa yfir djúpri, framandi merkingu — þeir vekja einfaldlega „sofandi“ hugtengsl, tengsl sem lengi hafa verið til staðar en eru lítið notuð. En þegar búið er að skeyta þessa tilraunatexta saman á annað borð og koma þeim á pappir eru þeir í rauninni nák væmlega sama eðlis og venjulegur prósi sem við skeytum saman í huganum og skrifum svo niður. Báðir textarnir gefa einungis upp eina röð hugsanatengsla, fylgja bara einum vegi án þess að nefna allar þvergöturnar, rétt eins og þetta væri eina mögulega leiðin um þetta landsvæði. Hvernig getum við komist í kringum þennan vanda? Margir stórir gagnabankar eru skipulagðir líkt og mannshugurinn. Upplýsingum er komið fyrir í bút- um eða á „spjöldum". Ef maður kallar slíkt „spjald" fram á skerm- inn fylgja því nokkur uppflettiorð sem hægt er að nota til að kalla önnur „spjöld". Þessi uppflettiorð gegna svipuðu hlutverki i gagna- bankanum og hugtengsl hjá okkur — þau eru notuð til að mynda heil- ar hugsanir, fá samhengi i upplýs- ingarnar. Munurinn er sá að upp- flettiorðin eru mun færri, ómeð- færilegri og ósveigjanlegri en hug- tengslin. Hugsum okkur nú tölvu sem allir hafa aðgang að og hefur nær ótak- markaðar minnisgeymslur. Allir geta hætt við gagnabankann upp- lýsinguni og uppflettiorðum eins og þá Iystir. Smátt og smátt verða næstum jafnmiklar upplýsingar í bankanum og allt mannkynið tjýr yfir. Hér er þá lausnin komin. Ef niig langar að korna orðum að einhverri hugsun minni get ég byrj- að að kalla spjald fram á skerminn, litið á uppflettiorðin og fetað mig áfram skref fyrjf skref, spjald fyrir spjald. Ef mér finnst eitthvað skorta á að uppflettiorðin á spjöld- unum gefi rétta mynd af hugsana- tengslum minum breyti ég þeim bara. Þannig get ég gefið svo til ná- kvæmlega rétta mynd af hugsun minni, í það minnsta að svo miklu leyti sem ég sjálfur vil. Ég gæti líka reynt að búa til alger- lega nýjar hugsanir með því að fikra mig áfram á svipaðan hátt, en fylgja nú uppflettiorðum sem ég veit ekki hvert liggja og bæta inn nýjum sem ég veit ekki hvað merkja. Þegar jörðin og himin- geimurinn verða fullkönnuð verður ennþá eftir að kanna allar hugsanir sem leynast í gagnabankanum og bíða bara eftir að vera framkallaðar — eða búnar til, hvort sem við vilj- um heldur. ■

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.