Pressan - 08.12.1988, Síða 31
- 'l't.
Fimmtudagur 8. desember 1988
sjónvarp
FIMMTUDAGUR
8. desember
Stöð 2 kl. 16.15
ROOSTER*
Bandarísk, gerð 1982, leikstjóri
Russ Mayberry, aðalhlutverk Paul
WiUiams, Pat McCormick.
Hefðbundinn tvíeykishúmor, ann-
ar er stór og hinn lítill, passa ekki
saman, sem á að vera fyndið,
þetta er svona Gog og Gokke-stíll.
Þessir náungar sem þarna leika
löggur sem eltast við brennuvarga
tóku síðan upp samstarf í Smokey
and the Bandit-myndunum.
Stöð 2 kl. 22.15
í KLAKABÖNDUM * *
Dead of Winter
Bandarísk, gerð 1987, leikstjóri
Arthur Penn, aðalhlutverk Mary
Steenburgen, Roddy McDowell,
William Russ.
Mynd um leikkonu sem hefur átt
litlu láni að fagna, en er ráðin í
hlutverk í kvikmynd af sérvitringi
sem býr í gömlu risastóru húsi
eða kastala. Með tíð og tíma
kemst hún að því að hlutverk
hennar er annað en hún átti von
á, hún er fangi. Atburðarásin er
að vísu fremur fyrirsegjanleg, en
samt er þetta kraftmikil spennu-
mynd og flestir leikarar fara vel
með sitt.
Stöð 2 kl. 23.55
PIXOTE * * * *
Brasilísk, gerð 1981, leikstjóri
Hector Babenco, aðalhlutverk
Fernardo Ramas De Silva, Marilia
Pera, Jorge Juliao o.fl.
ísköld mynd um 10 ára glæpa-
niann í Brasilíu sem er melludólg-
ur, sniffar lím og myrðir þrjár
manneskjur áður en yfir lýkur.
Myndin er raunsærri en lífið
sjálft, dregur ekkert undan og
segir frá öllu í ömurlegri tilveru
brasilískra barna sem hvergi eiga
höfði sínu að halla og sjá sér far-
borða með glæpum ýmiskonar.
Þau eru útlagar nútímasamfélags-
ins, tilvera þeirra dregin upp úr
sorapytti. Siðferðisstandardinn
enginn og gjörðirnar eftir því.
Hrottaleg mynd, ekki fyrir við-
kvæmt fólk að horfa á. Alls ekki
fyrir önnur börn.
FÖSTUDAGUR
9. desember
Stöð 2 kl. 16.35
TÁLDREGINN *
A Night in Heaven
Bandarísk, gerð 1983, leikstjóri
John G. Avildsen, aðalhlutverk
Christopher Atkins, Lesley Ann
Warren og Robert Logan.
Segir frá kennslukonu sem fer
með vinkonum sínum á karl-
mannastripptíssjóv (gott orð). Að-
alstjarnan er nemandi hennar,
sem hún er u.þ.b. að fella fyrir lé-
lega frammistöðu. Þessi ferð dreg-
ur dilk á eftir sér. Þetta er frekar
slöpp mynd, sæmilegasta hug-
mynd sem ekki hefur verið fylgt
eftir, það eina sem stendur upp úr
er leikur Warren.
Rikissjónvarpið kl. 22.40
BLÓÐSÁTTMÁLINN * *
The Holocraft Covenant
Bresk, gerð 1985, leikstjóri John
Frankenheimer, aðalhlutverk
Michael Caine, Lilli Palmer, Ant-
hony Andrews, Victoria Tennant.
Mynd sem gerð er eftir sam-
nefndri skáldsögu Roberts Lud-
lum. Segir frá bandarískum arki-
tekt sem fær boð um að koma til
Sviss og hitta þar háttsettan
bankastjóra. Þar fær hann afhent
bréf frá föður hans, sem var hátt-
settur foringi í þýska hernum. Á
eftir fylgir eðlilega flókin atburða-
rás eins og reyfara er siður. Með-
almynd þrátt fyrir góðan hóp að-
standenda.
Stöð 2 kl. 00.05
GOTT GEGN ILLU *
Good against Evil
Bandarísk, gerð 1979, leikstjóri
Paul Wendkos, aðalhlutverk Dack
Rambo, Elyssa Davalos, Richard
Lynch.
Rithöfundur fellur fyrir konu sem
djöfullinn sjálfur hefur ákveðið
að skuli eiga barn sem hefur hið
illa í sér. Prestar og fleiri koma
við sögu í þessari heimskulegu,
yfirnáttúrulegu spennumynd.
Langt fyrir neðan meðallag.
Stöð 2 kl. 01.25
JEREMIAH JOHNSON
★ ★ ★
Bandarísk, gerð 1972, leikstjóri
Sidney Pollack, aðalhlutverk Ro-
bert Redford, Will Geer, Stefan
Gierasch.
Mynd um líf fjallabúa, sem leik-
inn er af Redford, fjallar um bar-
áttu hans við kalda vetur, indíána
og aðra fjallabúa. Því miður er
eins og myndin geti ekki gert upp
við sig hvenær og hvernig henni á
að ljúka og það eyðileggur eðli-
lega fyrir henni. Engu að síður er
hún góð og nær fram sterkri lýs-
ingu á því lífi sem einmana fjalla-
búinn lifir.
LAUGARDAGUR
10. desember
Rikissjónvarpiö kl. 21.40
KÍNARÓSIN *
The China Rose
Bandarísk, gerð 1983, leikstjóri
Robert Day, aðalhlutverk George
C. Scott, Ali McGraw.
Bandarískur kaupsýslumaður
(Scott) ákveður að fara til Kína
og leita sonar síns sem hvarf þar í
menningarbyltingunni einum sex-
tán árum fyrr. Hefði hann ekki
átt að vera Iöngu farinn? Hann
fær aðstoð kínverskumælandi
túlks (McGraw) og saman reyna
þau að Ieita drenginn uppi. Lenda
auðvitað í ótrúlegustu ógöngum
áður en yfir lýkur. Myndin er illa
heppnuð, leikaravalið misheppnað
og það er einkum það sem dregur
hana niður.
Stöð 2 kl. 21.40
SILKWOOD * * *
Bandarísk, gerð 1983, leikstjóri
Mike Nichols, aðalhlutverk Meryl
Streep, Kurt Russell, Cher.
Myndin er byggð á sannsöguleg-
um atburðum og segir frá Karen
Silkwood sem lést á óútskýrðan
hátt árið 1974. Skömmu áður
hafði hún látið mjög til sín heyra
varðandi öryggismál í kjarnorku-
verinu í Oklahoma þar sem hún
vann. Myndin tengir að sjálf-
sögðu saman þessa tvo atburði.
Myndin er nokkuð hæg en afar
vel leikin og tæknilega vel gerð.
Stöð 2 kl. 23.45
Á SÍDASTA SNÓNINGI *
Running Scared
Bandarísk, gerð 1986, leikstjóri
Peter Hyams, aðalhlutverk Gre-
gory Hines, Billy Cristal.
Þessir tveir kunnu gamanleikarar
leika löggur í Chicago sem eru
orðnar býsna þreyttar á því að
vera löggur og hafa hugsað sér að
hætta. Þeir þurfa þó að fást við
eitt mál fyrst og um það snýst
myndin eðlilega. Billy Cristal á
góða spretti í myndinni, svo er í
henni bílaeltingaleik jr sem þykir
góður. Annars er þetta bla.
Stöð 2 kl. 01.30
FORDÓMAR
Alamo Bay
Bandarísk, gerð 1985, leikstjóri
Louis Malle, aðalhlutverk Amy
Madigan, Ed Harris, Ho Nguyen.
Vel gerð en ekki nægilega áhrifa-
rík mynd sem fjallar um átök sem
áttu sér stað í raunveruleikanum
milli víetnamskra innflytjenda og
fiskimanna í Texas við Gulf-fló-
ann. Gerist á tímabilinu um og
eftir Víetnamstríðið.
SUNNUDAGUR
11. desember
Stöð 2 kl. 12.55
VIÐKOMUSTAÐUR * * *
Bus Stop
Bandarísk, gerð 1956, leikstjóri
Joshua Logan, aðalhlutverk Mari-
lyn Monroe, Don Murray, Betty
Field, Eileen O’Connell.
Myndin sem endanlega staðfesti
hæfileika Marilyn sem leikkonu.
Þessi grátbroslega kómedía segir
frá ungum, óhörðnuðum kúreka
(Murray) sem fellur fyrir söng-
konu og afræður að giftast henni,
án þess að spyrja fyrst. Góð
mynd að flestu leyti.
oe
31
Stöð 2 kl. 22.50
SUNSET BOULEVARD
★ ★ ★ ★
Bandarísk, gerð 1950, leikstjóri
Billy Wilder, aðalli/utverk Will-
iam Holden, Gloria Swanson,
Erich Von Stroheim.
Stórmynd frá gamla tímanum,
þreföld Óskarsverðlaunamynd.
Segir frá gamalli kviknrynda-
stjörnu (Swanson) sem býr ásanrt
þjóni (Stroheint) og heldur að
auki karlmann sem einskonar
elskhuga (Holden). Myndin er í
svart-hvítu, löngu orðin klassísk,
er allt í senn; bitur, fyndin og
töfrandi. Að auki var þetta
„grand finale“ hjá Gloriu Swan-
son.
Stöð 2 kl. 00.40
KRISTÍN *
Christine
Bandarísk, gerð 1983, leikstjóri
John Carpenter, aðalhlutverk
Keith Gordon, John Stockwell,
Alexandra Paul, Harry Dean
Stanton.
Absalút fáránleg mynd. Segir frá
dreng sem kaupir sér bíl sem gerir
hann geðveikan, bíllinn hefur
sjálfstæðan vilja og réttir sig
sjálfur eftir árekstra og þvíumlíkt.
Otvarpið í honum spilar þegar bíll-
inn finnur hjá sér þörf til að hlusta
eða koma einhverjum á óvart. Þarf
að segja meira?