Pressan - 15.06.1989, Side 3
Fimmtudagur 15. júní 1989
3
PRESSU
MOLAR
Q sunnudaginn verður nýtt fé-
lag, Birtingur, formlega stofnsett á
fundi á Hótel Borg. Birtingur er
áhugamannafélag fólks sem kennir
sig við jöfnuð og lýðræði og er
sprottið upp úr klofningnum sem
varð eftir uppstillingu stjórnar Al-
þýðubandalagsfélagsins I Reykjavik
á dögunum, sem útilokaði „lýð-
ræðishópinn" svonefnda. í Birting
safnast saman alþýðubandalags-
fólk, fyrrverandi allaballar og fleiri
vinstrimenn sem vilja slá á allt
klofningstal og auka samstarfið á
vinstri vængnum. Til stendur að fá
forystumann úr Alþýðubandalag-
inu til að ávarpa fundinn og í lokin
verður kosin stjórn. Heimildir
PRESSUNNAR herma að eftir-
taldir muni trúlega skipa stjórn
Birtings: Gestur Guðmundsson fé-
lagsfræðingur, Hrafn Jökulsson,
blaðamaður og sagnaritari, Kjart-
an Valgarðsson heildsali og Elisabet
Guðbjörnsdóttir . . .
v
estur í Bandaríkjunum er
Grammy-verðlaunahátíðin einhver
stærsti viðburður í popp- og djass-
tónlistarbransanum þar í landi. Nú
hefur verið samþykkt að konta á ís-
lensku afbrigði þessarar hátíðar hér
með samvinnu tónlistarmanna og
ríkissjónvarpsins. Er áætlað að há-
tíðin fari fram í haust og verða veitt
vegleg verðlaun á öllum sviðum, s.s.
fyrir besta lag, upptöku, flytjanda,
myndband o.s.frv. Þetta verður að
sjálfsögðu í beinni sjónvarpsút-
sendingu og mun yfirstjórn út-
varpsins þegar hafa samþykkt þátt-
töku RÚV í hátíðinni . . .
^5kemmtileg saga gengur um
kókainverslun í Reykjavík. Dreif-
ingarmiðstöð kókaíns var í einni af
dýrari tískuverslunum borgarinnar.
Viðskiptavinirnir, sem flestir voru
tekjuháir uppar, báðu um hvítar
silkinærbuxur þegar þeir vildu fá
einn skammt af duftinu ólöglega.
Lögreglan komst á sporið þegar
fréttist af viðskiptavinum verslun-
arinnar biðja um hálfar hvítar silki-
nærbuxur . . .
A
ftir viku hefjast heræfingar
Bandaríkjamanna á Miðnesheiði.
Nýstofnað heimavarnarlið her-
stöðvaandstæðinga mun á sama
tíma æfa á sama stað. Þá mun Al-
þýðubandalagið í Reykjavík efna til
sumarferðar á Miðnesheiði þessa
sömu helgi. Áætlanir íslendinga
ganga út á það að efna til „skipu-
legs kaos“ á vígvelli dátanna...
SÍJÖtStÖÖÍR
Glæsibæ
683.68.
V
V íða erlendis er bundið í lög
að útvarpsstöðvar skuli gæta þess
að hlutur innlendrar tónlistar i dag-
skrá fari aldrei niður fyrir ákveðin
mörk. M.a. munu Frakkar og Kan-
adamenn hafa lært slíkt í lög til að
ve'rnda innlenda tónlistarmenningu
og tungu. Hérlendis hafa hugmynd-
ir af þessu tagi oftlega skotið upp
kollinum en nú mun málið komið
lengra á veg, því átt hafa sér stað
viðræður rnilli tónlistarhöfunda og
ráðamanna útvarps um að komið
verði á þeirri reglu að helmingur alls
tónlistarefnis í dagskrá verði íslensk
tónlist. Ef af þessu verður má ætla
að vænkist stórum hagur íslenskra
tónlistarmanna . . .
1« nemandans í Tjarnar-
skóla er í mörgu hið kyndugasta.
Skólastýrurnar neituðu að útskrifa
nemandann á þeirri forsendu að
drátlarvextir af skólagjöldum væru
ógoldnir. Skólagjöld nemenda eru
hinsvegar greidd fyrirfrain og þess
vegna verður tvísýnt hvort réttmætt
er að innheimta dráttarvexti af
þeim . . .
25% VERÐLÆKKllN
í NOKKRA DAGA!
TILBOÐ A KILOPAKKNINGUM:
kr. 497,50
ÁÐLRKR.