Pressan - 15.06.1989, Síða 7
Fimmtudagur 15. júní 1989
7
TJARNARSKÓLI
Á GJÖRGÆSLU
Á fundi Fræðsluráðs Reykjavíkur á mánudaginn var
gengið til atkvæða um hvort ræða ætti málefni Tjarnar-
skóla. Skólastýrurnar höfðu hafnað beiðni fræðsluráðs
um að senda greinargerð og þrír sjálfstæðismenn í
f ræðsluráði felldu af þeim sökum beiðni um að malið yrði
rætt.
Það virðast ekki verulega skiptar skoð-
anir um Tjarnarskólamálið sem Pressan
greindi frá í síðustu viku. Málíð snerist um
réttmæti þess að neita að afhenda nem-
anda níunda bekkjar útskriftarskírteini
sitt vegna vangoldinnar skuldar á dráttar-
vöxtum að upphæð 10.230 krónur. Flestir
gömlu fjölmiðlanna, að ríkissjónvarpinu
undanskildu, hafa fjallað um málið nánast
á hverjum degi eftir að grein Pressunnar
birtist, en athygli vekur að f rjálsu f jölmiðl-
arnir virðast ekki sjá ástæðu til að taka
það upp.
„Gott að vera vitur
eftir á"
Á þeim sex dögum sem liðnir eru
síðan greinin birtist hefur Tjarnar-
skóli sætt harðri gagnrýni. Skóla-
stýrurnar, María Sólveig Héðins-
dóttir og Margrét Theodórsdóttir,
segja í Morgunblaðinu í gær, mið-
vikudag, að „alltaf er gott að vera
vitur eftir á“. En það getur verið
dýrkeypt að vanmeta stöðuna í
fyrstu atrennu. í fyrstu fréttum rík-
isútvarpsins af þessu máli í hádegis-
fréttum á föstudag var haft eftir
skólastýrunum að aðgerðir þeirra
til að innheimta skuldina hefðu ver-
ið „eðlilegir viðskiptahættir". Þau
orð kölluðu á viðbrögð ýmissa að-
ila, sama hvar í flokki þeir stóðu.
Skóli er jú skóli, ekki viðskipta-
stofnun. í kvöldfréttum ríkisút-
varpsins sama dag var haft eftir séra
Hjalta Guðmundssyni dómkirkju-
presti að hann harmaði þann at-
burð sem átt hefði sér stað í kirkj-
unni, sem lánuð hefði verið Tjarn-
arskóla til gleðistundar. Sóknar-
nefnd Dómkirkjunnar hefur ekki
komið saman til fundar eftir at-
burðinn, en í samtali við Pressuna í
gær sagðist séra Hjalti gera ráð fyr-
ir að á næsta sóknarnefndarfundi
yrði málið rætt, þá væntanlega með
tilliti til þess hvort Tjarnarskóli fái
aftur afnot af kirkjunni. Þá hefur
heyrst að Kennarasamband íslands
muni láta í sér heyra sem og nem-
endaráð grunnskóla í Reykjavík,
sem hyggst beita sér fyrir réttindum
nemenda.
Fræðsluráð tók málið
ekki fyrir!
Þegar Pressan innti Þorbjörn
Broddason, fulltrúa í Fræðsluráði
Reykjavíkur, eftir því hvort ráðið
hefði rætt málefni Tjarnarskólans
á fundi sínum á mánudaginn sagði
Þorbjörn svo ekki hafa verið: „Þeg-
ar ég sá að formaður fræðsluráðs,
Ragnar Júlíusson, hafði ekki frum-
kvæði að því að taka þetta mál upp,
óskaði ég og kennarafulltrúarnir
tveir eftir því að málið yrði rætt.
Fimmti fulltrúinn í fræðsluráði,
Kristín Arnalds, var ekki mætt á
fundinn og enginn varamaður fyrir
hana. Greidd voru atkvæði og var
beiðninni hafnað með þremur at-
kvæðum sjálfstæðismanna gegn
mínu þar sem kennarafulltrúar
hafa ekki atkvæðisrétt. Forntaður
kvaðst ekki vilja taka málið fyrir
þar sem engin gögn hefðu borist frá
skólastjórum Tjarnarskóla. Ég
benti á, og bókaði, að til væri grein-
argerð, en skólastjórarnir hefðu
hafnað því að senda hana til
fræðsluráðs. Ég tel að fræðsluráð
geti ekki látið skólastjóra Tjarnar-
skóla stöðva umræðuna með þess-
um hætti og á fastlega von á að
fræðsluráð ræði þetta á næsta
fundi.“
Undir eftirlit
menntamála-
ráðuneytisins
Morgunblaðið fjallaði um Tjarn-
arskólamálið á föstudaginn og í
gær birtist í blaðinu greinargerð
menntamálaráðherra, Svavars
Gestssonar, sem og svar skólastýr-
anna. í bréfi menntamálaráðherra
kemur fram að með öllu sé „ólíð-
andi að vanskil á skólagjöldum
komi í veg fyrir það að prófskírteini
séu afhent nemendum að loknum
níu ára grunnskóla. Það sainrýmist
ekki lögum á neinn hátt“. Ráðu-
neytið Iítur svo á að skýringar
skólastýranna séu ekki fullnægj-
andi og að það sé ekki afsakanlegt
á neinn liátt að barninu skuli hafa
verið neitað um prófskírteinið. Þá
telur ráðuneytið að skólagjöld við
Tjarnarskóla séu óeðlilega há,
87.300 krónur á nemanda síðastlið-
inn vetur. Er þess óskað að fram-
vegis verði kallað eftir afstöðu
ráðuneytisins ef talið er nauðsyn-
legt að breyta skólagjöldum. Þá er
ennfremur vinsamlega farið fram á
það við Tjarnarskóla að hann sendi
ráðuneytinu ársuppgjör fyrir skól-
ann framvegis.
í greinargerð skólastýranna sem
þær hafa sent fjölmiðlum ítreka
þær þá skoðun sína að sökin sé föð-
urins. Þær tiltaka sérstaklega að
staðfestingargjald skólaársins
1987—1988 hafi verið greitt 3. nóv-
ember 1987, en eindagi hafi verið 1.
júlí. Þær sjá hins vegar ekki ástæðu
til að nefna að staðfestingargjald
fyrir þennan vetur var greitt 19.
september 1988 eða að fyrrihluti
skólagjalda ’87—’88 hafi verið
greiddur á gjalddaga og síðari hluti
’87—’88 16. febrúar, en eindagi var
1. febr., eins og kvittanir sem
PRESSAN hefur sýna fram á.
í þeirri umræðu sem spunnist
hefur um Tjarnarskólann taka
flestallir afstöðu með nemandan-
um. Hún var niðurlægð og lítil-
lækkuð frammi fyrir skólafélögum
sínum, flækt inn i mál þar sem pen-
ingasjónarmið réðu ferðinni. í bréfi
skólastýranna sem birtist í Morgun-
blaðinu í gær beina þær þeim orð-
um til nemandans að þeim „leiðist
að hafa verið þátttakendur í deilum
sem valdið hafaþéróhamingju. Síst
af öllu áttir þú skilið að ljúka skóla-
ferli þínum með þessum hætti og
hörmum við það svo sannarlega“.
Ábyrgðin var
skólastjóranna
Nemandinn fór fram á opinbera
afsökunarbeiðni frá skólastjórun-
um og í hádegisfréttum í gær bað
María Héðinsdóttir stúlkuna af-
sökunar fyrir hönd beggja skóla-
stjóranna „á þeim þætti málsins
sem að þeim sneri“. Éftir að afsök-
unarbeiðnin hafði hljómað á öld-
um ríkisútvarpsins sagði nemand-
inn í samtali við Pressuna: „Ég er
hissa á þeim að setja ekki afsökun-
ina á prent. Mér þykir leiðinlegt að
skólastýrurnar skyldu hafa tekið
tíu þúsund krönur fram yfir sam-
vinnu og vináttu okkar sem mynd-
aðist á þeim þremur árum sem ég
var í Tjarnarskóla. Það á ekki að
þurfa að skipa skólastjórum grunn-
skóla að biðjast afsökunar á fram-
ferði sem þessu. Þær áttu að finna
það hjá sjálfum sér að biðjast fyrir-
gefningar. Þær kalla sjálfar sig
„þátttakendur" í deilum. Þær voru
ekki þátttakendur. Þær báru
ábyrgðina. Þær tóku ákvörðun um
að láta tíuþúsund króna skuld bitna
á mér. Sökin er algjörlega þeirra.“
Rekstur einkaskóla á Islandi hef-
ur verið umdeildur. Eftir atburð
sem þann sem gerðist í Dómkirkj-
unni 31. maí sl. hlýtur sú spurning
að vakna hvort ekki sé æskilegast
að ríki og borg hætti öllum afskipt-
um af Tjarnarskóla og sendi skóla-
stýrurnar „ud paa den gale vej“ eins
og einn viðmælenda Pressunnar
lagði til. Undir þau sjónarmið tekur
ritstjóri Tímans í leiðara blaðsins á
laugardaginn undir fyrirsögninni
„Valdhroki“ og segir að „úr því
þessi einkaskóli er farinn að ramma
inn sérstöðu sína og sýna eðli sitt er
ekki til of mikils mælst að stuðn-
ingur ríkisins við skólann sé endur-
skoðaður".
Foreldrar með eðlilega dóm-
greind hljóta að minnsta kosti að
íhuga vandlega hvort þeir geti hugs-
að sér að barn þeirra lendi í sömu
aðstöðu og nemandinn gerði fyrir
hálfum mánuði. Þótt framtiðin
virðist björt í upphafi skólaárs skal
haft í huga að enginn veit sína æv-
ina fyrr en öll er. AKM
ÁRSRIT
KVENRÉTTINDAFÉLAGS
ÍSLANDS 1989
ER KOMIÐ ÚT
Fæst í bókaverslunum, blaðsölustöð-
um og hjá kvenfélögum um land allt.
Kvenréttindafélag íslands
Sendum heim
sími 79011
. u.oou.m*. .. 9” 12
A. MARGHARITA Margrét 9" 12”
m/tómat, osti, oregono kr. 360,- kr. 480,-
B. ALFUNGI Sveppir m/tómat, osti, ferskum sveppum, pharmasian, oregano kr. 470,- kr. 610,-
C. VEGETALÍA Grænmeti m/tómat, osti, ferskum sveppum.
papriku, lauk, ananas, ætiþistlum kr. 560,- kr. 690,-
D. QUATROCHEES Fjónr ostar m/tómat, fjórum tegundum osta, oregano kr. 460,- kr. 590,-
E. PRIMA VERA Drottning m/tómat, osti, spægipylsu, lauk, gróðosti, oregano kr. 550,- kr. 670,-
F. BOLOGNESE Nautahakk m/tómat, osti, nautahakki.
sveppum, papriku kr. 560,- kr. 690,-
G. CASANOVA Bósi m/tómat, osti, skinku, ananas, papriku kr. 570,- kr. 700,-
H. PEPPERONE Kryddpylsa m/tómat, osti, pepperone, sveppum, lauk kr. 560,- kr. 690,-
1. QUATRO STAGIONE Fjórar árstíðir — m/tómat, osti, skinku, sveppum, rækjum, ætiþistlum. kr. 630,- kr. 750,-
J. PORTO BELLO Bryggjan m/tómat, osti, túnfiski, lauk, olifum kr. 540,- kr. 660,-
K. LA CASA Höllin
m/tómat, osti, rækjum, eggi, hvitlauk, capers kr. 540,- kr. 660,-
L. PIZZA MAFÍA Mafian m/tómat, osti, túnfiski, rækjum, kræklingi, gráðosti, ananas, ólifum kr. 700,- kr. 890,-
OFNINN
Gurduburgi 1 Siml 79011