Pressan - 15.06.1989, Side 19
19
Fimmtudagur 15. júní 1989
VID VITUM ÖLL HVAÐ ÞAÐ KOSTAR AÐ UFA.
EN SKYLDUM VIÐ OFT LEIÐA HUGANN AÐ ÞVÍ HVAÐ ÞAÐ
KOSTAR AÐ DEYJA? VARLA, ENDA VERDUM VIÐ ÞÁ EKKIHÉR
TIL AÐ HAFA ÁHYGGJUR AF KOSTNAÐINUM.
ÞAÐ ÞURFA HINS VEGAR EFTIRLIFANDIÆ TTINGJAR AÐ GERA
OG SAMKVÆMT ÚTREIKNINGIGETUR ÞAÐ ORÐID NOKKUD
DÝRTAÐ VEITA FÓLKISÓMASAMLEGA JARDARFÖR.
DÝRTA
DEYJA
EFTIR ÖNNU KRISTINE MAGNÚSDÓTTUR MYNDIR: EINAR ÓLASON
Þeir dagar eru ekki alveg liðnir
að fólk hafi hugsun á að leggja fyrir
til að eiga fyrir útför sinni. Margt
eldra fólk hefur af því verulegar
áhyggjur hvort sparifé þess hrökkvi
fyrir jarðarförinni. Sumir* þeirra
sem komnir eru til ára sinna eru svo
fyrirhyggjusamir að þeir hafa ekki
aðeins sparað fyrir kistunni og út-
förinni, heldur líka fyrir erfi-
drykkju. Gömul kona sem við frétt-
um af er svo hrædd um að spariféið
muni ekki duga þegar að því kemur
að hún hverfur héðan að hún hefur
lagt aukalega inn á aðra bankabók
til öryggis.
Yngra fólk reiknar ekki með
dauðanum sem sjálfsögðum hlut
og er því ekki jafnfyrirhyggjusamt
og gamla fólkið. Fyrir tugum ára
tryggði eldra fólk sér jafnvel lík-
klæði, sem síðan gjarnan voru not-
uð heima við ef óvænta gesti bar að
garði. Sumir hafa sérstakar óskir
um það í hverju þeir vilja láta jarða
sig. Mér er til dæmis ógleymanleg
ein hinsta ósk ömmu minnar sem
dó fyrir nokkrum árum: „Kaupið
þið svo á mig ljósbláan náttkjól áð-
ur en ég verð kistulögð. Ég get ekki
hugsað mér að verða jörðuð í hvítu,
allir spítalajakkar eru hvítir og ég
þoli ekki þann lit.“ Það þarf ekki
að taka fram að ljósblái náttkjóll-
inn var keyptur, og hann af fínustu
tegund.
Við höfðum samband við Ás-
björn Björnsson, forstjóra hjá
Kirkjugörðum Reykjavíkurpró-
fastsdæmis, og leituðum upplýs-
inga um hvað útför kostaði og
hvert ættingjar gætu snúið sér þeg-
ar jarða þyrfti. „í fyrsta lagi til
prests, en síðan er hægt að leita til
útfararstjórans hér, sem getur séð
um allt sem sjá þarf um,“ sagði Ás-
björn. Hann sendi okkur verðlista
yfir það sem til þarf, og eftir því
sem okkur reiknast til kostar á ann-
að hundrað þúsund króna að jarð-
setja, ef kostnaður við erfidrykkju,
blaða- og útvarpstilkynningar og
þakkarkort er tekinn með í reikn-
inginn.
Kista fyrir fullorðna manneskju,
160—180 cm löng, kostar 18.000
krónur. Minni kistur (120—160 cm)
kosta 12.874 krónur og þær
minnstu (70—100 cm) 8.280 krónur.
Sæng, koddi og blæja kosta 2.815
kr., stök sæng 70—100 cm 510 og
120—160 cm 1.080 krónur.
Líkklæði kosta 1.010 krónur. Einn-
ig er hægt að fá járnkistur og kostar
hver þeirra 8.340 krónur, en þær
kistur eru eingöngu notaðar þegar
senda þarf lík milli landshluta. Um-
búðir utan um kistur, sem fluttar
eru út á land, kosta 437 krónur og
grind fyrir slíka flutninga 2.408
krónur. Hjá líkkistusmiðju Eyvind-
ar Árnasonar kosta kistur 23.800
krónur í stærðunum 1.70, 1.80 og
l. 90 cm. Lengri kistur eru örlitlu
dýrari. Munurinn á þeim kistum og
þeim sem kirkjugarðarnir útvega er
m. a. sá að þessar eru af „gömlu
gerðinni“, skreyttar með gylltum
sveigum og 12 cm sökkli, auk þess
sem þær eru þykkari. Davíð Os-
valdsson, útfararstjóri hjá því fyrir-
tæki, segir að reikna megi með að
útförin kosti á bilinu 86—88.000
krónur: „Inn í þann kostnað reikn-
ast allt,“ segir hann og á þar við lík-
kistu, likklæði, líkbílinn, prests-
jþjónustu, orgelleik og söng (vana-
llegan), bæði við kistulagningu og
útför. „í þessari upphæð eru sölu-
skattur og STEF-gjöld,“ segir
hann. Davíð segir að ofan á þennan
kostnað bætist blómaskreyting á
kistuna, en hún kosti í kringum
9.000 krónur.
Þóknun prests við kistulagningu er
1.370 krónur, við greftrun og kistu-
lagningu 6.390 og greftrun án kistu-
lagningar 5.020 krónur. Ofan á
þetta gjald leggjast 950 krónur fyrir
tvær ferðir, þ.e. til kistulagningar og
útfarar.
Orgelleikur kostarmismikið. Við
kistulagningu kostar hann 2.295
krónur og við útför 3.060. Orgel-
leikur við útför ásamt undirleik
með einsöng eða einleik 4.590 krón-
ur og sama upphæð gildir ef sér-
stakur einleikur á orgel er í athöfn-
inni eða þegar flutt er kórverk eins
og Faðir vor. Ef organista er ekki
séð fyrir fari bætast við þessar upp-
hæðir kr. 337. Sérstök kóræfing
vegna athafnar kostar 2.295 krón-
ur. Sé leikið á orgelið áður en at-
höfnin hefst kostar það 2.295 krón-
ur og sé farið í heimahús eða annað
vegna umræðna og/eða ráðlegg-
inga um flutning tónlistar við at-
höfn kostar það einnig 2.295 krón-
ur.
Kórsöngur hjá kirkjukórum
kostar 1.980 fyrir hvern söngvara
við kistulagningu og útför. Ljóða-
kórinn tekur 2.258 krónur fyrir
hvern við þannig athafnir. Algengt
er að í hverjum kór séu minnst 8
söngvarar og er meðalverð því
16.000 krónur. Einleikur hljóð-
færaleikara kostar 3.424 krónur og
ópcrudeild tekur 3.986. í þessum
upphæðum öllum felast 260 krónur
fyrir ferðir.
Eríidrykkja getur kostað um 790
krónur á hvern gest, og er þá inni-
falið í því verði leiga á sal og þjón-
ustufólk.
Tilkynning í útvarpi kostar 50
krónur á orðið og dánartilkynning
í Morgunblaðinu 2.100 krónur. Hjá
DV kostar ekkert að tilkynna, séu
nöfn aðstandenda ekki undir, en sé
útbúin sérstök tilkynning kostar
hún 1.630 krónur.
Ef þakkarkort eru prentuð getur
það kostað frá krónum 4.000 upp í
7.000 (miðað við 100 kort), en slík
kort er hægt að fá fjölrituð fyrir
tæpar 2.000 krónur.
Það er því augljóslega dýrt að
deyja. Söluskattur er lagður á ýmis-
legt sem tengist útförinni, þar á
meðal á likkistur.
Útförin:
Likkista: kr. 18.000.-
Sæng, koddi, blæja: kr. 2.815.-
Líkklæði: kr. 1.010.-
Kistulagning og greftrun: kr. 6.390.-
Akstur vegna kistulagningar og útfarar: kr. 950.-
Orgelleikur við kistulagningu: kr. 2.295.-
Orgelleikur við athöfn venjul. og kórverk: kr. 4.590.-
Kór, kistul. og útför, meðalverð: kr. 16.000.-
Blómaskreyting ó kistu: kr. 9.000.-
Tilkynningar í utvarpi 3 sinnum, u.þ.b.1000 í hvert sinn kr. 3.000.-
Tilkynning i Morgunolaðinu tvisvar kr. 4.200.-
Þakkarkort, meðalverð ó prentun kr. 5.000.-
Erfidrykkja fyrir 100 manns kr. 79.000.-
Samtals meðalverð með erfidrykkju kr. 152.250.-