Pressan - 15.06.1989, Side 28
|ón Baldvin utanríkisráðherra
hefur verið í púsluspili upp á síð-
kastið og nú er spilið óðum að
smella saman. í haust standa fyrir
dyrum veigamiklar breytingar inn-
an utanríkisþjónustunnar og menn
koma heim og fara að heiman.
Meðal þeirra eru Páll Ásgeir
Tryggvason, sendiherra í Bonn, sem
kemur til starfa í ráðuneytinu hér
heima og í hans stað verður Hjálm-
ar W. Hannesson sendiherra Is-
Iands í Bonn. Kjartan Jóhannsson
fer til Genfar eins og kunnugt er og
Sverrir Haukur Gunnlaugsson
kemur heim. Sverri verða væntan-
lega falin verkefni vegna inngöngu
íslands I EB líkt og Tómasi Á. Tóm-
assyni. Menn innan utanríkisþjón-
ustunnar munu misánægðir með
breytingarnar og ekki ólíklegt að
fleiri fylgi í spor Benedikts Gröndal
og segi sendiherrastöðum sínum
lausum...
AW
eitingastaðir gera það
greinilega gott þessa dagana og
virðast ekki anna eftirspurn. Nýi
veitingastaðurinn Punktur og pasta
tekur ekki niður borðapantanir en
hafði um síðustu helgi mælst til að
gestir mættu ekki síðar en hálfátta
til að fá borð. Á þeim tíma var hins
vegar allt yfirfullt og tveggja tíma
bið eftir borði. Á öðrum veitinga-
stöðum í miðbænum var það sama
upp á teningnum; allt yfirfullt fram
að miðnætti...
1|
m síðustu helgi skemmti
hljómsveitin Smokey á Hótel ís-
landi eins og greint er frá annars
staðar í PRESSUNNI. Ekki virðist
landinn vel fjáður um þessar mund-
ir og á föstudag þótti sýnt að hálf-
tómt yrði í húsinu um kvöldið. Að-
t. standendur Hótels íslands brugðu
þá á gamla góða ráðið að senda út
boðsmiða til ýmissa fyrirtækja,
sem gripu boðið glóðvolgt. Miða-
verð á skemmtunina þótti alltof
hátt, 2000 krónur eftir kvöld-
matinn...
lerki um samdrátt er að
finna víða í þjóðfélaginu, meira að
segja hjá fjölmiðlarisanum Frjálsu
framtaki, sem gefur út á annan tug
tímarita. Fyrirtækið hefur sagt upp
starfsfólki á skrifstofu og ekki mun
ráðgert að ráða nýja aðila inn held-
ur leggja meiri ábyrgð á herðar
þeim sem fyrir eru...
lýlega var dómtekið hjá bæj-
arfógetanum í Bolungarvík málið
gegn Valdimar Össurarsyni, fyrr-
verandi sparisjóðsstjóra í Rauða-
sandshreppi. Valdimar er ákærður
fyrir skjalafals og fjárdrátt upp á
2,7 milljónir króna án vaxta (sem
geta hæglega tvöfaldað upphæð-
ina). Þessi upphæð er merkilega há
í ljósi þess að i sjóðnum áttu að vera
í heild um 6 milljónir króna og um
helmingurinn því horfinn. Ætla
mætti að stjórnarmennirnir þrír
hjá sparisjóðnum hefðu verið kall-
aðir til yfirheyrslu í dómsmálinu, en
það var ekki gert, þar sem verjanda
Valdimars þótti ekki þörf á því.
Vitaskuld lá fyrir framburður
þeirra frá því í lögreglurannsókn-
inni, en ætla mætti að ábyrgð
stjórnarinnar væri allmikil, enda á
hún væntanlega að fylgjast með því
að sparisjóðsstjórinn geri allt kór-
rétt. Meðan beðið er eftir því að
Adolf Adolfsson kveði upp dóm
sinn má geta þess að eftir að spari-
sjóðurinn var sameinaður Eyrar-
sparisjóði tók Tryggingasjóður
sparisjóða sig til og borgaði upp í
„tapið“ 3 milljónir króna...
ringlan 4 og auglýsingaskilt-
ið frá Kók voru til umfjöllunar á
fundi bygginganefndar nýlega.
Nefndin bendir á að sækja þurfti
um leyfi fyrir slíku auglýsingaskilti
— auk þess sem auglýsingar á er-
lendum málum verði ekki leyfð-
ar . . .
I
Sumartilboð
„Við tökum ekkert fyrir...
...að koma og taka gluggatjöldin niður eða setja þau upp.“
Glímunni við gluggatjöldin er lokið. Við komum til þín, tökum þau niður, förum með þau
og hreinsum þau. Svo strekkjum við þau og jöfnum falda með nýrri tölvutækni þannig að
síddin verði nákvæm. Svo pökkum við þeim inn í plast, ökum þeim heim til þín og setjum
þau upp. Gluggatjöldin verða slétt og falleg því að engin aukabrot koma í þau — hvorki
í hreinsun né flutningi. Þú greiðir aðeins fyrir hreinsunina - ekki fyrir aðra
þjónustu.
Skeifunni 11
Simi: 82220
Ókeypis þjónusta — ómæld þægindi.