Pressan - 04.10.1990, Síða 6
6
FIMMTUDAGUR PRESSAN 4. OKTÓBER
Hugbúnaóu r
KYNNIR
• AXEL bókhaldskerfi
• AXEL skólakerfi fyrir grunnskóla
• AXEL blaða- og tímaritakerfi
• AXEL stjórnkerfið
• AXEL tímaskráningarkerfi fyrir ríkisstofnanir
• AXEL atvinnuleysisbótaskráningarkerfið
• Data-Flex gagnagrunninn
• FlexOL SOL fyrirspurnakerfi
• Office Works skrifstofukerfi
• NEXOS netkerfi
Á SÝNINGUNNI TÖLVUR Á TÆKNIÖLD 3.-7. OKTÓBER
TÖLVÖLUR HF. - HÁALEUISBRAUT1 - SÍMI91 ■-679410 ■- FAX 91 -679430
A
^^Mnnar maður hefur einnig
verið nefndur sem næsti seðla-
bankastjóri: Ólafur B. Thors, for-
stjóri Sjóvár-AI-
mennra og krón-
prins sjálfstæðis-
manna í Reykjavík í
eina tíð. Ólafur var
forstjóri Almennra
trygginga fyrir sam-
eininguna, en Sjó-
vármenn hafa mikiu sterkari stöðu
innan nýja fyrirtækisins og hafa
nánast gleypt Almennar tryggingar.
Ólafur hefur verið formaður banka-
ráðs Seðlabankans og mun sem best
geta hugsað sér að yfirgefa hasarinn
í tryggingabransanum. Ef Ólafur fer
í Seðlabankann verður Einar
Sveinsson einn forstjóri Sjóvár-Al-
mennra, en hann var áður forstjóri
Sjóvár. Einar er af Engeyjarættinni,
sonur Sveins Benediktssonar og
bróðir Benedikts, sem meðal ann-
ars á sæti í stjórn Eimskipa. Eng-
eyjarættin styrkir þannig ítök sín
smátt og smátt innan margra helstu
stórfyrirtækja landsins. Því er líka
spáð að innan fárra ára verði heiti
Almennra trygginga fellt úr nafni
Sjóvár-Almennra. ..
velta fyrir sér eftirmanni Geirs heit-
ins Hallgrímssonar í Seðlabank-
anum, en það er Jón Sigurðsson
viðskiptaráðherra sem veitir stöð-
una. Samkvæmt óskráðum jögum
,,eiga“ sjálfstæðismenn stöðuna, en
Jón mun íhuga að virða það að vett-
ugi og setja Björgvin Vilmundar-
son, landsbankastjóra og alþýðu-
flokksmann, í Seðlabankann. Sig-
hvatur Björgvinsson, þingmaður
Alþýðuflokksins, tæki þá sæti Björg-
vins og um leið losnar fyrsta sætið á
Vestfjörðum. Jón Sigurðsson hefur
fullan hug á að fara í framboð
vestra, enda á hann ættir að rekja
þangað, en búast má við að þröngt
verði fyrir dyrum hjá krötum í
Reykjavík. í þessu sambandi má
minna á að Jón gaf sér tíma frá sum-
arönnum til að funda með mönnum
á Vestfjörðum...
||
l^lú hefur verið ráðinn nýr rit-
stjóri að Þjóðviljanum, blaði sósíal-
isma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyf-
ingar, Heigi Guðmundsson tré-
smiður, sem jafnframt er formaður
útgáfustjórnar blaðsins. Fyrir eru
tveir ritstjórar, Árni Bergmann og
Ólafur H. Torfason. Helgi hefur
starfað innan Alþýðubandalagsins
um árabil og er handgenginn Svav-
ari Gestssyni, Steingrími Sigfús-
syni og öðrum úr hópi helstu and-
stæðinga Ólafs Ragnars Gríms-
sonar. Ráðning Helga mælist mis-
jafnlega fyrir á ritstjórn Þjóðviljans,
enda er það opinbert leyndarmál að
hann eigi að sjá til þess að blaðið
fylgi hreinni flokkslínu þegar mikið
liggur við. Ritstjórar Þjóðviljans
þóttu ekki bregðast nógu harkalega
við framboði Nýs vettvangs í vor.
Helgi á að sjá til þess að slík mistök
verði ekki gerð aftur, svo Þjóðviljinn
geti orðið ósvikinn kosningabækl-
ingur....
... Halldór Laxness, Vigdís Finnbogadóttir, John
Lennon, Rás 2, Sigurður Sigurjónsson, Margaret
Thatcher, Alfreð Gíslason, Mao Tse Tung, Zaza Gabor,
Rás 2, Ellý Vilhjálms, Charles Chaplin, Gunna, Jón, séra
Jón, Steingrímur Hermannsson, Sigríður Rósa, Elizabeth
Taylor, Elizabeth Arden, Kalli Valli Matt, Vala Matt, Matti Jó,
Anais Nin, Neil Armstrong, Kjarval, Michael Gorbatsjov,
Rás 2, Dhalai Lama, Jón Bjarni, Jon Voight, Jón Sig-
urðsson, Jón Sigurðsson forseti, Jón Sigurðsson RE,
Neru, Njáll, Nancy Reagan, Bubbi, Rás 2, Jón Oddur,
Linda Lovelace, Búdda, Tintin, Rin Tin Tin, Tinna Gunn-
laugsdóttir ... þú, Rás 2.