Pressan - 04.10.1990, Blaðsíða 28
28
Svnishom af matseðli:
VANDAÐUR
VEITINGASTAÐUR
Á HEIMSVÍSU
SETRIÐ - Opið öll kvöld. Nýr matseðill.
Við bjóðum upp á tillöguseðii, smökkunarseðil,
sérréttaseðil og einstakan vínlista.
Setrið er opið frá klukkan 19:00 - 22:30.
Vinsamlega pantið borð tímanlega í síma 84168.
Forréttir
Kjúklingamósaik
"Tahiti" lax, leginn í kókosmjólk
Rækjuhella með engifer og soyasósu
Aðalréttir
Nautasteik úr framhrygg með Frédéric
Mistral sósu. furuhnetum og kapers
Grísasneið á möndlum með grænuni pipar.
appelsínum og Grand Marnier
Lambasneiðar úr hrygg með þistlasósu og
Madeiravíni
Tilbrigði um lúðu og hörpuskel með engifer
og greipaldini
Eftirréttir
Bjóðum í eftirrétt freistingar af osta-
og ábætisvagninum
wKC
SIGTUNI 38 • SIMI: 91-689000
H^Rýir eigendur Stöðvar 2 gáfu
Hans Kristjáni Árnasyni, sem
lengst af var stjórnarformaður fyrir-
tækisins, sólarhringsfrest til að
hreinsa skrifborðið sitt og yfirgefa
stöðina. Þar með eru nýju meiri-
hlutaeigendurnir búnir að losa sig
við alla þá sem stýrðu fyrirtækinu
fyrstu árin . ..
að heyrir til hreinna undan-
tekninga að borgarstjórnarmenn
Sjálfstæðisflokksins standi ekki
órjúfanlega saman
að ákvörðunum
undir forystu Dav-
íðs Oddssonar.
Það kom því fulltrú-
um minnihlutans
gersamlega í opna
skjöldu er Davíð
sjálfur sat hjá við atkvæðagreiðslu
meirihluta borgarráðs og lét bóka,
að hann væri andvígur afgreiðslu
máisins. Þetta merkilega mál fjall-
aði um beiðni Herlufs Clausen
kaupsýsiumanns um að aflétta kvöð
af lóðinni Bröttugötu 3—5, sem er í
hans í eigu. Hingað til hefur hluti
lóðarinnar verið svokallað grænt
svæði og hafa stofnanir borgarinnar
neitað þrálátum beiðnum Herlufs
um að aflétta þeirri kvöð, þar til nú
að meirihluti borgarráðs hunsaði
álit byggingarnefndar, borgarverk-
fræðings og Davíðs ...
imm dómarar í Hæstaréttþvoru
einróma um að dæma Jón Ottar
Ragnarsson, fyrrum sjónvarps-
stjóra Stöðvar 2, fyrir klám. Hæsti-
réttur birti dóm sinn í gær og stað-
festi þar með nær óbreytt dóm und-
irréttar. Það sem Jóni er gefið að sök
er að hafa birt alþjóð á Stöð 2 hinar
20 ára gömlu dönsku rúmstokks-
myndir, meira og minna klipptar.
Þessir sömu myndir voru sýndar á
sínum tíma í öllum bíóhúsum lands-
ins við miklar vinsældir. Nú velta
menn fyrir sér hvar öldungarnir í
Hæstarétti setja mörkin. Næst hlýt-
ur dómsvaldið að snúa sér að bíóun-
um, myndbandaleigunum, bóka-
búðunum, blöðunum og sundlaug-
unum...
sen-veldið. Sjálfstæðismenn í Kópa-
vogi vilja m.a. koma sínum manni
að og er nefndur til sögunnar Jón
Kristinn Snæhólm. Gallinn er
bara sá, að Jón var búinn að ráða sig
sem starfsmann Hreins Loftsson-
ar, sem fer í prófkjör í Reykjavík, en
Hreinn og Árni Mathiesen eru
sagðir bestu vinir...
U
■ ■ run Alþýðubandalagsins á
Austfjörðum birtist í ýmsum mynd-
um. Á aðalfund Alþýðubandalags-
ins á Fáskrúðsfirði á
dögunum, sem verið
hefur eitt höfuðvíg-
ið fyrir austan,
mættu aðeins fjórir
auk þingmannsins
Hjörleifs Gutt-
ormssonar. For-
maður félagsins kom þeirra erinda
að segja af sér og tveir komu til að
segja sig úr félaginu. Sá fjórði er
hins vegar sagður hafa komið af
gömlum vana . . .
HLUSTUM ALLAN SÓLARHRINGINN SÍMI 6818611
ramboðsfrestur fyrir prófkjör
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
rennur út á mánudag. Einn af nú-
verandi þingmönn-
um, Ragnhildur
Heigadóttir, mun
hafa ákveðið að gefa
ekki kost á sér og er
sögð ætla að til-
kynna það formlega
um helgina...
Reykjanesi er komin upp
gerbreytt staða hjá sjálfstæðis-
mönnum eftir að Matthías Mathie-
sen, alþingismaður síðan 1959, til-
kynnti að hann ætlaði að hætta
þingmennsku. Nú er sonur hans,
Árni Mathiesen, hins vegar búinn
að taka ákvörðun um að hella sér í
prófkjörsslaginn og stefnir á fjórða
sæti. Árni, sem er dýralæknir, hefur
starfað mikið í félögum ungra sjálf-
stæðismanna, meðal anna'rs verið
varaformaður SUS. Hann hefur auk
þess verið formaður handknatt-
leiksdeildar FH, þar sem Þorgils
Óttar, bróðir hans, hefur verið ein
aðalstjarnan um langt skeið. Ungir
sjálfstæðismenn í Hafnarfirði munu
styðja eindregið við bakið á Árna,
enda eiga þeir ekki fulltrúa meðal
efstu manna á lista flokksins eftir að
Matthías hættir. Árni á þannig góða
möguleika...
HMkki eru allir sjálfstæðismenn á
Reykjanesi jafnánægðir með Mathie-