Pressan - 04.10.1990, Qupperneq 9
FIMMTUDAGUR PRESSAN 4. OKTÓBER
9
Ull og lax hafa étiö upp framkvœmdasjód
ÞARF 3,6 MILLJARÐA EF
SJÓÐURINN Á AÐ LIFA
— einn milljarður horfinn í ullina og tveir milljarðar í hœttu vegna fiskeldis
Jafnvel þó litið væri framhjá
fyrirséðu tapi Framkvæmda-
sjóðs íslands vegna glataðra
útlána til fiskeldisfyrirtækja
þyrfti ríkissjóður að ieggja til
sjóðsins um 1,5 milljarða
króna til að hann geti starfað
áfram. Ef miðað er við að helm-
ingur útlána sjóðsins til fisk-
eldis tapist, sem er alls ekki
djarflega áætiað, þyrfti ríkis-
sjóður að leggja sjóðnum til
hátt í 2,5 milljarða ef ætlunin
er að hann starfi áfram.
En jafnvel þó sjóðurinn yrði
lagður niður í dag kæmist ríkis-
sjóðurekki hjááföllum. Höfuðstóll
sjóðsins var ekki nema um 420
milljónir um síðustu áramót. Lán-
veitingar hans til fiskeldisfyrir-
tækja eru hins vegar um 2 miilj-
arðar. Öll þau lán eru í hættu þó
vera kunni að einhver þessara fyr-
irtækja muni lifa. Framkvæmda-
sjóður á engan varasjóð og í af-
skriftarsjóði útlána eru ekki nema
um 80 milljónir.
Samkvæmt ofansögðu er ljóst
að Framkvæmdasjóður Islands,
sem ætlað var að verða móður-
sjóður fjárfestingarlánakerfis rík-
isins, verður innan tíðar þungur
baggi á eiganda sínum; íslenskum
skattborgurum.
Álqfoss tapoði________________
2 milljördum q rúmum
2 árum________________________
Alafoss á stóran þátt í óförum
framkvæmdasjóðs. Sjóðurinn
eignaðist gamía Álafoss árið 1971
og rak hann þar til fyrirtækið var
sameinað Iðnaðardeild Sam-
bandsins á fullveldisdaginn 1987.
Frá þeim tíma hefur tap fyrirtækis-
ins verið um 2 milljarðar króna.
Þrátt fyrir að stofnfé þess hafi ver-
ið um 750 milljónir og eigendur
þess og lánardrottnar lagt gífur-
lega fjármuni í fyrirtækið síðan er
eigið fé þess nú neikvætt um 270
milljónir króna. Álafoss á því ekki
fyrir skuldum, en er rekið áfram
með öfugan höfuðstól.
Margar skýringar hafa verið
nefndar sem ástæða þess hversu
hörmulega tókst til með samein-
ingu Álafoss og iðnaðardeildanna.
Auk vanabundinna skýringa um
slæm rekstrarskilyrði hefur verið
bent á að bæði móðurfyrirtækin
voru á leið í þrot fyrir sameiningu.
Síðan þá hefur sala fyrirtækisins
dregist saman um helming og
staða þess vérsnað.
Nú standa yfjr enn nýjar aðgerð-
ir til bjargar Álafossi. Þær munu
ekki leiða til þess að eigið fé fyrir-
tækisins verði jákvætt þó eigin-
fjárstaðan batni um 60 milljónir. Á
eftir verða skuldir fyrirtækisins
um 210 milljónum króna hærri en
eignir þess.
Tqpaði milljardi______________
q Alafo»»i
Samkvæmt áætlunum fram-
kvæmdasjóðs hefur sjóðurinn tap-
að rúmum milljarði á Álafoss-æv-
intýrinu. Hann hefur afskrifað
hlutafé sitt í fyrirtækinu og auk
þess yfirtekið skuldir þess og
gamla Álafoss._
Að öllum líkindum verður tap
framkvæmdasjóðs vegna Álafoss
enn meira þegar upp er staðið. í
ársreikningum sjóðsins eru fast-
eignir og lóðir gamla Álafoss við
Álafossveg í Mosfellsbæ skráðar á
153 milljónir. Heimildamenn
PRESSUNNAR telja ómögulegt
fyrir sjóðinn að selja þessar eignir
fyrir þetta verð. Hugsanlegt sölu-
verð sé 60 til 70 milljónir.
Ef það verð er raunhæft lækkar
höfuðstóll framkvæmdasjóðs úr
420 milljónum í 350 milljónir.
Tveir milljarðar i haottu
i fiskoldi_____________________
Eins og áður sagði hefur fram-
kvæmdasjóður lánað um 2.000
milljónir til fiskeldisfyrirtækja. Að
sögn Guðmundar B. Ólafssonar,
forstjóra sjóðsins, hafa fiskeldisfyr-
irtækin lítið sem ekkert greitt af
afborgunum sínum af lánunum.
Þess í stað hafa verið gefin út ný
lán fyrir afborgunum, vöxtum og
verðbótum.
Fiskeldisfyrirtækin eru því orð-
in svipað vandamál hjá fram-
kvæmdasjóði og loðdýrin hjá
Stofnlánadeild landbúnaðarins.
Þar hafa lán til loðdýraræktarinn-
ar hlaðist upp án þess að nokkrir
peningar komi inn á móti.
Að undanförnu hefur hvert stór-
gjaldþrotið rekið annað í fiskeid-
inu og allsherjargjaldþrot greinar-
innar virðist blasa við. í raun er
hægt að segja að öll fiskeldisfyrir-
tæki á landinu séu gjaldþrota þar
sem eignir í fiskeldisstöðvum eru
nánast einskis virði á frjálsum
markaði. Ef markaðsverð þeirra
yrði skráð inn í reikninga fyrir-
tækjanna yrðu þau þó langflest
með neikvætt eigið fé og ættu þar
með ekki eignir fyrir skuldunum.
Af innlendum lánum til fjárfest-
inga í fiskeldi á framkvæmdasjóð-
ur rétt tæplega helminginn eða
um 2 milljarða. Yfirleitt er sjóður-
inn með lán sín tryggð á fyrsta
veðrétti. Ef áframhald verður á
gjaldþrotum í fiskeldi er það hins
vegar ekki góð trygging. Hér á
landi yrði gífurlegt offramboð á
sérhæfðum húsum og tækjum til
fiskeldis. Þau yrðu álíka mikiis
virði og síldarbræðslurnar í lok
síldarævintýrisins.
Vantar qllt qð________________
3,6 milljörduni_______________
inn i sjóðinn_________________
Eins og áður sagði er höfuðstóll
framkvæmdasjóðs skráður á um
420 milljónir í reikninga hans. Ef
tekið er mið af raunvirði eignanna
í Mosfellsbæ er höfuðstóllinn
nærri 350 milljónum.
Ófyrirséð er hvert tap sjóðsins
vegna fiskeidis verður. Það getur
orðið á bilinu 500 til 2.000 milljón-
ir. Það stefnir því allt í að eigið fé
sjóðsins verði neikvætt innan tíð-
ar.
í viðskiptaráðuneytinu er nú
unnið að frumvarpi um fjárfesting-
arlánasjóði. Þar er gert ráð fyrir
að á þá verði settar svipaðar kröf-
ur og gerðar eru til viðskipta-
banka. Það þýðir að eigið fé fram-
kvæmdasjóðs þyrfti að verða um
2.050 milljónir króna.
Eins og staða sjóðsins er í dag
þyrfti ríkissjóður því að leggja um
1.650 milljónir til sjóðsins til að
hann stæðist ákvæði frumvarps-j
ins. Ef hrun fiskeldisins heldur
áfram gæti þessi fjárhæð hækkað
í allt að 3,6 milljörðum. Það er
álíka há upphæð og ríkið þurfti að
leggja út til að greiða tap Útvegs-
bankans gamla og gera hann sölu-
hæfan.
en samkvæmt heimildum PRESS-
UNNAR greiddi framkvæmdasjóður
Bergvík um hálfa milljón króna og
veitti fyrirtækinu auk þess lánafyr-
irgreiðslu.
Þó fjárhags'egur skaði fram-
kvæmdasjóðs af þessu sé ekki mik-
ill, til dæmis samanborið við rúman
milljarð sem Álafoss hefur gleypt,
sýnir þetta dæmi ótrúlega ófaglega
stjórn á sjóðnum.
Gunnar Smári Egilsson
Lúxus-laxveiðitúrar
PRESSUNNAR kostaði þessi lax-
veiði um eina milljón króna. Sú hefð
hefur skapast að erlendum banka-
stjórum viðskiptabanka fram-
Kvæmuasjoos er dooio meo asam
stjórnarmönnum og öðrum for
svarsmönnum sjóðsins.
Ekki var farið í laxveiðitúr í ár.
Samkvæmt heimildum PRESSUNN-
AR var það Össur Skarphéðins
son, stjórnarmaður og kunnur lax-
veiðimaður, sem beitti sér gegn því
Á sínum tíma var ráðgjafarfyrir-
tækið Hagvangur fengið til þess að
gera úttekt á stjórnun sjóðsins. Með-
al tillagna þess var sú að ráðinn yrði
aðstoðarforstjóri til aðstoðar Guð-
mundi B. Ólafssyni forstjóra.
Þessi nýja staða var auglýst opin-
berlega og umsóknir bárust. Hins
vegar var enginn ráðinn þar sem
stjórnin ákvað að fresta ráðning-
unni. Samkvæmt heimildum
PRESSUNNAR voru stjórnarmenn
ekki sammála um þessa ákvörðun
og mun hafa komið til atkvæða-
greiðslu á fundinum.
Þrátt fyrir gífurlegt tap sjóðsins í
þeim forsendum að þeim hefði ekki
verið gert ljóst að Jón Ólafsson
hefði forkaupsrétt.
Af málaferlum varð ekki, en mál-
ið hins vegar leyst með samkomu-
lagi. Hvorki forsvarsmenn sjóðsins
né Bergvíkur-menn vildu segja í
hverju þetta samkomulag var fólgið,
fyrra og slæma stöðu hans fóru
stjórnendurnir í hinn árlega lax-
veiðitúr. Samkvæmt heimildum