Pressan - 04.10.1990, Page 13
FIMMTUDAGUR PRESSAN 4. OKTÓBER
13
BORGARAFLOKKURINN
sem er varla neinn flokkur lengur
ÞINGFLOKKSSTYRKUR
ÁVAXTAÐUR í BANKA
OG FLOKKSMÖNNUM
KOMIÐ í EMBÆTTI
Þratt fyrir ad fylgi Borgaraflokksins sé nánast horfiö
nýtur flokkurinn styrkja úr ríkissjóöi eins og aðrir þing-
flokkar. Hann á nú á annan tug milljóna króna afþess-
um fjármunum, sem hann ávaxtar á bankabók. Nœr
engin útgáfustarfsemi fer fram á vegum flokksins þó
megnið af styrkjunum kallist útgáfu- og blaðastyrkir.
A sama tíma og fylgið hrynur afflokknum og pening-
arnir safnast fyrir í banka hafa ráðherrar flokksins verið
iðnir við að ráða kunna borgaraflokksmenn í þjónustu
ríkisins.
A meðan þessu fer fram er nánast ekkert starf innan
flokksins. Fundum er aflýst vegna lélegrar þátttöku og
jafnvel borgaraflokksmenn sjálfir viðurkenna að nánast
vonlaust sé að stilla upp listum fyrir nœstu kosningar.
Flokkurinn heldur hins vegar áfram að fá styrki og
ráðherrarnir halda áfram að skipa eða ráða borgara-
flokksmenn til ríkisins.
Einn heimildamanna PRESSUNN-
AR í Borgaraflokknum hélt því fram
að þingflokkurinn ætti nú hátt í 20
milljónir af uppsöfnuðum þing-
flokkastyrkjum inni í banka og ann-
ar heimildamaður sagði upphæðina
vera vel á annan tuginn. Þó Júlíus
Sólnes, formaður flokksins, geti
ekki tilgreint hvað flokkurinn á ná-
kvæmlega neitar hann að um svo
háar fjárhæðir sé að ræða.
„Gengið rösklogq q_________
peningq flokksins"_________
„Allir þeir peningar sem ekki eru
beint í rekstri og notkun eru auðvit-
að ávaxtaðir, það segir sig sjálft,"
segir Júlíus. „Við erum nú að fara út
í mjög umfangsmikla blaðaútgáfu
og það kemur til með að kosta okk-
ur drjúgt. En ég veit ekki í svipinn
hvað flokkurinn á af þessum pen-
ingum."
Júlíus segist ekki hafa bein af-
skipti af fjármálum flokksins. Þau
séu í höndum Guðmundar Ág-
ústssonar, gjaldkera þingflokksins
og framkvæmdastjóra hans.
°/< al kjosendum
^ ^ W Kosninqar '87
16- mm*
14- 12 Fylgi í dag
10 V A. 1/6
B 6 4 2 \ þingmaöur
1967 1988 1989 1990
FYLGISHRUN BORGARA-
FLOKKSINS Línuritið sýnir fylgis-
hrun Borgaraflokksins samkvæmt
skoðanakönnunum frá kosningum.
Táknmyndirnar gefa til kynna þing-
styrk flokksins miðað við kosningar
og fylgi í dag.
„Mér sýnist hafa gengið ansi rösk-
lega á peninga flokksins á undan-
förnum mánuðum. Við eigum alls
ekki á þriðja tug milljóna, ætli það
sé ekki nærri því að vera í kringum
tuginn, og það á venjulegri banka-
bók eða á ýmsum reikningum eftir
því til hvaða nota peningarnir eru,“
segir Júlíus.
Guðmundur Ágústsson er þessa
dagana staddur í Sovétríkjunum og
ekki reyndist unnt að ná tali af hon-
um þar.
12,5 milljónlr i styrk
frá ríkinu
.. ......—
A fjarlögum hvers ars er að finna
þrjá útgjaldaliði sem beinlínis eru
brennimerktir þingflokkunum.
Borgaraflokkurinn fær sinn skerf
miðað við þingstyrk sinn frá því
1987.
Útgjaldaliðir þessir eru „sérfræði-
leg aðstoð við þingflokka", „styrkur
til blaðaútgáfu samkvæmt tillögu
stjórnskipaðrar nefndar" og „til út-
gáfumála samkvæmt ákvörðun
þingflokka". Þessir styrkir voru sam-
anlagt um 110 milljónir á þessu ári.
Samkvæmt úthlutunarreglum var
skerfur Borgaraflokksins af Jjessari
fjárhæð um 12,5 milljónir. Á þessu
kjörtímabili öllu má búast við að
flokkurinn fái um 50 milljónir sam-
tals í styrk frá ríkinu.
Engar skorður eru settar við notk-
un peninganna og ekkert eftirlit við-
haft. Stjórnmálaflokkar greiða ekki
skatt og á þeim hvílir engin bók-
haldsskylda.
Allir fylgismennirnir__________
flúnir
í skoðanakönnunum hefur fylgi
Borgaraflokksins varla mælst að
undanförnu. Það hefur verið undir
einu prósenti allt frá því um vorið
1989. Ári á undan mældist flokkur-
inn með 2,5 til 3 prósenta fylgi en
hæpið er að það hefði skilað manni
RÁÐHERRARÁN FLOKKS. ÞeirJútíus Sólnes og Óli Þ. GuÖbjartsson
eru leiðtogar fiokks sem búinn er að glata 95 % af fylgi sínu, tveim-
ur af þingmönnum sinum og guðföðurnum, Albert Guðmunds-
syni. Framkvæmdastjórn flokksins hefur ítrekað sent þeim fyrir-
spurnir um starf og stefnu flokksins í náinni framtíð, m.a. með
ábyrgðarbréfum, en engin svör hafa borist.
ÞINGFLOKKUR MEÐ FJÁRMAGN EN ÁN FYLGIS. Eins og aðrir
þingflokkar nýtur Borgaraflokkurinn umtalsverðra styrkja úr ríkis-
sjóði, fær um 50 milljónir króna á kjörtímabilinu og ávaxtar nú á
annan tug milljóna í banka. Frá vinstri: Guðmundur Ágústsson,
gjaldkeri þingflokksins, sem annast ávöxtun peninganna, Aðal-
heiður Bjarnfreðsdóttir, sem er flutt ísambýli aldraðra á Hvolsvelli,
og Ásgeir Hannes Eiríksson, sem þessa dagana erað Ijúka skrifum
bókar um Borgaraflokkinn og Nýjan vettvang.
BORGARAR í KERFINU. Ráðherrar Borgaraflokksins hafa verið
iðnir við að koma sínum mönnum fyrir í ríkiskerfinu, enda býðst
varla annað tækifæri. Óli Þ. Guðbjartsson hefur verið öllu duglegri
við stöðuveitingarnar en Júlíus Sólnes og hefur komið ýmsum
flokksmönnum vel fyrir, bæði úr Borgaraflokknum og af lista
óháðra á Selfossi. Talið frá vinstri: Páll Líndal, ráðuneytisstjóri um-
hverfismálaráðuneytis, Jón Gunnarsson, heildsali, aðstoðarmaður
Júlíusar Sólness, Guttormur Einarsson, atvinnumálafulltrúi i um-
hverfisráðuneyti, og Björn Einarsson, fulltrúi um fangamálefni i
dómsmálaráðuneyti.
á þing. Síðustu mánuði hefur fylgið
mælst um 0,4 prósent. Það gefur um
500 atkvæði í kosningum.
Við þessar aðstæður er fátt sem
bindur félagsmenn saman. í tillögu
Brynjólfs Jónssonar á siðasta fundi
aðalstjórnar flokksins um að lands-
fundur verði haldinn í næsta mán-
uði segir meðal annars: „Samþykkt-
ir landsfundar Borgaraflokksins eru
ítrekað að engu hafðar af þingflokki
og forystumönnum" flokksins, „sí-
endurteknar, vafasamar og um-
deildar stöðuveitingar ráðherra
flokksins hafa það að markmiði að
viðhalda valdajafnvægi gamla fjór-
flokksins í stjórnkerfinu" og hann
tiltekur þrálátan orðróm „þess efn-
is, að þingflokkur Borgaraflokksins
sitji löngum stundum á lokuðum
fundum og ræði hvort og þá hvernig
þingmennirnir geti skipt eignum
flokksins á milli sín persónulega".
Tillaga Brynjólfs var felld.
Brynjólfur vildi ekki tjá sig um
ásakanir sínar við PRESSUNA en
sagði hins vegar aðspurður um pen-
ingamálin, að í vor hefði kjördæma-
ráðið í Reykjavík óskað eftir fjár-
magni frá þingflokknum vegna
framboðs, en engin svör borist. „Ef
ekki á að nota þessa fjármuni í
svona félagsstarf þá veit ég ekki
hvað á að gera við þá. Mér skilst að
þingflokkurinn sé með drjúgar fjár-
hæðir, sem safna vöxtum á ein-
hverri bankabók, á sama tíma og
starfsemi flokksins er í molum."
Júlíus Sólnes vildi ekkert tjá sig
um málflutning Brynjólfs. „Það
voru allir sammála um að vísa þessu
á bug sem staðlausum stöfum."
Flokksmönnum komið
fyrir i stofnunum ...
Brynjólfur gagnrýndi ráðherra
flokksins meðal annars fyrir vafa-
samar mannaráðningar. Lausleg at-
hugun PRESSUNNAR bendir til að
það sé ekki úr lausu lofti gripið.
A.m.k. virðist ekki saka að vera í
réttum flokki þegar menn sækjast
eftir stöðum sem þeir Júlíus og Óli
Þ. Guðbjartsson skipa í.
Einkum hefur Óli Þ. dómsmála-
ráðherra verið drjúgur við stöðu-
veitingar fyrir flokksmenn. Hann
lét búa til stöðu fyrir Björn Einars-
son við að sinna málefnum fanga.
Hann réð Guðjón Andrésson sem
forstöðumann Bifreiðaprófa ríkis-
ins. Hann réð Friðrik Hermanns-
, son sem fulltrúa í skýrslubókhaldi
hjá Lögreglustjóranum í Reykjavík,
þótt mælt væri með öðrum manni
með tölvuþekkingu. Hann gerði
Heiðar Bjarndal Jónsson að lög-
regluvarðstjóra á Selfossi, þótt mælt
væri með öðrum. Heiðar skipaði
þriðja sætið á F-lista óháðra við bæj-
arstjórnarkosningarnar í vor, en listi
sá varð til fyrir tilstuðlan Óla. Hann
gerði Skúla B. Árnason að yfirtoll-
fulltrúa á Selfossi, en eiginkona
Skúla skipaði annað sætið á óháða
iistanum.
. . . og onn öðrum i_________
raöunoyfunum_________________
Júlíus Sólnes hefur ekki haft sömu
tækifærin til að beita ráðherravaldi
sínu á þennan hátt, enda fátt um
stöðuveitingar hjá umhverfisráðu-
neytinu. Hann gerði þó Pál Líndal
að ráðuneytisstjóra þrátt fyrir and-
mæli annarra ráðherra. Þá er Gutt-
ormur Einarsson, varaþingmaður
flokksins, svokallaður atvinnumála-
fulltrúi með aðsetur í umhverfis-
málaráðuneyti.
Loks hafa ráðherrarnir tveir hvor
sinn aðstoðarmanninn. Sigurður
Jónsson aðstoðar Óla í dómsmála-
ráðuneytinu og Jón Gunnarsson
er Júlíusi til halds og trausts í um-
hverfisráðuneytinu.
Friðrik Þór Guðmundsson