Pressan - 04.10.1990, Page 24
24
FIMMTUDAGUR PRESSAN 4. OKTÓBER
íslendingar sem hafa fariö í fínustu skóla heims
Þrátt fyrir aö viö Islendingar séum ordnir langskóla-
gengnastir allra þjóöa viröumst viö ekki bera mikla virö-
ingu fyrir skólum. A.m.k. fer yfirleitt illa fyrir þeim fáu
sem hafa náö stúdentsprófi í íslenskum skáldsögum. Ef
þeir hafa ekki lagst í sollinn á Garöi í Reykjavík eöa
Kaupmannahöfn og flosnaö upp úr skóla hafa þeir tap-
aö sál sinni einhvers staöar í útlöndum og lagst í þung-
lyndi þegar heim var komiö eöa ástarvíl vegna stúlkunn-
ar sem þeir skildu eftir heima á Fróni og giftist heildsala.
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Fékk að snæða á
palli með kennurunum
„Mér leið vel þessi fjögur ár
innan um múrsteinsgula turn-
ána sem teygja sig dreymandi
til hirnins," segir Hannes Hólm-
steinn Gissurarson lektor, en
hann stundaði doktorsnám við
Collingwood í Oxford.
„Ég var gerður að félaga á
Garði, en því fylgdi smástyrkur og
öll sömu réttindi og kennarar
höfðu. Pað fól meðal annars í sér
að hafa rétt til að snæða á hápalli
með kennurum þrisvar í viku.
Þetta er ekki lítið mál í Oxford, þar
sem allt er í mjög föstum skorðum.
Menn matast gjarnan í skikkjum
og eru til dæmis jafnan í smóking
á sunnudagskvöldum."
Hannes og nokkrir félagar hans
upplifðu líka félagslíf á borð við
það sem Evelyn Waugh og fleiri
rithöfundar gerðu ódauðlegt. Þeir
stofnuðu sérstakt Hayek-félag, en
doktorsritgerð Hannesar er ein-
mitt um Frederic von Hayek, höf-
und bókarinnar „Leiðin til ánauð-
ar“.
„Við buðum til okkar þekktum
mönnum sem héldu fyrirlestra og
ræddu við okkur á eftir. Þar má
nefna Nicolai Tolstoy greifa, sem
skrifað hefur bók um Jalta-samn-
inginn, Samuel Britten, ritstjóra
Financial Times, og Anthony Flew
fræðimann.
Ég held reglubundnu sambandi
við skólafélaga mína frá Oxford.
Einn þeirra er orðinn prófessor
við Harvard og annar er prófessor
í Ástralíu, hjá þeim þriðja var ég
svaramaður í brúðkaupi sem hald-
ið var á Flórída og svona mætti
lengi telja. Veran í Oxford var dá-
samlegur tími og eitt af því besta
sem gerist í alþjóðlegu umhverfi á
borð við þetta er að menn öðlast
meira sjálfstraust og átta sig á því
að það fólk sem er að láta Ijós sitt
skína er ekkert miklu betra en
maður sjálfur," segir Hannes.
Það er því kannski ekki furða að
viðmælendur PRESSUNNAR voru
sammála um að eflaust væri ekki til
vitlausari fjárfesting á íslandi en
próf frá fínum skóla — þ.e. miðað við
móttökur atvinnurekenda.
„Það er hægt að selja þessa
menntun samkvæmt BHMR-taxta
hér heima," segir Þór Whitehead,
'sem lærði á sínum tíma í Pembroke
College í Oxford. „Það er hrikaleg
framtíðarsýn fyrir þá sem þurfa að
kosta sig sjálfir á svona skóla.“
Ekki slegist um menn
Það er nefnilega þannig að það er
dýrt að stunda nám í virtum skóla.
Skólagjöld í Oxford, Cambridge eða
svoköliuðum Ivy League-háskólum
í Bandaríkjunum eru feikihá, enda
er próf frá þessum skólum lykill að
virtum og vellaunuðum störfum er-
lendis.
Reyndar er það fátítt að íslending-
ar standi sjálfir undir kostnaðinum
við skólagöngu sína. Eins og fram
kemur í grein hér á opnunni eru
þeir sem fara í nám í dýrum skólum
í raun á styrk frá íslenska ríkinu.
Aðrir, eins og til dæmis Þór White-
head, fá styrki frá ýmsum styrktar-
sjóðum eða skólunum sjálfum.
En hvað svo sem menn vilja segja
um vaxandi stéttskiptingu hér
heima virðast íslendingar gefa lítið
fyrir þessi próf. Það er ekki bara að
þeir sem hafa þau upp á vasann telji
sig bera of lítið úr býtum:
„Það hjálpar allt þegar fólk er að
leita sér að vinnu og próf frá virtum
skóla spillir aldrei fyrir neinum, en
þetta eru mál sem ég vil skoða í
breiðara samhengi," segir Guðni
Jónsson, sem rekur samnefnda at-
vinnumiðlun. „Öll menntun er góð
en menn geta líka verið mjög klárir
án þess að hafa nein próf.“
Teitur Lárusson, sem einnig rekur
atvinnumiðlun, tekur í sama streng
og álítur enga hefð vera komna á
hér varðandi mannaráðningar úr
virtum erlendum menntastofnun-
um.
„Við erum ekki eins mikið fyrir að
flokka fólk niður eftir menntunar-
stigi og sumar aðrar þjóðir," segir
Jón Ögmundur Þórðarson, skrif-
stofustjóri í viðskiptaráðuneytinu,
en hann lagði stund á alþjóðalög við
lagadeild Harvard-háskóla. „Mér
finnst til dæmis að við megum
þakka Guði fyrir að Halldór Laxness
lauk ekki stúdentsprófi — áhugi
hans hefði þá eflaust beinst inn á
hefðbundnari brautir en ritstörf.
Sjálfsagt hefði hann aldrei fengið
Nóbelsverðlaunin."
Auðgandi fyrir gndann
En hvað fær fólk þá út úr því að
fara í fína skóla ef það fær hvorki
hærri laun né virðingu samborgar-
anna?
„Heimspekideildin við Harvard
þótti besta heimspekideild Banda-
ríkjanna áratugum saman en nú
skiptast Harvard og Princeton á um
að vera í efsta sætinu. Þetta var afar
skemmtilegur tími og félagsskapur-
inn varóviðjafnanlegur. Þarna kem-
ur fólk úr öllum heimsins hornum
og úr hverjum afkima Bandaríkj-
anna; þarna er mikið og gott félags-
líf og fólk fer lítið út fyrir skólasvæð-
ið í afþreyingarleit," segir Þorsteinn
Gylfaspn, lektor í heimspeki við Há-
skóla íslands og fyrrum nemandi
við Harvard.
Þorsteinn segir að við Háskóla ís-
lands séu próf frá Harvard og svip-
uðum menntastofnunum vel séð,
„því þar gera menn sér grein fyrir
þeim kröfum sem gerðar eru við
þessa skóla.
Vinnuharkan í heimspekideild-
inni í Harvard var ofboðsleg og á sér
eflaust engan líka í veröldinni", seg-
ir Þorsteinn.
Fleiri viðmælendur PRESSUNN-
AR minnast skólaáranna á svipaðan
hátt og Þorsteinn:
„Það var afskaplega auðgandi
fyrir andann að vera á Columbia,
þar er um háan gæðaflokk nem-
enda að ræða vegna inntökuskil-
Fínt nám er dýrt nám
Þurfa að lifa ! 252 ár til að borga námslánin
VIÐ FÓTSKÖR MEISTARANS: Stjórn Hayek-Society í Ox-
ford situr við fótskör meistarans sjálfs, Friðriks Ágústs von
Hayek; Chandrian, Kukathas, Andew Melnyk og Hannes
Hóímsteinn.
Nátn í fínum skóla er dýrt.
Þunnig þurfa námsmenn í Har-
vard-háskóla að greiða 14.500
dollara á ári í skóiagjöld eða
870 þúsund ísienskar krónur.
Þegar framfærsla samkvæmt
útreikningum Lánasjóðs ís-
lenskra námsmanna bætist við
verður kostnaður vegná náms
við Harvard um 1.540 þúsund
krónur á ári. Fimm ára nám í
Harvard kostar því um 7,7
milljónir. En Harvard er ekki
dýrasti skóli í heimi. Það unga
fólk sem fer í nám við fína
skóla er að kaupa dýra vöru.
Þetta á þó ekki við um íslend-
inga.
Lánasjóður íslenskra náms-
manna lánar námsmönnum fyrir
skólagjöldum jafnt sem fram-
færslu. Þó lánasjóðurinn kalli
þetta lán eru flestir þeirra, sem
fara í nám í dýrari skólum, í raun
á styrkjum frá íslenska rikinu.
Lánasjóðurinn setur þak á lán
vegna skólagjalda fram að BA-
prófi og lánar ekki meira en sem
svarar til 300 þúsund króna á ári.
Eftir BA-próf eru hins vegar engin
takmörk á lánveitingar vegna
skólagjalda.
Til er dæmi þess að sjóðurinn
hafi lánað nemanda skólagjöld að
upphæð 30 þúsund dollara fyrir
einn vetur eða 1,8 milljónir ís-
lenskra króna. Að viðbættri fram-
færslu hefur sjóðurinn því lánað
þessum nemanda sem svarar til
2,5 milljóna króna vegna eins árs
náms. Sex ára nám hans hefði
kostað sjóðinn 15 milljónir.
Samkvæmt reglum lánasjóðsins
greiða lántakendur aldrei meira
en 3,75 prósent af árstekjum sín-
um í afborganir af námslánum.
Maður sem hefur 100 þúsund
króna mánaðarlaun greiðir aldrei
meira en 45 þúsund krónur á ári til
sjóðsins, Frá þrítugu og fram að 67
ára aldri greiðir hann lánasjóðn-
um því um 1.665 þúsund krónur.
Það rétt dugir til að vera greiðsla
fyrir eitt ár í Harvard og skiptir þá
engu hversu lengi maðurinn var
við nám. Afgangurinn af kostnað-
inum fellur á lánasjóðinn.
Samkvæmt upplýsingum frá
Lánasjóði íslenskra námsmanna
eru nokkur dæmi til um að náms-
menn skuldi sjóðnum meira en 10
milljónir króna. Ef viðkomandi
eiga að greiða þær til baka þurfa
þeir að hafa 7,2 milljónir í árslaun
eða 600 þúsund krónur á mánuði.
Þó slík laun þekkist eru þau af-
skaplega fátið.
í raun er hægt að setja upp ótrú-
iega vitlaus dæmi um reglur Lána-
sjóðs íslenskra námsmanna. Ef
einhver þessara 10 milljón króna
manna hefur 100 þúsund króna
mánaðarlaun þegar hann kemur
út á vinnumarkaðinn þyrfti sjóð-
urinn að haida honum á lífi í 222
ár að námi loknu. Ef gert er ráð
fyrír að hann hafi íokið námi í vör,
þrítugur að aldri, má hann ekki
deyja fyrr en árið 2212, á 253. ald-
ursári.