Pressan - 04.10.1990, Page 25
FIMMTUDAGUR PRESSAN 4. OKTÓBER
25
yrðanna og til skólans veljast úr-
valskennarar," segir Guðmundur Ei-
ríksson, þjóðréttarfræðingur í utan-
ríkisráðuneytinu, en hann tók
meistaragráðu í alþjóðalögum frá
Columbia-háskólanum í New York.
Ungmennarómantik______________
En þó bandarísku skólarnir geti
skartað fleiri Nóbelsverðlaunahöf-
um og hærri skólagjöldum komast
þeir ekki með tærnar þar sem Ox-
ford og Cambridge hafa hælana
þegar kemur að hefðinni. í raun er
engin þroskasaga ungs manns á
Bretlandi fugl né fiskur ef hún lýsir
ekki dvölinni á ,,Garði“ í þessum
borgum.
,,A þessum árum minnti Oxford
ennþá á ætimynd. Menn gengu um
víðfeðmar og hljóðar götur hennar
og ræddu málin á sama hátt og þeg-
ar Newman var uppi; haustmistur
hennar, grátt vorið og hin sjaldgæfa
dýrð sumardaga hennar sem af
leggur mildan úðann af lærdómi
þúsund ára, þegar kastaníutrén eru
í blóma og klukkurnar klingja hátt
og skýrt yfir burstagöflum hennar
og þakhvelfingum."
Þannig er Oxford kynnt til sög-
unnar í bók Evelyns Waugh, Brides-
head revisited, en sjónvarpsþáttur
sem gerður var eftir sögunni tryllti
íslensku þjóðina fyrir fáeinum ár-
um.
„Maður þyrfti að vera úr steini til
að skynja ekki hve rómantísk borg
Oxford er,“ segir Þór Whitehead,
fyrrum nemandi í Pembroke Coll-
ege.
Karlrembuþióðlélag____________
En þó Þór hafi fallið fyrir róman-
tíkinni og hefðinni í Oxford hefur
hún ekki snert alla djúpt.
,,Eg var húsmóðir með börn í út-
hverfi og hugsaði mest um hvar
hægt væri að fá ódýrt í matinn
fyrstu árin mín í Oxford," segir
Astríður Pálsdóttir, doktor í erfða-
fræði, en hún dvaldi í Oxford í sjö ár
ásamt manni sínum, Páli Hersteins-
syni, doktor í dýrafræði.
„Oxford er karlrembuþjóðfélag
og ekki góður staður fyrir fjölskyld-
ur og í raun fannst mér að ekki væri
gert ráð fyrir konum þar á bæ,“ segir
Astríður.
Sumir verða eHir______________
i útlandinu __________________
En þó Astríður púi á karlaróman-
tíkina í Oxford og öðrum fínum há-
skólabæjum halda menn og konur
áfram að sækja þangað í nám.
„Það er erfitt að komast inn á
skóla á borð við Harvard, Yale og
Columbia en það er til mikils að
vinna, því eftir útskrift þaðan setjast
menn sjálfkrafa í stöður sem færa
þeim um 80 þúsund dollara árslaun
Seðlabankastiórar
fró Harvard
Reyndar mætti telja upp miklu
fleiri nemendur úr fínum skólum
sem hafa gert það gott í útlandinu.
Sumir hafa líka haft það þokkalegt
hér heima og komist langt, þó það
sé kannski ekki prófskírteinunum
að þakka. Þannig voru Tómas Árna-
son og Geir heitinn Hallgrímsson
seðlabankastjórar báðir í lagadeild
Harvard-háskóla og reyndar Hans
G. Andersen sendiherra líka. Þar
hafa líka tveir kunnir hagfræðingar
stundað nám í mislangan tíma; þeir
Benjamín H.J. Eiríksson og Jón
Baldvin Hannibalsson.
Aðalhagfræðingar íslands í marga
áratugi, Jóhannes Nordal og Jón
Sigurðsson, eru hins vegar úr Lond-
on School of Economics, sem er fínn
skóli en alls ekki einn af þeim fín-
ustu. Þaðan koma líka Svavar
„pappírstígrisdýr“ Egilsson og Ár-
mann Reynisson, sem kenndur var
við Ávöxtun, en Ármann stofnaði á
sínum tíma LSE-klúbbinn þar sem
prófskírteini úr London School of
Economics er skilyrði fyrir inn-
göngu.
En meira um það einhvern tím-
ann síðar.
Þórdís Bachmann
Smára Egilssyni.
eða tæpar fimm milljónir á ári,“ seg-
ir Guðmundur Eiríksson þjóðréttar-
fræðingur.
Og þó íslenskir atvinnurekendur
gefi ekki mikið fyrir próf úr þessum
skólum hafa margir íslendingar orð-
ið eftir erlendis og fá laun í sam-
ræmi við prófskírteinið. Þannig er
Guðmundur Alfreðsson, lagadoktor
frá Harvard, í vellaunuðu starfi hjá
mannréttindastofnun Sameinuðu
þjóðanna í Genf. í sömu borg starfar
Birgir Árnason, fyrrum aðstoðar-
maður Jóns Sigurðssonar viðskipta-
ráðherra og hagfræðingur frá
Princeton, en hann hefur ráðið sig
til höfuðstöðva EFTA.
Axel Jóhannsson, lífefnafræðing-
ur og doktor frá Cambridge, stofn-
aði að námi loknu fyrirtæki sem
fann upp og þróaði nýjar aðferðir til
sjúkdómsgreininga. Þetta fyrirtæki
hefur gengið það vel að skandinav-
íska lyfjafyrirtækið NOVA keypti
það nýverið með því skiiyrði að Ax-
el fylgdi með í kaupunum. Axel er
annar ættliður doktora frá Oxford,
því faðir hans er Jóhann Axelsson,
prófessor í lífeðlisfræði við lækna-
deild Háskóla íslands og doktor frá
Oxford-háskóla.