Pressan - 04.10.1990, Blaðsíða 26
Matthías Bjarnason
tlar aftur
^m
í framboð á
Vestfjörðum
Fjögurra manna
finnst í
Seðlabankahúsinu
— hlýtur aö hafa búið
þarna fró þvi húsið var
reist segir Jóhannes
Nordal
„véímverur
nauðguðu
mér meðan
ég svaf"
— segir húsmóðir í
vesturbænum sem lýsir
reynslu sinni í
einkaviðtali Gulu
Pressunnar
■!’(
EATíTwn ii FöV •
Flúdi kaupfélagsmenn á Þórshöfn á Langanesi
HEJ.T AD DAGAR
MINIR VÆRU TALDIR
— segir Málfrídur Jónsdóttir, sem hélt til Reykjavíkur til móts viö œttingja í gœr
Málfríður Jónsdóttir
þakkaði Guði þegar
hún sté upp í
flugvél áleiðis til
Reykjavíkur i gær
eftir ævintýralegan
flótta undan kaup-
félagsmönnum á
Þórshöfn.
Akureyri, 3. október
„Ástandið á Þórshöfn er
ólýsanlegt. Kaupfélags-
menn hafa vaðið yfir allt
sem fyrir er og eira engu.
Þeir hafa rænt öllu nýtan-
legu. Heimamenn standa
eftir slyppir og snauðir,”
sagði Málfríður Einars-
dóttir, sem kom til Akur-
eyrar á þriðjudaginn eftir
ævintýralegan flótta frá
Þórshöfn á Langanesi.
Þar hefur henni verið hald-
ið eins og öðrum heima-
mönnum allt frá því að kaup-
félagsmenn tóku plássið árið
1920. Að hennar sögn er
Þórshöfn nú orðin líkust hel-
víti. Kaupfélagsmenn hafa
rænt heimamenn öllum eig-
um sínum og svífast einskis.
Margir heimamanna hafa
gefið upp alla von um hjálp
frá umheiminum. Öll and-
staða virðist því brotin á bak
aftur.
Málfríður komst undan í
skjóli nætur og gekk einsöm-
ul eftir Meirakkasléttu þar til
kom að Kópaskeri. Flótti
hennar þykir ævintýralegur
þar sem kaupfélagsmenn
Ríkisstjórn Islands
jr
Islensk
ffegurð til
Persufléa
Reykjavík, 4. október
Ríkisstjórn íslands
hefur samþykkt að
senda fjórar flugvél-
ar fullar af kvenfólki
til átakasvæðanna
fyrir botni Persaflóa.
Þetta mun verða
framlag íslendinga til
aðgerða NATÓ-ríkj-
anna vegna innrásar
írana í Kúvæt.
„Bandaríski sendi-
herrann bar þá ósk
upp við Steingrím
Hermannsson for-
sætisráðherra að ís-
lendingar tækju þátt í
þessum aðgerðum.
Þetta var síðan rætt á
ríkisstjórnarfundi og
þar kom ég með þá til-
lögu að við myndum í
PRESSAN hefur
gert samning við
hið virta breska
vikublað The
Yellow Press. Með
honum tryggir
PRESSAN sér
einkarétt á íslandi
á fréttum blaðsins
Lesendur
PRESSUNNAR
munu þvi geta
lesið þær sama
dag og þær koma
út á Bretlandi.
stað peninga, sem
eigum Iítið af, leggja
til eitthvað sem við
eigum nóg af. Ein-
hver stakk upp á
lambakjöti og ein-
hver minntist á ís-
lenska vatnið. Þá
missti ég út úr mér að
við ættum nóg af ís-
lensku kvenfólki sem
er rómað vegna feg-
urðar. Þetta féll strax
í góðan jarðveg, enda
skilst mér af fréttum
af hermönnum þarna
í eyðimörkinni að
kvenfólk muni koma
þeim í góðar þarfir,”
sagði Olafur Ragnar
Grímsson, fjármála-
ráðherra íslands, í
samtali við Gulu
Pressuna í gær.
Hór mó sjá prufusendingu íslensku rikisstjórnarinnar.
hafa fylgst með fótmáli hverr-
ar manneskju. Rétt fyrir utan
Kópasker tók sölumaður frá
Reykjavík Málfríði upp í bíl
og keyrði hana til Akureyrar.
Þar dvaldi hún í nótt.
„Þó ég sé náttúrulega fegin
þá er hugurinn hjá þeim sem
eru enn á Þórshöfn. Ég fyllist
óhugnaði þegar ég hugsa
þangað,” sagði Málfríður og
dró upp úr veskinu slitna
mynd af bróður sínum og fjöl-
skyldu hans, en hún varð eftir
á Þórshöfn.
Að hennar ósk var hún flutt
til Reykjavíkur í gær þar sem
hún á ættingja. Hún sagðist
ómögulega treysta sér til að
dvelja á Akureyri lengur.
„Ég hef ekkert á móti
staðnum eða fólkinu. Ég veit
hins vegar að hér eru margir
stuðningsmenn kaupfélags-
ins og því finnst mér ég ekki
fyllilega örugg.”
500 dagar í markaöskerfi í Sovét
Skil þetta bara ekki
— segir Steingrímur Hermannsson, forsœtisrádherra íslands.
New York, 4. október
„Mér sýnist Gorbat-
sjov ætla að fara full-
geyst í sakirnar. Ég verð
að segja það,” sagði
Steingrímur Hermanns-
son, forsætisráðherra ís-
lands, aðspurður um
samþykkt sovéska
þingsins um að stefna að
markaðshagkerfi á 500
dögum.
„Það hefur sýnt sig hjá
okkur uppi á íslandi að það
borgar sig ekki að rasa um
ráð fram varðandi mark-
aðskerfið. Það hefur sýnt
sig að það hefur mjög al-
varleg hliðaráhrif. Það
segja mér til dæmis menn
að Sambandið væri löngu
komið á hausinn ef mark-
aðurinn fengi að ráða. Það
sama má segja um mörg vel
rekin fyrirtæki eins og Ála-
foss, Tímann og svona
mætti telja áfram. Ég hef
alltaf viljað taka ráðlegg-
ingum þeirra hagfræðinga
með varúð sem boða óheft-
an markaðsbúskap. Mér er
enn í fersku minni þegar
vextir voru gefnir frjálsir
heima á fslandi. Það kom til
mín góður og gegn sjálf-
stæðismaður um daginn og
sagðist hafa þurft að greiða
vexti af iánum sem hann
tók í banka. Það sér það
náttúrulega hver heilvita
maður að það gengur ekki
til lengdar. Enda sagðist
maðurinn alveg vera að
gefast upp fyrir vaxtaokr-
inu,” sagði Steingrímur.
Kratopresson fœðist eftir hreinsanir
Reykjavík, 4. október
Reykjavík, 4. október
I kjölfar mikilla hreins-
ana í Alþýðuflokknum í
Reykjavík tóku nýir rit-
stjórar við PRESSUNNI,
málgagni flokksins, í gær.
Talið er víst að þessar
breytingar séu undanfari
stefnubreytingar hjá
flokknum og er ljóst að
Jón Baldvin Hannibals-
son, formaður Alþýðu-
flokksins, er að treysta sig
í sessi.
„Það er kominn tími til að
Jón Baldvin Hannibalsson, formaöur Al-
þýöuflokksins, býöur nýja ritstjóra vel-
komna til starfa fyrir utan aöalskrifstof-
ur flokksins sem í framtíöinni munu
einnig hýsa flokksmálgagnið.
rödd okkar elskaða formanns
fái að ná til fólksins óbrengl-
uð af spellvirkjum endur-
skoðunarsinna," sögðu nýju
ritstjórarnir tveir í gær.
Þeir eru báðir tiltölulega
óþekktir og bendir það til
þess að Jón Baldvin vilji hafa
þæga menn við stjórnvölinn
á flokksmálgagninu þegar
hann kynnir stefnubreyting-
ar sínar.
í gær mátti sjá hvar verið
var að fjarlægja myndir af rit-
stjórunum fyrrverandi af
veggjum flokksblaðsins og
skrifstofu flokksins. Ekki er
vitað hvar ritstjórarnir fyrr-
verandi eru niðurkomnir.